Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Karen segist hafa sent gögnin frá Creditinfo í trúnaði: „Mér finnst búið að snúa út úr þessu“

Karen segist hafa sent gögnin frá Creditinfo í trúnaði: „Mér finnst búið að snúa út úr þessu“
Karen Elísabet Hall­dórs­dóttir

Karen Elísabet Hall­dórs­dóttir, sem sæk­ist eftir því að leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Kópavogi, seg­ist ekk­ert erindi hafa fengið frá Per­sónu­vernd vegna dreif­ingar á upp­lýs­ingum frá Creditinfo, um skulda­stöðu trún­að­ar­manns innan flokks­ins. Hún telur sér­stakt að málið sé dregið fram á þessum tíma­punkti, rétt fyrir próf­kjör.

Vísir greindi frá mál­inu í morgun. Þar segir að Karen hafi verið kærð til Per­sónu­verndar af téðum trún­að­ar­manni vegna dreif­ingar á gögnum um hann. Á Vísi er það reifað hvernig Sveinn Andri Sveins­son, lög­maður, hafi flett við­kom­andi trún­að­ar­manni upp hjá Credit Info, að beiðni Halldórs Jóns­sonar, umbjóð­anda Sveins Andra og föður Karenar. Halldór hafi síðan komið gögn­unum til Karenar sem hafi því næst dreift þeim áfram.

Segir rangt að tala um dreifingu

Karen segir í sam­tali við Mannlíf ákveðna rang­færslu fel­ast í því að tala um dreif­ingu gagn­anna. „Þetta lýtur að hlut­höfum og stjórn í félagi og ég er sjálf hlut­hafi. Ég sendi í raun­inni upp­lýs­ingar á þeim grund­velli, á trún­að­ar­menn. Svo er, að mér finnst, svo­lítið búið að snúa út úr þessu. Enda sjáum við að tíma­setn­ingin er dálítið áhuga­verð, eins og lög­mað­ur­inn minn bendir á.“

Lögmaður Karenar er Ómar R. Valdi­mars­son. Hann sagði í sam­tali við Vísi að því væri „alfarið hafnað að Karen hafi brotið gegn rétt­indum þessa til­tekna ein­stak­lings.“ Hann vakti athygli á því að verið væri að draga málið fram á þessum tíma­punkti, rétt fyrir próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kópavogi, en málið kom upp í ágúst á síð­asta ári.

Trún­að­ar­mað­ur­inn sem um ræðir var á van­skila­skrá og á Vísi segir að málið hafi snú­ist um það hvort hann væri hæfur til þess að sitja í stjórn félags sem hefur ákveðin umráð yfir eignum Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kópavogi.

Creditinfo telur brotið gegn skilmálum

Creditinfo hefur nú sent Per­sónu­vernd bréf vegna máls­ins. Fyr­ir­tækið telur Svein Andra hafa brotið gegn áskrift­ar­skil­málum fyr­ir­tæk­is­ins og hefur aðgangi hans nú verið lokað vegna mis­notk­unar. Er það vegna þess að Sveinn Andri hafi ekki getað gefið full­nægj­andi skýr­ingar á þeim meintu lög­vörðu hags­munum sem lágu að baki upp­flett­ing­unni og afhend­ingu gagn­anna til Halldórs Jóns­sonar.

Halldór, faðir Karenar, er verk­fræð­ingur og bæði með­stjórn­andi og eig­andi Þorra ehf. fast­eigna­fé­lags. Hann hefur löngum verið áhrifa­maður í stjórn­málum í Kópavogi. Hann er gjarnan kenndur við Mogga­blogg, en þar hefur hann birt hina ýmsu umdeildu pistla. Sveinn Andri kom gögn­unum frá Creditinfo til Halldórs, umbjóð­anda síns, að beiðni þess síð­ar­nefnda, á þeim grund­velli að gögnin ættu erindi við almenn­ing.

Karen er í hörðum slag um odd­vita­sæti Sjálf­stæð­is­manna í Kópavogi við mótherja sinn, Ásdísi Krist­jáns­dóttur. Sú síð­ar­nefnda er aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Á Vísi er sagt frá því að ein­stak­ling­ur­inn sem telur Kareni hafa brotið á sér með dreif­ingu gagn­anna frá Creditinfo sé í stuðn­ings­manna­liði Ásdísar og hafi gegnt hinum ýmsu trún­að­ar­störfum innan Sjálf­stæð­is­fé­lags­ins í Kópavogi.

Sveinn Andri Sveins­son lög­maður. Mynd/ Rakel Ósk Sig­urð­ar­dóttir

Hefur ekki fengið tilkynningu frá Persónuvernd

Karen seg­ist í sam­tali við Mannlíf ekki viss um að það sé rétti tím­inn til þess að tjá sig efn­is­lega um málið á þessum tíma­punkti, rétt fyrir próf­kjör. „Ég mun kannski frekar stíga fram þegar því er lokið, með þá feril máls­ins og sög­una af því öllu.“

„Ég er hlut­hafi og sendi í trún­aði upp­lýs­ingar á stjórn. Við mig er þá aug­ljós­lega ekki hald­inn trún­aður. Ég tel mig vera ábyrgan hlut­hafa. Svo er þessu snúið upp í þetta núna, korter í kosn­ingar. Mér finnst það sér­stakt. Ég tel að það sé ekki rétt að vera að fara í málið í heild sinni á þessum tíma­punkti,“ segir hún.

Karen heldur áfram. „Ég tel það mik­il­vægt, í ljósi fyr­ir­sagnar á Vísi, að taka það fram að ég hef ekki fengið neina til­kynn­ingu frá Per­sónu­vernd.“

Aðspurð hvort hún hafi sann­ar­lega talið upp­lýs­ing­arnar um trún­að­ar­mann­inn eiga erindi við almenn­ing áréttar Karen að hún hafi sent þær á trún­að­ar­menn. „Bara í trún­aði. Síðan fer þetta svona.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við