Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Natalya Baburina frá Úkraínu: „Meðan á símtalinu stóð lenti sprengja á húsi um 50 metrum frá honum“

Natalya Baburina frá Úkraínu: „Meðan á símtalinu stóð lenti sprengja á húsi um 50 metrum frá honum“
Natalya Baburina

„Hræðsla, reiði; mikil reiði. Ég var hams­laus. Ég var líka áhyggju­full, hjálp­ar­vana og sorg­mædd og svo líka þakk­lát og full aðdá­unar og trausts og það róaði mig,“ segir Natalya Baburina, sem er frá Úkraínu og er komin hingað til lands, þegar hún er beðin um að lýsa til­finn­ing­unum eftir að Rússar réð­ust inn í Úkraínu.

Natalya, sem bjó í borg­inni Kharkiv og vann hjá tölvu­fyr­ir­tæki, flúði á öðrum degi stríðs­ins. Lífleg borgin varð allt í einu hálf­mann­laus og sá Natalya flug­skeyti á himni. Hún fór ásamt syni sínum en eig­in­maður hennar varð eftir en hjónin tóku þessa ákvörðun eftir að Rússar gerðu árás á kjarn­orku­ver í borg­inni Enegrodar. „Maðurinn minn hringdi í vini sína á Íslandi og bað þá um að hjálpa okkur og hýsa okkur. Ég keypti flug­miða tveimur dögum áður en við fórum til Íslands og fór mað­ur­inn minn með okkur að landa­mærum Ung­verja­lands. Við mæðginin kvöddum hann þar, við grétum öll svo­lítið og fórum síðan yfir landa­mærin. Það voru ekki margir Úkra­ínu­menn að flýja þennan dag yfir landa­mærin þannig að þetta gekk vel og við hittum mjög elsku­legan sjálf­boða­liða, Beata, frá Búdapest og hún aðstoð­aði okkur síðan við að kom­ast á flug­völl­inn. Við gistum eina nótt í skóla í Tisabetch, þar sem fleiri í okkar stöðu gistu, og dag­inn eftir fór Beata með okkur til Búdapest og við gistum á heim­ili mömmu hennar nálægt flug­vell­inum. Það var ótrú­legt að sjá hve margir voru hjálp­legir í Ung­verja­landi en þetta var hinn almenni borg­ari sem skipu­lagði þetta; ekki hið opin­bera. Fólk dvaldi ein­ungis í einn til tvo daga í svona flótta­manna­mið­stöðvum og sáu sjálf­boða­liðar um að skipu­leggja hvert fólk gæti svo farið.“

Meðan á sím­tal­inu stóð lenti sprengja á húsi um 50 metrum frá honum og særði fólk.

Natalya segir að á ferð fjöl­skyld­unnar hafi þau hitt marga úkra­ínska her­menn svo virk­uðu sjálfsör­uggir, kurt­eisir og þeir voru að hennar sögn mjög hjálp­samir. „Ég tal­aði á þessum tíma við bróður minn í síma, en hann var eftir í Kharkiv, og meðan á sím­tal­inu stóð lenti sprengja á húsi um 50 metrum frá honum og særði fólk. Hann lýstu þessu öllu fyrir mér. Hann hefur sagt mér frá fleiri álíka atburðum í borg­inni.“

Natalya og sonur hennar komu svo í öryggið á Íslandi.

Gefur pening

Móðir og bróðir Natalya eru í Kharkik og segir hún að þau hafi frá upp­hafi stríðs­ins verið ákveðin í að vera þar áfram og gera það sem þau geta til að aðstoða. „Mamma sér um heim­il­is­lausa ketti og bróðir minn er leigu­bíl­stjóri og hann aðstoð­aði fólk við að kom­ast á járn­braut­ar­stöð­ina þar sem það tók lestir til að kom­ast í burtu. Við hjónin vildum að bróðir minn fengi annan bíl­inn okkar þar sem leigu­bíla­stöðvar buðu upp á akstur í vest­ur­átt og ég lét bróður minn fá nöfn mæðra sem voru á hinum ýmsu for­eldra­spjall­hópum en það var mikið vanda­mál með leigu­bíl­stjóra þar sem fáir vildu aka fólki sem bjó á svæðum þar sem hættu­leg­ast var að vera og sumir þeirra vildu taka allt of hátt gjald. Ég vona þess vegna að við höfum hjálpað ein­hverjum konum og börnum fyrstu vik­urnar.“ Natalya segir að bróðir sinn eigi vin sem er í hernum og særð­ist hann í átök­unum og dvelur hann nú hjá bróður hennar og móður á meðan hann er að jafna sig þar sem íbúð hans eyði­lagð­ist í spreng­ingu. „Ég les skila­boð frá bróður mínum á hverjum morgni.“

Við viljum fara aftur heim og byggja upp heim­ili okkar og borg.

Natalya vinnur við að aðstoða föð­ur­landið. Hún og fleiri for­eldrar barna í skól­anum sem sonur hennar gengur í gefa pen­ing til hjálpar þeim sem eru úti en margir Úkra­ínu­menn leggja fram fé til að hægt sé að kaupa meðal ann­ars öku­tæki og dróna sem not­aðir eru í bar­átt­unni gegn Rússum. „Við viljum fara aftur heim og byggja upp heim­ili okkar og borg. Ég er mjög þakk­lát úkra­ínskum her­mönnum og sjálf­boða­liðum sem leggja sig í hættu við að vera drepnir. Þetta eru hetjur. Og ég er mjög ánægð með að geta aðstoðað á þann hátt að leggja til pen­ing. Ég vann í tölvu­fyr­ir­tæki og stór hluti við­skipta­vina þess hjálpar líka Úkra­ínu­mönnum. Þeir gefa pen­ing, gera nýja samn­inga við fyr­ir­tækið og halda sam­starf­inu áfram þrátt fyrir ástandið í Úkraínu.“

Hatar Rússland

Natalya seg­ist hafa ótt­ast inn­rás Rússa frá því í fyrra­sumar.

„Við hjónin höfðum það sterk­lega á til­finn­ing­unni að borgin okkar færi illa vegna inn­rásar Rússa. Borgin er mjög fal­leg, nútíma­leg og þar býr margt vel menntað fólk. Við þótt­umst vita að Rússar myndu vilja eyði­leggja allt þetta.“

Mér fannst vera kulda­legt og fjand­sam­legt þar.

Natalya fædd­ist í Sov­ét­ríkj­unum árið 1984. „Ég hataði að til­heyra Sov­ét­ríkj­unum. Þá byggð­ist allt upp á lygi, mis­beit­ingu og nið­ur­læg­ingu fólks. Það var erfitt um tíma að búa í Úkraínu þar sem hag­kerfið var eyði­lagt og verð­bólga var gíf­ur­leg og þá var betra að búa í Rúss­landi enda fluttu þangað margir. Ég var í Moskvu árið 1991 og ég var ekki ánægð þar. Mér fannst vera kulda­legt og fjand­sam­legt þar og þar var mikið um glæpi. Á þeim tíma dreymdi mig um að Úkraína yrði auð­ugt land.“ Rússar fóru svo að skipta sér af póli­tík­inni í Úkraínu og segir Natalya að síðan þá hafi hún engan áhuga á Rúss­landi og að í dag hati hún það land svo mikið að hún vilji ekki að það sé á yfir­borði jarðar. „Frá árinu 2000 hef ég séð hvernig Rússar hafa snúið sér aftur að hryll­ingnum og áróð­urs­starf­sem­inni sem til­heyrði Sov­ét­ríkj­unum.“

Hve langt heldur hún að Pútín muni ganga? „Ég held hann geti náð langt með því að hóta kjarn­orku­sprengju. Þeir taka yfir kjarn­orku­ver í Úkraínu og beita þannig þrýst­ingi og ég er hrædd um að heimsku­legir til­burðir þeirra muni leiða til hörm­unga.“

Alræð­is­vald er orð sem Natalya notar yfir Rússland. „Pútín er ein­ungis núver­andi leið­togi. Það gætu aðrir tekið við sem not­uðu sömu taktík. Það er ekki satt að Rússar séu almennt sak­lausir en ætt­ingjar manns­ins míns og margir Rússar sem við þekkjum eru á því að Úkraína eigi að til­heyra Rúss­landi. Þetta teng­ist því að Úkraína sé auð­lind fyrir Rússa. Þetta er heims­veld­is­hugsun og jafn­vel frjáls­lyndir Rússar eru á þess­ari skoðun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una