Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Starfsmaður Eflingar sakar stjórnina um lygar: „Vanvirðing við okkur starfsfólkið er fordæmalaus“

Starfsmaður Eflingar sakar stjórnina um lygar: „Vanvirðing við okkur starfsfólkið er fordæmalaus“
Sólveig Anna Jóns­dóttir.

Vala Arna­dóttir er starfs­maður Eflingar en hún hefur verið í veik­inda­leyfi síðan hún lenti í slysi síð­ast­liðið sumar. Hún fékk upp­sagn­ar­bréf frá lög­manni Eflingar eins og aðrir starfs­menn, klukkan tvö um nótt. Hún skrif­aði færslu um málið á Facebook.

Í færsl­unni sakar hún Sólveigu Örnu og stjórn Eflingar um að leggja niður félags- og þró­un­ar­svið sem hún starf­aði hjá, til þess að búa til stöðu fyrir Viðar Þor­steins­son. Það hafi verið gert með því að stofna skrif­stofu félaga­mála sem þjón­aði sama til­gangi og sviðið sem lagt var niður. Þá segir hún Sólveigu Önnu ekki hafa staðið með þolendum ein­eltis af hendi Viðars, heldur sagt upp þeim sviðs­stjóra sem þau töldu að ætti upp­tökin af kvört­un­unum.

Hér má sjá færsl­una í heild sinni:

„Ég er starfs­maður Eflingar í veik­inda­leyfi eftir að ég lenti í slysi síð­asta sumar.

Í nótt kl 2 fékk ég upp­sagn­ar­bréf frá lög­manni úti í bæ, en ég er í veik­inda­leyfi og var búin að til­kynna að ég kæmi ekki aftur til starfa.

Mánuði eftir slysið mitt var mér til­kynnt að félags- og þró­un­ar­svið sem ég starf­aði hjá sem teym­is­stjóri félaga­mála hefði verið lagt niður „vegna skipu­lags­breyt­inga” og mér var boðið starf á öðru sviði, sem ég afþakk­aði.

Stuttu eftir að sviðið sem ég starf­aði hjá var lagt niður var “skrif­stofa félaga­mála” stofnuð og Viðar Þor­steins­son settur þar yfir, skrif­stofa hans og starfs­fólk þess þjón­aði sama til­gangi og „félags- og þró­un­ar­svið” gerði áður svo „skipu­lags­breyt­ingin” var nán­ast engin, nema til þess fallin að losa sig við sumt starfs­fólk og setja Viðar yfir ein­ingu sem hann myndi geta sætt sig við eftir að fjölda kvart­anna í hans garð gerðu honum erfitt um vik að starfa áfram sem fram­kvæmda­stjóri.Ég studdi þær konur sem kvört­uðu undan fram­komu og ein­elt­istil­burðum Viðars og ég bað Sólveigu Önnu um að standa með þeim líka fyrir ári síðan, en þá hafði hún í stað þess að taka kvart­anir þeirra alvar­lega sagt upp þeim sviðs­stjóra „sem þau töldu að ætti upp­tök af þeim kvört­unum.“

Ég reyndi að biðla til hennar að standa með þeim konum sem alltaf hefðu staðið með henni, konur sem komu til starfa hjá Eflingu til að styðja við hennar bar­áttu og ég trúði því ekki að hún myndi bregð­ast þeim, en allt kom fyrir ekki.

Ekki var þarna um ein­hverja „starfs­menn fyrri stjórnar” að ræða eins og þau Viðar hafa viljað halda fram, þau réðu sjálf þessar konur, ekki var um eitt­hvað „plott fyrrum trún­að­ar­manns Eflingar” að ræða eins og þau hafa einnig haldið fram og ekki var um að ræða ein­hverja „leifar af gam­alli vinnu­staða­menn­ingu Eflingar”.

Þetta er allt ein­fald­lega lygi og hefur það margoft komið í ljós bæði í við­tölum við starfs­menn og í úttekt sál­fræði­stofu á vinnu­staða­menn­ing­unni.

Ég hef vegna minna veik­inda og vegna fjöl­skyldu­tengsla við Sólveigu Önnu ekki viljað tjá mig, enda er ekk­ert upp úr því að hafa nema leið­indi fyrir mig og mína.En nú er nóg komið, ég starf­aði fyrir Eflingu í þrjú ár fyrir slysið og leiddi með þeim bar­átt­una fyrir betri kjörum Efl­ing­ar­fé­laga, ég heim­sótti hund­ruðir vinnu­staða, var m.a. með umsjón yfir trún­að­ar­manna­kosn­ingum og verk­falls­að­gerðum og kynnt­ist fjölda félaga vel. Félaga sem ég svo mældi með til trún­að­ar­starfa hjá Eflingu, bæði í trún­að­ar­ráð og stjórn, margt af þeim gegna þar emb­ætti núna.

Þessir félagar skulda mér ekki neitt, en ég á mjög erfitt með að þau skuli mörg hver trúa því upp á okkur, starfs­menn Eflingar að við höfum á ein­hvern hátt átt annan þátt í þessarri atburð­ar­rás en að kvarta undan óboð­legri fram­komu yfir­manns (fram­kvæmda­stjóra) og vonað að Sólveig Anna myndi taka kvart­anir alvar­lega og standa með sínu starfs­fólki sem sann­ar­lega hafði staðið með henni.

Það græðir eng­inn á þeim farsa sem hófst í lok októ­ber í fyrra, ekki starfs­menn og ekki félags­menn Eflingar.

Ef ein­hver vinnu­staður annar hefði til­kynnt um hóp­upp­sagnir til að svo end­ur­ráða starfs­fólk á lægri kjörum þá værum við hjá Eflingu fyrst til að verja þau og þeirra rétt­indi, ef ein­hver annar vinnu­staður hefði ráð­ist á trún­að­ar­menn sína og starfs­menn í fjöl­miðlum þá værum fyrst til að for­dæma það og taka upp hansk­ann fyrir það starfs­fólk.

Ég er djúpt von­svikin með stjórn og trún­að­ar­ráð Eflingar og öll þau sem í blindni trúa eft­irá­skýr­ingum sem stand­ast ekki skoðun.

Ég var stolt af því að starfa fyrir Eflingu og trúði því að okkar bar­átta væri rétt­lát og árang­urs­rík fyrir félags­menn.

Van­virð­ing við okkur starfs­fólkið er for­dæma­laus.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina