Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sigga Eyþórs: „Ég er örugglega að koma úr erfiðu fyrra lífi“

Sigga Eyþórs: „Ég er örugglega að koma úr erfiðu fyrra lífi“
Sigríður Eyþórs­dóttir Ljós­mynd­ari: Cat Gundry-Beck Stílisti: Íris Tanja Flygenring. Förð­un­ar­fræð­ingur: Helen Dögg Snorra­dóttir. Myndir teknar í hljóð­ver­inu Hljóð­rita í Hafn­ar­firði.
Frá vinstri: Eyþór Gunn­ars­son, Sigga Ey og Ellen Krist­jáns­dóttir. Aðsend mynd.

Sigga og syst­urnar eiga sér greini­lega marga aðdá­endur. Að borð­inu okkar á kaffi­hús­inu kemur fólk og óskar henni til ham­ingju með sig­ur­inn. Sigga þakkar fyrir sig af hóg­værð og ein­lægni og fjörugar sam­ræður fara af stað um flutn­ing­inn, lagið, Eurovision og stuðn­ing þeirra við trans-börn. Það er ljóst að til­hlökk­unin eftir keppn­inni í vor er mikil. Eftir áhuga­vert sam­tal um keppn­ina horfum við hvor á aðra og drögum and­ann djúpt. Svo tökum við upp þráð­inn að nýju og ræðum aðeins betur um kvíð­ann, sem Sigga segir að hafi hrjáð hana alla tíð.

„Ég held að ég hafi örugg­lega fæðst með kvíða. Ef ég tek þetta út frá jóga­heim­spek­inni þá er ég örugg­lega að koma úr erf­iðu fyrra lífi. Mamma og pabbi hafa alltaf talað um að ég hafi verið svo vör um mig þegar ég var barn. Svo gat ég líka verið svo hvat­vís, sem er kannski skrítið þegar maður er kvíð­inn. Ég fór bara í heim­sókn til fólks og treysti bara. Ég labb­aði bara inn. Ég trúði því að allir væru góðir, en svo var brot­ist inn til mín og öllu rænt.

Mér finnst góður eig­in­leiki að trúa því að allir séu góðir og ég vil ekki breyta því. Fyrst var ég svo­lítið hrædd eftir inn­brotið, því ég var ein heima með dóttur mína og ein­hver hefði getað gengið inn á okkur. En svo hugs­aði ég; þetta er bara fólk sem er að ströggla í líf­inu. Þetta er ekki minn sárs­auki, þetta er meira þeirra. Ég hafði líka hugsað fyrir inn­brotið að ég þyrfti að fara að losa mig við jakka og alls kyns föt, svo þau sáu bara um það fyrir mig. Ég vil ekki fest­ast í reið­inni og ég er ekki lang­rækin. Ég held að reiði sem til­finn­ing sé stundum nauð­syn­leg til þess að koma manni í gegnum erfið áföll svo maður gef­ist ekki upp. En svo þarf að gera hana upp, svo hún verði ekki að and­legu meini.

Ein stærsta áskor­unin sem ég hef lent í var þegar ég missti íbúð­ina mína eftir banka­hrunið og þurfti að flytja heim til mömmu og pabba og búa hjá þeim í þrjá mán­uði. Það var mjög mikið högg fyrir sjálfs­mynd­ina og ótt­inn við að geta ekki skapað börn­unum mínum betra líf var mik­ill. Ég trúði ekki að ég myndi missa heim­ili mitt. Ég er samt svo heppin að eiga ótrú­lega góða fjöl­skyldu sem stendur við bakið á mér og ég þarf aldrei að hafa áhyggjur af því að eiga ekki í mig og á.

Hins vegar ýfði þetta áfall mjög upp kvíð­ann hjá mér. Að finna að ég væri ekki örugg sem ein­stæð móðir. Með tíð og tíma, og með hjálp alls þessa ynd­is­lega fólks sem ég hef í kringum mig, komumst við út úr þessu. Sem betur fer. Kvíðinn yfir því að hafa ekki nóg fyrir mig og börnin mín tók stundum yfir, en ég hef verk­færi til að takast á við það sem veldur mér kvíða.“

Þegar maður hefur mis­þyrmt lík­am­anum þá þarf maður að byggja sig aftur upp frá grunni

Sigga átti sitt fyrsta barn tví­tug. Hún var hins vegar að nálg­ast 37 ára ald­ur­inn þegar hún átti fjórða barnið. „Munurinn á að eiga barn núna er sá að ég er ekki eins sjálf­hverf og þegar ég var tví­tug. Mér finnst ég ekki alltaf vera að missa af ein­hverju. Núna er ég við­kvæm fyrir því að missa svefn hahaha … Ég læt það ekki stoppa mig, en ég þarf að vera rosa­lega með­vituð um það. Það kemur líka út frá átrösk­un­inni, það er viss afteng­ing við lík­amann og virð­ing­ar­leysi. Þegar maður hefur mis­þyrmt lík­am­anum þá þarf maður að byggja sig aftur upp frá grunni með virð­ingu að leið­ar­ljósi.

Ég þakka sam­fé­lags­legum breyt­ingum hversu góðum bata ég hef náð. Og ég sé líka hvernig hug­ar­far mitt er orðið miklu betra. Mér finnst fjöl­breyti­leik­inn vera þannig að allir lík­amar eru fal­legir. Ég fagna því að fitu­for­dómar séu á und­an­haldi. Af því að ég er svo grönn þá fæ ég meira línur í and­litið. Ég get ekki einu sinni breytt neinu og húð­lækn­ir­inn minn sagði að það eina sem ég gæti gert til þess að fylla í hrukkur væri að bæta aðeins á mig,“ segir Sigga í gríni en seg­ist ekki vilja fara út í umræð­una um ald­urs­for­dóma. „Það er fal­legt að eld­ast og það er fal­legt að það sjá­ist að þú hafir lifað.

Mér finnst svo gaman að börnin mín fái að sjá mig fer­tuga að vinna Söngvakeppn­ina. Það sýnir þeim að maður getur allt sem maður vill. Þau eru búin að vera með mér ein­stæðri og sjá mig harka svo mikið. Það er því ekki síður per­sónu­legur sigur að ná þessum árangri.“

Helstu sigrarnir

Við höldum áfram að tala um sigr­ana hjá Siggu. Hún færir sig til í stólnum og það kemur viss værð yfir hana þegar hún útskýrir stolt að hennar helstu sigrar séu börnin hennar.

„Þau eru stór­kost­legar mann­eskjur, kurt­eisar og fal­legar. Mér er alveg sama hvað þau fá í ein­kunn í skól­anum, bara að þau séu góðar mann­eskjur. Það er helsta afrekið. Mér þykir líka svo vænt um sam­band mitt við fjöl­skyld­una, því það er ekki sjálf­gefið að maður eigi það.“

Við höfum lifað og hrærst í tón­list­ar­heim­inum alla tíð og það hefur gagn­ast okkur hell­ing

Sigga ólst upp við tón­list. For­eldrar hennar eru tón­list­ar­menn, en auk þess voru afi hennar, Jón Múli Árnason, og amma hennar, Ragn­heiður Ásta Pét­urs­dóttir, bæði þjóð­þekkt og dag­legir gestir á íslenskum heim­ilum gegnum Rík­is­út­varpið. „Það kom alveg stundum fyrir að ég óskaði þess að fjöl­skylda mín væri hefð­bundn­ari, að allir væru í dag­vinnu og við hefðum getað verið meira heima á kvöldin og um helgar. En svo öfund­uðu aðrir mig af því að fá að upp­lifa þennan heim, gista á hót­elum og vera á tón­leikum og eiga þekkta for­eldra. Við höfum lifað og hrærst í  tón­list­ar­heim­inum alla tíð og það hefur gagn­ast okkur hell­ing.

Eyþór Gunn­ars­son og Sigga Ey að spila á píanó. Eyþór er þekktur djas­spí­anisti. Aðsend mynd.

For­eldrar mínir hafa alltaf stutt okkur svo mikið. Og amma Sísý á meðan hún lifði. Hún var mér svo mikil fyr­ir­mynd. Hún hafði svo óbilandi trú á mér. Hún sá mig alltaf sem ein­hverja súper­stjörnu þó að ég hefði aldrei trú á því. Mamma og pabbi sjá líka alltaf meira í okkur en við sjálfar. Ég hef átt alls konar fyr­ir­myndir í mínu lífi. Þar á meðal eru hinn and­legi kenn­ari Ram Dass, sem ég er rosa­lega hrifin af, og Alan Watts heim­spek­ingur og fleiri. Þeir hafa kennt mér mikið um lífið. Ég lít til þeirra, því þeir boða kær­leika, jöfnuð og frið, að allir fái að vera þeir sjálfir. Með þeim skoða ég hvernig ég virkja frið­inn innan frá mér. Ég lað­ast að öllum sem breiða út þann boð­skap.“

Hægt er að lesa við­talið í heild sinni inn á vef­blað­inu HÉR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina