Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ellert óttaðist um son sinn: „Ég opna hurðina og kolsvartur reykjarmökkurinn kemur á móti mér“

Ellert óttaðist um son sinn: „Ég opna hurðina og kolsvartur reykjarmökkurinn kemur á móti mér“

„Að vakna upp um miðja nótt við það að heim­ili manns stendur í ljósum logum er skelfi­leg lífs­reynsla. Eins og að vera fastur í hræði­legri martröð sem þú getur ekki vaknað upp af,“ skrifar Ellert Grét­ars­son, íbúi í Keflavík, sem vakn­aði upp í fyrrin­átt við það að íbúð hans stóð í ljósum logum.Ellert, sem er þekktur ljós­mynd­ari, skrifar slá­andi færslu á Facebook um þessa lífs­reynslu sína. Það var sem krafrta­verk hefði vakið hann.„Það sem vakti mig var svefn­her­berg­is­hurðin sem glamr­aði í hurð­ar­fals­inu, líkt og hún gerði alltaf í jarð­skjálft­unum síð­asta vetur því hún er örlítið laus í fag­inu. Þess vegna hélt ég í svefn­rof­anum að það hefði komið skjálfti. En glamrið varð að þungum höggum, ég hrökk upp og spratt fram úr rúm­inu. Þá fann ég bruna­lykt­ina. Ég opna hurð­ina og kol­svartur reykj­ar­mökk­ur­inn kemur á móti mér,“ skrifar Ellert.Hann býr ásamt syni sínum. Fyrsta hugs­unin var sú að að hann væri í lífs­háska.

Hrópaði á son sinn

„Ég hrópa af öllum lífs og sálar kröftum á strák­inn minn en fékk ekk­ert svar. Náði að kom­ast inn í her­bergið hans en hann var ekki í rúm­inu sínu. Þetta var það skelfi­leg­asta af öllu – að vita ekki um hann,“ skrifar hann.Ellert sá ekki handa sinna skil í kolsvörtu reykj­ar­kóf­inu. Hann reyndi að halda niðrí í sér and­anum og fet­aði sig með­fram veggnum að úti­dyra­hurð­inni og náði að kom­ast fram á stiga­gang.„Ég hafði gripið með mér sím­ann af nátt­borð­inu til að geta hringt á hjálp. Stuttu síðar er slökkvi­liðið komið og Neyð­ar­línan slítur sam­tal­inu. Ég hringi þá í strák­inn minn og til allrar Guðs bless­unar svar­aði hann. Hann hafði ekki verið heima. Allir komust út úr hús­inu heilir á húfi,“ skrifar Ellert.Hann þakkar nágrönnum sínum fyrir þá hug­ul­semi að hlúa að sér þar sem hann stóð hálf­nak­inn fyrir utan heim­ili sitt.

Hrikaleg aðkoma í íbúð­inni.

Íbúðin og inn­búið eru gjör­ó­nýt, eins og sjá má af myndum. Elds­upp­tök munu hafa verið í fjöltengi í stof­unni.„Það dýr­mætasta sem ég á var ekki það sem brann og eyði­lagð­ist heldur fólkið mitt, fjöl­skylda og vinir sem hafa umvafið mig hlýju og kær­leik og hjálpað mér að kom­ast yfir versta áfallið. Þetta er ekki fyrsta áfallið sem ég tekst á við í líf­inu og þá hefur fólkið mitt alltaf verið til staðar. Það er ómet­an­legt að eiga góða að og það er alls ekki sjálf­sagt. Ekkert er sjálf­sagt í hverfug­leika lífs­ins, hvort það sem eru ást­vinir, heilsan eða bara lífið sjálft. Það er ekk­ert víst að það sem þú átt og hefur í dag verði á sínum stað á morgun. Það er engin trygg­ing fyrir því. Verið þess vegna þakk­lát fyrir það sem þið hafið, hugsið minna um það sem þið teljið ykkur vanta. Ræktið þakk­lætið því þakk­lætið er nátengt ham­ingj­unni,“ skrifar Ellert.

Hann segir í sam­tali við Mannlíf að nú sé hann að jafna sig eftir áfallið. Næsta vika fer svo í að huga að trygg­ingum vegna tjóns­ins og koma líf­inu í fastar skorður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina