Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Edda óttaðist fyrrverandi kærasta: „Hann tók upp kynferðisleg myndbönd af mér og geymdi þau“

Edda óttaðist fyrrverandi kærasta: „Hann tók upp kynferðisleg myndbönd af mér og geymdi þau“
Edda Pét­urs­dóttir. Skjáskot/Egin­konur

„Þvert á móti mun hat­rið mitt magn­ast svo að það getur aldrei endað öðru­vísi en að koma þér virki­lega illa.“ Þessi skila­boð fékk Edda Pét­urs­dóttir send frá fyrr­ver­andi kærasta, en Stundin birti nokkur þess­ara skila­boða í dag.

Tók upp myndbönd og geymdi þau

Edda og mað­ur­inn bjuggu í sitt­hvoru land­inu um tíma þegar þau voru saman.

„Við vorum í fjar­sam­bandi og gerðum ýmis­legt á Skype. Það sem ég vissi ekki var að hann tók upp kyn­ferð­is­leg mynd­bönd af mér og geymdi þau,“ segir hún.

Eftir að þau hættu saman byrj­aði mað­ur­inn að saka hana oftar um að hafa haldið fram­hjá sér og hót­aði að ef hún myndi ekki við­ur­kenna það þá ætl­aði hann að dreifa mynd­bönd­unum af henni.

Edda lýsir hegðun hans eftir sam­bands­slitin og segir að þá hefði ofbeldið auk­ist.

„Þá skap­að­ist ein­hvers konar umsát­urs­á­stand,“ segir hún og bætir við að hann hefði sent henni tölvu­póst oft í viku þar sem hann sak­aði hana um svik og „fór fram á að ég kæmi heið­ar­lega fram við sig.“

Með tím­anum fækk­aði tölvu­póst­unum en yfir tæpt ár eftir sam­bands­slitin sendi hann henni tæp­lega átta­tíu tölvu­pósta og fjöl­mörg smá­skila­boð. „Í flestum voru ein­hvers konar hót­anir og svo sagði hann ógeðs­lega hluti um mig,“ segir hún.

Hann á að hafa sagst vera með mynd­bönd af henni á USB-lykli og hótað að skilja lyk­ill­inn eftir á fjöl­förnum stað.

Hótar að birta af henni nektarmyndbönd

Edda segir í nýjasta þætti af Eigin Konur sem birt­ist á Stund­inni fyrr í dag að hún hafi lifað í stöð­ugum ótta í tæpan ára­tug við að fyrr­ver­andi kærasta. Maðurinn hót­aði henni stöðugt að hann myndi standa við hót­anir sínar um að birta af henni nekt­ar­mynd­bönd. Hún segir hann hafa tekið mynd­böndin án hennar leyfis og vit­undar og hótað að birta þau ef hún myndi ekki verða að óskum hans.

Edda var í sam­bandi með mann­inum frá 2009 til 2012. Hún var þá ný orðin tví­tug en hann ell­efu árum eldri og þekktur á Íslandi. Hún segir hann hafa beitt sig and­legu ofbeldi á meðan sam­band­inu stóð og var stöðugt að saka hana um að hafa haldið fram­hjá sér. Edda segir það hefði ekki átt við nein rök að styðj­ast en þetta aðeins versn­aði og undir lok sam­bands­ins lýsir hún hegðun hans sem þrá­hyggju­kenndri.

Ósátt við vinnubrögð lögreglu

Edda reyndi að leita til lög­reglu vegna máls­ins undir lok árs 2012 og seg­ist vera afar ósátt við við­brögðin sem hún fékk. Hún segir að henni fannst lög­reglan ekki hafa sýnt þessu neinn sér­stakan áhuga.

„Skilaboð lög­regl­unnar voru skýr: Það væri best að setja þetta ekki inn í lög­reglu­kerfið því mað­ur­inn gæti þá séð það og það væri ekki gott fyrir mig. Svo lét lög­reglu­mað­ur­inn mig hafa síma­núm­erið sitt og kvaddi mig,“ segir hún.

Eftir að hafa leitað til Bjark­ar­hlíðar í fyrra fékk hún að vita að þetta væri ekki rétt, að það væri hægt að skrá mál án þess að meintur ger­andi fái að vita það.

#MeToo-bylgjan sparkið sem hún þurfti

Edda segir að hún finnur ekki eins mikið fyrir ótt­anum sem var mjög fyr­ir­ferða­mik­ill í lífi hennar í mörg ár.

„Það þurfti heila #Metoo-bylgju til að ég leit­aði mér aðstoðar, hún var sparkið sem ég þurfti. Ég er ekki eins hrædd núna. Það er svo gott að finna að fólk trúir mér. Ég var svo hrædd við að segja frá því að á sínum tíma var gert lítið úr þessu og hann þar að auki frekar þekktur maður,“ segir hún.

„Ég ákvað að stíga fram núna ef það er ein­hver mögu­leiki á að ég geti hjálpað, þó það sé ekki nema einni konu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina