Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Óeðlilegur hagnaður bankanna: „Íslendingar borga miklu meira fyrir verri bankaþjónustu“

Óeðlilegur hagnaður bankanna: „Íslendingar borga miklu meira fyrir verri bankaþjónustu“
Jón Dan­í­els­son, hag­fræði­pró­fessor við LSE

Fyrr á þessu ári sam­þykkti Fjármála- og efna­hags­ráð­herra til­lögu Banka­sýslu rík­is­ins um sölu eign­ar­hluta rík­is­ins á Íslands­banka, eins og frægt er orðið.  Í grein­ar­gerð Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir að helstu mark­mið með sölu rík­is­ins á hlutum þess í Íslands­banka séu meðal ann­ars að minnka áhættu rík­is­ins af svo stórum eign­ar­hlut í fjár­mála­kerf­inu, að stuðla að fjöl­breyttu, heil­brigðu og dreifðu eign­ar­haldi til lengri tíma, að auka fjár­fest­ing­ar­mögu­leika fyrir inn­lenda ein­stak­linga og fag­fjár­festa, og að minnka skuld­setn­ingu eða auka svig­rúm rík­is­ins til sam­fé­lags­lega arð­bærra fjár­fest­inga.

Þingmenn stjórn­ar­and­stöðu ræddu söl­una á hluta Íslands­banka á Alþingi eftir söl­una í lok mars þessa árs og gagn­rýndu það harð­lega hve brátt hana hafi borið að. Ekkert gagn­sæi hafi verið við sölu­ferlið, of mik­ill afsláttur gef­inn og kallað var eftir form­legri umræðu í þing­sal.

Fjárfestar eru almennt ekki sólgnir í að kaupa í bönkum erlendis

Linda H. Blöndal, fjöl­miðla­kona á Hring­braut ræddi við Jón Dan­í­els­son, hag­fræði­pró­fessor við London School of Economics í frétta­vakt­inni í gær. Rætt var um söl­una á hluta­bréf­unum og spurt hvernig íslensku bank­arnir séu reknir og hvernig þeir eru sam­an­settir?

„Það merki­lega við allt þetta mál er ekki hvernig var staðið að söl­unni, heldur af hverju er þetta svona mikið mál? Því ef við skoðum banka í Evrópu, Bret­landi og í Banda­ríkj­unum þá eru þeir ekki að skila neinum hagn­aði. Þannig að fjár­festar eru ekk­ert sólgnir í að kaupa. Ef það hefði verið svipað útboð í Evrópu eða í Band­ríkj­unum þá hefði verið afskap­lega erfitt að fá ein­hvern til þess að kaupa þessa hluti. Þannig að spurn­ingin er sú, hvað veldur því að fjár­festar eru svona sólgnir í þessa íslensku banka?“

Íslenskir bankar skila miklu meiri hagnaði

Af hverju eru íslenski bankar öðru­vísi en bankar ann­ars­staðar?

„Svarið er til­tölu­lega aug­ljóst. Íslenskir bankar eru að skila miklu meiri hagn­aði heldur en bankar ann­ars­staðar, sem er til­tölu­lega óeðli­legt.

Það er oft sagt að það séu ein­hver íslensk leið. Það sem veldur þessu er það að íslensk banka­þjón­usta er sú allra dýrasta í Evrópu og sú allra versta. Þannig að Íslend­ingar eru að borga miklu meira fyrir miklu verri banka­þjón­ustu, heldur en gengur og ger­ist í lönd­unum í kringum okkur.

Þetta ein­fald­lega býr til þennan gríða­lega hagnað sem bank­arnir hafa verið að skila á und­an­förnum árum. Og það sem skýrir þessa sókn í þessi hluta­bréf er að fjár­festar eru að horfa á þennan gríða­lega hagnað sem bank­arnir búa til.“

Neytendur borga hagnaðinn

Eru neyendur þá sem eru að borga þennan hagnað alfarið?

„Það er auð­vitað við öll sem borgum fyrir þetta. Því Íslend­ingar eru að borga miklu meira fyrir miklu verri banka­þjón­ustu og eru að búa til hagnað fyrir þá sem eiga bank­ana.“

Þá er spurn­ingin. Af hverju var þessu leyft að verða svona?

„Það er alltaf bent á að Ísland sé lítið. Það er alveg rétt – Ísland er lítið og erlendir bankar vilja ekki starfa hérna vegna þess hversu mark­að­ur­inn er lít­ill. Ekki getum við stækkað landið. En ef við skoðum ástæð­una á bak við þetta, þá getum við horft aftur til hruns­ins 2008, en þá voru settar upp girð­ingar til að vernda banka frá gjald­þroti. Það sem þessar girð­ingar gera er að hefta bank­ana frá sam­keppni sem leiðir til þess að þeir eru að fá þennan fákeppn­is­hagnað.

Þannig að í raun­inniá bak við þetta er að fjár­mála­eft­ir­litið og stjórn­völd á síð­ustu 15 árum hafa búið til og stuðlað að því að fjár­mála­kerfið yrði á þann hátt að Íslend­ingar þurftu að borga miklu meira fyrir verri þjón­ustu.“

Þeir sem voru svo heppnir að geta keypt í bönkunum fá hagnaðinn

Hver hagn­ast mest á þessu fyr­ir­komu­lagi?

„Þeir sem hagn­ast mest á þessu eru eig­endur bank­anna. Ríkið hagn­ast nátt­úru­lega á því líka ef ríkið getur selt þessa hluti á háu verði. En eftir að íslenska ríkið er búið að koma þessum bréfum frá sér þá skilar þessi hagn­aður ein­ungis til þeirra sem eru nógu heppnir eða voru nógu hraðir til þess að kaupa hluta­bréf í bönk­unum. Þannig að þetta er í raun og veru, það að við höfum búið til þessar girð­ingar til að verja bank­ana fyrir sam­keppni sem leiðir til þess að þeir skila þessum óeðli­lega hagn­aði með hærra verði og verri þjón­ustu. Það leiðir til þess að þeir sem eru svo heppnir að geta keypt í bönk­unum fá þennan hagnað.“

Hvað er svona slæmt við þjón­ust­una hér á landi?

„Hvað það er erfitt að ná sam­bandi við bank­ana. Hvað þú borgar mikið fyrir lán. Hvaða vörur eru boðnar upp á. Hvað kostar mikið að kaupa þjón­ustu eins og gjald­eyr­is­flutn­ing eða hluta­bréf. Þannig að þjón­ustan sem er veitt á Íslandi er dýr­ari og fábreytn­ari.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina