Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Foreldrar metnir jafn hæfir í forsjármáli – „Meðal gesta var besti vinur, dæmdur barnaníðingur“

Foreldrar metnir jafn hæfir í forsjármáli – „Meðal gesta var besti vinur, dæmdur barnaníðingur“

„Ég fæ for­sjána, en það var í raun­inni dóm­ar­inn sem sá í gegnum málið, ég var bara heppin,“ segir móðir í við­tali við Mannlíf, en hún vill ekki láta nafns síns getið.

Móðirin er ein þeirra sem hafa gagn­rýnt vinnu­brögð mats­manna í for­sjár­málum, en hún og börn hennar gengu í gegnum erf­iða tíma eftir að mats­maður taldi móður og föður jafn hæf. Kom á dag­inn að áhyggjur móður reynd­ust rétt­læt­an­legar þegar Barnahús stað­festi að börnin hefðu orðið fyrir kyn­ferð­is­broti af hálfu föður. Mats­maður hafi gert lítið úr áhyggjum móður meðan á mats­gerð­inni stóð.
„Þetta byrjar með skiln­aði og ég losa mig úr alveg hrika­legu ofbeld­is­sam­bandi og þetta fer í for­sjár­mál, þannig kemur mats­mað­ur­inn að mínu máli,“ segir móð­irin, en mats­gerðin, sem er orðin tíu ára gömul, hefur enn áhrif á líf hennar og barn­anna.

Hún seg­ist hafa lýst áhyggjum af kyn­ferð­is­brotum af hálfu föður, en að mats­mað­ur­inn hafi með engu móti skoðað það.
„Börnin lýsa ákveðnum atvikum og ég segi frá því og það er algjör­lega skautað fram hjá því. Hann í raun­inni dustar því út af borð­inu með engum rökum.“
Síðar hafi börnin farið í Barnahús þar sem ofbeldið var stað­fest, en það var mikið áfall fyrir móður. „Það er stað­fest í Barna­húsi af sál­fræð­ingi, að hann hafi brotið kyn­ferð­is­lega á börn­unum og börnin hafa í dag algjör­lega rofið tengsl við hann út af ofbeld­inu,“ segir hún og bendir á að mikið ósam­ræmi sé milli mats­gerð­ar­innar og því sem mats­mað­ur­inn seg­ist standa fyrir. Móðirin seg­ist hafa upp­lifað mörg áföll í kringum þennan tíma, en börnin voru send til föð­ur­ins í mán­að­ar­dvöl þrátt fyrir að hafa greint frá því að þeim liði ekki vel í hans umsjá. Meðan á dvöl­inni stóð gat móð­irin ekki haft neitt sam­band við börnin, en fað­ir­inn tók þær einnig úr leik­skóla á þessum tíma. Þegar dvöl­inni hjá föð­urnum var að ljúka hafði mats­mað­ur­inn sam­band við móð­ur­ina.

„Daginn sem ég fæ börnin til baka eftir fjórar vikur þá seg­ist hann (mats­mað­ur­inn) vilja sjá mig með börn­unum þann dag, og var rosa­lega ýtinn með það. Hann vildi koma inn á heim­ili mitt og sjá mig með börn­unum þann dag sem ég fékk þau til baka eftir þennan tíma. Maður hafði nátt­úr­lega ekki hug­mynd um í hvaða standi börnin voru, þetta hefði getað verið alls konar.“ Bætir hún við að mats­mað­ur­inn hafi setið klukku­tímum saman og hún hafi hugsað með sér hvort hann ætl­aði aldrei að fara.
„Svo segir í mats­gerð­inni að börn­unum líði vel hjá móður. Hefðu börnin verið í ójafn­vægi þennan dag, sem þau komu til baka eftir fjórar vikur þá hefði hann lík­lega sagt að börn­unum liði ekki vel hjá móður, skil­urðu hvað þetta er „twistað“?“

Í það skipti sem mats­mað­ur­inn fylgd­ist með börnum í umsjá föður voru aðstæð­urnar gjör­ó­líkar og telur móð­irin vanta mikið upp á að jafn­ræðis hafi verið gætt.

„Ég hélt að þetta ætti að vera jafn leikur en það var ekki. Þegar hann fylgd­ist með börn­unum hjá föður þeirra, þá fór hann í smá tíma í eitt­hvert garð­partí hjá föð­urnum, utandyra, þar sem var fjöldi fólks og líka börn,“ segir hún og bætir við að meðal gesta hafi verið besti vinur föð­ur­ins, en sá er dæmdur barn­a­níð­ingur. Hún hafi einnig greint mats­mann­inum frá honum. Móðirin hafði ekki getað gagn­rýnt vinnu­brögðin fyrr en hún fékk mats­gerð­ina í hend­urnar, en hafði sam­band við mats­mann­inn þar sem að henni þótti und­ar­legt að ekk­ert hefði verið rætt við for­eldra hennar.

„Hann var í raun­inni að klára mats­gerð­ina þegar ég hringdi í hann og bað hann um að þau fengju að segja sína hlið líka.“ Frásögn kær­ustu föður fékk mikið pláss í mats­gerð­inni, en einnig var rætt við for­eldra hans. Þá segir móð­irin að hún hafi hrein­lega verið heppin að dóm­ar­inn hafi séð í gegnum kröfur föð­ur­ins, mats­gerðin hafi verið slá­andi.
„Hann mat okkur í raun­inni nán­ast jafn hæf þrátt fyrir þessa ofboðs­legu ofbeld­is­sögu.“
Aðspurð hvað mats­maður hafi sagt við lýs­ingu móður á kyn­ferð­is­broti svarar hún:

„Hann segir þá að í heima­landi hans(föð­urs) sé þetta eðli­legt.“

Faðir barn­anna hafi einnig sent börnin í gist­ingu til vinar síns sem var dæmdur barn­a­níð­ingur, án vit­undar móður. Það hafi verið gríð­ar­legt áfall að kom­ast að því, en hún bætir því við að frá­sögnin varpi aðeins ljósi á lítið brot af því sem fór fram. „Ég er bara að segja þér brot af því sem fram fór.“

Mannlíf hefur síð­ustu vikur fjallað um for­sjár­mál og verk­lag mats­manna í slíkum málum, en sumar aðferðir sem þeir nota við mats­gerð eru afar umdeildar. Þá sagði reynslu­mik­ill sál­fræð­ingur í við­tali við Mannlíf í síð­ustu viku að málið væri svartur blettur á sál­fræð­ingum. Rétt er að taka fram að mats­maður í mál­inu hér að ofan er sá sami og í máli Bryn­dísar Ásmunds­dóttur sem hefur mikið verið fjallað um í fjöl­miðlum að und­an­förnu. Mannlíf mun halda áfram að kafa ofan í verk­lag og reglur sem snúa að mats­mönnum í for­sjár­málum á kom­andi miss­erum. Slíkt hefur verið reynt áður, en sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs hefur það fallið í grýttan jarð­veg víða innan stétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina