Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Deilt um verklag matsmanna í forsjármálum: „Þetta er bara svartur blettur á okkur“

Deilt um verklag matsmanna í forsjármálum: „Þetta er bara svartur blettur á okkur“
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur. Mynd / Aldís Páls­dóttir|Ragnar Þór Ing­ólfs­son

„Gott að þú sért að skoða þetta,“ sagði reyndur sál­fræð­ingur á dög­unum í sam­tali við Mannlíf er hann var spurður út í áreið­an­leika per­sónu­leika­prófa. Sál­fræð­ing­ur­inn vill ekki láta nafn síns getið af per­sónu­legum ástæðum en sagði hann per­sónu­leika­próf vera hluti af þörf fólks fyrir að skil­greina en má rekja hana aftur til forn­grikkja. Þar var kenn­ingin sú að hægt væri að greina karakter út frá útliti fólks en á nítj­ándu öld tók við önnur kenn­ing, svokölluð höf­uð­lags­fræði.

„Þeir töldu sig geta mælt stöðu augna og eyrna upp á milli­metra og út frá þessu var hægt að sjá fyrir um per­sónu­leika fólks,“ sagði hann og bætti við að eitt sinn hafi vís­indin verið svona en nú til dags sé hlegið af þessu.
„Nú á 20. öld­inni er farið að spá fyrir með per­sónu­leika­prófum, þessi próf eru öll þannig að þetta er bara glás af spurn­ingum, þær eru lagðar fyrir stóran hluta fólks og ur því verða til ein­hver við­mið. Það eru svo þessir svar- prófílar og við­mið byggð á þeim sem eru notuð – þar með talin í for­sjár­málum.“

Sagði hann stað­reynd­ina vera að notkun próf­anna gríð­ar­lega umdeilda.
„Við getum ekki slegið neinu föstu til dæmis um for­eldra­hæfni, tel ég.“
Taldi hann einnig mik­il­vægt að hafa það hug­fast að megin deilan innan per­sónu­leika­sál­fræð­innar væri hvort að per­sónu­leika­þættir séu stöðugt fyr­ir­bæri. Sem dæmi varp­aði hann fram þeirri spurn­ingu hvort nið­ur­staða per­sónu­leika­prófs­ins yrði sú sama ef ein­stak­lingur tæki prófið í dag og svo aftur eftir 10 ár.

„Það er eng­inn botn kom­inn í þessa deilu, hversu stöðugt fyr­ir­bæri er per­sónu­leiki og það er mjög margt sem bendir til þess að hann sé óstöð­ugur“.
„Þegar þú ert að tala um þetta út frá for­sjár­hæfn­is­möt­unum, hvaða áhrif hefur það á það hvernig per­sónu­leiki konu mælist ef hún hefur búið við það að vera barin í 10 ár. Hvernig kemur það út a svona prófi og er það að hafa orðið fyrir ofbeldi með barn­inu talið gegn henni?“.

Ekkert per­sónu­leika­próf­anna hefur verið staðlað á Íslandi og taldi sál­fræð­ing­ur­inn prófin ekki eiga erindi í for­sjár­hæfni­deilum.

„Er þetta rel­evant í for­sjár­hæfn­is­deilu? Stutta svarið við því er bara nei og þá komum við að því sem er að mínu mati mjög gagn­rýni­vert við kollega mína sem eru að gera þessi möt og rétt­ar­farið í kringum mötin.“

Dómskvaddir mats­menn.
„Þá er sál­fræð­ingur og stundum geð­læknir, í raun komin með völd dóm­ara og það er ekk­ert eft­ir­lit með því hvernig þeir gera þetta, það er ekk­ert eft­ir­lit með því hvaða  tæki þeir nota og dóm­stóll­inn er síðan ekki með neinar for­sendur til þess að yfir­fara vinnu­brögðin, þetta er alveg kreisí,“ sagði hann en á 17 ára ferli sínum hefur hann unnið með ótal mörgum bæði á geð­deild, heilsu­gæslu og fleiri stöðum.
„Ég er bara búinn að hitta  svo margt fólk sem að segir farir sínar ekk­ert sléttar af sam­skiptum við þessa mats­menn.“
„Einhver sem hittir konu í tveggja tíma við­tali og slær því svo á fast eftir þetta við­tal að hún sé border line – hann getur það ekki. Fyrir utan það að við erum hægt og rólega að hætta að nota hana(border line grein­ing­una).“
„Rétt­ar­gæslu­kerfið er mikil mjólk­ur­kýr fyrir þennan hóp sér­fræð­inga, þannig að þetta er bara svona kimi í rétt­ar­kerf­inu sem eng­inn sér inn í og það eru ekki sam­ræmd vinnu­brögð eða neitt,“ bætti hann við að hann myndi ekki vilja snerta þetta með priki.
Sál­fræð­ing­ur­inn sagði að þung­lyndi, áfallastreituröskun og álíka sjúk­dóma eða grein­ingar væri hægt að með­höndla og ættu ekki að ráða úrslitum um for­eldra­hæfni.

„Bottom line-ið er þetta – Það á sér stað við­tal og þetta við­tal er alltof stutt og alls ekki nægi­lega ítar­legt til þess að út úr því komi full­nægj­andi mat á for­sjár­hæfni. Og hvað er þá gert? Þá er lagt fyrir próf, út úr því koma staðl­aðar nið­ur­stöður en nið­ur­staðan er síðan túlkuð til þess að ljá því meiri trú­verð­ug­leika sem að hafi þegar verið ákveðið, þetta er svona spá­konu effect.“

Segir aðferð­ina vera svartan blett á stétt­inni.
„Þetta er bara svartur blettur á okkur, að gera þetta svona. Það er gott það er verið að taka þetta upp. Það er svo sorg­legt og merki­legt hvað þetta gengur hægt,“ sagði hann og hrós­aði þeim bar­áttu­sam­tökum sem hafa barist fyrir konum sem þolendum ofbeldis og einnig þeim sem rýna í mál eins og þessi.

„Hópur sál­fræð­inga á Íslandi er svo lít­ill og þegar maður fær upp­lýs­ingar um að ein­hver sem maður treysti alveg sé bara ekki trausts­ins verður –  þetta er bara eins og þegar kemur upp ein­hver skandall í fjöl­skyld­unni. Ekki það að ég myndi aldrei velja að standa með mats­manni sem er að gera eitt­hvað svona hæpið.“
Sagði blaða­maður það gleði­efni að fólk skoði þessi mál og þá sér­stak­lega þeir sem þekkja til.
„Þetta er stækk­andi hópur sem er alveg búinn að fá nóg af þessu. Þetta mjakast,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi