Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Samfélagið logar vegna kaupendalistans: „Það er stéttastríð á Íslandi og hin ríku eru að sigra“

Samfélagið logar vegna kaupendalistans: „Það er stéttastríð á Íslandi og hin ríku eru að sigra“
Mynd / Hákon Davíð|Íslands­banki

Sam­fé­lagið logar stafna á milli, eftir að listi yfir kaup­endur í Íslands­banka var birtur í gær. Ef sam­fé­lags­miðlar á borð við Twitter og Facebook eru skoð­aðir má sjá að mikil reiði ríki í sam­fé­lag­inu en á list­anum var bæði að finna föður Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála og efna­hags­ráð­herra og ýmis nöfn sem tengj­ast banka­hrun­inu 2008, nöfn eins og Þor­steinn Már Bald­vins­son, Jón Ás­geir Jó­hann­es­son og Guð­björg Matth­ías­dótt­ir. Þá er and­rúms­loftið innan Alþingis einnig raf­magnað en stjórn­ar­and­staðan krefst þess að sér­stök rann­sókn­ar­nefnd verði látin rann­saka söl­una.

Mannlíf leit­aði við­bragða hjá nokkrum þjóð­þekktum ein­stak­lingum sem hafa verið dug­legir að gagn­rýna hina ýmsu van­kanta á íslensku sam­fé­lagi.

Kristinn Hrafns­son rit­stjóri Wikileaks sagði að list­inn hefði ekki komið sér á óvart. „Ég verð nú að við­ur­kenna að ég hef verið með haus­inn í öðrum verk­efnum og í útlöndum þannig að ég hef ekk­ert kafar djúpt í list­ann. En það kemur ekk­ert á óvart þarna af því sem ég hef séð, bara stað­fest­ing á þeim olig­ar­k­isma sem er ríkj­andi á Íslandi. Í sýnd­ar­lýð­ræð­inu.“

Logi Már Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar er afar ósáttur við list­ann. „Traust er mik­il­væg­asta eign hvers banka. Banki verður að vera umluk­inn trausti. Og ef mein­ingin var að skapa traust í þessu ferli hefur það mis­tek­ist. Það kom fram hjá full­trúum Banka­sýsl­unnar á fundi með Efnahags og við­skipta­nefnd  að með  fyrstu söl­unni hafi tek­ist að tryggja dreift eigna­hald og þess vegna hafi verið ákveðið að nýta lokað til­boðs­ferli nú til að tryggja stóra trausta lang­tíma­fjár­festa.  Nið­ur­staðan varð öll önnur. Manni fall­ast hendur gagn­vart þessum lista. Þarna eru meðal ann­ars erlendir fjár­festar sem keypu í fyrstu umferð og seldu sig strax út með umtals­verðan gróða. Á list­anum eru líka aðrir sem hafa ekki bein­línis far­sælan feril i bankar­reksti, að minnsta kosti ekki út frá sjón­ar­horni almenn­ings, kunn­ug­leg and­lit úr aðdrag­anda Hrunsins. Það er bein­línis ein skil­grein­ingin á spill­ingu, að almanna­gæðum sé úthlutað til útval­inna á ógagn­sæjan hátt. Þannig hátt­aði svo sann­ar­lega með þessa sölu.“

Gunnar Smári Egilsson, einn stofn­enda Sós­í­alista­flokks Íslands segir að um stétt­ar­stríð sé að ræða á Íslandi og að hinir ríku sé að sigra.

„Ef fólki blöskrar list­inn yfir fólkið sem fékk að kaupa hlut rík­is­ins í Íslands­banka er það vegna þess að því blöskrar íslenska auð­valdið. Svona er það fyr­ir­brigði, sam­an­safn af fólki sem hefur auðg­ast á því að sölsa undir sig auð­lindir almenn­ings, fólk sem hefur brotið lög til að koma fé undan skatti, fólk sem hefur skrælt fyr­ir­tæki að innan og eyði­lagt bara til að auka við auð sinn og hefur við það notið bless­unar og verndar stjórn­valda þrátt fyrir að hafa sýnt það og sannað að það tekur ætíð eigin hags­muni fram yfir almanna­hags­muni. Og það er einmitt vegna þess inn­rætis sem fjár­mála­ráð­herra og banka­sýslan sem þjónar honum vill koma eignum almenn­ings til þessa fólks. Ráð­herr­ann og fylg­is­menn hans trúa því að það sé betra að völdin og auð­ur­inn í sam­fé­lag­inu séu í höndum þeirra sem aðeins hugsa um eigin hag, helst þeirra sem eru svo rík að þau þurfa ekk­ert á grunn­kerfum sam­fé­lags­ins að halda og vilja því nýta auð sinn og völd til að brjóta niður vel­ferð­ar­kerfin og þær varnir sem almenn­ingur hefur bygt upp gegn ægi­valdi hinna ríku.

Planið með söl­unni er að ríkið sé minni­hluta­eig­andi og beiti sér ekki við stjórn bank­ans en styðji þá einka­að­ila til valda sem eiga mest. Sama á við um líf­eyr­is­sjóð­ina, sem er að mestu stjórnað af full­trúum Samtaka atvinnu­lífs­ins, hags­muna­sam­taka hinna fáu ríku. Erlendir brask­sjóðir hafa safnað saman blautum til að selja til inn­lendra einka­að­ila. Lítill hópur einka­að­ila mun í fram­hald­inu ná að stjórna bank­anum eins og hann eigi hann allan í skjóli ríkis og líf­eyr­is­sjóða. Þannig hefur Kol­krabb­inn alltaf unnið, magnað upp völd sín og áhrif með því að tryggja að ríki og líf­eyr­is­sjóðir vinni alltaf með auð­vald­inu og gegn almenn­ingi. Kol­krabb­inn er fólk sem varð ríkt eftir að það náði völdum innan rík­is­valds­ins og í líf­eyr­is­sjóð­unum. Það er ein­kenni ólig­arka. Það er fólk sem auðg­ast í gegnum spill­ingu.

Það er stétta­stríð á Íslandi og hin ríku eru að sigra. Þau hafa náð undir sig land­helg­inni og fisk­veiði­auð­lind­inni og þau stefna á að ná undir sig orkunni. Rík­is­stjórnin er með stór­felld áform um einka­væð­ingu, mark­miðið er að koma fjár­mála­kerf­inu til hinna ríku, vega­kerf­inu, heil­brigðis- og mennta­kerf­inu. Það er í gangi skipu­lögð yfir­taka á sam­fé­lag­inu, verið að færa öll verð­mæti þess til fólks sem almenn­ingi hryllir við að horfa á, vit­andi að þarna fer versta fólkið á Íslandi.“

Mannlíf mun á morgun birta við­brögð fleiri aðila varð­andi málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina