Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Iana er nýkomin til Íslands frá Úkraínu: „Þetta er ekki stríð – þetta er hryðjuverk. Þjóðarmorð.“

Iana er nýkomin til Íslands frá Úkraínu: „Þetta er ekki stríð – þetta er hryðjuverk. Þjóðarmorð.“

„Innrás Rússa í Úkraínu hefur staðið yfir í átta ár en eng­inn var til­bú­inn undir slíkt alhliða hryðju­verk,“ segir Iana Rachenco, úkra­ínsk kona sem nýkomin er til lands­ins. „Í tvo til þrjá mán­uði var rætt um „við­vör­un­ar­tösk­una“ en við tókum það ekki alvar­lega,“ segir hún en Úkra­ínu­menn voru hvattir til að hafa nauð­synjar í tösku ef til átaka kæmi. „Fyrir okkur er þetta áfall og við­bjóðs­leg inn­rás og við fyllt­umst hatri og fyr­ir­litn­ingu. Við erum ótrú­lega stolt af hernum okkar; mönn­unum sem verja landið okkar á svo óeig­in­gjarnan hátt. Við vissum um ofur­hetjur í kvik­myndum en núna höfum við séð þær í raun­veru­leik­anum.“

Daginn sem stríðið hófst var Iana í Bukovel sem er skíða­svæði í Karpata­fjöllum. Þar voru hern­að­ar­við­var­anir og útgöngu­bann en hún segir þó engar sprengjur hafa fallið.

Rússar sprengdu flug­völl­inn í loft upp, engar lestar­ferðir voru og skotið var á bíla.

„Ég trúði því ekki þegar ég frétti af inn­rás Rússa. Mamma var ein í Kyiv og það var skelfi­legt fyrir hana. Það var heldur ekki hægt að snúa heim, en ég bý í Kyiv, af því að Rússar sprengdu flug­völl­inn í loft upp, engar lestar­ferðir voru og skotið var á bíla. Margir Úkra­ínu­menn yfir­gáfu heim­ili sín og stóðu jafn­vel í fjóra til fimm daga við landa­mærin með lítil börn og gælu­dýr. Síðan voru skipu­lagðar lestar­ferðir sem þús­undir flótta­fólks nýttu sér og þannig gat mamma kom­ist til vest­ur­hluta Úkraínu. Ég hitti hana í Lviv og við tókum rútu til Varsjár. Ferðin tók um níu klukku­tíma og var fólk snortið yfir því hve Pól­verjar tóku vel á móti því. Það voru sjálf­boða­liðar á járn­braut­ar­stöðv­unum og þar var allt sem fólk þurfti á að halda svo sem matur, föt, skór, bús­á­höld og jafn­vel barna­vagnar. Þá var þar hús­næði þar sem fólk gat gist og þar var boðið upp á mat og fólk gat farið í sturtu. Það er mjög erfitt að finna gist­ingu í Póllandi vegna þess hve margir Úkra­ínu­menn hafa flúið þangað. Eftir því sem ég best veit voru sumir Úkra­ínu­menn ekki með vega­bréf en þeim var þó ekki meinað að fara yfir landa­mærin og þess má geta að þeir fengu að hafa gælu­dýrin sín með sér án þess að hafa við­eigi­andi vott­orð með þeim. Mér tókst að bóka með fyr­ir­vara hót­el­her­bergi í Varsjá en við mamma höfðum pantað flug til Íslands þar sem systir mín býr og þegar við komum til Íslands var fimm daga ferða­lagi okkar lokið.“

Iana og móðir hennar, Inna, eru komnar til Íslands eftir að hafa flúið frá Úkraínu.

Munum ekki fyrirgefa

Til­finn­inga­rús­sí­bani. Til­finn­inga­rús­sí­bani und­an­farnar vikur.

„Ég hélt fyrstu klukku­stund­irnar eftir að ég vissi af inn­rás Rússa að þetta væri mis­skiln­ingur. Hvernig er þetta hægt í nútíma­heimi og í Evrópu? Svo breytt­ist þetta í ótta. Ótta tengdum móður minni sem var ein í Kyiv. Hræðsla við að missa allt: Heimilið, lífið – ekki bara lífið sjálft heldur líka venju­lega lífs­hætti – og svo var það hræðsla tengd land­inu. Ég myndi ekki geta lifað ef Úkraína yrði hluti af Rúss­landi. Við höfum öll misst tíma­skynið. Við vissum ekki hvaða dagur var. Við vissum bara að um var að ræða fimmta dag stríðs­ins,“ segir Iana sem seg­ist lítið hafa sofið fyrstu vik­una eftir að Rússar réð­ust inn í landið.

Þetta er ekki stríð – þetta er hryðju­verk. Þjóð­ar­morð.

Svo fór hún að finna fyrir hatri sem hún var þegar búin að minn­ast á. Hatri gagn­vart þeim sem réð­ust inn í landið. „Þeir stálu vor­inu okkar; vorið kom og við tókum ekki einu sinni eftir því. Þeir jöfn­uðu borgir okkar við jörðu, eyðilögðu inn­viði og ollu ham­förum af manna­völdum. Þetta er ekki stríð – þetta er hryðju­verk. Þjóð­ar­morð. Og vand­ræðin eru ekki bara einn vald­hafi heldur öll þjóðin sem fram­kvæmir blóð­ugar skip­anir með miklum inn­blæstri: Stundar áróður, varpar sprengjum á leik­skóla, sjúkra­hús, íbúð­ar­hverfi … Það er óskilj­an­legt að sjá hlaup­andi konu með börn í leit að aðstoð og skjóta þau. Til hvers? Eða semja um „grænan gang“, eða „mann­úð­ar­hlið“, með aðkomu Rauða kross­ins og að skjóta á fólk á meðan á brott­flutn­ingi stendur. Fólk fær hvorki vatn né mat. Þetta er ómann­úð­legt. Við getum aldrei gleymt og fyr­ir­gefið.“

Þegar Iana er spurð hvað sé það hræði­leg­asta sem hún upp­lifði á þessum tíma segir hún það vera að vita af móður sinni í Kyiv. „Mér leið aðeins betur eftir að við hitt­umst í Lviv.“ Svo var það að fylgj­ast með fréttum og sjá ástandið í land­inu: Rústir bygg­inga og húsa og slasað og látið fólk. „Ég horfði en trúði ekki því sem ég sá. Við fréttum svo af and­láti náins vinar föður míns en rúss­neskir her­menn skutu á bíl hans þegar hann var að aka út úr Kyiv.“

„Fólk fær hvorki vatn né mat. Þetta er ómann­úð­legt. Við getum aldrei gleymt og fyr­ir­gefið.“

Tómarúm

Systir Iana, Júlía, hefur búið á Íslandi um ára­bil og fengu þær mæðgur hlý­legar mót­tökur þegar þær lentu á Íslandi. Það var ekki mikið sem Iana tók með sér; hún seg­ist ein­ungis hafa tekið með sér það sem hún hefði þurft miðað við viku­frí á Íslandi.

„Við höfum hitt mjög gott og sam­úð­ar­fullt fólk á Íslandi. Allar aðgerðir varð­andi mót­töku okkar og ann­arra Úkra­ínu­manna hafa verið skipu­lagðar á bestan mögu­legan hátt: Engar biðraðir, túlkar hafa verið útveg­aðir og stuðn­ingur í formi dval­ar­staða, pen­inga­greiðslna og jafn­vel áskrift í World Class í þrjá mán­uði. Við vorum ótrú­lega snortnar af hjálp eig­anda íþrótta­vöru­versl­un­ar­innar Altis, Tedda, sem útveg­aði mér og mömmu föt og skó til íþrótta­iðk­unar ókeypis. Ég hef aldrei áður upp­lifað jafn­óeig­in­gjarnan stuðn­ing. Ég tár­ast yfir þessu.“

Allir draumar mínir snú­ast aðeins um skjót enda­lok stríðs­ins.

Hvað er svo fram undan? „Við vitum það ekki. Þetta er eins og tóma­rúm í höfð­inu á mér og ég hef ekki styrk til að skipu­leggja neitt. Allir draumar mínir snú­ast aðeins um skjót enda­lok stríðs­ins.“

Syst­urnar Júlía og Iana.

Höfum elst um 10 ár

Iana segir að ef litið sé á Rússland sem konu þá sé hún hroka­full og klædd fölskum vöru­merkjum og er ómenntuð og án menn­ingar. „Kona sem elskar ekki börnin sín.“

Hversu langt heldur Iana að Pútín gangi? „Planið var að ná Kyiv eftir þrjá daga. Hann reikn­aði ekki út styrk and­spyrnu almennra borg­ara, hers og rík­is­stjórnar. Enginn beið þeirra með „frels­is­að­gerð“. Við komum saman og verjum landið okkar. Þeir áttu enga mögu­leika á sigri. Ef NATO hefði heyrt í okkur og lokað himn­inum hefðum við getað forð­ast dauða barna, óbreyttra borg­ara og eyði­legg­ingu borga allt að 90% svo sem Bucha, Irpin, Kharkov og Mariupol. Þetta er sárs­auki okkar og sorg sem við munum nú þurfa að lifa með.“

Hvað með tal um kjarn­orku­vopn? Tsjerno­byl-yfir­tök­una?

„Áður en hann fram­kvæmir slíka skipun sem höfð­ingi sem hefur misst vitið verður hann að fara í gegnum marga tengla. Ég trúi því að jafn­vel í svona týndu landi muni vera mann­eskja sem mun muna eftir börnum sínum og mun ekki leyfa þetta.“

Þeir berj­ast aldrei eins og menn.

Iana er spurð um sýn sína varð­andi rúss­nesk stjórn­völd.

„Allur mik­il­feng­leiki þeirra er sprungin sápu­kúla. Þeir réð­ust grimmi­lega á Úkraínu og berj­ast á sama hátt. Þeir berj­ast aldrei eins og menn. Kostur þeirra er ein­göngu tækni­legur en þeir nota eld­flaugar og annan ger­eyð­ing­ar­búnað gegn almennum borg­urum og jafna borgir okkar við jörðu. Eins og for­seti okkar benti rétti­lega á: „Þeir fjár­festu í dauða á meðan allur heim­ur­inn fjár­festi í líf­inu.“

Ég er þakk­lát alþjóða­sam­fé­lag­inu fyrir hjálp­ina, ráð­staf­anir og refsi­að­gerðir gegn hryðju­verk­a­rík­inu. En börnin okkar eru mun­að­ar­laus og hafa ekki þak yfir höf­uðið og Rússar hafa áhyggjur af því að þeir hafi slökkt á Instagram og SWIFT. Hvað get ég sagt? Þetta stríð hefur verið okkur dýrt. Ég veit ekki hver væri nægi­leg refs­ing fyrir hryll­ing­inn sem við höfum upp­lifað þeirra vegna og fyrir börn sem hafa fæðst í kjöll­urum í sprengiregni. Ég vil að Rússar skammist sín fyrir rík­is­borg­ara­rétt sinn því þetta gerð­ist allt með þegj­andi sam­þykki þeirra. Ég er þakk­lát hernum okkar fyrir hug­rekki hans, ég er þakk­lát for­seta okkar fyrir enda­lausar til­raunir til að ná til alþjóða­sam­fé­lags­ins og ég er þakk­lát hverjum Úkra­ínu­manni sem leggur líf sitt í hættu við að berj­ast við elda, við að grípa til rým­ingar og koma fólki í öruggt skjól, ég er þakk­lát læknum fyrir að vinna vinnu sína í sprengiregni, þeim sem elda mat fyrir aðra og styðja Úkra­ínu­menn fjár­hags­lega og biðja fyrir sigri okkar. Þetta fólk eru hetj­urnar okkar. Dýrð sé Úkraínu!“

Inna, móðir Iana og Júlíu.

Þetta var skelfilegt

Móðir Iana og Júlíu, Inna, er hjúkr­un­ar­fræð­ingur og vann á árunum 1985-2000 á gjör­gæslu­deild á sjúkra­húsi í Kyiv en síðan hefur hún unnið á tann­lækna­stofu. Eins og þegar hefur komið fram var hún í Kyiv þegar stríðið hófst. Hún seg­ist hafa fengið SMS frá sam­starfs­konu sinni þar sem stóð að stríð væri hafið en sú kona bjó nálægt Boryspil-flug­velli. „Ég gat ekki trúað þessu; ég dofn­aði upp. Ég kveikti á sjón­varp­inu og þá fór þetta að renna upp fyrir mér en vissi ekki hvað ég ætti að gera en ég fór nýlega í aðgerð á hné og er ekki búin að ná mér að fullu. Ég gerði mér grein fyrir að ég gæti ekk­ert farið.“

Inna var heima hjá sér þegar hún heyrði fyrstu spreng­ing­una. Hún leit út um glugga og sá fólk hlaupa út til að leita skjóls ef sprengja félli á blokk­ina.

Við heyrðum minna í spreng­ing­unum í kjall­ar­anum.

„Ég vissi ekki hvert ég átti að fara. Fólk hljóp út á götu til að flýja í kjall­ara í nágrenn­inu. Ég fór líka út og elti það. Þetta var skelfi­legt.“ Inna komst niður í kjall­ara heilsu­gæslu­stöðvar en það tók hana um fimm mín­útur að ganga þangað. Og hún brast í grát vegna þess sem hún hafði séð. „Þarna voru mörg börn, gam­alt fólk og gælu­dýr. Við heyrðum minna í spreng­ing­unum í kjall­ar­anum. Það var sér­stak­lega erfitt að vera þar á kvöldin; það var erfitt að sitja á stól alla nótt­ina og það var allt mjög skítugt.“

Inna var stundum á nótt­unni heima hjá sér og seg­ist hún þá hafa setið á kló­sett­inu allan tím­ann og las um það sem var að ger­ast.

„Ég gat hvorki borðað né sofið fyrstu vik­una. Ég vildi það ekki. Við vorum beðin um að halda okkur við útgöngu­bannið og fara ekki út og ekki kveikja á ljósum. Það var skelfi­legt þegar myrkrið skall á. Ég þurfti að fara í verslun viku eftir að stríðið skall á og það var ekki einu sinni til brauð. Hillur versl­un­ar­innar voru tómar. Ég var ekki hrædd um sjálfa mig heldur um börn og gælu­dýr. Hvernig átti að fæða þau? Hversu lengi gæti fólk lifað við ómann­úð­legar aðstæður og við enda­lausan ótta við sprengjur?“

Inna komst svo út úr Kyiv og tók þaðan lest til Póllands en hún hafði áður hitt Iana sem hafði verið í skíða­ferða­lagi eins og þegar hefur komið fram.

Þær mæðgur eru tvær af þeim rúm­lega 500 Úkra­ínu­mönnum sem hafa þegar þetta er skrifað í lok mars sótt um alþjóð­lega vernd hér á landi frá ára­mótum.

Fólk leit­aði skjóls í kjall­ara. Þessi mynd var tekin í kjall­ara húss nálægt heim­ili Inna.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una