Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Karlar hafa lúmskt gaman af Saumaklúbbnum: „Fanney fyrir fimm árum var reiðari og hræddari“

Karlar hafa lúmskt gaman af Saumaklúbbnum: „Fanney fyrir fimm árum var reiðari og hræddari“
Ljós­mynd­ari: Krist­björg Kamilla Sig­tryggs­dóttir – KKamilla Pho­tography.

„Markmið mitt er að vera mín eigin fyr­ir­mynd og vera þekkt af góðu. Auk þess að vera mamma dásam­legra barna minna og eig­in­kona Ara míns, þá er Fanney í dag ekki sú sama og Fanney fyrir fimm árum. Fanney fyrir fimm árum var t.d. oft reið­ari og hrædd­ari en Fanney í dag. Lífið er jú alls konar og við erum alltaf að mót­ast í takt við þær áskor­anir og upp­á­komur sem lífið færir okkur,“ segir Fanney Marín Magn­ús­dóttir, eig­andi heilsu- og sam­fé­lags­síð­unnar Mín Leið Upp.

„Mín Leið Upp er hug­mynd sem fædd­ist eina and­vöku­nótt og varð til sam­hliða BA-rit­gerð­inni minni. Markmið mitt var að búa til vett­vang sem ég hefði vilja hafa aðgang að þegar ég tók mín fyrstu skref á leið minni upp. Vett­vangur þar sem við getum aðstoðað hvert annað á okkar leið upp.

Ég var hik­andi og feimin fyrst, en byrj­aði að setja #minleidupp á Instagram og þá fór bolt­inn að rúlla.“

Reynslusögur ólíkra

Á heima­síð­unnni er hægt að nálg­ast reynslu­sögur ólíkra reynslu­bolta og verk­færakistu sem leiðir fólk áfram í sjálfs­vinnu og hún segir okkur að það hafi glatt hana óskap­lega þegar hún heyrði af kenn­ara sem hvatti nem­endur sína til að fara á heima­síð­una og nýta sér verk­færakist­una. 

Mín Leið Upp er einnig með vef­verslun sem vex og dafnar. Í henni eru m.a. til sölu skart­gripir og bækur sem hún sjálf hannar og lætur gera fyrir sig. 

Stemmingin er létt og vinaleg

Ljós­mynd­ari: Krist­björg Kamilla Sig­tryggs­dóttir – KKamilla Pho­tography.

„Við Karlotta Ósk Jóns­dóttir, vin­kona mín, fórum af stað með hlað­varpið „Sauma­klúbb­ur­inn“ þann 17. nóv­em­ber 2021 og eru þætt­irnir nú orðnir 17 tals­ins. 

Sauma­klúbb­ur­inn er hlað­varp fyrir konur, þó svo að við höfum áreið­an­legar heim­ildir fyrir því að það séu karlar þarna úti sem hafa lúm­skt gaman af því að hlusta líka.“

Hlust­enda­hóp­ur­inn er á mjög breiðu ald­urs­bili en mark­hóp­ur­inn er 35 ára og eldri.

Í Sauma­klúbbnum er spjallað um allt sem teng­ist því að vera kona, móðir og eig­in­kona og rætt er af ein­lægni um þær skyldur og áskor­anir sem konur eru að takast á við hverju sinni. 

alveg eins og alvöru, góður sauma­klúbbur

„Stemm­ingin er létt og vina­leg, mikið hlegið en líka alveg stundum grátið. Einnig fáum við reglu­lega til okkar gesti sem hafa sögur að segja, bæði lands­þekkta og ekki.“

Það kemur alltaf nýr þáttur út á mánu­dögum og fara upp­tök­urnar fram í kósí­heitum í sóf­anum heima hjá Karlottu, alveg eins og alvöru, góður sauma­klúbbur.

Vinkonur sem ég get grátið og hlegið með

Helsta áskorun Fann­eyjar hefur verið að finna þetta vand­fundna, gullna jafn­vægi í dag­legu einka­lífi og starfi og muna eftir sjálfri sér í leið­inni. 

Það koma auð­vitað á milli, minna hressi­legir dagar

„Und­an­farin fimm ár hafa verið krefj­andi. Að halda saman námi, styðja við dreng­inn minn, sem spilar fót­bolta í Englandi, sinna heim­ili og börnum á Íslandi, finna tíma fyrir eig­in­mann­inn, vinna að Mín Leið Upp og vera til staðar fyrir vini og fjöl­skyldu hefur vissu­lega verið krefj­andi, en yfir­leitt hrika­lega skemmti­legt. 

Það kom mér á óvart hvað það hefur tek­ist vel að halda öllum boltum á lofti og skipu­leggja mig, án þess að finn­ast ég vera stöðugt á örmögn­un­ar­stigi og vera í raun­inni frekar hress flesta daga. Það koma auð­vitað á milli minna hressi­legir dagar og þá er ég bara minna hress í smá tíma og leyfi mér það.

En þetta mikla púsl myndi auð­vitað ekki ganga upp nema með aðstoð góðra vina og fjöl­skyldu. Ein af stærstu áskor­un­unum þegar kemur að Mín Leið Upp er eflaust vinnan í kringum heima­síð­una sjálfa en þar hafa Thury Hann­es­dóttir og mað­ur­inn minn reynst mér ein­stak­lega vel. 

Ég á ómet­an­legar vin­konur sem ég get grátið og hlegið með og við grípum hver aðra til skiptis. Mamma hefur líka ein­stakt lag á að hvetja mig áfram og hjálpa mér að finna sjálfs­ör­yggið í því sem ég er að gera og hjálpar mér að taka rök­réttar ákvarð­anir.“

Lífið er gott

„Næst á döf­inni hjá mér er að halda áfram með með Mín Leið Upp, en það hefur gengið vel og það gerir hlað­varpið okkar Karlottu, „Sauma­klúbb­ur­inn“, líka. Ég er komin í gott sam­starf við aðila sem vinna með mér að sjálf­styrk­ing­ar­nám­skeiði „Minnar Leiðar Upp,“ en ég vinn einnig að fyr­ir­lestr­a­röð sem snýst um að vera sín eigin fyr­ir­mynd.

Lífið er frekar gott sjáðu til.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina