Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sandra Hlíf annaðist deyjandi föður sinn í Chile: „Ég myndi aldrei gera þetta fyrir þig“

Sandra Hlíf annaðist deyjandi föður sinn í Chile: „Ég myndi aldrei gera þetta fyrir þig“
Ljós­mynd­ari: Aldís Páls­dóttir Mynd: XD.is

Sandra Hlíf Ocares var í litlum sam­skiptum við föður sinn sem barn. Leiðir for­eldra hennar skildu áður en Sandra kom í heim­inn og fað­ir­inn sinnti henni ekki mikið. Í helg­ar­við­tali Frétta­blaðs­ins segir Sandra meðal ann­ars frá van­líðan sinni á ung­lings­árum og því hve mik­il­vægt það sé að fólk sem starfi með börnum og ung­lingum átti sig á því ef eitt­hvað er í ólagi. Sjálf hefur Sandra starfað um ára­bil hjá Barna­vernd­ar­nefnd Reykja­vík­ur­borgar og var aðeins 29 ára gömul þegar hún tók við sem for­maður þar. Hún gefur nú kost á sér í 3. sæti í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.

Faðir Söndru, Julio Cesar Ocares Romo, var í háskóla­námi í Chile og að vinna fyrir ríkið þegar Pinochet komst til valda þar í landi. Julio var sendur í pynt­ing­ar­búðir, sem hann náði að flýja úr og eftir mikið ferða­lag kom hann hingað til lands, til Akur­eyrar, sem flótta­maður árið 1979. Þá var hann 27 ára gam­all. Sandra segir að ef faðir hennar hefði ekki flúið land hefði hann vafa­laust verið drep­inn. „Þetta voru bara aftökur,“ segir Sandra í við­tal­inu.

Faðirinn á gjörgæslu í Chile

Einn dag árið 2008 fékk Sandra sím­tal frá systur sinni, sem sagði henni að faðir þeirra væri kom­inn á gjör­gæslu í Chile. Julio hafði skilið við kon­una sína og flutt aftur út til Chile, en komið til Íslands annað hvert ár til að heim­sækja fjöl­skyldu og afkom­endur.

Sandra hélt strax af stað til Chile. Faðir hennar hafði greinst með heila­æxli rétt rúm­lega fimm­tugur og syst­urnar voru þess full­vissar að hann lægi fyrir dauð­anum.

„Þrátt fyrir að pabbi hafi ekki alltaf komið vel fram við mig þá er for­eldri alltaf for­eldri og römm er sú taug. Þarna var ég líka búin að gera þetta svo­lítið upp og ákvað að elska hann fyrir það sem hann var og bera virð­ingu fyrir því. Gera þetta bara á mínum for­sendum,“ segir Sandra í sam­tali við Frétta­blaðið.

Fjöl­skylda Söndru í Chile, sem hún hafði aldrei hitt fyrr, tók á móti henni og skutl­aði henni upp á sjúkra­hús.

„Ég myndi aldrei gera þetta fyrir þig,“ sagði faðir hennar við hana þegar hún kom til hans. Sandra seg­ist vita það að hann hefði aldrei gert það sama fyrir hana en seg­ist jafn­framt ekki sárna þessi orð hans. Hún segir að hún myndi sjálf gera þetta fyrir hann, aftur og aftur. Þannig séu hennar gildi. Svar hennar til hans var því ein­fald­lega: „Ég veit það. En gott að sjá þig, pabbi minn.“

„Ég myndi aldrei gera þetta fyrir þig“

Önnuðust hann við slæmar aðstæður

Julio, föður Söndru, voru upp­haf­lega gefin þrjú ár eftir þetta en hann end­aði þó á því að lifa í sjö. Þegar hann lá bana­leg­una komu syst­urnar til hans og dvöldu hjá honum í þrjár vikur. Þær hugs­uðu um föður sinn og hjúkr­uðu honum áður en bróðir þeirra kom honum síðan fyrir hjá konu sem leigði út rúm hjá sér fyrir fólk til að deyja í. „Það er engin líkn­ar­deild eða heima­hjúkrun og við eig­in­lega úti í sveit,“ segir Sandra.

Sandra lýsir því hvernig þær systur þurftu að ann­ast föður sinn við aðstæður sem myndu telj­ast ansi slæmar á okkar mæli­kvarða. Til að mynda hafi þær þurft að gefa föður sínum lyf, skipta á honum, skipta um á rúm­inu og þvotta­vélin hafi verið léleg. Enginn þurrk­ari hafi verið á heim­il­inu. Þá hafi húsið verið heldur hrör­legt.

„Við myndum ekki kalla þetta hús, göt í veggjum og köngulær um allt. Við not­uðum flug­véla­koddana undir höf­uðið og kyntum með einum gasofni sem við þorðum ekki að sofa með í gangi,“ segir Sandra.

Hún segir tím­ann þó hafa verið dýr­mætan og að þrátt fyrir að þetta hafi verið erfitt hugsi hún til þess alls með hlýju. Hún segir að auk þess að hafa ann­ast deyj­andi föður sinn og eytt tíma með honum, hafi þær systur, sem ólust upp í sitt­hvoru lagi, náð að tengj­ast enn betur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina