Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Starfsfólk Eflingar fékk uppsagnarbréf í nótt: „Staðið hefur verið rétt og faglega að ferlinu“

Starfsfólk Eflingar fékk uppsagnarbréf í nótt: „Staðið hefur verið rétt og faglega að ferlinu“

Starfs­fólki á skrif­stofu Eflingar barst form­legt upp­sagn­ar­bréf klukkan tvö í nótt. RÚV greinir frá þessu.

Í bréf­inu kemur fram að ástæða upp­sagn­ar­innar sé skipu­lags- og rekstr­ar­breyt­ingar sem nái til allra stöðu­gilda hjá stétt­ar­fé­lag­inu.

Í bréf­inu segir enn­fremur að ný störf hjá Eflingu verði aug­lýst og er við­tak­andi hvattur til að sækja um. Upp­sagn­ar­frestur er sagður í sam­ræmi við ráðn­ing­ar­samn­ing við­kom­andi og við­eig­andi kjara­samn­ing. Óskað er eftir að við­tak­andi bréfs sinni vinnu­skyldu á upp­sagn­ar­tíma.

Hóp­upp­sögnin á skrif­stofu Eflingar hefur verið gagn­rýnd harð­lega innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Drífa Snædal, for­seti ASÍ, hefur til að mynda sagt verka­lýðs­hreyf­ing­una hafa unnið hart að því í fjölda­mörg ár að hóp­upp­sagnir af þessu tagi ættu sér ekki stað.

Í nýrri yfir­lýs­ingu frá Sólveigu Önnu seg­ist hún ánægð með að sam­ráð við trún­að­ar­menn hafi skilað sér í sam­komu­lagi. Það sam­komu­lag felur meðal ann­ars í sér að starfs­fólk geti farið í atvinnu­við­töl á vinnu­tíma og að Efling muni falla frá samn­ings­bundnum upp­sagn­ar­fresti við­kom­andi starfs­manns, fái hann starf ann­ars­staðar.

„Ég lýsi ánægju með að sam­ráð við trún­að­ar­menn hafi skilað sér í sam­komu­lagi. Staðið hefur verið rétt og fag­lega að ferl­inu. Það er hins vegar mjög leitt að minni­hluti stjórnar hafi ekki virt trúnað og kosið að leka upp­lýs­ingum í fjöl­miðla meðan á sam­ráði stóð,“ segir í til­kynn­ingu Sól­veigar Önnu.

„Van­stillt umræða hefur svo farið úr bönd­unum síð­ustu sól­ar­hringa þar sem ýmsir hafa sett sig á háan hest án þess að vita nokkuð um málið. Er það engum til sóma,“ segir hún enn­fremur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina