Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hugleikur á barmi gjaldþrots: „Það sem er fast í hendi núna er rekstur í hálft ár“

Hugleikur á barmi gjaldþrots: „Það sem er fast í hendi núna er rekstur í hálft ár“
Þórarinn Stef­áns­son (Tóró) Mynd: hugsmidjan.is

Áhuga­leik­húsið Hug­leikur stendur frammi fyrir miklum erf­ið­leikum eftir að Reykja­vík­ur­borg synj­aði þeim um styrk í ár en það er í fyrsta sinn síðan Hug­leikur byrj­aði að sækja um styrki til borg­ar­innar, sem synjun berst. Eins og staðan er núna getur leik­fé­lagið rót­gróna starfað í hálft ár í við­bót.

Hug­leikur er eitt þekktasta áhuga­leik­hús lands­ins en það var stofnað í Reykja­vík árið 1984. Leik­fé­lagið hefur þá sér­stöðu meðal íslenskra leik­fé­laga að leik­verkin sem það hefur haft til sýn­inga eru nær öll samin af með­limum hóps­ins. Auk leik­sýn­inga hefur Hug­leikur einnig staðið fyrir fjöldi nám­skeiða á sviði leik­listar frá stofnun. Fjöldi með­lima er nokkuð á reiki enda félaga­tal í leik­fé­lögum oft nokkuð fljót­andi, fólk kemur og fer en í Facebook hóp Hugleiks eru um 200 manns. Má segja að Hug­leikur hafi í gegnum tíð­ina verið ein­hvers­konar útung­un­ar­stöð fyrir leik­ara og starfs­menn atvinnu­leik­hús­anna en nefna má til dæmis Þuríði Blæ Jóhanns­dóttur, sem steig sín fyrstu skref hjá leik­fé­lag­inu en er nú ein dáð­asta leik­kona lands­ins af yngri kyn­slóð­inni. Þá hafa nokkrir með­limir Ljótu hálf­vit­anna verið viðriðnir Hugleik sem og Flosi Þor­geirs­son, gít­ar­leik­ari Ham, svo ein­hverjir séu nefndir.

Úr Gesta­gangi eftir Þórunni Guð­munds­dóttur

Mannlíf tal­aði við for­mann Hugleiks, Þórarinn Stef­áns­son eða Tóró eins og hann er kall­aður. „Já, við erum í smá brasi. Eins og þú veist er félagið rót­gróið en það verður 40 ára eftir tvö ár. Fyrstu árin var félagið svona að redda sér og borgin var lið­leg að hjálpa okkur að kom­ast inn í hús­næði hér og þar. Um það leyti sem ég kem inn í félagið, árið 2003, kaupir félagið hús­næði út á Eyjaslóð sem varð svona fasta­punktur í starf­sem­inni. Á þeim tíma, árið 2004 vorum við með sam­starfs­samn­ing við borg­ina, við gátum sem sagt treyst því að fá styrk frá borg­inni í nokkur ár og í stað­inn skuld­bundum við okkur að vera með leik­sýn­ingar og stutt­verka­dag­skrá. Síðan í kringum Hrunið breyt­ist þetta þannig að borgin er með menn­ing­ar­styrki sem allir sækja um og það fer í eitt­hvað ferli. Þar höfum við yfir­leitt fengið styrki, þegar við sækjum um en upp­hæðin hefur smá saman lækkað, ef við lítum á þetta útfrá vísi­tölu­teng­ingu. En aftur á móti er félagið orðið fjár­hags­legra stöndugra á þessu augna­bliki, sér­stak­lega eftir að við fluttum á Lang­holts­veg­inn. Rekst­ur­inn á því hús­næði er tals­vert ódýr­ari en það var á Eyjaslóð en kosn­að­ur­inn í rekstr­inum. Það er svo­lítið írónískt að langstærsti part­ur­inn í því eru gjöld til borg­ar­innar. Lauslega er það svona milljón á ári sem hús­næðið kostar og um helm­ing­ur­inn af því er fast­eigna­gjöld til borg­ar­innar. Upp á síðkastið hafa styrkirnir ekki náð að dekka það.“

Í ár fékk svo Hug­leikur neitun um styrk frá borg­inni eins og segir frá hér að ofan.

„Við höfum sem sagt getað reitt okkur á styrki frá borg­inni en það virð­ist ekki vera lengur og það eru ákveðin von­brigði. Maður fær það svo­lítið á til­finn­ing­una að áhuga­stimp­ill­inn sé að flækj­ast fyrir okkur núna því að eitt af því sem var nefnt í rök­stuðn­ingi fyrir úthlutun í ár var það að nú ætti að leggja áherslu á að styrkja verk­efni sem greiddu laun til lista­manna. Það virð­ist sem fag­hóp­ur­inn sem úthlutar styrkj­unum sé að horfa meira til atvinnu­leik­hús­anna,“ sagði Tóró en í fram­haldi af synj­un­inni, sendi stjórn Hugleiks bréf á borg­ina. „Við sendum aðra umsókn eftir synj­un­ina og vorum þar að vísa í gamla sátt­ar­samn­ing­inn á milli Hugleiks og borg­ar­innar og óskuðum eftir því að fá eitt­hvað sam­bæri­legt. En svarið var í stuttu máli það að ferlið fer bara í gegnum fagráðið og því verður ekki breytt. Við vorum hvött til að sækja um á næsta ári en það er auð­vitað ekk­ert fast í hendi með það.“

Úr sýn­ing­unni Gesta­gangur eftir Þórunni Guð­munds­dóttur

Þannig að staðan er slæm núna? „Já, sko við vorum að klára að sýna Gesta­gang þegar Covid skellur á, sem er flottasta sýn­ing sem við höfum haft lengi og sú sýn­ing hefur verið að halda okkur á floti á Covid-tím­anum. En það fer að klár­ast bráðum en við erum að von­ast til að fá ein­hverja verk­efna­styrki í sumar fyrir það sem við gerðum í vetur, frá Banda­lagi íslenskra leik­fé­laga. En það er bara fyrir stutt­verk, höfum ekki þorað að taka áhætt­una með stærri verk.“

En myndu BÍL styrkirnir dekka árið? „Við bara vitum það ekki, þetta er svona pottur og það fer eftir því hvað mörg leik­fé­lög sækja um, hvað hvert þeirra fær í sinn hlut. Við höfum verið eins og flest önnur áhuga­fé­lög, verið lengi að koma okkur aftur í gang eftir Covid og dag­skráin ekki verið jafn mikil og við hefðum viljað en von­umst til að sýna meira í maí,“ sagði Tóró og bætti við að lokum: „Við getum sagt að það sem er fast í hendi núna er rekstur í hálft ár.“

Þau sem vilja styrkja þetta frá­bæra leik­hús er bent á banka­reikn­ing Hugleiks: Reikn­ings­númer Hugleiks er 327-26-9292 og kennitala: 691184-0729

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina