Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Einar hjá Neytendasamtökunum gagnrýnir framgöngu Motus í máli Lilju: „Erfið staða fyrir neytanda“

Einar hjá Neytendasamtökunum gagnrýnir framgöngu Motus í máli Lilju: „Erfið staða fyrir neytanda“
Einar Bjarni Ein­ars­son

Lög­fræð­ingur hjá Neyt­enda­sam­tök­unum telur mikla ann­marka á vinnu­brögðum Motus í tengslum við mál sem fjallað er um í nýjasta tölu­blaði Mannlífs. Hann veltir því jafn­framt upp hvort fram­ganga Motus í mál­inu geti sam­ræmst góðum inn­heimtu­háttum.

Lilja Margrét Hreið­ars­dóttir lenti í hrak­förum í sam­skiptum sínum við Motus og Lög­heimt­una. Hún átti í deilum vegna reikn­ings sem hún taldi sig ekki eiga að greiða. Málið var farið fyrir Kæru­nefnd vöru- og þjón­ustu­kaupa en þrátt fyrir að hafa látið Motus vita af deil­unum og kærunni var krafan ekki fryst. Auk þess bár­ust svör frá Motus bæði seint og illa. Þrátt fyrir upp­lýs­ingar frá Lilju var krafan send í lög­inn­heimtu og meðan á öllu þessu stóð hrap­aði hún niður í rusl­flokk í láns­hæf­is­mati Creditinfo, vegna vökt­unar og upp­flett­inga Motus.

Blaða­maður Mannlífs ræddi við Einar Bjarna Ein­ars­son, lög­fræð­ing hjá Neyt­enda­sam­tök­unum. Hann segir neyt­endur í þröngri stöðu í glímu sinni við inn­heimtu­fyr­ir­tæki, þegar um væri að ræða deilu­mál.

„Þetta er auð­vitað erfið staða fyrir neyt­anda, að vera svona á milli steins og sleggju. Að þurfa í raun­inni að eiga við tvo aðila. Við höfum mælt með því að fólk hafi strax beint sam­band við inn­heimtu­að­ila og reyni að fá þá til að setja inn­heimtu á bið, á meðan úr mál­inu er leyst. Flestir verða nú við því en í hennar til­felli [Lilju] var ekki einu sinni búið að svara.“

Samræmist hugsanlega ekki góðum innheimtuháttum

Einar segir Neyt­enda­sam­tökin hafa lagt fram þá til­lögu að skorður yrðu settar á inn­heimtu­að­gerðir, meðan mál væru til úrlausnar í kæru­nefndum. Það yrði að útfæra það með þeim hætti að ekki væri unnt að mis­nota ákvæðið.

„Þegar fólk er að lenda í þessu, er sann­ar­lega með umdeilda kröfu og það er ágrein­ingur um það hvort hún sé rétt­mæt eða ekki, og fólk er að stíga þessi skref sem boðið er upp á og láta reyna á rétt­mæti – að reikn­ing­ur­inn sé þá bara í fullri inn­heimtu á meðan; það er erfið staða.“

Einar segir Lilju hafa varpað fram áhuga­verðri spurn­ingu varð­andi þessi mál. „Hvort þetta gæti verið í sam­ræmi við góða inn­heimtu­hætti eða ekki, að halda inn­heimtu áfram. Þetta er í sjálfu sér svona vísiregla og mats­kennt hvað eru góðir inn­heimtu­hættir og hvað ekki.“

Hann segir svör inn­heimtu­fyr­ir­tækja yfir­leitt vera á þá leið að inn­heimtu­að­ilum beri að fara eftir fyr­ir­mælum kröfu­hafa. „Það eru oft svörin sem við fáum, þegar við erum að ann­ast milli­göngu fyrir neyt­anda og setjum okkur í sam­band við inn­heimtu­að­ila, og biðjum um að inn­heimta sé sett á bið meðan verið er að leysa úr ágrein­ingi. Þá vilja þau fyrst athuga með kröfu­hafa, hvort hann sam­þykki það.“

Svaraleysi veldur hliðaráhrifum

Einar segir mál af þessu tagi koma upp við og við. Hann segir að um sé að ræða erf­iða stöðu, en að bless­un­ar­lega sé það oft­ast þannig að inn­heimtu­að­ili sé vilj­ugur til að setja inn­heimtu í bið meðan beðið er eftir úrlausn. „Í þessu máli hins vegar tafð­ist það, frekar lengi. Það hefur þessi hlið­ar­á­hrif.“

Einar veltir fyrir sér úrræð­unum sem neyt­endum standa til boða í þess­ari stöðu. Ef við­kom­andi þori ekki annað en að greiða kröf­una, geti ef til vill verið erfitt að sækja hana til baka ef nið­ur­staðan verður greið­anda í vil.

Hann segir erfitt að ráð­leggja neyt­endum að greiða með fyr­ir­vara. Að end­ingu þurfi þeir að ákveða sjálfir hvaða skref þeir vilji taka. Báðir kostir séu í raun slæmir; að greiða ekki og lenda í inn­heimtu og glímu við inn­heimtu­fyr­ir­tækin, eða að greiða með fyr­ir­vara og þurfa svo jafn­vel að reyna að sækja end­ur­greiðslu.

„Manni myndi finn­ast eðli­leg­ast að aðilar gætu í þessu til­felli látið reyna á rétt­mæti kröf­unnar í friði,“ segir Einar. Hann seg­ist telja vert að skoðuð yrði lög­fest­ing á ein­hvers konar ákvæði, varnagla sem verndi neyt­endur í þess­ari stöðu, líkt og Neyt­enda­sam­tökin hafa lagt til. „Vegna þess að þetta setur neyt­and­ann í rosa­lega óþægi­lega stöðu. Að vera bæði í við­ræðum við kröfu­hafann sjálfan, standa í ágrein­ingi um rétt­mæti kröf­unnar, og þurfa síðan líka að vera að and­mæla inn­heimtu­að­gerðum við inn­heimtu­að­ila. Tvo, í þessu til­felli.“

Einar bendir á að í til­felli Lilju sé svara­leysi Motus yfir langt tíma­bil afar gagn­rýn­is­vert. Ef Motus hefði strax með­höndlað tölvu­póst hennar, tekið athuga­semdir hennar til greina og fryst inn­heimt­una, hefði málið ekki farið á það stig að hlið­ar­á­hrifin, lækkun láns­hæf­is­mats hjá Creditinfo, kæmu fram.

Lesið nánar um mál Lilju hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina