Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Slegin með glerflösku og slökkvitæki á Hagamel: „Ósáttur að hún hafi verið í tygjum við blökkumann“

Slegin með glerflösku og slökkvitæki á Hagamel: „Ósáttur að hún hafi verið í tygjum við blökkumann“

Kona á fimm­tugs­aldri varð fyrir lík­ams­árás að kvöldi 21. sept­em­ber 2017 á Hagamel 18. Hún varð úrskurðuð látin þegar hún var komin á Land­spít­al­ann. Tveir karl­menn voru hand­teknir á vett­vangi, annar var erlendur rík­is­borg­ari á fer­tugs­aldri og var hann gest­kom­andi, en hinn var Íslend­ingur á þrí­tugs­aldri og búsettur í hús­inu. Konan sem lést bjó einnig í hús­inu.

Maðurinn var hæl­is­leit­andi frá Jemen en konan frá Lett­landi. Maðurinn, Khaled Cairo, hafði slegið hana með gler­flöskum og slökkvi­tæki. Hann kvaðst vera ósáttur að hún hafi verið í tygjum við blökku­mann. Cairo hegð­aði sér und­ar­lega í sam­skiptum við lög­reglu og í dóms­sal, en var ekki met­inn ósak­hæfur eða sið­blindur og var dæmdur í 16 ára fang­elsi.

Khaled Cairo. Mynd. Skjáskot.

Sló hana í höfuðið með 10 kílóa þungu slökkvitæki

Konan var 44 ára gömul og frá Lett­landi. Hún lét eftir sig þrjú börn og for­eldra. Khaled var gefið að sök að hafa slegið hana með gler­flöskum í höfuð og and­lit, slegið hana í höf­uðið með tíu kílóa þungu slökkvi­tæki og þrengt kröft­ug­lega að hálsi hennar.

Khaled var í hér­aði dæmdur til að greiða hverju og einu þriggja barna kon­unnar þrjár millj­ónir króna í bætur og for­eldrum hennar 1,6 millj­ónir króna hvoru um sig. Lögmaður aðstand­enda hennar fór fram á að bætur for­eldr­anna yrðu hækk­aðar til jafns við börnin. Fór svo að bæt­urnar voru stað­festar í Lands­rétti.

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, verj­andi Khaled, krafð­ist sýknu fyrir dómi eða ellegar að dóm­ur­inn yrði mild­aður. Það hefði ekki verið ætlan Khaled að myrða kon­una heldur hefði hann tryllst á staðnum að því er fram kom í fréttum RÚV við með­ferð máls­ins í Lands­rétti.

Helgi Magnús Gunn­ars­son, vara­rík­is­sak­sókn­ari og sak­sókn­ari í mál­inu, sagði það frá­leitt að halda því fram að ofsa­fengin og kvala­full árás Khaled hefði ekki verið til­raun til mann­dráps. Hann krafð­ist stað­fest­ingu dóms­ins sem varð raunin.

Síðar kom fram í máli Vil­hjálms, verj­anda Khaleds, við dóms­upp­sög­una að Khaled uni dómnum og að ekki yrði óskað eftir áfrýj­un­ar­leyfi til Hæsta­rétts.

Khaled Cairo. Mynd. Skjáskot.

Hláturinn varnarviðbrögð frekar en geðrof

Tveir geð­lækn­ar báru vitni fyr­ir dómi og lýstu þeir því báðir að Khaled Cairo væri sak­hæf­ur. Ann­ar geð­lækn­ir­inn taldi lík­legt að hlát­ur Cairo við skýrslu­töku væri varn­ar­við­brögð frek­ar en geð­rof eða eitt­hvað slíkt.

Nanna Briem lýsti því að hún og ann­ar geð­lækn­ir hefðu átt þrjú sam­töl við Cairo á Litla-Hrauni. „Nið­ur­staða okk­ar er sú að Khaled Cairo er sak­hæf­ur,“ sagði Nanna fyr­ir dómi.

Hún sagði að þau hefðu ekki séð mik­il merki um iðrun og sam­kennd hjá hon­um og að hann væri við­kvæm­ur fyr­ir höfn­un.

Sló hana tveim­ur högg­um áður en hann missti stjórn á sér

Nanna lýsti því hvernig Cairo út­skýrði fyr­ir henni hans hlið frá kvöld­inu þegar konan lést. „Áður en hann missti al­veg stjórn á sér sló hann hana tvisvar. Hvort högg um sig var fyr­ir þá menn sem hún var í sam­bandi við og högg­in voru í refs­inga­skyni. Þegar vitnið birt­ist í dyra­gætt­inni missti hann end­an­lega stjórn á sér,“ sagði Nanna þegar hún lýsti því sem Cairo sagði.

Spurð hvort hann hefði verið reiður vegna þess að maður­inn sem birt­ist í dyra­gætt­inni er svart­ur sagð­ist hún eiga erfitt með að dæma það út frá sam­töl­um þeirra. Hins veg­ar var ljóst að hann var veru­lega ósátt­ur.

Mik­il reiði og af­brýðis­semi

Sig­urður Páll Páls­son geð­lækn­ir hitti ákærða fimm sinn­um. Sig­urður sagði fyr­ir dómi að hon­um fynd­ist ákærði hreinn og beinn og geð­skoðun hans hefði verið eðli­leg. Ákærði hefði þó verið svo­lítið ör og hann hefði sjálf­ur lýst mik­illi reiði og af­brýðis­semi sem gerði hann nán­ast ómann­leg­an.

„Mitt mat er að hann er sak­hæf­ur,“ sagði Sig­urður.

„Hann var ósátt­ur við að hún hafi verið í sam­bandi við aðra menn og hann upp­lifði þetta sem sam­band af sinni hálfu. Hann sagði að þau hefðu einu sinni sofið sam­an og eft­ir það væri þetta mest á net­inu,“ sagði Sig­urður þegar hann lýsti því sem Cairo ræddi við hann.

Hann sagði, líkt og Nanna, að Cairo hefði orðið gríð­ar­lega reiður og misst stjórn á sér und­ir áhrif­um áfeng­is kvöldið þegar konan var myrt. „Hann kenn­ir henni um að hann missti sig,“ sagði Sig­urður.

Lík­lega mann­dráp

Sebast­ian Kunz rétt­ar­meina­fræð­ing­ur fram­kvæmdi krufn­ingu á kon­unni. Hann sagði dánar­or­sök blóð­leysi til höf­uðs sök­um höf­uð­högga en auk þess mætti finna áverka á hálsi eft­ir kyrk­ing­ar og það gæti verið með­virk­ur þátt­ur.

Hann sýndi fjölda mynda þar sem mátti sjá áverka sem konan varð fyr­ir kvöldið sem hún lést. Hann sagði nokkuð ljóst að and­látið hefði borið að með óeðli­leg­um hætti og lík­lega væri um mann­dráp að ræða.

Sagði Ísland öruggasta land í heimi

Elsta dótt­ir henn­ar ræddi við Morg­un­blaðið árið 2017 um sorg­ina og þakk­lætið í garð allra sem aðstoð­uðu fjöl­skyld­una á erf­iðum tím­um.

Líf lett­neskr­ar fjöl­skyldu um­turn­að­ist á ör­skots­stundu þegar morð var framið í Vest­ur­bæ Reykja­vík­ur í lok sept­em­ber. Konan var myrt á hrotta­leg­an hátt í landi sem hún hafði sagt börn­um sín­um að væri það ör­ugg­asta í heimi.

„Við feng­um frétt­irn­ar á mjög harka­leg­an hátt. Lög­regl­an kom heim til ömmu minn­ar og afa og af­henti þeim orð­send­ingu frá sendi­ráði Lett­lands í Osló um að móðir mín hefði lát­ist og að um ein­hvers kon­ar glæp væri að ræða.

Ekk­ert meira, eng­ar út­skýr­ing­ar, ekk­ert. Amma hringdi og færði okk­ur frétt­irn­ar.“

Biðu heila helgi eft­ir frek­ari frétt­um

Áfallið var skilj­an­lega yfir­þyrm­andi og spurn­ing­arn­ar marg­ar.

„Í orð­send­ing­unni var síma­núm­er hjá lög­regl­unni á Íslandi þannig að næsta dag hringd­um við í það núm­er. Ég var í al­gjöru sjokki og af­neit­un. Ver­öld­in hrundi enda höfðum við átt von á henni hingað heim tveim­ur dög­um síðar. Við hringd­um í lög­regl­una á Íslandi strax dag­inn eft­ir og okk­ur var sagt að rann­sak­andi myndi hringja í okk­ur til baka eins fljótt og hægt væri.

Þetta var á föstu­degi en svo heyrðum við ekk­ert í lög­regl­unni fyrr en í vik­unni á eft­ir, þrem­ur eða fjór­um dög­um eft­ir að við feng­um frétt­irn­ar fyrst,“ seg­ir dóttirin.

Sú bið tók veru­lega á fjöl­skyld­una. „Þetta var ólýs­an­leg­ur sárs­auki og reiði sem hellt­ist yfir okk­ur þessa daga. Það voru all­ir í áfalli og við viss­um ekk­ert.“

Þegar lög­regl­an hafði sam­band gat hún ekki sagt margt, en tjáði þeim að frek­ari upp­lýs­ing­ar fengju þau þegar þau kæmu til lands­ins.

Erfið Íslands­för

Dóttir kon­unnar seg­ir ferð­ina hingað til Íslands hafa tekið á þau öll en er þakk­lát fyr­ir aðstoð­ina sem þau fengu.

„Við vor­um fjög­ur sem kom­um til Íslands. Ég, syst­ir mín, unnusti minn og ein vin­kona mömmu. Ferðin var auð­vitað ekki ánægju­leg en við viss­um það fyr­ir­fram og gerðum okk­ar besta til að höndla þetta.

Það var mjög erfitt að und­ir­búa okk­ur fyr­ir jarð­ar­för­ina, velja kjól­inn á hana, upp­á­halds­lagið henn­ar og tala við prest­inn. En það var ótrú­lega mikið af hjálp­legu fólki í kring­um okk­ur. Jarð­ar­för­in var skipu­lögð af lett­nesk­um kon­um sem búa hér á landi og vinnu­fé­lag­ar mömmu á Swan hót­el skipu­lögðu erfi­drykkj­una.

Það var ótrú­legt hvað fólk var til­búið að gera mikið fyr­ir okk­ur. Þetta var í raun stór­kost­legt en átak­an­legt á sama tíma.“

Ætlaði sér að búa hér áfram og læra ís­lensku

Konan kom fyrst til Íslands og vann úti á landi við ferða­þjón­ustu. Frá því í fe­brú­ar sama ár og hún var myrt hafði hún starfað við þrif á íbúða­hót­eli í miðbæ Reykja­vík­ur og eins og fram hef­ur komið var hún ákaf­lega vel liðin meðal vinnu­fé­laga og undi hag sín­um vel hér á landi. Hún sagði börn­um sín­um oft frá Íslandi og hversu vel henni lík­aði að vera hér.

„Mamma elskaði Ísland, hún elskaði fólkið hér og hún ætl­aði sér að vera hér áfram, læra tungu­málið og vildi geta aðlag­ast þjóðfé­lag­inu enn bet­ur og þrosk­ast hér sem ein­stak­ling­ur. Hún sagði okk­ur að Ísland væri ör­ugg­asti staður á jörð­inni. Því­lík kald­hæðni,“ seg­ir dóttir kon­unnar.

„Hún vildi líka að Ketija syst­ir mín kæmi til Íslands til að stunda há­skóla­nám og var búin að bjóða henni að koma.“

„Hún var besta vin­kona mín“

Sorg­in var yfir­þyrm­andi og fjöl­skyld­an reyn­di að tak­ast á við hana í sam­ein­ingu að sögn dótt­ur­innar.

„Þetta er ennþá mjög erfitt, bæði að tak­ast á við sorg­ina og að sætta sig við að þetta hafi gerst. Ég er sjálf að vinna með sál­fræð­ingi í að læra að lifa með þessu at­viki. Ég reyni að vera sterk og halda áfram, en margt hef­ur breyst eft­ir að hún fór og fram­tíðin lít­ur öðru­vísi út. Hún var besta vin­kona mín.

Syst­ir mín og bróðir gera líka sitt besta til að lifa með þessu en það er mjög erfitt og við mun­um öll þurfa lang­an tíma til að ná okk­ur.

En ég er mjög stolt af yngri systkin­um mín­um því þrátt fyr­ir þenn­an harm­leik þá eru þau mjög sterk og halda áfram að lifa líf­inu.“

Söfn­un sem sett var af stað hér á landi fyr­ir fjöl­skyldu fórna­lambs­ins gekk mjög vel og marg­ir, meðal ann­ars for­seti Íslands, létu fé af hendi rakna til að styðja við fjöl­skyld­una og mæta kostn­aði við út­för hér á landi og annað til­fallandi. Söfn­un­in var gíf­ur­lega mik­il­væg fyr­ir þau að sögn rétt­ar­gæslu­manns þeirra og seg­ir hann þau hvar­vetna hafa mætt góðu við­móti og mikl­um skiln­ingi á erf­iðri stöðu.

Heim­ildir:

Auður Ösp. 18. apríl 2018. Khaled öskr­aði þegar fang­els­is­dómur var kveð­inn upp. DV.

Dóms- og lög­reglu­mál. 8. jan­úar 2019. Kvala­full árás sem gæti aðeins leitt til dauða. RÚV.

Eyrún Magn­ús­dóttir. 5. nóv­em­ber 2017. Sagði Ísland örugg­asta land í heimi. Morg­un­blaðið.

Innlent. 21. mars 2018. Telja Cairo sak­hæfan. MBL.

Kolbeinn Tumi Daðason. 18. jan­úar 2019. Sextán ára fang­elsi fyrir morðið á Hagamel. Vísir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina