Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Persónuvernd sektar Hörpu um eina milljón: Gestur vildi ekki gefa upp kennitölu

Persónuvernd sektar Hörpu um eina milljón: Gestur vildi ekki gefa upp kennitölu
Fram­bjóð­endur skil­uðu und­ir­skrift­ar­listum í Hörpu

Per­sónu­vernd hefur dæmt tón­listar- og ráð­stefnu­húsið Hörpu til að greiða eina milljón króna í sekt, fyrir að hafa kraf­ist þess að tón­leika­gestur gæfi upp kenni­tölu sína til að geta keypt miða á við­burð í hús­inu. Samkvæmt Per­sónu­vernd braut Harpa með þessu lög og er það tekið fram að sektin hefði getað orðið hærri ef ekki hefði verið fyrir Covid-19. Þá hafi þessar upp­lýs­ingar verið nauð­syn­legar og hrein­lega skylda, vegna sótt­varn­ar­reglna.

Á RÚV kemur fram að gest­ur­inn sem um ræðir hafi kvartað yfir mál­inu til Per­sónu­verndar í apríl fyrir þremur árum síðan.

Gest­ur­inn var ósáttur við að þurfa að skrá kenni­tölu sína til að kaupa miða á við­burð í Hörpu. Miðasala Hörpu fer fram í gegnum miða­sölu­kerfi Tix.is og sagði gest­ur­inn að Tix hefði upp­lýst hann um að nóg væri að skrá fyrstu sex tölu­staf­ina í kenni­töl­unni – sem sagt fæð­ing­ar­dag og ár. Gest­ur­inn vildi hins vegar ekki heldur una því og taldi víst að ekki væri þörf á svo nákvæmum per­sónu­upp­lýs­ingum við miða­kaup.

Fleiri viðburðahaldarar með sama háttinn á

Fyr­ir­komu­lag Hörpu hefur ávallt verið með þessum hætti og eru fleiri við­burða­hald­arar með sama hátt­inn á. Svöruðu for­svars­menn Hörpu umkvört­unum gests­ins á þann veg að nauð­syn­legt væri að fá kenni­tölu til þess að hægt væri að tryggja örugga per­sónu­grein­ingu þegar miðar væru sóttir í miða­sölu. Þar væru gestir beðnir um nafn og kenni­tölu og þyrftu einnig að fram­vísa per­sónu­skil­ríkjum til að fá mið­ann sinn afhentan.

Hjá Hörpu hefur ávallt verið lögð áhersla á öryggi í miða­kaupum og að lág­marka alla hættu á að miðar kom­ist í rangar hendur.

Á RÚV segir að Harpa hafi lagst gegn því að sekt yrði lögð á húsið vegna máls­ins, enda væri löng hefð fyrir því hjá við­burða­höld­urum á Íslandi að skrá kenni­tölu við miða­kaup, í örygg­is­skyni fyrir miða­eig­endur og til að tryggja auð­kenn­ingu.

Ekki nauðsynlegt að safna upplýsingunum

Per­sónu­vernd vildi ekki fall­ast á rök­stuðn­ing tón­list­ar­húss­ins í úrskurði sínum. Þar segir að ekki hafi verið nauð­syn­legt að safna þessum upp­lýs­ingum því hægt hefði verið að efna samn­ing­inn án þess. Enn­fremur segir að notkun kenni­tölu sé háð því að hún eigi sér mál­efna­legan til­gang og sé nauð­syn­leg til að tryggja örugga per­sónu­grein­ingu.

Í ljósi þessa hefur Hörpu því verið gert að hætta að fara fram á kenni­tölu gesta og eyða þeim upp­lýs­ingum sem þegar eru til staðar.

Per­sónu­vernd sektaði Hörpu um eina milljón. Tekið var fram að sektin hafi ekki verið hærri vegna þess að fyr­ir­komu­lagið hafi sann­ar­lega verið nauð­syn­legt þegar sótt­varn­ar­reglur kröfð­ust þess og því ekki hægt að afnema það fyrr.

Í úrskurði Per­sónu­verndar segir að einnig hafi verið horft til þess að upp­lýs­ing­unum hafi verið safnað í góðri trú um að vinnslan væri lög­mæt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina