Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Rannveig Erlingsdóttir: Moli hefur jákvæð áhrif á fólk með heilabilun

Rannveig Erlingsdóttir: Moli hefur jákvæð áhrif á fólk með heilabilun
Rannveig Erlings­dóttir

„Það er eitt­hvað við þessa teng­ingu við hund­inn sem veitir öryggi, ró og vellíðan. Þetta er eitt­hvað sem gleður og gleðin gerir öllum gott,“ segir Rannveig Erlings­dóttir sjúkra­liði. Hún vinnur í Mar­íu­húsi sem er dag­deild fyrir fólk með heila­bilun. Þangað kemur fólk í dag­vist og er hún með sviss­neska Schäfer-hund­inn sinn Mola með sér í vinn­una til að skjól­stæð­ing­arnir geti talað við hann, klappað honum og notið sam­vista við hann.

Moli fylgir þeim og leggst við fætur þeirra eða heldur sig nálægt þeim

Skjól­stæð­ing­arnir vinna að ýmsum verk­efnum yfir dag­inn svo sem að teikna, mála, púsla og Moli fylgir þeim og leggst við fætur þeirra eða heldur sig nálægt þeim. „Það er bara þessi nær­vera; hún er oft alveg nóg. Það er eitt­hvað sem bæði dýr og einnig börn hafa með sinni himnesku ró og sinni gæsku; þótt fólk sé með heila­bilun þá er skynj­unin sú sama: Dýrin eru góð og litlu börnin eru góð og fólki líður vel innan um þau. Þetta gleður. Ef ein­hverjum líður illa þennan dag­inn þá getur það breytt miklu að setj­ast niður hjá hund­inum og tala við hann eða segja ekki neitt; bara klappa honum og fylgj­ast með honum.“

Rannveig segir að þessi Schäfer-teg­und hafi reynst mjög vel og séu hund­arnir fjöl­skyldu­vænir. „Moli er bara svo ósköp rólegur og þægi­legur í umgengni. Hann hefur alltaf verið rólegur. Þegar ég fór að vinna á heim­il­inu frétti ég að fyrr­ver­andi starfs­maður hafi mætt með hund­inn sinn í vinn­una og var mælt með að ég myndi mæta með Mola í vinn­una. Ég hugs­aði auð­vitað með mér hvað fólki fynd­ist um þetta og sér­stak­lega fólk sem er ekki vant að vera með hunda inni á heim­ilum, eða svona stóra hunda, og hvernig því myndi lít­ast á hann.“ Rannveig velti þessu fyrir sér í þó nokkurn tíma og ákvað svo að mæta með Mola í vinn­una og segir hún að þetta hafi gengið upp frá fyrsta degi. „Það hefur aldrei verið neitt vanda­mál.“

Vellíðanin

Rannveig segir að núver­andi starf sé ein mest gef­andi vinna sem hún hefur verið í. „Það er mjög gef­andi fyrir mig sjálfa að geta farið í vinn­una með hund­inn sem ég treysti og sem mér þykir ofboðs­lega vænt um og sjá að hann gefur mikið af sér og er hjálp­ar­tæki. Maður getur talað enda­laust um dýr og maður er alltaf að finna ein­hverjar aðferðir til að fólki líði vel, að það hafi gaman af því að vera hjá okkur og að það sé að fá það sem það á að fá út úr deg­inum sem á að vera dægra­stytt­ing, örvun, við­halda færni og vellíðan. Þó svo að vellíð­anin standi yfir í stutta stund og við­kom­andi fer síðan heim og man kannski ekk­ert eftir því að hafa hitt mig eða hund­inn þá er það enn þá með vellíð­un­ar­til­finn­ing­una þó að minn­ingin sé farin.

Að koma með fer­fætling með sér sem þarf ekki að gera neitt annað en að vera bara sætur og láta klappa sér.

Við tengj­umst fólk­inu okkar sem við vinnum með og finnum til með því ef því líður illa; það er hrætt, lítið í sér og óör­uggt af því að það finnur færn­ina dvína þó það geti jafn­vel ekki komið því í orð. Það er þessi bless­aði ótti sem er verstur og þess vegna kemur stundum reiðin fram. Við verðum stundum öll reið ef við erum óör­ugg. Þá er það mjög jákvætt að geta aukið á það sem maður er að gefa af sér með því að koma með fer­fætling með sér sem þarf ekki að gera neitt annað en að vera bara sætur og láta klappa sér.“

Tala við Mola

Ferfætti hnoðr­inn er vin­sæll á heim­il­inu og leggst hann oft við fætur skjól­stæð­ing­anna.

„Fólkið man ekki endi­lega eftir Mola dag frá degi en þeir sem kann­ast við hann í þessu umhverfi eru farnir að þekkja hann og vita að hann er góður. Fólk með heila­bilun hættir stundum að tjá sig að fyrra bragði, og geta ástæður verið marg­vís­legar, en það er öðru­vísi að setj­ast til dæmis hjá hund­inum og getur orðið til þess að þau tjá sig við hann. Þá er það komið með smá­teng­ingu; öðru­vísi teng­ingu en við okkur sem vinnum þarna.“

Það er líka gott að gefa fólk­inu smá­hlut­verk

Rannveig segir að Moli hafi verið þjálf­aður í að ganga án þess að vera með ól þannig að hann myndi aldrei strjúka. „Það skiptir engu máli hvar hann er; hann fer ekki frá okkur. Það er líka gott að gefa fólk­inu smá­hlut­verk: Að hleypa honum út fyrir og jafn­vel fara með hann í göngutúr. Það er alltaf þessi teng­ing sem dýrin gefa og maður sér hvað það gleður fólkið þegar hann labbar út að bíl­unum þegar það er að koma inn á morgn­ana, sum þeirra tala við hann og klappa honum, spyrja til dæmis hvort það sé ekki ég sem eigi hann, hvað hann heiti og hvað hann sé gam­all. Það halda margir að hann sé eldri en hann er af því að hann er svo rólegur; hann hefur, bless­aði karl­inn, þetta virðu­lega, rólega fas en er samt þetta ungur enn þá,“ segir Rannveig en Moli er fjög­urra og hálfs árs.

Moli étur ekki hvað sem er en hann er með fæðu­of­næmi. Rannveig segir að Schäfer-hundar séu gjarnan við­kvæmir í melt­ing­ar­færum og var tekið blóð úr Mola þegar hann var hvolpur og það sent í rann­sókn til Banda­ríkj­anna svo Rannveig og eig­in­maður hennar vissu fyrir víst hvað hann mætti ekki borða. Og það er passað upp á að Moli sé ekki í mat­salnum í Mar­íu­húsi á mat­máls­tímum.

„Hann veit þegar mat­ar­bjallan hringir að hann á að fara inn í bíl­skúr sem gengið er í inn af eld­hús­inu. Þar getur hann lagt sig og þar hefur hann sinn matar- og vatns­dall. Að mat­ar­tíma loknum fylgir hann fólk­inu niður í aðal­setu­stofu, fer í bælið sitt undir stig­anum og leggur sig þar.“

Moli og Monza

Rannveig er frá Vopna­firði og bjó í sveit þar og hefur átt og umgeng­ist fjölda dýra í gegnum tíð­ina og það sama er að segja um eig­in­mann­inn, Þóri, sem er úr borg­inni en var mikið í sveit sem barn. Þau rugl­uðu saman reitum fyrir 14 árum síðan og áttu fyrir börn úr fyrri sam­böndum. Eig­in­maður hennar hafði á sínum tíma átt belgískan Schäfer-hund þegar hann bjó erlendis. Það var svo fyrir jólin fyrir nokkrum árum sem hún ákvað að gefa eig­in­mann­inum hvolp í jóla­gjöf. Sviss­neskan Schäfer. Í jóla­pakk­anum var mynd af hvolpi úr sama goti þar sem hvolp­arnir voru ekki orðnir nógu gamlir til að fara frá móður sinni og stuttu síðar fóru hjónin að skoða hvolpana til að velja. Rannveig segir að eig­in­maður sinn og Moli hafi reyndar valið hvorn annan.

Ef ég hefði ekki haft hund­inn þá held ég að and­lega hliðin hefði ekk­ert verið rosa­lega brött.

Þórir fór í mjaðmaliðs­að­gerð stuttu eftir að Moli kom inn í líf þeirra og hafði hann félags­skap af hvolp­inum þar sem hann var mikið heima næstu mán­uði. „Ég þurfti síðan sjálf að fara í veik­inda­leyfi fyrir rúmu ári og vera heima í þó nokkuð langan tíma,“ segir Rannveig en hún er að bíða eftir að fara í lið­skipti á hné, „og ef ég hefði ekki haft hund­inn þá held ég að and­lega hliðin hefði ekk­ert verið rosa­lega brött. Þótt það sé engin önnur mann­vera heima þá er sam­veran og félags­skap­ur­inn með dýr­unum svo gef­andi.“

Meira á eftir um hitt dýrið á heim­il­inu; læð­una Monzu.

Rannveig segir að Moli gefi sér ótrú­lega mikla gleði. „Það veitir mér gleði að eiga svona góðan, fal­legan hund og hana Monzu okkar; að hafa tæki­færi til að hugsa vel um gælu­dýrin og geta gefið þeim allt sem maður vill gefa þeim: Gott að borða, nægan tíma og sjá að þeim líður vel. Dýrin eru eins og börnin okkar. Við hlúum að þeim, tölum við þau og kyssum þau góða nótt. Moli sefur í bæli við hlið­ina á rúm­inu okkar því honum og okkur finnst nálægðin nota­leg. Þetta er eitt­hvað sem eykur gleði­efni í heil­anum og allt sem gerir það gerir manni gott.“

Gulur bolti er upp­á­halds­leik­fang Mola. „Það er ekk­ert annað sem kemst að en gulu bolt­arnir. Þeim er skipt reglu­lega út þegar þeir eru orðnir eins og druslur. Það er hægt að elta bolt­ana enda­laust.“

Þótt þau leiki sér ekki saman þá bera þau umhyggju fyrir hvort öðru.

Aftur að kett­inum. Læðunni.

„Monza er átta ára skóg­ar­köttur sem kom til okkar þegar hún var tveggja ára. Moli ber virð­ingu fyrir henni. Ef hún liggur ein­hvers staðar og hann ætlar að leggj­ast nálægt henni þá veit hann að það á að vera visst pláss á milli. Hún sýnir það með því að hreyfa skottið ef hann liggur of nálægt. Þá stendur hann upp og færir sig. Þótt þau leiki sér ekki saman þá bera þau umhyggju fyrir hvort öðru. Það kom ein­hvern tím­ann fyrir að ég sneri mér snöggt við og steig ofan á loppu á Mola og hann nátt­úr­lega bara hljóð­aði greyið og ég klapp­aði honum og bað hann afsök­unar. Kött­ur­inn kom um leið til að athuga hvað hafði gerst. Hún þef­aði af trýn­inu á honum sem er þeirra á milli „það er allt í lagi“ og svo fór hún. Það var ekk­ert meira en það. Þau hafa félags­skap­inn og nálægð­ina við hvort annað þó þau séu ekki leik­fé­lagar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við