Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Ungur skotmaður réðst á mann og skaut að sjúkraflutningamönnum í Mávahlíð

Ungur skotmaður réðst á mann og skaut að sjúkraflutningamönnum í Mávahlíð

Vík­inga­sveitin var kölluð út í Mávahlíð 24 þegar 22 ára maður skaut annan mann í and­litið. Talið er að mað­ur­inn hafi síðan legið í eigin blóð­polli fyrir utan húsið þar til óskað var eftir aðstoð lög­reglu, hálf­tíma síðar. Skotið fór inn um munn manns­ins og út fyrir neðan annað eyrað en hann náði sér að fullu eftir aðhlynn­ingu á sjúkra­húsi. Ger­and­inn skaut tveimur skotum í gegn um rúðu og í átt sjúkra­flutn­inga­manna sem báru fórna­lambið á börum. Þetta átti sér stað þann 12 maí árið 1992.

„Þegar við studdum hinn slas­aða að bílnum bað hann um að kunn­ingi sinn kæmi með ég sagð­ist ætla að sjá um það en maður inn fór inn í sjúkrabílinn með Birgittu lækni. Hún var að fara að huga að honum þegar ég lok­aði annarri vængja­hurð­inni að aftan. Þá tryllt­ist mað­ur­inn og rauk út. Hann sagði við mig: „Þú sveikst mig, þú sveikst mig“. Ég kall­aði þá á lögreglu­hjálp.

Eftir að mað­ur­inn rauk út kom hann á móti mér og ætl­aði að lemja mig. Leik­ur­inn barst upp á gangstéttina og ég spurði mann­inn hvað hefði komið fyrir. Þá heyrði ég að það var bankað harka­lega í glugga. Ég veitti því ekki frekar athygli en svo heyrði ég gler­brot hrynja niður við húsið. Eig­in­lega sam­stundis heyrðum við tvo greini­lega hvell þó ekki mjög háværan en grein­lega skot­hvell. Þá leit ég upp og sá byssu­hlaup standa út um gat á rúðu á efri hæð­inni. Ég gerði mér strax grein fyrir hvað var aö ger­ast, greip í mann­inn og reif hann fram fyrir bíl­inn og í skjól. Við settum hann svo aftur inn í bílinn, inn um hlið­ar­dyrnar sem voru í skjóli við húsið. Þegar ég lok­aði hurð­inni tryllt­ist mað­ur­inn aftur. Þá kom hann út og ætl­aði að hjóla í mig en hljóp síðan niöur Mávahlíð­ina,“ sagði þáver­andi sjúkra­flutn­inga­mað­ur­inn Jóhannes Pétur Jónsson í sam­tali við DV á sínum tíma.

Við tók nokkur elt­inga­leikur en mað­ur­inn náð­ist að lokum. „Maðurinn var svo æstur að það var ekk­ert annað að gera en að setja á hann handjám á meðan hann var fluttur á slysa­deild­ina,“ sagði Jóhann.

Það var ekki fyrr en náð­ist að róa mann­inn niður og þrífa af honum blóðið sem kom í ljós að hann hafi orðið fyrir skoti úr byssu. Maðurinn sagð­ist fyrst hafa verið sleg­inn en svo að hann hafi dottið niður stiga.

Skot­mað­ur­inn hlýddi ekki fyr­ir­skip­unum lög­reglu að yfir­gefa íbúð­ina og við tók um þriggja klukku­tíma umsátur fjöl­menns lög­reglu­liðs sem síðan hand­tók mann­inn. Að sögn lög­reglu var fórna­lambið gest­kom­andi í íbúð­inni þar sem þrír bræður bjuggu, þeirra á meðal var skot­mað­ur­inn. Vísa átti gest­inum á dyr þegar út brut­ust deilur á milli mann­ana sem urðu síðan að slags­málum. Þeir voru allir undir miklum áhrifum bæði áfengis og fíkni­efna. Bræður skot­manns­ins urðu hræddir og lögðu á flótta, alla leið til Grinda­víkur. Fórna­lambið bað veg­far­anda um að hringja á aðstoð. Þegar lög­regla kom á svæðið var öllum götum í kring lokað, einnig var nágrönnum gert við­vart og voru þeir beiðnir um að halda sig inn­an­dyra vegna hættu­á­stands.

Þegar árás­armað­ur­inn var loks­ins feng­inn út úr íbúð­inni var hátt í tíu lög­reglurifflum beint að honum og hann hand­tek­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina