Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fjórir létu lífið í krapaflóðunum á Patreksfirði: „Eins og mórautt jökulhlaup félli úr gilinu“

Fjórir létu lífið í krapaflóðunum á Patreksfirði: „Eins og mórautt jökulhlaup félli úr gilinu“

Laug­ar­dag­ur­inn 22 jan­úar 1983 var örlaga­ríkur dagur fyrir íbúa Pat­reks­fjarðar. Dagurinn var ekki frá­brugð­inn öðrum laug­ar­dögum nema að því leyti að halda átti þorra­blót um kvöldið, margir voru því spenntir.

Nóg var að gera hjá björg­un­ar­sveit­inni á svæð­inu en fjöldi til­kynn­inga hafði borist vegna úrhellis­rign­ingar sem fallið hafði um nótt­ina. Moka þurfti snjó af þökum, dæla vatni úr kjöll­urum og ryðja frá nið­ur­föllum.

Upp úr klukkan tíu um morg­un­inn hringdi Guðjón Petersen, fram­kvæmda­stjóri Almanna­varna, í Stefán Skarp­héð­ins­son, sýslu­mann á Pat­reks­firði og til­kynnti honum að Veð­ur­stofa Íslands hafi gefið út til­kynn­ingu um snjó­flóða­hættu. Hættan var mikil á Pat­reks­firði og því þótti nauð­syn að fylgj­ast þar vel með.

Um hálf­tíma eftir sím­talið var búið að senda til­kynn­ingu á Rík­is­út­varpið og hún lesin þar; íbúar á Patresk­firði voru sér­stak­lega beðnir um að fara var­lega vegna snjó­flóða­hættu.

Seinnipart laug­ar­dags­ins voru heima­menn farnir að veita Geirs­eyr­ar­gili sér­staka athygli, ekki var þó talin hætta á flóði úr gil­inu. Starfs­menn Pat­reks­hrepps unnu hörðum höndum við að halda far­vegi gils­ins greiðum.

Þrátt fyrir aðgerðir var vatn farið að flæða í miklu mæli inn í bæinn og um íbúa­götur og var þá lögð áhersla á að halda ræsum opnum til að forða frá eigna­tjóni.

Nokkur börn söfn­uð­ust saman nálægt gil­inu þar sem þau renndu sér í snjónum. Þegar Pétur Sveins­son, lög­reglu­varð­stjóri, tók eftir und­ar­legu ástandi í gil­inu fór hann bein­ustu leið og sótti börnin, eitt barn­anna var sonur hans. Börnin fóru öll til síns heima nema eitt, sem fór heim með Pétri og syni hans. Þessi ákvörðun reynd­ist örlaga­rík þar sem dreng­ur­inn átti heima í einu hús­anna sem varð undir flóð­inu. Stuttu eftir að Pétur kom heim með dreng­ina tvo, heyrðu þeir háan hvell. Þegar þeir litu út um stofu­glugg­ann sáu þeir um 15 metra háa flóð­bylgju skella á tveimur húsum og æða síðan áfram.

Stuttu síðar þeytt­ust ógn­ar­háar vatns­súlur upp í loftið í gilmun­anum, hljóp þá fram stórt krapa­flóð sem sagt er hafa líkst vegg sem óx því nær sem hann kom bænum. Annað flóð lenti á bænum stuttu síðar en 20 hús skemmd­ust í flóð­unum, fjórir létu lífið.

„Ég sá flóðið vaða niður úr gil­inu og húsin tæt­ast upp. Eftir það hugs­aði ég aðeins um að kom­ast inn í húsið til unn­ustu minnar,“ sagði Helgi Páll Pálma­son, í sam­tali við Morg­un­blaðið á sínum tíma.

„Ég get ekki á nokkurn hátt lýst því hvernig mér var inn­an­brjósts, þegar ég sá flóðið falla, né heldur hve langan tíma það tók. Mér virt­ist það vera allt að fjögurra metra hátt en get þó ekki sagt um það með nokk­urri vissu. Hér hefur vissu­lega orðið ómet­an­legt tjón. Þó ver­ald­legir hlutir hafi ekki verið metnir enn, verða mannslíf aldrei metin til fjár. Ég vil svo koma miklu þakk­læti á fram­færi til allra þeirra, sem aðstoð­uðu okkur við björgun­ar­störfin. Án hjálpar þeirra hefðu þau ekki gengið eins vel og raun bar vitni,“ sagði Úlfar Thorodd­sen, sem bjarg­aði sér með því að hlaupa frá flóð­inu.

„Þegar fyrra flóðið féll var ég staddur í húsinu Bræðra­borg við Litla­dalsá að dæla vatni úr kjall­ara. Þá köll­uðu menn, sem stóðu hjá, að gilið væri hlaupið. Þegar ég leit upp var að sjá, niður eftir hlíðinni og skylli á húsunum,“ sagði Haraldur Karlsson, for­maður björgun­ar­sveitar Slysa­varnafélags Íslands, en hann var einn af þeim fyrstu á slys­stað­inn.

Nöfn þeirra sem lét­ust voru Marteinn Ólafur Péturs­son, Aðal­stræti 79, fæddur 9. des­em­ber 1941, 42 ára; Sigrún Guð­brandsdóttir, fædd 3. des­em­ber 1976, 6 ára, dóttir hjónanna Vigdísar Helgadóttur og Guð­brands Har­alds­sonar, Hjöllum 2; Sigurbjörg Sig­urð­ardóttir, Brunnum 13, fædd 13. ágúst 1924, 58 ára, og Val­gerður Jónsdóttir, Aðal­stræti 79, fædd 23. janúar 1906, 77 ára.

Heim­ildir: Morg­un­blaðið, 1983 og Krapa­flóðin á Pat­reks­firði eftir Egil St. Fjeld­sted

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við