Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hafið gleypti Hólmaborgina með öllu: „Ég tel að þar hafi verið valinn maður í hverju rúmi“

Hafið gleypti Hólmaborgina með öllu: „Ég tel að þar hafi verið valinn maður í hverju rúmi“
Hólma­borg SU-555 Mynd: Lubbi

Þann 30. jan­úar árið 1956 lagði Hólma­borgin SU-555 af stað með fjög­urra manna áhöfn, frá Nes­kaups­stað á leið sinni til Skotlands þar sem setja átti nýja vél í skipið. Þann 2. febr­úar barst neyð­ar­boð frá skip­inu til loft­skeyta­stöð­ina í Þórshöfn í Færeyjum. Og síðan spurð­ist aldrei aftur til hennar.

Hólma­borg SU-555

Þann 1. apríl sama ár skrif­aði Friðrik Steins­son pistil um slysið í Sjó­manna­blað­inu Víkingur en fór hann meðal ann­ars yfir mann­kosti allra í áhöfn Hólma­borg­ar­innar:

Hinn 30. jan­úar síð­ast­lið­inn lagði m.b. Hólma­borg, Eski­firði, af stað frá Nes­kaup­stað og var
ferð­inni heitið til Pet­er­head á Skotlandi, en þar átti að setja nýja vél í skipið. 2. febr­úar heyrði tog­ar­inn Aust­firð­ingur í tal­stöð Hólma­borgar, sem þá var að kalla í loft­skeyta­stöð­ina í Þórshöfn í Færeyjum. Þetta er  það síð­asta, sem til Hólma­borgar hefur spurzt.

Eftir því, sem síðar frétt­ist hafði loft­skeyta­stöðin í Þórshöfn ekki heyrt í skip­inu. 8. febr­úar var leit hafin. Tóku þátt í leit­inni: tog­ar­arnir Aust­firð­ingur og Goðanes, tvö skip frá landhelgisgæzlunni, og tvö veð­ur­at­hug­unaskip. Flug­vélar frá landhelgisgæzlunni, Kefla­vík­ur­flug­velli og brezkar flug­vélar tóku mik­inn og góðan þátt í þess­ari leit. Þá lögðu íslenzkar far­þega­flug­vélar, er fóru á milli landa, lykkju á leið sína til að huga að skip­inu. Skipu­lögð leit stóð í átta daga, en þó var tals­vert leitað eftir það. Mun leitin að Hólma­borg vera ein­hver sú víð­tæk­asta, sem gerð hefur verið til að leita að íslenzku skipi. Leitin bar ekki árangur, þrátt fyrir að góð leit­ar­skil­yrði voru flesta dag­ana, sem leitað var. Aðstand­endur þeirra, sem á Hólma­borg voru, hafa beðið að koma á fram­færi þökk til Slysa­varna­fé­lags Islands fyrir ágæta for­göngu um leit­ina og til allra þeirra, er þátt tóku í henni.

Hólma­borg var smíðuð í Svíþjóð árið 1946 og var 92 smá­lestir að stærð. Eigandi var
Hólma­borg h.f., Eski­firði. Fyrir skömmu varð breyt­ing á hluta­eign í félag­inu þannig, að nú
var skip­stjór­inn, Jens Jensen, aðal­eig­andi og útgerð­ar­stjóri. Jens hafði verið skip­stjóri á
Hólma­borg allan tím­ann frá því skipið kom til lands­ins.

Jens skip­stjóri

Á Hólma­borg voru fjórir menn. M.b. Hólma­borg. Skip­stjór­inn hét fullu nafni Jens Pétur Thorberg. Hann var fæddur í Reykj­ar­firði 23. sept. 1908, sonur Þórunnar Mark­ús­dóttur og Vilhelms Péturs Jensen, er þá rak verzlun á Reykj­ar­firði. Skömmu eftir að Jens fædd­ist, flutt­ust for­eldrar hans til Eski­fjarðar, en þar rak faðir hans verzlun og útgerð um ára­bil. Þórunn er látin fyrir nokkrum árum, en Vilhelm Jensen rekur heild­sölu í Reykja­vík. Árið 1934 kvænt­ist Jens eft­ir­lif­andi konu sinni Önnu Finn­boga­dóttur skip­stjóra Jóns­sonar á Fáskrúðs­firði. Þeim varð sex barna auðið, tvö börn misstu þau ung, en þrjú eru á lífi, fjórtán, níu og fjögra ára. Jens Jensen, eins og hann var oft­ast nefndur, gerð­ist snemma for­maður, tók þá smá­skipa­próf, en síðar, árið 1946, tók hann fiski­skipa­próf við Stýri­manna­skól­ann. — Jens var hvers­dags­lega hlé­drægur og dulur í skapi, en hafði þó næmt auga og eyra fyrir því, sem bros­legt var. Hann var gæddur ríkri list­hneigð. Á bernsku- og ung­lings­árum fékkst hann tals­vert við að mála, en hætti því, er hann varð full­tíða maður. Hann hafði óvenju fal­lega söng­rödd, en beitti henni ekki hvers­dags­lega. List­hneigðin gat verið kyn­fylgja úr báðum ættum. Hann var þéttur á velli og þéttur í lund. Herbert Þórð­ar­son, er var stýri­maður á Hólma­borg þessa ferð, var fæddur í Norð­firði (síðar Nes­kaup­stað) 8. sept. árið 1913. Sonur Stefaníu Ármanns­dóttur og Þórðar Björns­sonar skip­stjóra þar. Stefanía er látin fyrir nokkrum árum, en Þórðar er búsettur í Nes­kaup­stað. Herbert kvænt­ist árið 1938 Sigríði Sig­urð­ar­dóttur skip­stjóra Jóns­sonar í Nes­kaup­stað. Lætur eftir sig konu og eitt kjör­barn, 13 ára dreng. Hann lauk fiski­manna­prófi úr Stýri­manna­skól­anum árið 1938. Hertbert hefur starfað í Nes­kaup­stað eða á bátum þaðan mest­allan sinn starfs­dag. Hann flutti ísvar­inn fisk til Englands öll stríðs­árin. Sigldu þeir oft­ast á sama skipi, hann og Þórður faðir hans. Það var því engin nýj­ung fyrir Herbert að koma til Englands, enda ætl­aði hann heim aftur með fyrstu flug­ferð. Herbert fékkst meðal ann­ars tals­vert við kennslu í sigl­inga­fræði. Veitti for­stöðu nokkur und­an­farin ár nám­skeiði í sigl­inga­fræði á vegum Stýri­manna­skól­ans. Herbert var mesta ljúf­menni í umgengni, glað­lyndur og góður félagi. Efalaust finna margir sveit­ungar hans og reyndar fleiri, að þeir eiga nú á bak að sjá traustum manni og góðum vini. Vilhelm Pétur Jensen, vél­stjóri, var fæddur á Eski­firði 7. sept. árið 1935, sonur skip­stjór­ans og önnu konu hans. Hann var kvæntur Margréti Gunn­ars­dóttur vél­stjóra Hall­gríms­sonar á Eski­firði. — Vilhelm þekkti ég minnst þeirra manna, er voru á Hólma­borg, en mér er tjáð, að hann hafi verið mesti efn­is­maður. Hann lætur eftir sig unga konu og tvö korn­ung börn. Sigurður Jónsson var fjórði mað­ur­inn á Hólma­borg. Hann var fæddur á Eski­firði 28. sept. 1909, sonur Mar­grétar Páls­dóttur og Jónasar Jóns­sonar, er lengi var raf­stöðv­ar­stjóri á Eski­firði og er nýlega lát­inn. — Sigurður er fimmta barnið upp­komið, sem Margrét sér á bak, en nú hefur hún misst sjö börn sín af ell­efu, en mér er sagt, að enn hafi hún reynzt sama hetjan og áður undir svip­uðum kring­um­stæðum. Þá má geta þess, að Margrét, ekkja Vilhelms vél­stjóra, er dótt­ur­dóttir hennar og upp­eld­is­dóttir og býr hjá ömmu sinni með bæði ungu börnin sín. Árið 1933 kvænt­ist Sigurður Ingi­gerði Bene­dikts­dóttur, ætt­aðri úr Húna­vatns­sýslu. Lifir hún mann sinn, ásamt sex börnum þeirra, þar af tvö innan 10 ára ald­urs. Sigurður var hættur sjó­mennsku fyrir 9 árum. Ætlaði aðeins að bregða sér til Skotlands þessa ferð og hafði pantað far heim aftur með fyrstu flug­ferð. Á síð­ustu árum vann hann við vega­gerð rík­is­ins, stjórn­aði jarð­ýtu. Þegar ég var á ferð á Aust­ur­landi á síð­asta sumri og fór um nýlagða vegi, heyrði ég borið á hann mikið lof fyrir dugnað og hag­sýni í starfi. Þau hrósyrði komu mér engan veg­inn á óvart eftir þau kynni, er ég hafði haft af Sigurði fyrr á árum. Þeir Jens og Sigurður voru báðir með mér á sjó, er þeir voru ungir. Reyndust þeir röskir menn og vand­aðir og ágætir drengir. Þegar skip hverfa með svip­uðum hætti og Hólma­borg nú, koma venju­lega fram ýmsar ágizkanir um hvað slys­inu hafi valdið. Oftast eru menn jafnær eftir slíkar bolla­legg­ingar. Ég vil þó láta það per­sónu­lega álit mitt í ljós, að það, hve fáir skip­verjar voru, hafi ekki átt þátt í þessu slysi. Ég tel að þar hafi verið val­inn maður í hverju rúmi. Eft­ir­lif­andi vanda­mönnum sendi ég fyllstu sam­úð­ar­kveðjur.

Blessuð sé minn­ing áhafn­ar­innar á Hólma­borg­inni SU-555

Góðar minn­ingar um þá förnu er bezta hugg­unin, sé vel að gáð.
Friðrik Steins­son. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við