Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir: „Ég lamdi engan með þessum staf, en ég var andskoti vígaleg“

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir: „Ég lamdi engan með þessum staf, en ég var andskoti vígaleg“
Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir

Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir talar í við­tali við Reyni Trausta­son meðal ann­ars um árin á þingi, þar sem hún hún vildi koma á rétt­ari og eðli­legri fisk­veiði­stjórnun, hún, sem hefur sagt sig úr Sam­fylk­ing­unni, talar um skoðun sína á flokknum í dag, banka­söl­una, aðra flokka, áhrif erj­anna í Mennta­skól­anum á Ísafirði þegar hún var þar skóla­meist­ari og ákvað að segja upp, umsókn sína um starf þjóð­garðsvarðar á Þing­völlum, sem end­aði á því að hún fékk 20 millj­ónir eftir að kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála komst að því að Þing­valla­nefnd hefði brotið jafn­rétt­islög eftir að annar, karl, hafði verið ráð­inn í starfið og hún talar um björg­un­ar­sveit­ar­störfin, hund­inn sinn og upp­á­halds­stað­inn á Íslandi.

Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir sat á Alþingi 2009-2013 og 2015-2016 fyrir Sam­fylk­ing­una í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Það eru ekk­ert allir sem taka þennan slag eins og þegar hún var á þingi og tók slag­inn við Samherja. Þetta var ekki til vin­sælda fallið en hún var föst fyrir og gaf ekki eftir.

Flokk­ur­inn minn var ekki til­bú­inn að stíga þau skref sem stíga þurfti.

„Ef maður hefur trú á því sem maður er að gera þá finnst mér manni bera skylda til þess að standa með þeim mál­stað og ég hef alltaf verið föst fyrir þannig. Auðvitað hafa allir rétt­læt­is­kennd. Ég ætla ekk­ert að halda því fram að ég hafi meiri rétt­læt­is­kennd en aðrir. Við höfum hana öll. En það er mis­jafnt hvernig fólk gengur fram á því sviði. Ég bauð mig fram til að beita mér fyrir breyt­ingum á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu og eitt og annað sem ég lagði fram sem áherslur í mínum mál­flutn­ingi áður en ég var kosin á þing og mér hefði fund­ist það alveg frá­leitt ef ég hefði ætlað að víkja frá því þegar á hólm­inn var komið. Hins vegar lenti ég í því, þó ég væri í stjórn­ar­liði inni á þingi, að ég var í minni­hluta í raun og veru. Flokk­ur­inn minn var ekki til­bú­inn að stíga þau skref sem stíga þurfti þegar á hólm­inn var komið. Það náð­ist aldrei ein­ing innan þing­flokks­ins um það sem þyrfti að gera þó að for­ysta flokks­ins væri á sama máli og ég. Kvóta­greif­arnir hafa bara svo sterk ítök í öllum stjórn­mála­flokkum. Þeir eiga sína full­trúa inni í öllum flokk­unum; það var kannski sárasta upp­götv­unin sem ég gerði, sem bjart­sýnn og von­góður þing­maður, að koma glæný inn eftir hrun og hélt nátt­úr­lega að ég og mínir sam­ferða­menn sem voru að koma nýir inn myndum öllu breyta og allt bæta. En svo nátt­úr­lega gengur maður á vegg­inn og áttar sig á því að það er und­ir­gerð, það er svona djúp­gerð á bak við öll stjórn­mál og alla stjórn­sýslu, þar sem ráðum er ráðið alger­lega á bak við leik­tjöld eða á bak við hinn opin­bera vett­vang lýð­ræð­is­ins. Og það var bara það sem átti sér stað þarna. Og það er til dæmis ástæðan fyrir því að það er ekki enn þá búið að leiða til lykta þetta stjórn­ar­skrár­mál. Það er bara vegna þess að það er ekki hægt að koma auð­linda­á­kvæð­inu inn í stjórn­ar­skrá vegna þess að hags­muna­öflin sem stýra útgerð­inni í land­inu ætla bara ekki að sætta sig við það.“

Kvótinn varð takmörkuð auðlind

Ólína seg­ist hafa viljað koma á rétt­látri og eðli­legri fisk­veiði­stjórnun. Segir að þetta kerfi sé harð­læst. „Því var bara skellt í lás þegar frjálsa fram­sal­inu var komið á og mönnum var eig­in­lega afhent auð­lindin; þeim sem höfðu þá verið þrjú ár eða lengur í grein­inni. Síðan lok­að­ist kerfið; nýir menn kom­ast ekki inn nema þá sem leigu­liðar hinna sem fyrir eru sem fengu þetta upp í hend­urnar. Kvótinn varð við þetta tak­mörkuð auð­lind sem varð bara verð­mæt­ari og verð­mæt­ari og er farin að ganga í erfðir og verða and­lag í hjóna­skiln­að­ar­málum og þegar verið er að skipta dán­ar­búum. Þetta er nátt­úr­lega alls ekki eðli­legt. Þarna er búið að taka auð­lind­ina og gera hana að ígildi einka­eignar. Og eftir því sem lengra líður án þess að þetta sé leið­rétt þá munu þeir standa fastar á því að það sé kom­inn hefð­ar­réttur og þetta sé stjórn­ar­skrár­varin eign sem þeim beri. Um það stendur styrinn.“

Að gerðir yrðu tíma­bundnir nýt­ing­ar­samn­ingar.

Ólína seg­ist hafa viljað ná fram kerf­is­breyt­ingum sem fælu það í sér að kvót­anum væri úthlutað á grund­velli nýt­ing­ar­samn­inga: Að gerðir yrðu tíma­bundnir nýt­ing­ar­samn­ingar þannig að í stað­inn fyrir að Samherji sé með eilífð­ar­ráð­stöf­un­ar­rétt á kvót­anum þá fengi hann bara kannski nýt­ing­ar­samn­ing til 10-20 ára og greiddi fyrir þann nýt­ing­ar­samn­ing að fá úthlut­aðan kvóta á hverju ári af þessum 20 árum.

„Ef hann myndi ger­ast brot­legur með brott­kasti eða óábyrgri umgengni um auð­lind­ina þá myndi hann fyr­ir­gera rétti sínum til að fá nýt­ing­ar­samn­ing­inn end­ur­nýj­aðan. Þannig að þá væru útgerð­ar­að­il­arnir í raun og veru leigj­endur hjá þjóð­inni að þessum auð­æfum en ekki eig­endur. Það má alveg líkja þessu við ef það myndi rísa fjöl­býl­is­hús ein­hvers staðar í borg­inni og þangað kæmi hús­töku­fólk sem kæmi sér þar fyrir, fengi leyfi til að vera þar í viku og væri svo bara sest að og það kæmust aldrei neinir aðrir inn í húsið og það væri aldrei borgað raun­virði húsa­leigu.

Þessar breyt­ingar náðu nátt­úr­lega ekki fram að ganga þrátt fyrir mikið japl, jaml og fuður, nefndir og sátta­nefndir. Hins vegar var farið út í það í stað­inn að hækka veiði­leyfagjaldið og breyta lögum um greiðslu veiði­leyfagjalds. Það gekk eftir í raun og veru í eitt ár. Svo hrökkl­að­ist rík­is­stjórnin frá völdum og það kom ný rík­is­stjórn sem lét það verða sitt fyrsta verk að lækka veiði­leyfagjaldið sem hefur síðan farið stig­lækk­andi og er í dag aftur orðið mála­mynda­gjald eins og það var fyrir breyt­ing­una. Þetta er órétt­lætið.“

Það voru von­brigði að jafn­vel flokks­fólk Ólínu stóð ekki með henni að fullu.

þar kom í ljós fyr­ir­staða þegar upp var staðið. Og hún var Stein­grímur J. Sig­fús­son.

„Ekki mitt flokks­fólk og ekki heldur VG, sem var hinn stjórn­mála­flokk­ur­inn sem fór með sjáv­ar­út­vegs­málin á þessum tíma og stýrði gangi mála og þar kom í ljós fyr­ir­staða þegar upp var staðið. Og hún var Stein­grímur J. Sig­fús­son.“

Eru það þá tengsl við kjör­dæmið og þessi stóru fyr­ir­tæki þar?

„Ég held að þing­menn Norð­aust­ur­kjör­dæmis myndu aldrei nokkurn tím­ann eiga neinn mögu­leika á að beita sér í átt til breyt­inga á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu. Þar eru hags­munir allt of ríkir hjá stór­út­gerð­inni, enda hefur nátt­úr­lega mesta and­staðan komið úr því kjör­dæmi, leynt og ljóst.“

Er þá ekki snúið fyrir Loga Ein­ars­son, núver­andi for­mann, að beita sér af hörku?

„Það myndi ég halda enda hefur hann ekki beitt sér af hörku í því máli.“

Sagði sig úr flokknum

Ólína fékk ekki kosn­ingu áfram. Hvað bar út af?

„Svo féll ég af þingi. Fyrst er það nátt­úr­lega að fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hrundi eftir þetta stjórn­ar­sam­starf. Það bara hrundi og við náðum ekki inn þing­sæt­inu mínu, þannig að ég varð vara­þing­maður. En þá urðu þau hörmu­legu tíð­indi að félagi minn, Guð­bjartur Hann­es­son, sem var fyrsti þing­mað­ur­inn fyrir Sam­fylk­ing­una í kjör­dæm­inu, fékk krabba­mein og varð mjög veikur og ég kom inn fljót­lega fyrir hann. Því miður ent­ist honum ekki ævin. Hann dó á miðju kjör­tíma­bili og þá sat ég sem þing­maður í hans stað fram að næstu kosn­ingum; það var nú reyndar ekki nema tvö ár.

Ég var komin í and­stöðu við Árna Pál Árnason sem var for­maður flokks­ins.

Svo voru komnar vær­ingar innan flokks­ins. Það var svo margt búið að ganga á í sam­bandi við þessi fisk­veiði­stjórn­un­ar­mál og eitt og annað. Ég var komin í and­stöðu við Árna Pál Árnason sem var for­maður flokks­ins á þeim tíma. Hann ætl­aði sér þing­sæti í Norð­vest­ur­kjör­dæmi; var far­inn að hringja til að safna stuðn­ingi við sig, fann ekki stuðn­ing­inn og hætti við, en var þá auð­vitað búinn að grafa undan mér og þá kom auð­vitað Guðjón Brjáns­son sem sá sér leik á borði og stökk inn og náði í próf­kjöri fyrsta sæt­inu. Ég var búin að láta vita að ég gæfi ekki kost á mér nema í fyrsta sæti. Ég náði því ekki og þá stóð ég bara upp og fór.“

Ólína sagði sig úr Sam­fylk­ing­unni í fyrra. „Ég fylgdi þeim nú að málum og var góður flokks­maður alveg þangað til fyrir svona ári síðan. Þá sagði ég mig úr flokknum, en ég lét það ekki fara hátt. Það var rétt fyrir kosn­ingar og ég vildi af virð­ingu við félaga mína ekki vera að gera ein­hvern úlfa­þyt úr því; fólkið sem ég hafði starfað með og var að berj­ast fyrir þing­sæt­inu sínu meðal ann­ars og ég þagði yfir því. Það er ekki fyrr en núna sem ég er farin að segja frá því að ég sé ekki lengur í Sam­fylk­ing­unni.“

Mér finnst Sam­fylk­ingin hafa verið í mik­illi for­ystu­kreppu síð­ustu ár.

Af hverju sagði Ólína sig úr flokknum?

„Það var nátt­úr­lega bara svo margt. Mér finnst Sam­fylk­ingin hafa verið í mik­illi for­ystu­kreppu síð­ustu ár. Það að vísu lag­að­ist mikið um tíma eftir að Logi Ein­ars­son tók við, en svo hefur hann þagnað veru­lega finnst mér upp á síðkastið og verið lítið afger­andi. Mér fannst flokk­ur­inn ekki vera að taka raun­veru­lega á þeim málum sem hann átti að vera að taka á. Hann var svo­lítið mikið bund­inn við kannski ekki lítil mál heldur mál sem vörð­uðu minni þjóð­fé­lags­hópa og það var farið að yfir­skyggja fannst mér stóru málin. Svo fannst mér líka flokk­inn vanta stefnu. Hann vant­aði kannski ekki skrif­aða stefnu, en hann vant­aði stefnu í mál­flutn­ingi sinna full­trúa. Og ég er bara ein­hvern veg­inn þannig úr garði gerð að mér finnst að stjórn­mál eigi að snú­ast um grund­vall­ar­at­riði og menn eigi að standa í lapp­irnar og taka slag­inn ef þess þarf um grund­vall­ar­mál­efni.“

Ólína segir að í dag dansi hún bara frítt á bár­unni og hafi skoð­anir á öllu og sé ekki bundin af neinum.

Algjörlega óásættanlegt

Hvað með þetta banka­brall allt saman?

Í öllu falli þá á hann auð­vitað að víkja.

„Það er nátt­úr­lega mikið hneyksli hvernig þessi sala hefur náð fram að ganga, þessi seinni sala sér­stak­lega, á eign­ar­hlut almenn­ings í Íslands­banka. Og mér finnst allt hafa brugð­ist í því máli; spill­ingin, græðgin og leynd­ar­hyggjan hefur afhjúp­ast og hvernig allt er raun­veru­lega vaxið í íslenskum stjórn­málum. Þarna var mikið talað um lang­tíma­fjár­festa, kjöl­festu­fjár­festa og erlenda fjár­festa; þetta átti allt að vera svo fínt og flott og það átti ekki að hleypa almenn­ingi að þessu borði vegna þess að nú þurfti stóra aðila inn á sviðið og trausta aðila. Og svo kemur eitt­hvað allt annað í ljós. Svo er það faðir fjár­mála­ráð­herr­ans sem er einn af kaup­end­unum. Það eru sölu­að­il­arnir sjálfir: Eig­in­konur, systur, bræður, það eru vinir og flokks­fé­lagar og svo koma nöfnin úr hrun­inu: Exista, Fons, Samherji. Aðilar sem eru tengdir alvar­legum mútu- og spill­ing­ar­málum erlendis og eru allt í einu farnir að dúkka upp. Eftir það sem gerð­ist 2008 þá er eig­in­lega ekki ásætt­an­legt að láta óáreitt þetta end­ur­lit eða þessa end­ur­tekn­ingu frá 2008. Þó að stærð­irnar séu minni og við séum bara að tala hér um einn banka, þá er eðli máls­ins þannig að það er algjör­lega óásætt­an­legt. Bjarni Bene­dikts­son sem fjár­mála­ráð­herra var ann­að­hvort gjör­sam­lega van­hæfur eða ekki starfi sínu vax­inn í sam­bandi við þetta allt saman og þá á hann að axla póli­tíska ábyrgð. Eða að hann vissi hvað hann var að gera og hafi hann vitað það þá finnst mér alveg aug­ljóst að hann hafi gerst brot­legur. Í öllu falli þá á hann auð­vitað að víkja. Og eig­in­lega ætti rík­is­stjórnin að víkja. Og það ætti að boða til kosn­inga og end­ur­nýja umboð finnst mér núna.“

Sjálfum sér líkur

Ólína er spurð hvað valdi þessu und­ar­lega sam­bandi VG og Sjálf­stæð­is­flokks­ins; VG var vinstra megin við Sam­fylk­ing­una á hennar tíð virt­ist vera og nú er VG ein­hvern veg­inn eins og gamli Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn var.

„Hefur VG ekki alltaf verið Fram­sókn­ar­flokkur í raun og veru? Ég held það nefni­lega. Það er ekki nema lítil hluti hans sem er raun­veru­lega rót­tækur vinstri armur. Mér hefur alltaf þótt VG vera Fram­sókn­ar­flokkur. Þeir hafa staðið vörð um mjög svip­aða hluti og Fram­sókn­ar­menn og haft fram­sókn­ar­áru yfir sér.“

Stór­iðju­dekur og ýmis­legt.

„Mikið stór­iðju­dekur og hljóð­lát varð­staða um ákveðna hags­muni. Og hvað gengur þeim til með að ganga til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn í stjórn­ar­samt­arfi og Fram­sókn­ar­flokk­inn? Það er nátt­úr­lega til þess að kom­ast að völdum, en ég held að þeir hafi ekki séð alveg fyrir hvernig þetta myndi fara. Því þegar félags­hyggju­flokkar ganga í eina sæng með hægri öfl­unum á Íslandi þá er það alltaf ávísun á fylgis­tap. Mikið fylgis­tap. Og það ríður eng­inn vinstri­flokkur feitum hesti frá slíku eins og ég held að sé að koma í ljós núna í sam­starfi VG við þessa gömlu helm­inga­skipta flokka, Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk.“

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er kom­inn með allt aðra áru; hann er ekki eins umdeildur og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

„Þeir setja nátt­úr­lega fram kosn­inga­slag­orð: „Er ekki bara best að kjósa Framsókn?“ Það þýðir „okkur er alveg sama, við erum bara ligeglad; kjósið okkur“. Það bara segir „hér er engin póli­tík, hér ætlum við bara að vera og sitja við kjöt­katl­ana“.

En er ekki ólíkt skárra Fram­sókn­ar­flokkur Sigurðar Inga heldur en Sjálf­stæð­is­flokkur Bjarna Bene­dikts­sonar?

þetta er bara valda­sæk­inn, lít­ill flokkur.

„Jú, ég meina, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er nátt­úr­lega bara sjálfum sér líkur. Hann er ekki að haf­ast að, þetta er bara valda­sæk­inn, lít­ill flokkur sem reynir iðu­lega að koma sér í odda­að­stöðu þegar verið er að semja um myndun rík­is­stjórna. Sigurður Ingi hefur svo sem verið mein­laus og aðgerða­lít­ill má segja, en ég man þó þá tíð á meðan ég var í þing­inu að hann var býsna harður í hags­muna­vörslu fannst mér, bæði fyrir útgerð­ina og land­bún­að­inn. En kannski er hann far­inn að sjá hlut­ina í öðru ljósi. Ég skal ekki segja.“

Svo er Lilja Alfreðs­dóttir sem var­aði við þessu banka­bralli með Íslands­banka. En svo segir fólk að hún hafi ekki látið bóka neitt.

„Hvaða þýð­ingu hefur það að vara við? Ég get kannski sett mig í þau spor, að ef þú ert í stjórn­ar­sam­starfi og það eru þrír ráð­herrar á fundi í efna­hags­nefnd rík­is­stjórn­ar­innar, að þú reynir frekar að hafa uppi munn­leg mót­mæli heldur en að bóka því það gefur ekki góð skila­boð að vera með bók­anir þegar það eru kannski þrír ráð­herrar. En gott og vel. En það er greini­lega ekk­ert á það hlustað og hvað segir það þá um stöðu Fram­sókn­ar­flokks­ins í stjórn­ar­sam­starf­inu?

Svo þagnar Lilja. Hún lætur vita af þessum and­mælum sínum en svo þagnar hún. Og það næst ekk­ert í hana. Næsta sem frétt­ist af henni er að hún er á Fen­eyjat­ví­ær­ingnum þar sem hún er að tala um allt aðra hluti. Þannig að hver er þá stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins í þessu máli?“

Ólína segir að Sigurður Ingi sé skað­aður eftir kend­er­íið á Bún­að­ar­þingi og ummæli sem féllu þar.

Hún er spurð hvort hún ætli aftur út í póli­tík.

„Nei, ég hef ekki hugsað mér það. Ég get haft skoð­anir á mönnum og mál­efnum, ég hef gaman af að blanda mér í umræð­una og skrifa og ef ég er kölluð til að halda ræður á úti­fundum þá er ég alveg til­kippi­leg í slíkt af og til.“

Áran erfið og þung

Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir seg­ist vera Vest­firð­ingur að ætt og upp­runa, en hún fædd­ist og ólst upp í Reykja­vík. Hún gekk í Hlíða­skóla og seg­ist hafa verið skóla­systir Brynjars Níels­sonar og Gústafs, bróður hans, og fleiri sem hrelldu hana og sem hún hrelldi á bernsku­árum sínum þegar hún gekk með járn­staf í hönd og stofn­aði leyni­fé­lög og skaut þeim skelk í bringu.

„Þeir voru bara skemmti­legir strákar. Okkur stóð svo­lít­ill stuggur af þeim, stelp­unum, í leikjum og öðru.“

Aftur að járn­stafnum. „Ég lamdi engan með þessum staf, en ég var and­skoti víga­leg með hann.“

Hún var send í sveit vestur á firði á sumrin til fólks­ins síns og svo varð pabbi hennar sýslu­maður, bæj­ar­fó­geti og lög­reglu­stjóri fyrir vestan og flutti fjöl­skyldan til Ísa­fjarðar árið 1973.

„Eftir það hafa tengsl mín við Ísafjörð verið mjög sterk því að eftir að ég fór svo suður í háskól­ann þá kom ég aftur 2001 og var í 16 ár fyrir vestan. Ég kom svo suður aftur sem þing­maður.“

Á síðu Alþingis má meðal ann­ars finna þetta um feril Ólínu: „Stúd­ents­próf MÍ 1979. BA-próf í íslensku HÍ 1985. Cand.mag.-próf í íslenskum bók­menntum og þjóð­fræði HÍ 1992. Stjórn­un­ar­nám við við­skipta- og hag­fræði­deild HÍ 1998–1999. Kennslu­rétt­indi á fram­halds­skóla­stigi 2001. Dr. phil. í íslenskum bók­menntum HÍ 2000. Vann við fisk­vinnslu, var rit­ari og stund­aði almenn skrif­stofu­störf 1975–1985. Blaða­maður á NT, frétta­stjóri á Alþýðu­blað­inu 1985–1986. Frétta- og dag­skrár­gerð­ar­maður á RÚV 1986–1990. Stunda­kenn­ari í þjóð­fræðum við Háskóla Íslands 1992–2000. For­stöðu­maður þjóð­hátta­deildar Þjóð­minja­safns Íslands 1998–2000. Skóla­meist­ari Mennta­skól­ans á Ísafirði 2001–2006. Verk­efn­is­ráð­inn sér­fræð­ingur við Stofnun fræða­setra Háskóla Íslands 2006–2009. Borg­ar­full­trúi í Reykja­vík 1990–1994, í borg­ar­ráði 1992–1994. Í stjórn Dag­vistar barna 1990–1994. Formaður sveit­ar­stjórn­ar­ráðs Alþýðu­flokks­ins 1991–1993. Í stjórn Stræt­is­vagna Reykja­víkur 1994–1998. Í stjórn Neyt­enda­fé­lags höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins 1995–1996. Vara­for­maður Kvæða­manna­fé­lags­ins Iðunnar 1996–1998. Formaður Íbúa­sam­taka Vest­ur­bæjar 1998–2000. Vara­for­maður Menn­ing­ar­ráðs Vest­fjarða frá 2007. Formaður stjórnar Fræðslu­mið­stöðvar Vest­fjarða 2001–2006. Formaður Vest­fjarða-aka­dem­í­unnar 2005–2008.“

Skóla­meist­ari Mennta­skól­ans á Ísafirði 2001-2006. Þar voru erjur. Gekk hún ósár frá þeim leik?

Lítill minni­hluti starfs­manna sem stóð fyrir þessum illindum.

„Já, það myndi ég nú alveg segja. Ég var mjög sátt við það hvað ég náði miklum árangri fyrir Mennta­skól­ann á Ísafirði og það varð mikil breyt­ing á skól­anum á meðan ég var skóla­meist­ari þó að ég segi sjálf frá. Svo komu upp deilur síð­ustu tvö árin sem ég var í starfi. Mér verður stundum hugsað til þess þegar ég er að fylgj­ast með Sólveigu Önnu og Eflingu; mér finnst nú ýmis­legt kunn­ug­legt í þeim atgangi, eins og því sem ég gekk í gegnum. Svo átt­aði ég mig á því að ég vildi ekki eyða lífi mínu í þetta. Ég var búin að gera það sem ég vildi gera fyrir skól­ann, ég var búin að gera mitt besta og þó að þetta væri lít­ill minni­hluti starfs­manna sem stóð fyrir þessum illindum þá var áran orðin svo erfið og þung að ég hugs­aði með mér að ég ætl­aði ekki að eyða lífi mínu í þetta. Ég var búin að gera það sem ég gat og ég steig bara til hliðar. Og það var alfarið og algjör­lega mín ákvörðun að fara og kom ýmsum í opna skjöldu. Ég man að Sjálf­stæð­is­menn reyndu á þeim tíma að láta líta út fyrir að ég hefði verið rekin, en það var ekki þannig. Ég ákvað að stíga til hliðar vegna þess að ólíkt því sem ýmsir halda þá er ég frið­ar­ins mann­eskja, þó ég geti verið föst fyrir ef að mér er sótt.“

Alveg grjót­hörð.

„Ég get það alveg. En ég býð alltaf frið­inn og vil helst hafa hann.“

20 milljónir

Það var haustið 2018 sem Þing­valla­nefnd aug­lýsti starf þjóð­garðsvarðar á Þing­völlum laust til umsóknar. Ólína sótti um og var í hópi 20 umsækj­enda. Tveir þóttu vera hæf­astir: Hún og Einar Á. E. Sæmund­sen, sem síðar var ráð­inn þjóð­garðs­vörður. Ólína kærði nið­ur­stöð­una til kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála og komst nefndin að þeirri nið­ur­stöðu að Þing­valla­nefnd hefði brotið jafn­rétt­islög með því að ráða Einar. Þegar upp var staðið komst ríkið að sam­komu­lagi um 20 millj­óna króna bóta­greiðslu til Ólínu sem kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála hafði metið hæf­asta.

Það voru nátt­úr­lega sjálf­stæð­is­menn sem stóðu í vegi fyrir mér.

„Það voru nátt­úr­lega Sjálf­stæð­is­menn sem stóðu í vegi fyrir mér. Þetta varð póli­tískt af því að það var ég sem sótti um. Ég hef grun um að það hafi verið á bak við tjöldin búið að ákveða að Einar Sæmund­sen fengi þetta starf, vegna þess að það var alveg fyr­ir­séð að Ólafur Har­alds­son, sem var Þing­valla­þjóð­garðs­vörður, var að hætta vegna ald­urs. Það var nátt­úr­lega vitað. En þegar hann hætti vegna ald­urs þá var staðan ekki aug­lýst heldur var settur maður í tíma­bundna stöðu og það var Einar Sæmund­sen. Þannig að hann fékk heilt ár til að máta sig í starf­inu og svo sótti hann um. Þá hefði maður átt að átta sig á því að það stóð til að ráða hann. En hann hafði hins vegar ekki þær for­sendur sem ég hafði; bæði stjórn­un­ar­reynslu, menntun og bara ýmis­legt sem ég taldi auð­sýnt að ég hefði fram yfir hann. Þannig að þeir hafa kannski ekki áttað sig á því að svona mann­eskja eins og ég myndi sækja um þetta starf; hafa talið þetta auð­veldan leik. En hann varð það nú ekki.“

Og það varð að borga Ólínu bætur.

„Þeir brutu á mér stjórn­sýslu­lög. Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála úrskurð­aði að þeir hefðu gerst brot­legir gagn­vart mér og þá var ekki um neitt annað að ræða eins og rík­is­lög­maður upp­lýsti í blaða­við­tali; skaða­bóta­skyldan var aug­ljós. Þannig að það var samið um skaða­bætur.“

Reyndi þetta á Ólínu? Tók málið á?

„Svona mál tekur að sjálf­stöðu alltaf á því þú leggur sjálfa sig svo­lítið að veði. Mér finnst að fjöl­miðlar og aðrir mættu taka meira til­lit til þess þegar fólk stendur í svona stríði; það hafa komið upp svona mál, líka eftir að þetta var eins og til dæmis með Hafdísi Ólafs­dóttur og Lilju Alfreðs­dóttur sem gekk fram hjá henni í starf ráðu­neyt­is­stjóra. Þetta tekur nátt­úr­lega gríð­ar­lega á þann sem er að leita réttar síns, en ekki þannig að ég væri neitt að bug­ast yfir því, en auð­vitað tók þetta á. Ég var mjög fegin þegar því lauk.“

Hundurinn

Ólína, sem í dag starfar sem íslensku­kenn­ari í hluta­starfi við Mennta­skól­ann á Lauga­vatni og Háskól­ann á Biförst, skrifar bækur og vinnur sem far­ar­stjóri á sumrin, hefur um ára­bil verið virk í björg­un­ar­sveit­ar­störfum.

„Ég er aðeins farin að minnka afskipti mín af björg­un­ar­sveit­ar­störfum; það er aðal­lega vegna þess að hund­ur­inn minn, leit­ar­hund­ur­inn minn sem hefur verið minn helsti félagi í björg­un­ar­sveit­ar­starf­inu, hann Skutull minn, er orð­inn gam­all og fer bráðum að sigla út úr ver­öld­inni. Þannig að ég hef ekki getað tekið útköll með hann í meira en ár og þá hefur mín virkni aðeins minnkað. En ég þjón­aði nú Lands­björg og mínu sam­fé­lagi í gegnum björg­un­ar­sveit­irnar í 14 ár, svo­leiðis að ég get alveg vel við unað. Ég var lengst af með Skutul; ég var reyndar með annan hund á undan honum og tók þá aðal­lega leit­ar­út­köll.“

Ólína er spurð hvað sé eft­ir­minni­leg­ast úr björg­un­ar­sveit­ar­starf­inu.

Þarna mátti litlu muna að illa færi.

„Það er svo margt sem við Skutull höfum gengið í gegnum saman í björg­un­ar­hunda­sveit­inni. Leitin að Birnu Brjáns­dóttur var mér mjög eft­ir­minni­leg og bara nokkur útköll sem við fórum í. Sá sem ekki hefur staðið sjálfur í útköllum á erfitt með að setja sig í sporin – hvað ger­ist þegar maður stendur einn uppi á miðri heiði og er að leita að týndri mann­eskju. Mér er líka mjög minn­is­stætt atvikið sem varð upp undir Langjökli fyrir um tveimur árum, þegar hátt á fjórða tug manna var næstum orð­inn úti þar í mis­heppn­aðri jökla­ferð sem fór öll úr böndum. Börn og full­orðnir. Þarna mátti litlu muna að illa færi. Ég stóð í þeirri aðgerð ásamt fleirum og við settum upp auka­við­bún­að­ar­stöð fyrir fólkið þegar það var að koma beint niður af jökl­inum áður en haldið yrði með það niður að Gull­fossi þar sem beið svo form­leg fjölda­hjálp­ar­stöð. Ég held við höfum tekið mjög far­sæla ákvörðun þar, þar sem við tókum svo­lítið málin í okkar hendur og ákváðum að hjúkra fólk­inu og hlúa að því áður en haldið yrði áfram með það. Mér er sú nótt mjög eft­ir­minni­leg.“

Hún talar líka um það að vinna með hundi. Að þjálfa björg­un­ar­hund, vinna með honum og ná þessu ótrú­lega vinnu­sam­bandi sem mynd­ast milli manns og hunds. „Til að byrja með er þetta leikur fyrir hund­inn. Öll þjálfun gengur út á það að þetta sé leikur og skemmti­legt en svo eftir því sem fram í sækir og maður fer að fara í útköll og annað, þá kemur alvaran í þetta og það er svo merki­legt að finna hvernig skepnan skilur það þegar þetta fær­ist af því stigi að vera leikur yfir í það að hund­ur­inn er far­inn að vinna með þér og hann gerir allt sem hann getur til að ná þeim árangri sem að er stefnt. Ég hef komið heim með hund­inn minn blóð­risa á þófum og örmagna af því að þeir gef­ast aldrei upp og aldrei hætta þeir. Þegar ég hugsa um það sem við Skutull minn höfum átt síð­ustu 12 árin á þessum vett­vangi þá get ég sagt að ég ber virð­ingu fyrir þess­ari dýra­teg­und, hund­inum.“

Ólína við­ur­kennir að sig langi stundum til þess að þjálfa annan hund og halda áfram. „Ég er í fullu fjöri og myndi treysta mér til að halda áfram. Ég ætla að sjá til. Ég ætla ekki að gera Skutli það að taka annan hund á meðan hann er ofan jarðar.“

Fjöllin lokka og laða og hefur Ólína starfað sem leið­sögu­maður á sumrin eins og þegar hefur komið fram. Hún segir að það sé hvergi betra að vera en á fjöllum. Hver finnst henni vera fal­leg­asti staður á Íslandi?

„Það er Horn­bjarg. Eig­in­lega úr öllum áttum. Kálfatindar og hvort sem þú horfir úr Látra­vík­inni yfir. Og líka bara Horn­strand­irnar. Logn, kyrrðin að kvöldi dags, bjargið og fjöllin spegl­ast í skyggðum hafflet­inum og sólin að setj­ast. Þú heyrir gagg í tófu ein­hvers staðar og finnur lykt af þangi, bald­urs­brá og fjöru­káli. Þetta er bara para­dís á jörð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina