Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Aaron Ísak sakfelldur – skylt að hlýta eftirliti yfirlæknis réttargeðdeildar Landspítalans

Aaron Ísak sakfelldur – skylt að hlýta eftirliti yfirlæknis réttargeðdeildar Landspítalans
Aaron Ísak Berry. Mynd: Söngvakeppni sjónvarpsins/RÚV

Söngv­ar­inn Aaron Ísak Berry hefur verið sak­felldur í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn þremur 12 ára drengjum auk þess að hafa í fórum sínum barn­a­níðs­efni. Þrátt fyrir sak­fell­ingu er það ákvörðun dóm­ara að gera Aaroni Ísak ekki refs­ingu þar sem talið er að refs­ing verði ekki til bóta vegna and­legs ástands hans. Er honum þess í stað gert skylt að sæta eft­ir­liti geð­læknis og með­ferðum hjá sál­fræð­ingum.

Í frétt DV segir að Aaroni Ísak hafi verið gefið að sök að hafa átt í óvið­eig­andi og klám­fengnum raf­rænum sam­skiptum við dreng­ina auk þess að hafa gert til­raunir til að fá þá til að hafa sam­ræði við sig. Káfaði hann meðal ann­ars á drengj­unum í klofi auk þess að kyssa þá tungu­kossum.

Dómari taldi refsingu ekki til bóta

Í texta dóms­ins er að finna mjög ógeð­felldar lýs­ingar á athæfi og tali Aarons Ísaks. Kemur meðal ann­ars fram að hann vildi fá dreng­ina til að sleikja á sér rass­inn og not­aði þar orða­lagið „rimma“ en drengirnir vissu ekki hvað hann átti við. Einnig sendi hann þeim myndir af aft­ur­enda sínum og getn­að­ar­lim sínum. Reyndi hann að fá dreng­ina til að senda sér nekt­ar­myndir gegn greiðslu. Einnig sendi hann and­lits­mynd af sér þar sem hann var úta­t­aður í sæði. Kemur einnig fram að Aaron gaf drengj­unum tölvu­leikja­á­skriftir fyrir tugi þús­unda í því skyni að mýkja þá og gera með­færi­legri.

Það var nið­ur­staða sér­fræð­inga sem rann­sök­uðu Aaron Ísak vegna máls­ins að hann væri sak­hæfur en refs­ing væri ekki lík­leg til að bera árangur vegna ástands hans.

Er það nið­ur­staða dóms­ins að Aaroni Ísak verði ekki gerð refs­ing vegna glæpa hans en honum verði skylt að hlýta eft­ir­liti yfir­læknis rétt­ar­geð­deildar Land­spít­al­ans á Kleppi og með­ferðar sál­fræð­inga.

Enn­fremur var Aaron Ísak dæmdur til að greiða einum drengnum sem hann braut gegn 1 milljón króna í miska­bætur, öðrum 600 þús­und krónur og þeim þriðja 500 þús­und krónur.

Vakti mikla athygli sem söngvari

Aaron Ísak er fæddur árið 1998 og verður 24 ára síðar á þessu ári. Hann vakti mikla athygli fyrir þátt­töku sína í for­keppni Eurovision-söngvakeppn­innar árið 2020 en þar keppti hann undir lista­manns­nafn­inu Kid Isak. Árið 2019 bar hann sigur úr býtum í Söng­keppni fram­halds­skól­anna er hann flutti lag hljóm­sveit­ar­innar Queen, Love of My Life.

Árangur Aarons Ísaks í tón­list vakti áhuga barna á honum og kemur fram í dómnum að drengirnir voru upp með sér yfir þeirri athygli sem hann sýndi þeim. Brotin gegn drengj­unum stóðu yfir frá hausti 2019 og fram á vorið 2020, en Aaron Ísak var þá 21 árs á meðan þolendur hans voru aðeins 12 ára.

Í dómnum kemur fram að Aaron Ísak upp­lifir sig yngri en hann er og á meðan hann framdi brotin hafi hann talið sig vera í ein­hvers konar ást­ar­sam­böndum við dreng­ina og ekki séð neitt rangt við fram­ferði sitt. Hann hafi síðan séð eftir á að hann hafi gert rangt.

Töluvert á eftir í þroska og greindur með ýmsar raskanir

Aaron Ísak við­ur­kennir að lík­lega hefði hann haldið áfram að brjóta af sér ef hann hefði ekki verið stöðv­aður. Lögregla var kölluð til vegna fram­ferðis hans og var hann tek­inn í yfir­heyrslu. Eftir yfir­heyrslu fór hann í skóla tveggja drengja sem hann hafði brotið gegn, nálg­að­ist þá þar og sak­aði þá um að ljúga á sig. Var hann í kjöl­far þess settur í nálg­un­ar­bann á dreng­ina.

Í dómnum kemur fram að Aaron Ísak er öryrki og býr hjá móður sinni sem veitir honum mik­inn stuðn­ing. Í nið­ur­stöðu sál­fræði­mats kemur fram að hann er með sögu um ein­hverfu og kvíða­röskum frá barn­æsku. Hann er með átröskun og er tal­inn tor­næmur. Ekki er hægt að finna merki um sið­blindu eða barna­girnd hjá honum þrátt fyrir þessi brot sem hafa sann­ast á hann. Jafn­framt á Aaron Ísak sögu um þung­lyndi.

Talið er að Aaron Ísak sé tölu­vert á eftir í þroska og því sé þroska­munur á honum og þolendum hans minni en ald­urs­munur þeirra en þeir voru 12 ára þegar hann braut á þeim og hann var 21 árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina