Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Elín Hirst fjölmiðlakona lítur um öxl: „Það voru allir grátandi. Vigdís líka“

Elín Hirst fjölmiðlakona lítur um öxl: „Það voru allir grátandi. Vigdís líka“
Elín Hirst

„Það er mjög sjald­gæft að sitj­andi þing­maður fái ekki braut­ar­gengi. Ég held ég hafi ekki passað inn í. Þegar Bláskjár var kom­inn þá var hann ekki ofsa­lega hollur,“ segir Elín Hirst fjöl­miðla­maður í við­tali við Reyni Trausta­son en hún var alþing­is­maður Suð­vest­ur­kjör­dæmis 2013–2016 og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var hennar flokkur.

Hver voru upp­hafin að stjórn­mála­ferl­inum? Hún segir að þegar hún hafði skrifað greinar í Morg­un­blaðið um Kínverja og hún héldi að þeir væru að seil­ast til áhrifa á Íslandi varð­andi kaup á jörðum og vatns­bólum þá hafi ein­hver komið til sín og spurt hvort hún vildi ekki fara út í póli­tík; hún hafði fyrir þennan tíma hætt hjá RÚV og var búin að skrifa tvær bækur og hafði fram­leitt mynd og þá hafði það verið spurn­ingin hvað hún ætti að fara að gera. Og hún ákvað að gefa kost á sér fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

„Ég fékk 5. sætið í Suð­vest­ur­kjör­dæmi; fór í próf­kjör og örugg­lega náði langt út á and­litið. Ég var þekkt nafn. Ég hefði örugg­lega aldrei náð þessum árangri í próf­kjöri nema út af því.“

Samt gaf ég kost á mér aftur.

Hvernig kunni hún við þetta?

„Eftir á að hyggja er þetta mjög mik­il­vægur partur af skóla lífs­ins að hafa farið þarna inn. Það er ofsa­lega skrýtið að koma inn eftir öll þessi ár á vinnu­mark­aði og hrein­lega vera algjör byrj­andi. Ég fann mjög mikið fyrir því og það tók mig heilt ár að læra und­ir­stöðu­at­riðin varð­andi störf þings­ins; hvernig þingið vinnur og hvernig best sé að vinna til að koma ein­hverju áfram. Þetta er svo flókið kerfi. Hið lýð­ræð­is­lega kerfi er svo flókið og stundum finnst manni það hæg­fara og það þarf að passa svo vel upp á öll sjón­ar­mið. Ég myndi segja að ég hafi aldrei fundið mig þarna almenni­lega. Samt gaf ég kost á mér aftur. Ég myndi alls ekki hafa viljað missa af þess­ari reynslu; ekki fyrir nokkurn pen­ing.“

Það var ekk­ert kem­i­strí.

Elín er þá ekk­ert últra-Sjálf­stæð­is­maður?

„Nei. Ég hélt að þetta væri breið­ari hreyf­ing sem hefði gaman og gott af því að heyra nýjar raddir og vilja höfða til breið­ari hóps, stétt með stétt. Enda fannst mér allt svo fal­legt og gott og það eru engin við­skipti góð nema að báðir fari jafn­gl­aðir frá borði; alls konar svona frasar sem ég var að lesa eftir gamla for­ingja flokks­ins. Þarna kom á dag­inn að mínar hug­myndir um póli­tík og flokks­ins og for­ystu hans fóru ekk­ert saman. Það var ekk­ert kem­i­strí þarna á milli. Það er svo skrýtið að þeir sem eru svona dygg­ustu stuðn­ings­menn flokks­ins og mæta á alla fundi hafa gríð­ar­lega mikil áhrif; ekki þessi massi sem er að kjósa heldur fólk sem er í þessu af lífi og sál án þess að vera sjálft í póli­tík. Það skiptir öllu máli að maður kunni að vinna með því. Þetta er fólk sem er í þessu af lífi og sál og hefur ofboðs­lega sterkar skoð­anir og er miklir stuðn­ings­menn sinna manna. Það er ekki vel séð ef ein­hver gengur ekki alveg í takt. Og mér finnst stundum eins og þetta sé jafn­vel kannski drag­bítur; þetta er kannski ekki það sem er best fyrir þing­flokk­inn að svona sé málum komið. Það er betra fyrir þing­flokk­inn að vera með alls konar fólk inn­an­borðs.“

Elín segir að eitt af því sem hafi vantað var að hún var ekki inn­an­búð­ar­maður. „Það hringdi aldrei neinn í mig og ég frétti alltaf allt ein­hvers staðar úti í bæ.

Íslensk póli­tík er engin flokkapóli­tík; þetta snýst fyrst og fremst um auð­lind­irnar og kannski svo­lítið um skatt­ana en samt ekki vegna þess að við erum eig­in­lega öll sam­mála um að við viljum heil­brigð­is­kerfi, mennta­kerfi, vel­ferð­ar­kerfi og svo fram­vegis; við erum óskap­lega demokrat­ísk.“

Allir grátandi

Elín er meðal ann­ars með háskóla­próf í frétta- og blaða­mennsku frá banda­rískum háskóla og byrj­aði fjöl­miðla­fer­il­inn hjá DV árið 1984.

„Ég var nýút­skrifuð úr skóla. Ég held að þeim hafi ekki lit­ist á mig,“ segir Elín og á við þáver­andi rit­stjóra DV, Jónas Krist­jáns­son og Ellert Schram. „Ég var í pilsi og háhæl­uðum skóm, með langar neglur og með allt á hreinu en með ekk­ert á hreinu. Áttum okkur á því. En þeir tóku séns­inn og gátu skólað mig til.

Ég var sett í það til að byrja með að skrifa um dag­skrá útvarps og sjón­varps. Ég fékk stöðu­hækkun eftir nokkra mán­uði og var sett í löggu­fréttir og var beðin um að vera alltaf til­búin eldsnemma á morgn­ana með morg­un­vakt­inni.“

Hún segir að blaðið hafi svo farið í prentun klukkan níu.

„Ég var að koma úr háskóla­námi í Banda­ríkj­unum og taldi mig vera með óskap­lega mikla þekk­ingu og reynslu á þessu öllu saman en þegar ég kom út á vinnu­mark­að­inn þá kunni ég ekki neitt.“

Elín Hirst varð svo reynsl­unni rík­ari eftir því sem tím­inn leið.

Þetta var svaka­legt ástand.

Hvað stendur upp úr á fjöl­miðla­ferl­inum?

„Súðavík,“ segir hún og á við snjó­flóðin sem þar féllu. „Ég var þá frétta­stjóri á Stöð 2 og Bylgj­unni. Ég fór vestur. Fyrst sendum við Eggert Skúlason og mynda­töku­mann; þeir fóru vestur með varð­skip­inu minnir mig. Síðan þegar var hægt að fljúga fórum við fleiri vestur og vorum með beinar útsend­ingar frá Hótel Ísafirði. Þetta var svaka­legt ástand.

Fólk leit­aði til hennar í sorg sinni og áfalli.

Fólk var ekki til­búið að koma mikið í sjón­varp, en það gerði Haf­steinn Númason. Það var rosa­lega sterkt móment. Ég gleymi því aldrei.

Ég man að Vigdís for­seti kom og var haldin stór athöfn í íþrótta­hús­inu á Ísafirði. Það voru allir grát­andi. Vigdís líka.

Þarna sann­að­ist hvað for­set­inn getur verið mik­il­vægur á svona stundum þegar þjóðin á svona erfitt. Fólk leit­aði til hennar í sorg sinni og áfalli og fékk ein­hvern styrk.“

Kölluð Bláskjár

Elín hætti svo á Stöð 2.

„Mér var sagt upp.“

Hver var þá ráð­inn?

„Ætli það hafi ekki verið Páll Magn­ús­son. Það er ekk­ert gaman að ræða um þetta „ráðin, rekin“. Þetta er fram og til baka allan fer­il­inn.“

Elín segir að þáver­andi meiri­hluti eig­enda Stöðvar 2 hafi ekki verið ánægður með störf hennar sem frétta­stjóri. „Ég var búin að finna það lengi þannig að það var hálf­gert krafta­verk hvað ég fékk að lafa.“

ÉG var skít­hrædd við hann fyrst.

Elín hóf aftur störf hjá DV. „Þá var Ellert hættur og ég þurfti að vinna mjög náið með Jónasi sem frétta­stjóri. Það gekk rosa­lega vel. Hann var mjög horn­óttur og ég var skít­hrædd við hann fyrst en svo kom­ast maður að því að hann var súper heili.“

Elín sótti síðar um stöðu frétta­stjóra RÚV en fékk ekki. „Helgi H. Jónsson heit­inn var vara­f­rétta­stjóri og hann var ráð­inn en hann tók mig samt inn sem óbreyttan liðs­mann. Það var ansi vel gert.“

Elín segir að það hafi í fyrstu verið svo­lítið erfitt að vinna þar þar sem aðrir starfs­menn hafi litið á hana sem ein­hvern keppi­naut og að hún myndi jafn­vel gera lítið úr þeim sem fékk starfið. „En allt þetta var horfið eftir einn eða tvo mán­uði. Þarna kom mjög góður blóma­tími sem óbreyttur frétta­maður.“

Elín var síðar ráðin vara­f­rétta­stjóri Rík­is­út­varps­ins. „Bogi Ágústs­son ákvað að fara í annað starf sem mið­aði að því að sam­eina útvarps- og sjón­varps­frétta­stof­urnar og þá var ég ráðin frétta­stjóri Sjón­varps­ins og var í því starfi í fjögur eða fimm ár. Það reyndi mikið á. Þá varð ég í annað sinn frétta­stjóri á stórum sjón­varps­fjöl­miðli en ég bjó að mjög góðri reynslu frá Stöð 2.“

Og Elín Hirst var svo­lítið skömmuð fyrir að vera Sjálf­stæð­is­maður.

„Össur vinur minn Skarp­héð­ins­son, sem ég hitti nú seinna á ferl­inum á þingi og varð ágætur kunn­ingi, var óþreyt­andi. Ef hann kom inn í húsið og sá mig þá „Bláskjár“. Ég var með tengsl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Maðurinn minn var mjög tengdur inn í flokk­inn og hans vinir sem urðu síðan vinir mínir. Þetta háði mér ekki í umfjöllun minni fannst mér sem frétta­maður. En margir vildu setja allt sem ég gerði í þetta ljós. Maður á ekk­ert að vera hissa á því.“

Þeir sögðu að ég væri of dýr.

Páll Magn­ús­son varð útvarps­stjóri og var ákveðið að sam­eina frétta­stofur útvarps og sjón­varps. „Það var ákveðið að frétta­stjóri útvarps­ins, sem var Óðinn Jónsson, tæki við; yrði yfir báðum og tek­inn fram yfir mig. Þetta var aldrei aug­lýst og það hefði þurft að gera þetta öðru­vísi en þeir fengu mig kannski til að vera rólega af því að þeir sögðu að þeir vildu hafa mig áfram. Ég mátti vera með frétta­skýr­ing­ar­þátt og ég undi hag mínum ágæt­lega sem frétta­þulur og hugs­aði með mér að þetta væri bara eins og lífið er; að stíga niður úr turn­inum einu sinni enn. En síðan kom upp­sagn­ar­bréf tveimur árum seinna. Ég hef aldrei fengið botn í það. Þeir sögðu að ég væri of dýr; væri of dýr starfs­maður. Frétta­skýr­ing­ar­þátt­ur­inn sem við – ég, Bogi og fleiri – vorum með, Frétta­auk­inn, var svaka vin­sæll á þessum tíma þannig að það var ekki það að það skorti áhuga eða vinn­u­gleði.“

Fólk gerði lítið úr okkur

Og Elín Hirst hætti á RÚV í kringum 2011.

„Þá tók við ógleym­an­legt verk­efni sem er bókin hennar Guðrúnar Ebbu Ólafs­dóttur. Ég fór í að skrifa hana og það var verk­efni sem var mann­bæt­andi fyrir mig.“ Guðrún Ebba er dóttir Ólafs heit­ins Skúla­sonar bisk­ups og steig hún fram með alvar­legar ásak­anir á hendur föður sínum.

„Hún er eig­in­lega frum­kvöð­ull í MeToo-bylt­ing­unni.

Sumir sem stóðu mér nærri sögðu „vert þú ekk­ert að fara inn á þetta svið“. Ég lít á mig sem sögu­mann. Hún var búin að hugsa um þetta mjög lengi og móta þetta mjög vel. Þarna kom ný reynsla inn í reynslu­bank­ann; að skrifa bók. Það er bara því­líkt mál.“

Fólk gerði lítið úr okkur.

Guðrún Ebba varð fyrir hatrömmum árásum frá þeim sem fylktu liði með bisk­upnum. Hvað með Elínu?

„Já, ég fann alveg fyrir því. Fólk gerði lítið úr okkur; sagði að við værum að skálda og þetta væru minn­ingar sem væru falskar. Það fékk afskap­lega lítið á mig vegna þess að ég var búin að vinna með henni í heilt ár og sem reyndur blaða­maður fann ég alveg að tónn­inn var svo tær.“

Efaðist Elín aldrei um neitt?

„Nei.

Það var mjög lær­dóms­ríkt að gera þetta; að fara í þetta mál.

Síðan fram­leiddi ég eina mynd um vest­ur­fara. Ég gróf upp ætt­ingja mína,“ segir Elín og á við afkom­endur ætt­ingja sína sem höfðu flutt vestur um haf í kringum 1875. „Þetta hefði ekki verið hægt nema með Inter­net­inu.“

Elín vann fyrir nokkrum árum að verk­efni hjá Saga Film og segir hún að í tengslum við það hafi hún eig­in­lega fengið fimm ára háskóla­nám í lofts­lags­málum. „Við vorum að fram­leiða þætti um lofts­lags­mál sem höfðu ekki verið upp á pall­borðið á Íslandi og eng­inn skildi og ekki ég heldur.“

Svo má minn­ast á verk­efnið tengt spænsku veik­inni.

„Það var árið 1998. Þá var ég frétta­stjóri hjá Stöð 2 en með þessa bakt­eríu að gera sögu­legar heim­ilda­myndir. Ég ákvað að gera mynd um spænsku veik­ina 1918. Svo fékk ég fregnir af því að þetta væri heldur betur eitt­hvað sem væri að ger­ast í nútím­anum vegna þess að alþjóð­legt teymi vís­inda­manna ætl­aði að grafa upp á Sval­barða lík námu­manna sem hefðu fengið spænsku veik­ina og dáið. Það var talið að þeir væru grafnir það djúpt ofan í sífrer­ann að líkin gætu hafa varð­veist. Og það skipti nátt­úr­lega rosa­lega miklu máli að ná í erfða­efni veirunnar eins og við þekkjum svo vel núna í Covid til að geta séð hvað það var sem gerði hana svona mann­skæða og ill­skeytta.“

Í ljós kom að líkin virt­ust hafa verið grafin of grunnt. „Það náð­ust nokkur sýni en það var ekki hægt að byggja neitt á þeim. En svo var það nokkrum árum seinna sem þetta tókst og ég held það hafi verið í Alaska. Þar höfðu frum­byggjar verið grafnir á tveggja metra dýpi. Þetta var stór­frétt alla­vega í veiru­heim­inum.“

Fjölmiðlabakterían

Elín Hirst vinnur núna hjá Torgi sem gefur út Frétta­blaðið, Mark­að­inn og DV og starf­rækir sjón­varps­stöð­ina Hring­braut. Þá eru staf­rænir miðlar í eigu Torgs: fretta­bla­did.is, hring­braut.is, marka­dur­inn.is og dv.is

„Ég fékk mjög gott tæki­færi. Ég hitti hann Sigmund Erni Rún­ars­son, gamlan sam­starfs­fé­laga minn á DV og ég vann reyndar líka með honum á Stöð 2, og var ráðin í haust. Það opn­að­ist fyrir mér nýr heimur; ég var búin að vera í 10 ár í burtu og allt í einu er fjöl­miðla­heim­ur­inn svo marg­slung­inn og spenn­andi; það er þessi marg­miðlun sem ég hafði ekki kynnst fyrr.

maður er svo­lítið í þessu af lífi og sál.

Ég er að skrifa í Frétta­blaðið; ég skrifa leið­ara. Ég skrifa frétta­skýr­ingar. Ég skrifa inn á netið og ég er með við­tölin á Hring­braut sem ég get svo sett inn á netið sem fréttir með við­tals­bútum. Þetta á svo vel við mig; svona skap­andi.“

Það er stundum talað um fjöl­miðla­bakt­er­í­una; að starfið yfir­taki fjöl­miðla­fólk.

„Já, maður er svo­lítið í þessu af lífi og sál. Það er mun­ur­inn á þing­mennsk­unni; þá vissi ég að hún var ekki fyrir mig þrátt fyrir að ég biði mig svo aftur fram. Ég er í fjöl­miðla­starf­inu af lífi og sál og þarf meira að segja að passa mig á að taka ekki of mikið að mér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina