Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Og hvernig var að deyja? „Það var alveg hræðileg – Haltu lífi eins lengi og þú mögulega getur“

Og hvernig var að deyja? „Það var alveg hræðileg – Haltu lífi eins lengi og þú mögulega getur“
Ómar Stef­áns­son. Skjáskot/VÍSIR.

„Maður er víst ekki maður með mönnum fyrr en maður hefur misst aleig­una“ segir Ómar Stef­áns­son, mynd­list­ar­maður sem seg­ist hafa haft það eftir fyrrum kenn­ara sínum í Nýlista­deild­inni, Magnúsi Pálssyni, í sam­tali við Freyju Eilíf í Artzine.

Ómar var með sýn­ingu í Berlín á dög­unum sem nefn­ist Flat­leik­hús fyrir ójafna bylt­ingu Sýningin var frá 12. til 10. apríl í ForA Contemporary Platform á Mar­burger Strasse 3 í Berlín. Á henni var til sýnis eitt frum­ein­tak af Berlín­ar­dag­bók­unum (Bindi XXIV, 2021), fimm­tíu og þrjú mál­verk sem unnin voru að mestu leyti á árunum 2017-2022 í Berlín­ar­borg og sex skúlp­t­úrar. Þá var útgáfa fyrsta bindi Berlín­ar­dag­bókanna (Vol. I, 2017) til­búin á opnun sýn­ing­ar­innar.

Mynd­list­ar­mað­ur­inn Ómar Stef­áns­son er mörgum kunn­ugur fyrir óhefð­bundnar leiðir sínar í lífi og list. Sextán ára gam­all veitti hann helg­ar­blaði Vísis við­tal sem ungur og mynd­list­ar­nemi og galdra­maður, en um sama leyti hóf hann nám Mynd- og Hand­íða­skól­anum hvaðan hann útskrif­að­ist af Nýlista­deild árið 1981. List­fer­ill hans spannar gríð­ar­legt magn af mál­verkum, skúlp­t­úrum, rit­verkum í útgefnum bókum sem og umdeildum gjörn­inga­verkum sem fram­kvæmd voru í slag­togi með Art Brut hljóm­sveit­unum Bruna BB og Inferno 5.

Á tæpum 50 ára list­ferli hefur Ómar verið sam­kvæmur sjálfum sér, eins og greina má frá ofan­greindri til­vitnun úr við­tali Helg­ar­blaðs­ins Vísis frá árinu 1976. Í verkum sínum vinnur hann stöðugt með ádeilu á fram­setn­ingu mann­kyns­sög­unnar, vís­inda og trú­ar­bragða. Ekkert er eins og það sýn­ist.

Ekkert er tilviljunum háð

„Við virð­umst búa í til­búnum heimi þar sem ekk­ert er til­vilj­unum háð. Það sama er þó ekki hægt að segja um teikn­ing­una í mál­verk­unum Ómars, en þau birt­ast manni sem villt og ótamin fyr­ir­bæri. Kröft­ugar og öruggar strokur draga upp heim sem sam­einar allar lista­stefnur 20. ald­ar­innar og þótt lengra aftur væri litið. Ofsa­fengið og hömlu­laust myndefnið hefur aug­ljós tengsl inn í verk jafn ólíkra lista­manna eins og Otto Dix, Hiernonymous Bosch og Hans Bellmer.

Ég veit ekki hvað maður getur sagt.. ég hef verið kall­aður klass­ískur módern­isti. Sem er líka smá fyndið. Fyrst kom Art Nouveau, nýi stíll­inn og svo kom módern­ism­inn, svo nýi stíll­inn og svo nýi nýi stíll­inn. Svo er þetta allt orðið klass­ískur nýr stíll, þannig að ég er mjög klass­ískur, myndi ég segja, lista­maður. Mjög hefð­bund­inn, miðað við marga,“ segir hann í sam­tali við Artzine.

Skyndilega dregin á fótunum í gegnum göng

Síður dag­bókanna sem Ómar hélt í Berlín eru fylltar með teikn­ingum og klippi­myndum sem lýsa, líkt og Flat­leik­húsið (hans nýjasta sýn­ing sem var sýnd á dög­unum í Berlín), fimm­víðum veru­leika lista­manns­ins á tví­víðu formi. Af magni bókanna og útfylltra blað­síðna er auð­séð að lista­mað­ur­inn lætur ekki dag líða án þess að haf­ast handa við klippi­myndir, teikn­ingar eða skrif.

Meira að segja á meðan lista­mað­ur­inn lá inni á gjör­gæslu nýtti hann tím­ann til list­sköp­unar og skrán­ingar, þar sem myndir eru settar saman úr mat­ar­miðum spít­al­ans og nær-dauða-reynsl­unni lýst, sem var á svip­uðum meiði og aðrar skrá­settar frá­sagnir af sýnum á dán­ar­beði. Samkvæmt Ómari var hann skyndi­lega dreg­inn á löpp­unum í gegnum göng, sem þó að lokum leiddu hann aftur inn í heim­inn, en ekki burtu í ljósið.

Hans eigin nær-dauða-reynsla verður að uppsprettu endalausra brandara

Og hvernig var að deyja? “Það var alveg hræði­legt… Haltu lífi eins lengi og þú mögu­lega getur(!)”

Í raun má segja að allur list­fer­ill Ómars Stef­áns­son bjóði áhorf­endum upp á hádramat­íska Flat­leik­hús­sýn­ingu. Lista­sýn­ingar hans og und­ir­bún­ingur þeirra,  gjörn­inga­fram­komur og afleið­ingar þeirra, úrklippur frá yfir­lýs­ingaglöðum greina­við­tölum við hann, sem og frá­sagnir áhorf­enda af afdrifum hans í gegnum tíð­ina. Allt dregur þetta upp allsvaka­lega mynd af ævispori lista­manns sem fer ótroðnar slóðir og hefur ekki valið sér auð­veld­ustu leið­ina í gegnum lífið. Sigrar mæta ósigrum á úfnum haf­sjó þess sem þó myndar þokka­lega fer­il­skrá í dag, ójöfn lífs­bylt­ing og ekk­ert er eins og það sýn­ist.

Baráttan á milli hins góða og illa eins háal­var­leg og kómísk og hún getur verið í senn. Jafnvel þegar lista­mann­inum sjálfum er ekki spaug ofar­lega í huga, notar hann kímni­gáf­una sem verk­færi í frá­sögn sinni. Hans eigin nær-dauða-reynsla verður að upp­sprettu enda­lausra brand­ara. Og hvað er rétt og hvað er rangt, hvað er sann­leikur,  hvað er blekk­ing.. “heim­ur­inn  inni­heldur bara enda­lausar spurn­ingar og loðin svör”

Og er allt svona rugl­ings­legt að þínu mati? Heyrðist sýn­ing­ar­gestur á opn­un­inni spyrja lista­mann­inn. – Já og jafn­vel enn rugl­ings­legra en ég næ að túlka á þess­ari sýn­ingu.

Fyrri verk og sýningar Ómars

Ómar Stef­áns­son er fæddur árið 1960 á Íslandi og hafa verk hans verið sýnd á Lista­safni Reykja­víkur, Lista­safni Íslands og á fjöl­mörgum einka­sýn­ingum á Íslandi. Þá voru verk eftir hann einnig verið sýnd á Heine Onstadt í Osló, Noregi og á sýn­ingu með Cy Twombly, Joseph Beuys í Gallery Händschin í Basel, Sviss. Lista­safn Íslands og Lista­safn Reykja­víkur eiga mál­verk eftir Ómar sem og Tækni­skóli Íslands, Eimskip sem og Illu­minati söfn­uð­ur­inn í Sviss. Ómar vann einnig verk sér­stak­lega fyrir lest­ar­stöð­ina í Basel, Sviss, ásamt lista­mönn­unum Dieter Roth, Dominik Steiger og André Thomkins.

Nánari upp­lýs­ingar um Ómar, verk hans og sýn­ing­una má skoða á hér: omar­stef­ans­son.com 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina