Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Dísella sópransöngkona hreppti Grammy-verðlaun: „Bestu og verstu bylgjurnar eru hverfular“

Dísella sópransöngkona hreppti Grammy-verðlaun: „Bestu og verstu bylgjurnar eru hverfular“
Dísella Lár­us­dóttir

„Þessi verð­laun gefa mér gæða­stimpil, hæsta gæða­stimpil sem ég get mögu­lega fengið í mínu fagi – en hvað það gerir fyrir frama minn verður að koma í ljós,“ segir Dísella Lár­us­dóttir sópran­söng­kona sem fékk í vik­unni Grammy-verð­laun ásamt sam­starfs­fólki fyrir upp­setn­ingu Metropolitan-óper­unnar á verki Philips Glass, Akhnaten. Verð­launin eru fyr­ir bestu óperu­upp­tök­una en Dísella lék burðar­mikið hlut­verk í óper­unni, hlut­verk Queen Tye. „Þetta er nútímatón­list og hlut­verkið mjög radd­lega krefj­andi. Upptakan var bara „live“ og ég veit ekki hvaða „live sýn­ing“ var tekin upp þótt ég giski á HD-sýn­ing­una sem var „live“ í um 70 löndum víðs vegar um heim­inn.

Afhend­ingin fór fram á svoköll­uðu „pre-show“ á Grammys, en það var alveg sér­há­tíð beint á undan hátíð­inni sem var sjón­varpað um allan heim. Við vorum til­kynnt sem sig­ur­veg­arar rétt um hálf­tíma fyrir lok þeirrar athafnar. Þá vorum við send beint í við­töl og mynda­tökur. Síðan fórum við aftur beint á rauða dreg­il­inn fyrir næstu hátíð, sem var þá sú sem Trevor Noah var kynnir á. And­rúms­loftið á báðum hátíð­unum var bara þægi­legt. Fólk var að hrósa manni fyrir kjól­inn sem maður klædd­ist og það var mik­ill stuðn­ingur við sig­ur­veg­ara kvölds­ins, okkur með­talin.“

Dísella segir að við­brögðin hafi verið yfir­þyrm­andi jákvæð og æðis­leg alls staðar frá. „Fólk er að óska manni til ham­ingju úr öllum áttum, svo mikið að ég hef ekki haft tæki­færi til að svara öllum og þakka almenni­lega fyrir mig. En ég er þakk­lát fyrir hverja og eina kveðju.“

Eitt það flottasta

Tón­listin hefur fylgt Dísellu alla tíð. Hún fór að læra á trompet þegar hún var átta ára og svo lærði hún líka á píanó. Hún söng popptón­list í ein­hvern tíma, en hún söng á Broadway með hljóm­sveit Gunnars Þórð­ar­sonar og hóf nám í klass­ískum söng þegar hún var að verða 22 ára.

„Það var eig­in­lega pabbi, Lárus Sveins­son, trompet­leik­ari með meiru, sem hvatti mig áfram í söngnum. Honum fannst mikið til minnar söngraddar koma, þótt ég hafi ekki heyrt það sjálf. Þegar hann lést skyndi­lega árið 2000 var ég stað­ráðin í að halda áfram á þess­ari braut, eig­in­lega fyrir hann. Ég komst að í skóla í Banda­ríkj­unum, Westminster Choir College of Rider Uni­versity, og tveimur árum eftir útskrift var ég komin í und­an­úr­slit í Metropolitan Opera National Council Auditions. Sú keppni varð til þess að mér var boðið svo­kallað „cover“ eða „stað­geng­ill“ á mínu fyrsta hlut­verki í Metropolitan Opera eða Met.“ Hún segir að Met sé eitt flottasta ef ekki flottasta óperu­hús í heimi. „Þetta er hús sem býður upp á gæði fyrst og fremst og einnig er hugsað vel um okkur lista­menn­ina, okkur eru borguð laun á réttum tíma og þetta gefur manni gæðasta­tus því sam­keppnin er hörð og allir vilja þarna inn; þeir sem kom­ast eru því í flestum til­fellum frá­bærir lista­menn þótt auð­vitað séu til und­an­tekn­ingar.“

Einn til tveir mánuðir

Dísella flutti heim til Íslands árið 2014 og býr í Graf­ar­vogi ásamt eig­in­manni sínum, Braga Jónssyni, rekstr­ar­stjóra BYKO-leigu. Hann er einnig lærður söngv­ari og segir Dísella að hann sé almennt frá­bær ein­stak­lingur í alla staði; hennar besti vinur og klett­ur­inn í lífi hennar. Börnin eru þrjú. Bjartur Lárus er elstur, en hann er að verða 12 ára og hann á Dísella með fyrr­ver­andi eig­in­manni sínum. Þau Bragi eiga svo Jökul Orra, sem er sjö ára, og Snædísi Lind, sem er eins árs.

„Ég skrepp svo út öðru hverju til að vinna og er eins og sjó­maður; er úti í einn til tvo mán­uði í senn og kem svo heim og reyni að verja svip­uðum tíma heima áður en ég fer út aftur. Ég er því mjög vand­virk að velja þau verk­efni sem ég er til­búin að taka að mér.

Fjöl­skyldu­lífið er vanaf­ast en líka spenn­andi því við Bragi leggjum áherslu á að börnin fái að upp­lifa það sem kall­ast „eðli­leg æska“ á íslenskum mæli­kvarða, en samt fá þau að ferð­ast því þau fá að koma í heim­sókn til mín á þeim stöðum sem ég syng eig­in­lega í hvert skipti sem ég fer út. Þá er þetta ævin­týra­leg upp­lifun fyrir börnin og þau fá að kynn­ast öðrum menn­ing­ar­heimum; og mögu­lega fá frí í skóla í smá­stund, sem er voða sport þó að heima­vinnan komi með.“

Dísella segir að áhuga­mál sín snú­ist að mestu um mat og drykk. „Það er eig­in­lega hálf­vand­ræða­legt að eiga ekki almenni­legt áhuga­mál, en það er nú bara þannig að líf mitt snýst um mína vinnu ann­ars vegar og fjöl­skyldu­líf hins vegar og ég elska að elda ofan í fólkið sem ég elska og fram­reiða á fal­legan hátt; og sötra góðan drykk með.“

Hvað með lífs­stíl­inn vest­an­hafs? „Lífs­stíll­inn úti hjá mér alla­veg­ana er ekki mjög fjöl­breyttur; maður ferð­ast einn, býr einn og reynir að verja frí­tíma sínum í allt það sem getur hjálpað manni að vera í góðu radd­legu formi, sem er hreyf­ing, svefn, nær­ing og raki í lofti fyrir rödd­ina. Sam­keppnin er gíf­ur­lega hörð og þess vegna leggur maður ALLT á sig til að reyna að vera í góðu radd­legu, and­legu og lík­am­legu formi til að halda sinni vinnu.“

Silfurtónar

Jú, hún er sópran. Lýrískur sópran.

„Ég hef oft­ast fengið lýs­ing­una „silf­ur­tónar“ þegar kemur að minni rödd – mér þykir mjög vænt um þá lýs­ingu þar sem ég tengi það við fal­legan vetur, ís og frost. Verandi frá Íslandi er það bara full­komið. Mínar upp­á­halds­raddir eru samt oft frekar „flauel“ eða „rúbín­rauðar“ en það er kannski svona týpískt dæmi um að vilja vera það sem maður er ekki; sumir sem eru með slétt hár vilja vera með krullur og öfugt.“

Dísella segir að í huga sínum sé tón­list nauð­syn­leg tján­ing á til­finn­ingum. „Hvort sem ég er að tjá eða ég er að hlusta á aðra tjá. Ég vil hlusta á góða tón­list til að upp­hefja góða stemm­ingu og lyfta lund eða þá að tón­listin verði hvatn­ing í að hreyfa mig eða gera eitt­hvað sem ég þarf að gera. Meira að segja þögn er góð tón­list; eða eins og Mozart sagði: „Tónlist er ekki í nót­unum heldur í þögn­inni inn á milli þeirra.“

Tón­listin gefur mér minn frama og leyfir mér að vinna við það sem ég elska að gera en aftur á móti þarf ég oftar en ekki að fórna ýmsu til að stunda þessa vinnu. Bara það til dæmis að vera í háværum fögn­uði eða gleð­skap þýðir að röddin gæti orðið erfið og rám dag­inn eftir þó maður sé dug­legur að tala ekki né neyta áfengra drykkja; en það sem flestir mögu­lega fatta ekki er að maður brosir og það eitt lyftir bark­anum og þreytir hann. Flestir kannski kann­ast við þreytu í kinnum við mikið bros, en þetta fer fyrr í háls­inn. Við söngv­arar þurfum að vera mjög næmir að lesa í svona lagað til að geta stundað okkar vinnu. Þetta getur stundum hljó­mað eins og „væl“ í eyrum þeirra sem ekki syngja og það er mjög erfitt að standa með sér á þeim tímum. Fólk skilur þetta þegar íþrótta­menn tala um að þurfa að hvíl­ast en því miður sýnir það því oft ekki skiln­ing þegar kemur að söng­rödd­inni. Svefn, hvíld og raki skipta gíf­ur­legu máli í lífi söngv­ara.“

Tók mjög á mig

Dísella seg­ist alltaf reyna að vera heið­ar­leg í sínum túlk­unum; ekki reyna að túlka heldur bara segja þá sögu sem tón­skáldið og texta­höf­undur eru að reyna að segja. „Þá reyni ég að nota reynslu mína til að reyna að skilja þeirra túlkun og standa með því. Það er erfitt að segja hvort ég sé að túlka það rétt eða rangt því oft­ast eru skáldin löngu horfin á braut en þá er mik­il­vægt að trúa því sem manni finnst text­inn og tón­listin vera að segja.“

Fram undan er end­ur­vakn­ing á óper­unni Akhnaten eftir Philip Glass í Metropolitan óper­unni. „Ég hlakka mikið til að fara aftur út að vinna eftir þennan heims­far­aldur en ég hef að mestu verið heima ólétt og svo með lítið barn í þessum far­aldri.“

Hvert er eða hver eru drauma­hlut­verk sóprans­ins? Lýríska sóprans­ins? „Drauma­hlut­verkin eru úr ýmsum áttum. Maður hefur sungið ein­hver en mig langar enn þá að syngja til dæmis Sophie úr Ros­enka­valier og Luciu hans Donizettis. Ég nefni þessi hlut­verk vegna þess að ég hef verið bendluð við Sophie frá því ég byrj­aði að syngja og mér líður mjög vel í hennar hlut­verki, þótt ég hafi ekki sungið hana opin­ber­lega í óperu­fyr­ir­tæki, og Lucia vegna þess að mér finnst hún alveg brjál­æð­is­lega áhuga­verð sem karakter og tón­listin und­ur­fögur.“

Dísella sagð­ist reyna að nota reynslu sína þegar kemur að tón­list­inni. Hún hefur upp­lifað ýmis­legt í sínu per­sónu­lega lífi.

„Líf mitt lit­ast að miklu leyti af því að mamma mín fékk alvar­legt heila­blóð­fall þegar ég var 11 ára; hún þurfti að læra að tala upp á nýtt og gat ekki stundað sína vinnu lengur. Mamma og pabbi skildu tveimur árum síðar og það var frekar erf­iður skiln­aður sem tók nokkur ár og það tók mjög á mig. Svo lést pabbi skyndi­lega þegar ég var 23 ára. Þessi áföll lit­uðu til­veru mína tölu­vert þó ég reyni nú alls ekki að lifa í þeirri for­tíð. Það sem ég lærði hins vegar er að vera þakk­lát fyrir það sem ég hef þegar ég hef það. Ég veit að lífið kemur í bylgjum, háum og lágum, og bæði bestu og verstu bylgj­urnar eru hverf­ular. Þá er nauð­syn­legt að njóta góðu stund­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina