Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hanna Gréta í Fjöll og viðhengi: Með kvíðahnút í maganum eftir að félagar í hópnum fóru að greinast

Hanna Gréta í Fjöll og viðhengi: Með kvíðahnút í maganum eftir að félagar í hópnum fóru að greinast
Hanna Gréta Páls­dóttir

„Þrír göngu­vinir í göngu­hópnum Fjöll og við­hengi greindust með krabba­mein í fyrra. Það er hátt hlut­fall í svo litlum hópi. Þegar ég fékk frétt­irnar af þeirri þriðju þá var það fyrsta sem mér kom í huga að við yrðum að gera eitt­hvað; hvetja fólk að fara í krabba­meins­skoð­anir og styrkja gott mál­efni. Hug­myndin kom svo í göngu á Úlf­ars­felli í lok jan­úar á þessu ári. Við vissum að þessar vin­konur vildu ekki ein­hverja söfnun fyrir þær sjálfar þannig að það kom ekki til greina. Þessir ein­stak­lingar hafa leitað til Ljóssins og deilt með okkur því frá­bæra starfi sem þar er. Ég sjálf hef í nokkur ár fylgst með þeirra starf­semi í gegnum vini og kunn­ingja og það kom bara ekki annað til greina en að styðja þeirra starf,“ segir Hanna Gréta Páls­dóttir sem stendur á bak við göngu­hóp­inn.

Það sem við getum gert er að styðja við bak vina okkar og vera til staðar.

„Við fundum allar fyrir miklum van­mætti og vorum oft með kvíða­hnút í mag­anum eftir að félagar í hópnum fóru að grein­ast. Fyrir mig þá gerði ég mér grein fyrir hvað þessi hópur, Fjöll og við­hengi, skiptir mig miklu máli og hvað allir er orðnir miklir vinir mínir í dag. Þetta hefur þjappað hópnum saman. Það er ekki í okkar valdi að gera neitt sem veitir lækn­ingu við slíkum veik­indum. Það sem við getum gert er að styðja við bak vina okkar og vera til staðar. Við vildum gjarnan gera eitt­hvað aðeins meira og þá kom þessi hug­mynd um að nýta göng­urnar til að safna pen­ingum til að styrkja Ljósið.“

Göng­urnar verða dag­ana 26. til 29. maí: 26. maí: Helga­fell, Valaból og Vala­hnúkur í Hafn­ar­firði, kl. 10.00. 27. maí verður það Víf­ils­staða­vatn kl. 17.30. 28. maí verða það þrír tindar í Mos­fells­dal kl. 10: Helga­fell, Reykja­fell og Æsu­staða­fjall. Svo er það fjöl­skyldu­ganga í Laug­ar­dalnum og nágrenni 29. maí kl. 13 þar sem göngu­fólk kemur til með að koma í lokin saman í port­inu hjá Ljósinu við Lang­holts­veg.

Það kostar ekk­ert að taka þátt en við hvetjum fólk að leggja inn á reikn­ing Ljóssins.

„Við­burð­inn verður að finna á Facebook-síð­unni Gengið til sig­urs. Þar er að finna allar upp­lýs­ingar um hvar og hvenær á að mæta og við viljum gjarnan sjá sem flesta mæta. Ef fólk hefur ekki tök á að koma og ganga með okkur þá hvetjum við fólk samt sem áður til að fara að ganga, taka mynd, setja á Instagram og merkja #gengið til sig­urs. Það kostar ekk­ert að taka þátt en við hvetjum fólk að leggja inn á reikn­ing Ljóssins.“

Það er vitað að göngur og hreyf­ing hafa góð áhrif á lík­ama og sál. „Við sem hópur höfum oft talað um það hvað maður end­ur­nær­ist við að fara út að ganga þó það geti stundum verið mikið átak að koma sér af stað. Að vera hluti af hóp gerir manni bara gott þar sem fólk er að deila sama áhuga­máli; Útivist.“

Fjölbreyttar og hæfilega erfiðar

Fjöll og við­hengi er vina­hópur sem hitt­ist og gengur reglu­lega saman yfir vetr­ar­tím­ann eða frá sept­em­ber fram í maí. „Svo förum við í eina lengri göngu að sumri. Fyrir utan að hitt­ast og ganga saman höfum við gaman af að hitt­ast og spjalla um göngur og ferða­lög. Við­hengin okkar eru fjöl­skylda og vinir, og jafn­vel vinir vina, sem við bjóðum með okkur. Markmið er að hafa göng­urnar fjöl­breyttar og hæfi­lega erf­iðar þannig að allir geti verið með. Við bjóðum alla vel­komna og njótum þess að vera saman. Við deilum reynslu, fróð­leik og skemmti­legum göngu­leiðum eða öðru sem okkur liggur á hjarta hverri stundu. Við erum ekki með mark­mið að sigra hæstu tinda eða afreka eitt­hvað stór­kost­legt.“

Markmið mitt er alltaf að hvetja fólk til að fara út að ganga.

Hanna Gréta hefur stundað göngu frá 2010 og verið hluti af mörgum göngu­hópum. „Markmið mitt er alltaf að hvetja fólk til að fara út að ganga og það þarf ekki alltaf að ganga langt. Ég og sonur minn höfum verið mikið að ganga saman síðan þá og verið dug­leg að kveikja áhuga ann­arra í fjöl­skyld­unni að koma með; sér­stak­lega ungar frænkur.

Göngur er mín lík­ams­rækt. Ég fer úr að ganga tvisvar til þrisvar sinnum í viku hvort sem það eru stuttar eða lengri göngur. Þegar ég byrja að ganga þá fara alltaf fyrstu 15 mín­út­urnar hjá mér í að hreinsa hug­ann eins og að klára að gera upp dag­inn. Eftir það finn ég ró og get farið að ein­beita mér að umhverf­inu. Ég hef mjög gaman af því að ganga í hóp og sæk­ist í þann félags­skap.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við