Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sólveig vill fá vinnufrið – „Sem betur fer tókum við ákvörðum um að hlýða ekki, halda ekki kjafti“

Sólveig vill fá vinnufrið – „Sem betur fer tókum við ákvörðum um að hlýða ekki, halda ekki kjafti“

„Umsókn­ar­frestur á störfum rann út í gær og alls bár­ust um það bil 250 umsóknir,“ skrifar Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, í pistli á Facebook síðu sinni í dag. Þá segir hún að nú taki við úrvinnsla umsókna þar sem þær verða skoð­aðar og metnar.
„Það hefur verið áskorun að tryggja grunn­þjón­ustu við félags­fólks sökum fjölda-veik­inda starfs­fólks skrif­stof­unnar en það hefur tek­ist,“ segir hún í pistl­inum en Sólveig von­ast eftir vinnu­friði.
„Ég vona inni­lega að sá vinnu­friður sem ég hef ítrekað óskað eftir fyrir hönd stjórnar félags­ins fari að kom­ast á og að við getum óáreitt ein­beitt okkur að því sem mestu máli skiptir, því að halda áfram við að breyta Eflingu í öfl­ug­ustu sam­tök verka og lág­launa­fólks á Íslandi.“
Pistil­inn má lesa í heild hér að neðan.

„Kæru Efl­ing­ar­fé­lagar. Ég sendi ykkur bar­áttu og sam­stöðu kveðjur á deg­inum okkar, alþjóð­legum bar­áttu­degi verka­lýðs­ins, 1. maí. Ég vona að ég sjái ykkur í göng­unni og svo í Eflingar-kaff­inu í Vals­heim­il­inu að úti­fundi loknum.

Áður en lengra er haldið vil ég segja nokkur orð um skipu­lags­breyt­ing­arnar sem stjórn félags­ins sam­þykkti að inn­leiða, og stöð­una á skrif­stofu Eflingar:
Umsókn­ar­frestur á störfum rann út í gær og alls bár­ust um það bil 250 umsóknir. Nú hefst vinna við að skoða þær og meta. Það hefur verið áskorun að tryggja grunn­þjón­ustu við félags­fólks sökum fjölda-veik­inda starfs­fólks skrif­stof­unnar en það hefur tek­ist. Stjórn setti í for­gang að sjúkra­dag­pen­ingar yrðu greiddir út enda eru þeir ein mik­il­væg­ustu rétt­indi verka og lág­launa­fólks, sem vegna lágra launa á lít­inn eða engan sparnað, og getur sam­stundis lent í alvar­legum fjár­hags­erf­ið­leikum þegar veik­inda­réttur hefur klár­ast og engin laun ber­ast frá atvinnu­rek­anda. Á morgun verða sjúkra­dag­pen­ingar greiddir frá Eflingu til um það bil 190 félaga, upp á sam­tals 70 millj­ónir.
Ég vona inni­lega að sá vinnu­friður sem ég hef ítrekað óskað eftir fyrir hönd stjórnar félags­ins fari að kom­ast á og að við getum óáreitt ein­beitt okkur að því sem mestu máli skiptir, því að halda áfram við að breyta Eflingu í öfl­ug­ustu sam­tök verka og lág­launa­fólks á Íslandi.

Kæra Efl­ing­ar­fólk.
Atburð­ar­ráðs síð­ustu mán­aða, vikna og daga hefur verið skrítin, svo vægt sé tekið til orða. En mín afdrátt­ar­lausa afstaða er þó sú að við sem trúum á leik­reglur lýð­ræð­is­ins eigum ein­fald­lega að fagna tæki­fær­unum til þess að berj­ast fyrir því sem við trúum á, til þess að sann­færa fólk með mál­efna­legum hætti um að stefna okkar sé þess virði að hún sé studd og henni fylgt. Það höfum ég og félagar mínir á Bar­áttu­list­anum ítrekað gert, nú síð­ast á fjöl­mennum félags­fundi þar sem að nið­ur­staðan varð sú að við höfum afdrátt­ar­laust umboð til að stýra félag­inu, líkt og við sann­ar­lega vorum kjörin til að gera í kosn­ing­unum um for­ystu félags­ins sem lauk 15. febr­úar síð­ast­lið­inn. Átökin hafa verið hörð og erfið, en þau eru þess virði.

Kæru félagar.
Þegar ég tók fyrst við for­mennsku í Eflingu vorið 2018 vissi ég ekki mikið um íslenska verka­lýðs­hreyf­ing­una. En ég skildi ekki hvers­vegna þau sem hreyf­ing­unni stýrðu stærðu sig af því að hún væri best í heimi á meðan að ég og sam­starfs­konur mínar á leik­skól­anum töl­uðum um hvað launin okkar væru ömur­leg og aðstæður erf­iðar. Margar okkar voru í fleiri en einni vinnu, þrátt fyrir að leik­skóla­starfið sé eitt það mest lýj­andi sem til er, bæði and­lega og lík­am­lega, og sumar í fleiri en tveimur, til þess að geta tryggt okkur þak yfir höf­uðið og til að gera staðið skil á reikn­ingum. Þær okkar sem fastar voru á algróða­væddum leigu­mark­aði voru algjör­lega und­ir­seldar duttl­unga­fullri græði leigu­sala. Fyrir okkur virt­ist verka­lýðs­for­ystan lifa í allt öðrum efn­is­legum heimi en við. Þar voru launin há, og fólk var búið að koma sér ræki­lega fyrir sem með­limir í íslenskri milli og efri-milli­stétt. Stétta­sam­vinna var aðal­at­riðið og stöð­ug­leik­inn mik­il­vægastur, sama þótt að öllum ætti að vera ljóst að hann hvíldi á herðum verka og lág­launa­fólks sem voru einmitt fórn­ar­lömb stétta­sam­vinn­unar. Ég vissi ekki mikið um verka­lýðs­hreyf­ing­una en ég vissi að áherslur hennar og for­gangs­röðun voru rangar; þau sem til­heyrðu stétt verka og lág­launa­fólks svitn­uðu við að knýja áfram hjól atvinnu­lífs­ins og héldu uppi umönn­un­ar­kerfum sam­fé­lags­ins á meðan að efri lög sam­fé­lags­ins sem verka­lýðs­for­ystan vildi til­heyra, höfðu það sífellt betra og náð­ugra. Og ég vissi að ég var ekki lengur til­búin til að láta hlut­ina halda áfram á þeirri leið sem þeir voru, ég var ekki til­búin til að sætta mig við að verka og lág­launa­fólk væri áfram jað­ar­sett, und­an­skilið mik­il­vægum ákvarð­ana­tökum sem höfðu þó allt um til­veru-skil­yrði okkar að segja, ekki til­búin til að sætta mig við að aðeins væri talað við okkur upp á punt eða bara alls ekki. Ég er sann­ar­lega reynsl­unni rík­ari núna, um allt er við­kemur félag­inu okkar, verka­lýðs­hreyf­ing­unni, sam­skipt­unum svoköll­uðu við við­semj­endur, átökum við þá og stjórn­völd, og það hvar, hvernig og hvenær stétta­á­tökin geta blossað upp. Ég veit núna að oft á tíðum fer erf­ið­asta bar­áttan fram á vett­vangi sjálfrar hreyf­ing­ar­innar og að þau sem eru til í að taka þann slag eru ekki vin­sæl. En afstaða mín til bar­áttu okkar verka og lág­launa­fólks hefur ekki breyst; við munum ótrauð berj­ast áfram fyrir því að okkar hags­munir séu settir á odd­inn hvar og hvenær sem er, við munum berj­ast ótrauð fyrir því að raddir okkar heyr­ist hátt og skýrt hvar og hvenær sem er, og við munum áfram berj­ast fyrir efna­hags­legu rétt­læti, gegn stétta­skipt­ingu, hvar og hvenær sem er.

Kæra Efl­ing­ar­fólk. Fjöl­breytt­ari hóp en okkur er ekki hægt að finna á Íslandi. Við komum all­staðar að úr heim­inum. Við aðhyll­umst fjöl­margar og ólíkar skoð­anir á málum, og menn­ing­ar­legur bak­grunnur okkar er bók­staf­lega óend­an­lega fjöl­breyttur. En eitt eigum við sam­eig­in­legt: Við til­heyrum stétt vinnu­aflsins. Við knýjum áfram hag­vöxt­inn með vinnu okkar; okkar vinna skapar verð­mætin. Við höldum uppi umönn­un­ar­kerfum sam­fé­lags­ins; við erum ómissandi. Sama hvort við störfum á almenna eða opin­bera vinnu­mark­aðnum er stað­reyndin sú að án okkar vinnu­afls stoppar öll verð­mæta­fram­leiðsla þjóð­fé­lags­ins. Við erum það sem allt hvílir á. Það er stað­reynd sem eng­inn getur neitað.

Og þess­vegna, kæra fólk, eigum við að bera höf­uðið hátt. Þess­vegna eigum við að horfa stolt í speg­il­inn og á það fólk sem við mætum. Þess­vegna eigum við að koma saman, hug­rökk og upp­lits­djörf, í sam­stöðu hvort með öðru og með okkur sjálfum, og setja fram kröf­una sem end­u­r­ómað hefur í gegnum sögu okkar verka­fólks: Okkar vinna skapar verð­mætin, því er það okkar að ákveða hvað við viljum, hvað við þurfum. Hverju við eigum heimt­ingu á. Hverju við eigum rétt á.

Og við eigum bók­staf­lega rétt á öllu. Góðum og mann­sæm­andi launum fyrir okkur og fjöl­skyldur okkar. Öruggu og góðu hús­næði fyrir eðli­legt og sann­gjarnt end­ur­gjald. Vinnu­að­stæðum sem eru til fyr­ir­myndar. Vel­ferða­kerfi sem virkar fyrir okkur sem höldum því uppi. Skatt­kerfi sem sinnir sínu grund­vall­ar­hlut­verki, að end­ur­út­hluta gæðum þjóð­fé­lags­ins með jafn­aðar-hug­sjón­ina í fyr­ir­rúmi. Líf­eyr­is­kerfi sem tryggir okkur gott og áhyggju­laust ævi­kvöld. Og svo mætti áfram telja. Þetta allt á að vera okkar og fyrir þessu munum við berj­ast. Við ætlum að hafna mis­skipt­ingu, stétta­skipt­ingu, arðráni. Við ætlum að hafna græði og spill­ingu. Við ætlum að hafna því að yfir okkur ríki firrt yfir­stétt sem getur ekki hugsað um neitt nema eigin hags­muni. Við ætlum að hafna því að þrátt fyrir algjört grund­vall­ar­mik­il­vægi okkar séum það samt við sem fáum minnst, höfum það verst. Við ætlum að standa saman og í sam­stöð­unni sýna öllum að við erum hér, við erum stolt, við erum sterk.

Kæra félagar. Ég vona að við eigum eftir að hitt­ast á vett­vangi félags­ins okkar. Þar ætlum að halda áfram á okkar ein­beittu veg­ferð um að félags­fólk stýri sann­ar­lega för í Eflingu. Þar ætlum við að koma saman, móta okkar sýn og stefnu. Þar ætlum við að halda áfram við að byggja upp alvöru verka­lýðs­fé­lag sem getur tekið slag­inn við valda­stétt­ina, bæði póli­tíska og efna­hags­lega. Þar ætlum við að halda áfram á þeirri braut að kjara­samn­inga­gerð verka og lág­launa­fólks sé í fyrsta skipti í marga ára­tugi raun­veru­leg, metn­að­ar­full og sig­ur­viss verka­lýðs­bar­átta.

Kæru félagar. Enginn er að fara að færa okkur verka og lág­launa­fólki nokkurn skap­aðan hlut, bara afþví að það sé rétt eða gott, eða af því að við biðjum svo fal­lega. Verka og lág­launa­fólk hefur ávallt þurft að berj­ast fyrir öllu sem það fær. Íslensk valda­stétt reyndi að telja okkur trú um að við ættum ekki að berj­ast, að við ættum að halda kjafti og hlýða. En sem betur fer tókum við ákvörðum um að hlýða ekki, halda ekki kjafti. Við tókum ákvörðun um að blása í hinar gömlu glæður alvöru rót­tækrar stétta­bar­áttu og við sáum bálið lifna við, við fundum af því hit­ann. Og við ætlum að hjálp­ast að við að láta eld­inn lifa, okkar bar­áttu­eld, okkar og þeirra sem á undan okkur komu, þess stolta verka­fólks sem trúði á draum­inn um rétt­látt sam­fé­lag og lagði allt í söl­urnar til að sjá hann lifna við, með raun­veru­legum og mögn­uðum árangri.

Kæru félagar. Ég trúi á rétt­læti til handa verka­fólki. Ég trúi því að verka­fólk og bar­átta þess sé hið raun­veru­lega sam­fé­lags­lega hreyfi­afl fram­fara og rétt­lætis. Ég trúi á sam­stöð­una og mátt hennar vegna þess að ég sjálf séð og upp­lifað hverju hún getur skilað. Ég trúi því að ef við setjum okkur sjálf í fyrsta sæti, í félag­inu okkar, í verka­lýðs­hreyf­ing­unni, í sam­fé­lag­inu, í bar­áttu kom­andi vetrar þá eru okkur allir vegir færir. Þá munum við loks­ins upp­skera í sam­ræmi við algjört grund­vallar-mik­il­vægi okkar í íslensku sam­fé­lagi.

Sjáumst í kröfu­göng­unni, sjá­umst í Eflingu, sjá­umst í bar­átt­unni!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina