Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Pétur Runólfsson skipstjóri: „Ég fór með hendi í pokann og þá komu bara fætur“

Pétur Runólfsson skipstjóri: „Ég fór með hendi í pokann og þá komu bara fætur“
Pétur Run­ólfs­son, útgerð­ar­maður og skip­stjóri. Mynd: Reynir Traustason.

„Á rækj­unni fékk ég upp mann. Við fengum hann í trollið,“ segir Pétur Run­ólfs­son, skip­stjóri í Bol­ung­ar­vík, í við­tali við Sjóarann, hlað­varp Mannlífs. Pétur rifjar þarna upp þegar hann var á rækju­veiðum í Ísa­fjarð­ar­djúpi og fékk lík af manni í trollið.

Hvernig í ósköp­unum er sú til­finn­ing?

„Hún er ekki góð. Hún er djöf­ul­leg. Það hefur komið fyrir að menn hafi fengið sel. Dauðan. Og það er slæm lykt af þessu. En svo var þetta. Þegar við vorum að skola þá gaus upp þessi lykt; ábyggi­lega selur í troll­inu. Svavar var með mér, tengda­sonur minn. Ég fór með hend­ina í pok­ann og ætl­aði að toga í og taka frá og þá komu bara fætur. Manni kóln­aði svo­lítið á bak­inu.

Þetta er það versta sem ég hef lent í.

Svo komum við með þetta í land. Sem betur fer er ekki gert eins og í gamla daga þegar menn hefðu hent þessu út aftur; ég veit ekki hvort það sé satt. Ég fann ekki fyrir þessu fyrr en ég kom heim. Þá var ég einn. Ég veit ekki hvað ég á að segja. Það var alveg martröð. Þá fór ég að hugsa um allt fólkið; þá kvikn­aði á per­unni og ég hugs­aði um aum­ingja fólkið að lenda í þessu. Og þá fór ég að hugsa um hvernig mömmu hefði liðið þegar þeir fóru. Maður svaf ekki nokkurn skap­aðan hlut. Þetta er það versta sem ég hef lent í.“

Pabbi drukknaði

Faðir Péturs Run­ólfs­sonar, Bol­vík­ings og sjó­manns sem verður 83 ára í sumar, fórst með Baldri, 26 ára gam­all. Sonurinn var þá eins árs. Pétur segir að Baldur hafi verið átta eða níu tonna bátur.

„Ég var sendur norður í Jök­ul­fjörð til afa og ömmu.“

Í fóstur?

„Já, senni­lega í ein­hvern tíma. Svo gift­ist hún aftur,“ segir hann og á við móður sína.

Hvað var hann lengi í Jök­ul­firði?

„Ég veit það ekki vel. Ég man óljóst eftir því. Ég man þegar þeir voru að sækja mig yfir; þá voru þau farin að búa úti í Skálavík; á Breiða­bóli í Skálavík. Pabbi hafði verið for­maður á bát í vík­inni; eða sá sem ég kalla pabba.“

Fóst­ur­faðir hans.

„Já, ég þekki ekki annað. Það eina sem ég man þegar við vorum að koma yfir, voru fána­litir á púst­inu. Ætli ég hafi ekki verið svona fjög­urra ára.“

Ég fór niður á bryggju eins og strákar gerðu.

Svo fór Pétur á sjó­inn, 14 ára gam­all.

„Ég fór niður á bryggju eins og strákar gerðu; bát­arnir voru að tygja sig á síld. Skip­stjór­inn spurði hvort ég vildi ekki fara á síld og ég sagði bara „já“. Ég fór heim og sagði mömmu að ég væri að fara á síld og hún sagði að hún hefði óskað sér að ég hefði valið eitt­hvað annað. Pabbi drukkn­aði.“

Pétur segir að móðir sín hafi tekið til fyrir hann föt og svo fór hann á síld.

„Þetta var ægi­lega gaman og mikið ævin­týri.“

Svo lentu þeir í óhappi.

„Við eyðilögðum nót­ina og það tók svo langan tíma að gera við hana. Það var ekki mikil síld þetta sumar. Þetta var þess virði, því maður hafði gaman af þessu.“

Sjórinn lokkar og laðar og á sjónum hefur Pétur Run­ólfs­son verið meira og minna síðan. Hann kláraði barna­skól­ann. Skyldu­skól­ann. Tók svo síðar punga­próf.

Sæfari frá Súðavík. Pétur var þar um haust­tíma.

„Þórður Ósk­ars­son var með hann. Hann var Súð­vík­ingur. Við rerum með honum tveir, suður á rek­net. Svo þegar honum var skilað aftur vestur, þá vorum við tveir hjá honum vet­ur­inn og sum­arið. Fórum á vetr­ar­ver­tíð og svo síld­ina. Þegar ég hætti þar fór ég á Hall­veigu Fróða­dóttur. Var þar í tvö ár held ég. Við vorum þarna þrír frændur; allir systk­ina­börn. Ég, Garðar og Gísli; Garðar Hall­gríms­son og Gísli Ólafsson.

Þegar ég hætti á Hall­veigu fórum við fjórir yfir á Víking frá Bol­ung­ar­vík; mig lang­aði á síld.“

Svo var Pétur síðar á Guð­björg­inni. Hann var líka í stuttan tíma á bát sem hann átti með fóst­ur­föður sínum og bræðrum hans.

Svo fór ég að gera út sjálfur.

„Svo fór ég. Ég var á bát­unum hérna úr vík­inni í nokkurn tíma; flest­öllum bátum úr vík­inni. Ég hef ekki gert mikið annað en þetta. Svo var ég lengst með þeim feðgum, Hálfdáni Ein­ars­syni og Einari Hálf­dán­ar­syni. Í 17 ár eða meira. Ég var 15 ár held ég með Hálfdáni, sem hann var skip­stjóri, og svo fór hann í land og þá tók Einar sonur hans við. Þetta voru tvö ár. Svo fór ég að gera út sjálfur.“

Óli ÍS 81.

Var það ekki alltaf draum­ur­inn að vera þinn eigin herra?

„Jú.“

Hvernig byrj­aði það?

„Ég var stýri­maður bæði á Flosanum og svo var ég með Finnboga Jak­obs­syni. Svo var ég eina vetr­ar­ver­tíð á Hugrúnu með Jóni Egils.“

Eigin útgerð.

„Hann hét Guð­bjartur ÍS. Ég keypti hann frá Ísafirði. Á miðri rækju­ver­tíð. Fyrsti bát­ur­inn sem ég var með sjálfur. Ég var búinn að vera á litla bátnum, Guð­bjarti, á sumrin. Þessir litlu bátar voru alltaf teknir upp á haustin.“

Teknir upp.

„Þá var maður á ver­tíð á hinum bát­unum.“

Svo keypti Pétur Óla sem hann átti lengst, rækju­bát.

Svavar, tengda­sonur Péturs, var lengst með honum á bátnum. Hann varð síðar fyrr­ver­andi tengda­sonur hans. „Svo voru margir; Siggi Hjartar, Olli og fleiri.“

Fór á hliðina

Sjórinn tekur. Sumir hljóta vota gröf. Talið berst að sjó­slysum. Pétur þekkir til þess. Í ein­hverjum til­fellum hefur hann verið á sjó þá daga sem bátar fóru niður.

Árið 1959 fórst síðu­tog­ar­inn Júlí frá Hafn­ar­firði með 30 manna áhöfn í miklu ísing­ar­veðri á Nýfundna­landsmiðum. Frændur Péturs og fóst­ur­faðir þeirra voru um borð og fórst annar frænd­anna.

Í eitt skiptið fóru vinir hans og félagar niður með bát.

„Bátarnir voru flestir eða allir norður í Jök­ul­fjörðum. Það var sunn­an­átt. Stóð út úr fjörð­unum og gerði svona óskap­legt veður. Djúpið getur verið alveg einn hel­vítis pottur.

Við vorum nýbúnir að kasta þegar við fórum í skjól.“

Svo hitn­aði vélin á heim­leið­inni.

Hann lá alveg á lunn­ing­unni, bát­ur­inn.

„Ég þorði ekki annað en að drepa á henni. Ég fór niður og þá gat ég ekki legið þeim megin sem dælan var, svo ég varð að fara stjórn­borðs­megin; hún var bak­borðs­megin. Þá var ég öfugur við, en hann lá undan hel­vítis rok­inu svo ég varð að vera stjórn­borðs­megin yfir vél­inni. Hann lá alveg á lunn­ing­unni, bát­ur­inn. Þegar ég los­aði lokið þá heyrði ég sog­hljóð. Þá fatt­aði ég að hún hafði hellst svona niður og tekið loft svo ég skrúf­aði fast aftur og setti í gang og þá redd­að­ist þetta.“

Var Pétur smeykur?

„Nei.“

Svo var það túr á Einari Hálf­dán­ar­syni.

„Við vorum að koma í land og hann fékk svona djöf­uls­ins brot.“

Hurðin var fyrir ofan mig.

Og Einar Hálf­dán­ar­son fór á hlið­ina.

„Hurðin var fyrir ofan mig, ég þurfti að fara upp til að kom­ast að henni.“

Varð Pétur hugsi þegar hann horfði á hurð­ina fyrir ofan höf­uðið á sér?

„Ætli maður hafi hugsað nokkurn skap­aðan hlut.“

Hann segir að vélin hafi ekki stoppað. „Þetta var ekki tölvu­stýrt eins og í dag. Það hrist­ist allt og skalf og vélin var alveg á fullu.“

Hvað lá hann lengi á hlið­inni?

„Í smá­stund. Manni fannst það langur tími.“

Svo náð­ist að keyra hann upp.

Hvernig keyrir maður upp bát?

„Þú beygir hart í bak­borða.“

Djöfull flottir yfirmenn

Að verða 83 ára. Og enn á sjó.

„Ég fer á grá­slepp­una.“

Með syni sínum.

„Þar sem hann getur notað mig. Ég get skorið af tein­unum á sumrin til að gera eitt­hvað. Það er ömur­legt að gera ekki neitt.“

Tæplega 83 ára. Á sjónum síðan hann var 14 ára.

„Ég hef verið svo hepp­inn um ævina. Ég er búinn að vera á nokkuð mörgum bátum og skipum og ég hef alltaf hitt á djöf­ull flotta yfir­menn og skips­höfn.“

Bol­ung­ar­vík. Þar sem hjartað slær.

þá leit þetta út eins og þetta yrði bara sum­ar­bú­staða­land.

„Ég var oft spurður hvaðan ég væri.“

Bol­ung­ar­vík.

„Já, það hafa alltaf komið fínir karlar þaðan. Þegar EG var sett á haus­inn; ég segi það bara beint út – þegar það var sett á haus­inn þá leit þetta út eins og þetta yrði bara sum­ar­bú­staða­land. Svo byrj­uðu þessir strákar að kaupa sér smá­báta og trillur og þetta gekk ljóm­andi vel.“

Pétur nefnir að sagt hafi verið að það séu milljón tonn í Breiða­firð­inum. „Við vitum að þetta er gull­kista, alveg eins og djúpið hérna. Þeir vita hvað þeir eru að segja. Það segja nú margir að ég sé svo gagn­rýn­inn. Ég er það sjálf­sagt.“

Það er kjaftur á þér.

„Það þótti alveg svaka­legt fiskirí að fá 100 kílóa bala. Núna eru þeir grenj­andi ef þeir fá ekki 2-300 kílóa bala.

Ofveiði var ekki til þá.

Ráð­herrar og þessir jóla­sveinar þarna fyrir sunnan – maður verður að vara sig á því hvað maður segir; það má ekki segja einn ákveð­inn lit. Þú veist það. Og við gerum það ekki. Vísindin breyt­ast ekk­ert, eða nátt­úran. Þetta eru ágisk­anir. Ég man þau ár þegar ég var á tog­ara; þá var ekk­ert sér­stakt fiskirí hérna fyrr en á haustin – 1958 eða 1959. Þetta tók upp í tvo til þrjá mán­uði. Ofveiði var ekki til þá. Þetta var þegar þeir voru að berj­ast á þremur, fjórum míl­unum við Bretana. Hve mikið heldur þú að búið sé að skerða öll þessi byggð­ar­lög út af þessu?

Og reglu­gerðir! Og nú er það orðið þannig hjá sjó­mönnum að þeir þora varla að fara út að míga. Það getur verið tekin mynd af Þeim. Það er bara svo­leiðis.“

Ástin

„Þegar öllu er á botn­inn hvolft þá er lífið þó umfram alt salt­fiskur, en ekki draumar­íngl,“ segir Salka Valka í sam­nefndri bók Halldórs Laxness. Það er líka sagt að lífið sé lott­erí.

Brúð­hjónin Pétur og Þórdís Ósk.

Pétur Run­ólfs­son á fjögur börn. „Ég segi mörgum að ég eigi níu börn.“ Hann á fjögur börn með fyrri eig­in­konu sinni. Svo nefnir hann happ­drætt­is­vinn­ing, lottó. Hann vísar þar í stjúp­börnin sem hann eign­að­ist þegar hann eign­að­ist síð­ari eig­in­konu sína, Þórdísi Ósk Sig­urð­ar­dóttur. „Fólkið hennar; það tók á móti mér eins og við hefðum þekkst allt mitt líf. Það er ekki sjálf­gefið þegar fólk býr svona saman. Þessir krakkar hennar eru rosa­lega flott börn.“

Hann segir að þau Þórdís Ósk hafi átt saman ynd­is­legt líf.

Það eru tæp tvö ár síðan hún kvaddi þetta líf.

Hvernig er að standa allt í einu einn?

„Ég á nátt­úr­lega góða að.

Ég gat ekki orðið heppn­ari en að hitta þessa mann­eskju.

Ég er ekki að álasa fólki. Við áttum marga vini. Fólkið hérna er indælt. En það er eitt sem ger­ist og maður var svona sjálfur – það kemur eng­inn nema börnin mín. Og þau sem eru við­loð­andi; altso barna­börnin. Og svo hringja börnin sem eru fyrir sunnan annað slagið og svo get ég líka farið þangað og er alltaf vel­kom­inn. Ég gat ekki orðið heppn­ari en að hitta þessa mann­eskju.“

Ástin. Það er þessi ást.

Pétur hafði farið til Taílands áður en hann kynnt­ist Þórdísi Ósk Sig­urð­ar­dóttir. Hann var tæp­lega fimm­tugur. Hann segir frá því þegar frænka hans og önnur kona sáu nýju kon­una í lífi hans í bíl hans fyrir utan bens­ín­stöð. Þórdís Ósk var frekar dökk yfir­litum.

„Þær sögðu: „Hver er þessi í bílnum hjá þér?“ „Nú er hún komin þessi taí­lenska,“ sagði ég. „Nú? Ætlar þú ekki að kynna hana fyrir frænku þinni?“ „Nei, ég tek hana ekki út úr bílnum,“ sagði ég. „Það er svo kalt. Hún gæti dáið.“

Ég sagði: „Farið þið út og heilsið.“ „Við getum ekk­ert talað við mann­eskj­una.“

„Það er ekk­ert mál,“ sagði ég, „þið gerið bara svona.“

Svo fóru báðar út og rifu upp dyrnar og bug­t­uðu sig. Þórdís Ósk var að lesa og leit upp og sá tvær konur í þessum stell­ingum; þær voru nú ekki á hnjánum. Hún sagði: „Góðan dag­inn“.“

Helvítis krabbi. Þetta var allt of stutt.

Þarna hófst ham­ingju­tíma­bil.

„Ég þarf ekki að kvarta. Það var ynd­is­legt, alveg.“

Veiktist hún svo?

„Helvítis krabbi. Þetta var allt of stutt.“

Pétur hefur haldið að hann færi kannski á undan?

„Já, því bjóst ég alltaf við. Lífið er bara svona. Það á margur erf­ið­ara en ég.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina