Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Skyndikynni sem breyttust í martröð – Morðið á Vivan Hrefnu

Skyndikynni sem breyttust í martröð – Morðið á Vivan Hrefnu

Vivan Hrefna Ótt­ars­dóttir hafði nýlega skilið við seinni eig­in­mann sinn er hún skrapp út að skemmta sér í mið­borg Genfar. Kom hún heim með mann upp á arm­inn snemma morg­un­inn eftir en áður en hún fór inn í svefn­her­bergi með honum kíkti hún inn til 15 ára dóttur sinnar og bauð henni góðan dag. Klukkan 11 blasti hræði­leg sjón við lög­regl­unni. Vivan hafði verið myrt á hrotta­feng­inn hátt og hafði morð­ing­inn einnig reynt að nauðga dóttur hennar. Skyndikynnin höfðu breyst í martröð.

DV fjall­aði um málið á sínum tíma en morðið var framið árið 1995.

Íslensk kona, Vivan Hrefna Ótt­ars­dóttir, 39 ára líf­fræð­ingur, sem búsett hafði verið í Genf um ára­bil, fannst látin í íbúð sinni í mið­borg Genfar á ell­efta tím­anum á laug­ar­dags­morgun. Greini­legt var á ummerkjum að hrotta­legur atburður hafði átt sér stað í íbúð kon­unnar því hún fannst kefluð í rúmi sínu og með plast­poka hertan að höfð­inu. Konunni hafði að sögn

lög­reglu verið nauðgað. Vivan hafði komið heim af skemmti­stað með bana­manni sínum klukkan sjö um morg­un­inn. Hún leit sem snöggvast inn í svefn­her­bergi 15 ára dóttur sinnar og bauð henni góðan dag. Eftir það sofn­aði stúlkan aftur.

Þegar dóttir Vivan vakn­aði aftur um tíu­leytið varð hún vör við ókunnan mann sem reynd­ist vera á flótta út úr íbúð­inni eftir morðið. Hann réðst á stúlk­una með gaffli og hafði í hót­unum við hana eftir að hafa þrýst peysu yfir and­lit hennar svo hún bæri ekki kennsl á sig. Maðurinn gerði því næst til­raun til að nauðga stúlkunni. Þegar mað­ur­inn hvarf loks á brott tókst stúlkunni að gera nágrönnum sínum við­vart. Lög­reglan var strax kvödd á stað­inn og hófst þegar leit að ódæð­is­mann­inum því ljóst var að um hrotta­legt morð­mál var að ræða. í sviss­neska sjón­varp­inu var lýst eftir vitnum sem gætu gefið vís­bend­ingar um ferðir hinnar látnu aðfara­nótt sunnu­dags­ins. Vitni sem gáfu sig fram þegar eftir frétta­tíma sjón­varps­ins gátu gefið lög­regl­unni grein­ar­góða lýs­ingu á mann­inum sem Vivan hafði sést í fylgd með um nótt­ina. Sú lýs­ing virt­ist koma heim og saman við lýs­ingu dótt­ur­innar á árás­armann­inum. Eitt vitn­anna gat nafn­greint mann­inn og bent á hvar hann væri lík­leg­ast að finna. Um kvöldið tókst sviss­nesku lög­regl­unni i fram­haldi af því að rekja slóð mainns­ins á veit­inga­stað í Genf þar sem hann var hand­tek­inn og síðar um kvöldið ját­aði hann að hafa orðið íslensku kon­unni að bana.

Maðurinn, sem er 38 ára gam­all Frakki, var ólög­lega búsettur í Genf, starf­aði sem múr­ari og hafði ekki áður kom­ist í kast við lögin, hvorki i Sviss né Frakk­landi. Maðurinn og sú látna þekkt­ust ekk­ert fyrir atburð­inn. Dóttur kon­unnar var strax komið undir læknis hendur. Hún nýtur nú umönn­unar vina­fólkss­ins. Stúlkan er dóttir Vivan Hrefnu Ótt­ars­dóttur og fyrri eig­in­manns hennar sem er íslenskur. Seinni eig­in­maður Vivan er Sviss­lend­ingur en þau
slitu nýlega sam­vistum. Hin látna starf­aði af og til við rann­sóknir á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna í Genf.

Lög­reglan í Genf þakkar bæði almenn­ingi og fjöl­miðlum hversu fljótt tókst að upp­lýsa þetta óhugn­an­lega morð­mál sem slegið hefur óhug á fólk i Sviss og orðið for­síðu­efni dag­blaða þar.

Maðurinn var sak­felldur fyrir dómi en hlaut sorg­lega vægan dóm, ekki nema 15 ára óskil­orðs­bundna refs­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina