Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Árni Þór Sigurðsson: „Þetta verður áþreifanlegt þegar rússneskar fjölskyldur fá sendar kistur heim“

Árni Þór Sigurðsson: „Þetta verður áþreifanlegt þegar rússneskar fjölskyldur fá sendar kistur heim“
Árni Þór Sig­urðs­son

„Það er óhætt að segja að and­rúms­loftið í Moskvu sé lævi blandið. Á yfir­borð­inu verður maður í sjálfu sér ekki mikið var við hern­að­ar­á­tökin sem eiga sér stað í Úkraínu en ef vel er að gáð þá er hægt að full­yrða að áhrifa stríðs­ins gæti í dag­legu lífi Moskvu­búa,“ segir Árni Þór Sig­urðs­son, sendi­herra Íslands í Rúss­landi.

„Þá á ég ekki síst við að lög­gæsla hefur verið hert og við sjáum ekki bara hefð­bundna götu­lög­reglu heldur líka óeirða­lög­reglu og jafn­vel her­menn á götum úti. Eins og komið hefur fram í fréttum þá hafa margar vest­rænar versl­un­ar­keðjur ákveðið að yfir­gefa Rússland og það fer ekki fram hjá okkur að þær versl­anir eru lok­aðar. Síðan sér maður auð­vitað umfjöllun um „hina sér­stöku hern­að­ar­að­gerð“ eins og stjórn­völd hér kjósa að kalla her­leið­ang­ur­inn í Úkraínu í fjöl­miðlum; sumir fjöl­miðlar eru með flettiskilti svo vissu­lega er almenn­ingur sér með­vit­aður um hvað er í gangi, jafn­vel þótt það sé mat­reitt eins og stjórn­völd vilja.“

Árni Þór segir að Moskva hafi löngum verið talin mjög örugg borg að búa og starfa í. „Ég hef aldrei fundið fyrir ótta í Moskvu, hvorki fyrr á tíð né núna. Það hefur ekki breyst með síð­ustu vend­ingum. Í sjálfu sér finnur maður ekki beint fyrir stríðs­rekstr­inum í Úkraínu úti á götu í Moskvu. Það er meira í gegnum lestur á fjöl­miðlum, sam­tölum við fólk og svo auð­vitað í gegnum efna­hags­á­hrifin sem maður upp­lifir stríðið.“ Þess má geta að sam­fé­lags­miðlar eins og Twitter, Instagram, Facebook auk YouYube eru lok­aðir. Þá hefur verið lokað fyrir sumar erlendar frétta­veitur eins og BBC og CNN.

Myndin sem dregin er upp í Rúss­landi er frekar ein­hæf.

„Rúss­neskir fjöl­miðlar eru flestir hverjir undir beinni stjórn stjórn­valda eða að minnsta kosti mjög hlið­hollir stjórn­völdum. Umfjöllun þeirra um átökin í Úkraínu eru þar af leið­andi mjög á einn veg, það er að segja í sam­ræmi við þá línu sem stjórn­völd leggja. Þetta á bæði við um beinan frétta­flutn­ing og eins í umræðu­þáttum. Þó hefur engu að síður borið á því að í spjall­þætti komi fólk með gagn­rýn sjón­ar­mið en það er í miklum minni­hluta. Almenn­ingur í Rúss­landi fylgist ágæt­lega með fjöl­miðlum, ekki síst sjón­varps­stöðv­unum, en les ekki mikið erlendar frétta­síður og því verður myndin sem stjórn­völd draga upp býsna alls­ráð­andi.

Myndin sem dregin er upp í Rúss­landi er frekar ein­hæf. Það litar að sjálf­sögðu við­horf almenn­ings hér. Það þarf líka að hafa í huga að stjórn­völd hafa um nokkuð langt skeið alið á tor­tryggni í garð Úkraínu með fjand­sam­legri orð­ræðu um illa með­ferð á íbúum af rúss­nesku bergi, einkum í aust­ustu hér­uðum Úkraínu, um nas­ista og fas­ista sem fari með völdin í land­inu og fleira í þeim dúr. Þótt því fari víðs fjarri að allir leggi trúnað á þessa útgáfu þá sýn­ist mér samt að þessi lýs­ing rúss­neskra stjórn­valda á stöðu mála í Úkraínu eigi tals­verðan hljóm­grunn meðal Rússa, einkum þeirra sem hafa ekki aðgang að fréttum ann­ars staðar frá. Fólk veit auð­vitað af þessum átökum og þótt frétta­flutn­ing­ur­inn geti verið bjag­aður þá gerir fólk sér grein fyrir að svona átök kosta manns­líf. Þetta verður áþreif­an­legt þegar rúss­neskar fjöl­skyldur fá sendar kistur heim með föllnum ætt­ingjum.“

Víða sést bæði almenn lög­regla sem og óeirða­lög­regla.

Hvað með mót­mæli í Rúss­landi?

„Mót­mæl­endur hafa komið saman í Moskvu, Pét­urs­borg og fleiri borgum aðal­lega um helgar til að mót­mæla stríðs­rekstr­inum. Löggæsla hefur verið aukin og víða sést bæði almenn lög­regla sem og óeirða­lög­regla og mót­mæl­endur hafa verið hand­teknir þús­undum saman. En í marg­millj­óna­borg eins og Moskvu þarf meira til en nokkur þús­und mót­mæl­endur til að eftir því verði sér­stak­lega tekið. Engu að síður eru mót­mælin til marks um að skoð­anir eru skiptar og þar að auki eru margir sem kjósa að taka ekki þátt í mót­mælum enda búið að herða við­ur­lög við hvers kyns and­ófi gegn stríðs­rekstr­inum í Úkraínu.“

Árni Þór og for­seti Kirgistan.

Mikið högg fyrir Rússland

Orkan hefur löngum verið eitt af tækjum alþjóða­stjórn­mál­anna og þá hjá stórum olíu- og gas­fram­leiðslu­ríkjum. Rússland er eitt af olíu- og gasstór­veld­unum og getur nýtt stöðu sína á þeim vett­vangi í póli­tískum til­gangi í sam­skiptum á alþjóða­svið­inu.

„Nú er staðan sú að um 30-40% af olíu og gasi innan ESB kemur frá Rúss­landi svo Evrópa er mjög háð þessum við­skiptum við Rússland. Að sama skapi er Rússland háð tekjum af olíu- og gassölu til Evrópu svo lík­lega munu báðir aðilar reyna að halda þessum orku­við­skiptum eins og hægt er gang­andi og á grund­velli gild­andi samn­inga. Ákvörðun Þýska­lands um að stöðva NordStr­eam 2-leiðsl­una er hins vegar mikið högg fyrir Rússland og spurn­ing er hvort það er var­an­leg ákvörðun eða hvort hún yrði tekin upp á síð­ari stigum.“

Refsi­að­gerðir Vest­ur­landa eru hins vegar umfangs­miklar.

Það hefur komið skýrt fram hjá tals­mönnum NATO og ein­stakra aðild­ar­ríkja að ekki komi til greina að Atl­ants­hafs­banda­lagið blandi sér með beinum hætti í átökin, enda mætti þá búast við að um alls­herj­ar­stríð yrði að ræða og það vill fólk skilj­an­lega forð­ast.

„Refsi­að­gerðir Vest­ur­landa eru hins vegar umfangs­miklar, reyndar miklu víð­tæk­ari en við höfum áður séð, og það sem mestu varðar er að Vest­ur­löndin eru ein­huga í aðgerðum sínum. Það er sífellt verið að bæta í aðgerðir til að auka þrýst­ing á rúss­nesk stjórn­völd en enn sem komið er hafa slíkar refsi­að­gerðir ekki haft áhrif á stefnu stjórn­valda hvað stríðs­stefn­una áhrærir.“

Ákvörð­unin um að víkja rúss­neskum bönkum úr SWIFT-kerf­inu hefur vita­skuld mikil áhrif, enda stöðvast að mestu fjár­magns­flutn­ingar milli Rúss­lands og Vest­ur­landa í báðar áttir. Rússnesk stjórn­völd hafa brugð­ist við þessu til dæmis með því að heim­ila rúss­neskum aðilum að greiða skuldir sínar, fyrir vöru og þjón­ustu, í rúss­neskum rúblum í stað­inn fyrir gjald­eyri.

Það er talið að um 5% af vinnu­afli í Rúss­landi starfi eða hafi starfað fyrir vest­ræn fyr­ir­tæki.

„Refsi­að­gerðir Vest­ur­landa eru þegar farnar að segja til sín í rúss­nesku efna­hags­lífi. Við getum nefnt hrun rúss­nesku rúblunnar, sem hefur fallið um fimm­tíu pró­sent frá því í febr­úar, og rúss­neskur hluta­bréfa­mark­aður hefur líka fallið og er nú í hálf­gerðu frosti. Þetta hefur áhrif á verð­bólg­una sem hefur líka tekið stökk; í upp­hafi árs­ins gerði rúss­neski Seðla­bank­inn ráð fyrir að verð­bólgan 2022 yrði um 4% en nú þegar er sú spá komin í 8,5%. Þá hafa stýri­vextir Seðla­bank­ans verði hækk­aðir úr um 9% í yfir 20% svo það þarf ekki fleiri vitn­anna við til að sjá að áhrifin á rúss­neskan efna­hag eru mikil. Þessu til við­bótar hafa fjöl­mörg vest­ræn fyr­ir­tæki ákveðið að hætta starf­semi eða loka tíma­bundið og við sjáum margar slíkar versl­anir lok­aðar. Það er talið að um 5% af vinnu­afli í Rúss­landi starfi eða hafi starfað fyrir vest­ræn fyr­ir­tæki svo lokun þeirra hefur mikil áhrif á atvinnu­leysi í land­inu. Fólk hefur eðli­lega áhyggjur af þess­ari stöðu og er meðal ann­ars óör­uggt um vinn­una sína og ævisparn­að­inn sinn. Vissu­lega munu stjórn­völd reyna að flytja marg­vís­lega starf­semi inn í landið, líkt og gert var eftir að refsi­að­gerðir vegna inn­limunar Krím­skaga voru lagðar á árið 2014, en aðgerð­irnar nú eru svo umfangs­miklar að það verður erfitt fyrir stjórn­völd að mæta þeim öllum með sama hætti og áður. Við þetta bæt­ist síðan að veru­legur hluti af gjald­eyr­is­forða rúss­neska Seðla­bank­ans hefur verið frystur á Vest­ur­löndum svo bank­inn hefur ekki aðgang að honum sem veldur miklum vand­ræðum við að standa í skilum með afborg­anir og aðrar skuld­bind­ingar. Það er hætt við að þetta ástand verði lang­dregið, jafn­vel þótt hern­að­inum í Úkraínu lyki.“

Árni Þór á fundi með Slutsky.

Einangrast á alþjóðavettvangi

Árni Þór er spurður hvernig hann haldi að tekið verði á móti rúss­neskum almenn­ingi erlendis og hvaða áhrif stríðið muni hafa á hinn almenna borg­ara heima fyrir og erlendis.

það er í sjálfu sér ekki góð þróun fyrir hinn almenna borg­ara.

„Þetta er ein hlið máls­ins sem lítið er talað um á Vest­ur­löndum. Því miður er það of algengt að það er sett sama­sem­merki milli rúss­nesks almenn­ings og stjórn­valda. Og við höfum heyrt fréttir af Rússum sem hafa orðið fyrir aðkasti á Vest­ur­löndum þótt þeir hafi ekk­ert með stefnu Pútíns að gera. Til við­bótar þá ná refsi­að­gerðir Vest­ur­landa einnig til margs konar sam­starfs á sviði til dæmis mennta- og menn­ing­ar­mála og íþrótta. Þetta kemur meðal ann­ars niður á náms­mönnum, fræði­mönnum og lista­fólki sem ber enga ábyrgð á stríðs­rekstr­inum en því miður eru fórn­ar­lömbin í átökum af þessum toga iðu­lega þau sem enga ábyrgð bera. Áhrifin af því að úti­loka sam­starf við alla Rússa, á hvaða sviðum sem er, geta hins vegar hæg­lega orðið þau að reka fólk í fangið á stjórn­völdum í Kreml og á þann hátt geta áhrifin farið gegn til­gang­inum. Við þessu er samt senni­lega lítið að gera en er engu að síður umhugs­un­ar­efni. Heild­ar­á­hrifin verða þau sýn­ist manni að Rússar munu ein­angr­ast á alþjóða­vett­vangi, senni­lega um langa hríð, og það er í sjálfu sér ekki góð þróun fyrir hinn almenna borg­ara.“

Fylgi Pútíns hafði dalað

Árni Þór kom til starfa í Moskvu um mitt ár 2020 þegar Covid-far­ald­ur­inn var kom­inn á skrið svo afhend­ing trún­að­ar­bréfs fór fram við sér­stakar aðstæður. „Í stað þess að afhenda for­set­anum trún­að­ar­bréfið per­sónu­lega og eiga svo stutt sam­tal við hann um sam­skipti ríkj­anna var trún­að­ar­bréfið afhent prótókoll­stjóra for­seta­emb­ætt­is­ins og síðan kom Pútín inn í sal­inn þar sem athöfnin fór fram, í tals­verðri fjar­lægð, og ávarp­aði mig og aðra sendi­herra sem afhentu trún­að­ar­bréf á sama tíma úr ræðu­stól án þess síðan að heilsa hverjum og einum eða eiga sam­töl við okkur sendi­herrana. Ég hef þess vegna ekki hitt hann nema bara í mýflugu­mynd. Það sama var uppi á ten­ingnum fyrir nokkrum árum þegar ég var í Rúss­landi með for­seta Íslands vegna starfa minna sem sendi­herra norð­ur­slóða. Þannig að ég hef í sjálfu sér ekki mikið um hann að segja sem per­sónu.

Skoð­ana­kann­anir hafa bent til þess að fylgi við hann hafi dalað en það er líka þekkt úr heims­sög­unni að þjóð­ar­leið­togar leggi í stríð þegar svo árar í því augna­miði að þjappa þjóð­inni að baki sér. Við sáum til dæmis flokk Pútíns, Sameinað Rússland, tapa fylgi í þing­kosn­ingum í haust enda þótt hann hafi enn meiri­hluta þing­sæta í rúss­nesku dúmunni. Almennt hefur verið talað að það megi rekja til óánægju inn­an­lands til dæmis með stöðu efna­hags­mála, skerð­ingar á líf­eyri og hækkun eft­ir­launa­ald­urs, enda lof­aði Pútín marg­hátt­uðum umbótum í félags­málum í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna, ugg­laust til að rétta stöðu flokks­ins af að ein­hverju leyti.“

Árni Þór með Maia Sandu, for­seta Moldóvu.

Tilbúinn að ganga mjög langt

Árni Þór segir að það hafi komið sér á óvart að Pútín skyldi ákveða að ráð­ast inn í Úkraínu og freista þess að taka yfir landið allt. „Maður var búinn undir það að Rússland myndi hugs­an­lega fara inn í aust­ustu hér­uðin, Donbas, en hafði talið það mjög ósenni­legt að um alls­herj­ar­inn­rás yrði að ræða. Það kemur síðan einnig á óvart að svo virð­ist sem her­leið­ang­ur­inn sé ekki að ganga eins og Rússar hafa vænt­an­lega reiknað með, að mót­spyrna Úkraínu sé meiri en þeir gerðu ráð fyrir. Ef til vill spilar inn í að til­gangur leið­ang­urs­ins er kannski ekki svo aug­ljós fyrir her­mönn­unum og bar­áttu­vilj­inn gegn bræðra­þjóð­inni eitt­hvað tak­mark­aður. Um þetta er ekki gott að segja en maður veltir því óneit­an­lega fyrir sér því hern­að­ar­legir yfir­burðir Rúss­lands ættu að vera mjög miklir.“

Bar­áttu­vilji Úkra­ínu­manna er aug­ljós­lega mik­ill.

Er hrika­leg­asta sviðs­myndin að raun­ger­ast?

„Sú stað­reynd að rúss­neski her­inn er að reyna að ná stjórn á öllu land­inu – og lík­lega hefur Pútín haft í hyggju að koma á lepp­stjórn í Kænu­garði – bendir til þess að Rúss­lands­for­seti sé til­bú­inn að ganga mjög langt. Hann getur kannski náð Úkraínu undir sína stjórn en það er afar ósenni­legt að hann geti haldið Úkraínu til lengri tíma. Bar­áttu­vilji Úkra­ínu­manna er aug­ljós­lega mik­ill og stuðn­ingur Vest­ur­landa skiptir þar líka máli. Svo hefur Pútín tek­ist að sam­eina úkra­ínsku þjóð­ina gegn sér fyrir utan að sam­eina Vest­ur­lönd í víð­tækum refsi­að­gerðum. Orrustan vinnst kannski en stríðið tap­ast.“

Árni Þór sagði í við­tali á RÚV 24. febr­úar að hern­að­ar­í­hlut­unin sem slík hafi verið yfir­vof­andi allt frá því Rúss­lands­for­seti lýsti yfir sjálf­stæði Lúgansk og Donetsk í Donbas-hér­aði í Úkraínu.“ Hann er nú spurður hvernig fólk hafi fundið eða skynjað að þetta væri yfir­vof­andi frá þessum tíma og hvað benti til þess.

„Hér er ég fyrst og fremst að vísa til umræð­unnar í Rúss­landi; orð­ræða stjórn­valda og stjórn­mála­manna var býsna mikið öll á einn veg. Þar hefur áherslan verið á að úkra­ínsk stjórn­völd hafi farið illa með rúss­nesku­mæl­andi minni­hlut­ann, bannað honum að nota tungu­mál sitt og þrengt að honum á ýmsa lund. Jafnvel hafa rúss­nesk stjórn­völd talað um þjóð­ar­morð á Rússum í Úkraínu þótt engar sann­anir hafi verið reiddar fram til stuðn­ings svo alvar­legum ásök­unum. En umræðan hafði undið upp á sig og svo komu for­svars­menn sjálf­stjórn­ar­hér­að­anna Lugansk og Donetsk og lýstu yfir sjálf­stæði og ósk­uðu eftir aðstoð Rúss­lands. Þannig má segja að íhlutun Rúss­lands í Donbas-hér­aðið hafi verið und­ir­byggð um nokk­urt skeið.

Hver er staðan í dag? Hvað er fram undan?

„Eins og er þá má segja að við sem búum og störfum í Rúss­landi séum í nokk­urs konar bið­stöðu, við vitum ekki hvernig mál munu þró­ast á næstu dögum og vikum og það er mjög erfitt að spá um fram­tíð­ina. En auð­vitað vonar maður í lengstu lög að þessu hern­að­ar­á­standi ljúki sem fyrst og að við­ræður aðil­anna leiði til vopna­hlés og helst frið­ar­sam­komu­lags. En jafn­vel þótt það tæk­ist þá er hætt við að það taki langan tíma að byggja upp að nýju traust milli aust­urs og vest­urs og að sam­skipti kom­ist aftur í þokka­lega eðli­legt horf. Því miður má reikna með að þessi van­hugs­aði stríðs­rekstur hafi langvar­andi áhrif fyrir rúss­neskt sam­fé­lag og verði Rúss­landi dýr­keypt á svo mörgum sviðum. Fyrir utan þær hörmu­legu afleið­ingar sem stríðið hefur fyrir Úkraínu og úkra­ínskt sam­fé­lag; svo sem mann­fall, eyði­legg­ingu og fólk á flótta. Sá veldur miklu sem upp­haf­inu veldur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina