Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Bragi Páll skaut þéttingsfast á Bjarna á Austurvelli: „Konungur þjófanna væri heiðarlegri titill“

Bragi Páll skaut þéttingsfast á Bjarna á Austurvelli: „Konungur þjófanna væri heiðarlegri titill“
Bragi Páll Sig­urð­ar­son Mynd: Mannlíf

Marg­menni safn­að­ist saman til að mót­mæla sölu Íslands­banka, á Aust­ur­velli í dag. Slagorð á borð við Bjarna burt! og spill­ing­una burt! ómaði um Aust­ur­völl á milli ræða og skemmti­at­riða.

Brúð­urnar skemmtu mót­mæl­end­unum

Ræðumenn fimmtu mót­mæla­hald­anna sem Jæja hóp­ur­inn boðar voru þau Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata og rit­höf­und­ur­inn Bragi Páll Sig­urð­ar­son en eins flutti dúett­inn Down & Out lagið Sægreifi og Einar Már Guð­munds­son, skáld og rit­höf­undur las ljóð undir gít­ar­leik Guð­mundar Pét­urs­sonar. Þá stigu alþing­is­brúð­urnar á sviðið og gerðu óspart grín að ráða­mönnum.

Guð­mundur Pét­urs­son og Einar Már Mannlíf Drífa Snædal Ljósmynd: Mannlíf
Guð­mundur Pét­urs­son og Einar Már Mannlíf Drífa Snædal Ljósmynd: Mannlíf
Björn Leví Gunn­ars­son

Allar ræð­urnar þóttu góðar en af hinum ólöst­uðum bar ræða Braga Páls af að margra mati. Fór hann þungum orðum um Bjarna Bene­dikts­son og Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Meg­in­þráð­ur­inn í ræðu hans var sú stað­hæf­ing að alþing­is­menn væru ekki ómissandi fólk. „En sumir þing­menn upp­lifa sig ómissandi. Því hefur jafn­vel verið fleygt fram að ef allir ætl­uðu bara að segja af sér um leið og þeir gerðu eitt­hvað rangt yrði eng­inn eftir til þess að stjórna land­inu. Ég veit ekki með ykkur en það hljómar eins og mesta bull sem ég hef heyrt. Eins og ef allir sem eru teknir við akstur undir áhrifum misstu prófið þá yrðu engir bílar á göt­unni,“ sagði Bragi Páll meðal ann­ars.

Bragi Páll Sig­urð­ar­son

Þá fór hann yfir rök Bjarna Bene­dikts­sonar fyrir því að hann segi ekki af sér og skaut þar fast á fjár­mála­ráð­herr­ann. „Rök Bjarna fyrir því að hann þurfi ekki að segja af sér sem kjör­inn alþing­is­maður eru sem sagt þau að hann hafi verið kjör­inn sem alþing­is­maður. Ég var ráð­inn, þess vegna er ekki hægt að reka mig. Kirkju­garðar heims­ins geyma ómissandi fólk. En Bjarni Bene­dikts­son er ekki ómissandi. Þó hann segði af sér held ég að landið myndi pluma sig bara alveg ágæt­lega. Hann ætti ekki einu sinni að kalla sig fjár­mála­ráð­herra. Konungur þjóf­anna væri heið­ar­legri tit­ill.“

Bragi Páll skaut einnig á Katrínu Jak­obs­dóttur og upp­skar fagn­að­ar­læti frá mót­mæl­endum: „Katrín Jak­obs­dóttir er ekki ómissandi. Eitt sinn taldi ég mig vita hvað hún stæði fyrir, en það var þá. Það er nefni­lega hægt að vinna jafn mik­inn skaða með því að gera illt og að gera ekk­ert og leyfa því að við­gang­ast.“

Hér má lesa ræðu Braga Páls í heild sinni:

Góðir gestir.

Kirkju­garðar heims­ins geyma ómissandi fólk. Svo sungu KK og Maggi Eiríks eitt sinn. Ómissandi fólk.

Það mætti þá kannski benda íslenskum stjórn­mála­mönnum á þá stað­reynd að þeir eru ekki ómissandi. Samt segja þeir aldrei af sér. Virðing fyrir Alþingi hefur verið í sögu­legu lág­marki síð­ustu 14 ár. Þingmenn þreyt­ast ekki á að segja að reisa þurfi við virð­ingu þings­ins. Á sama tíma neita þeir að stíga frá þegar þeir eru gripnir við að van­virða þingið með spill­ingu og hreinum og klárum asna­skap. 

En sumir þing­menn upp­lifa sig ómissandi. Því hefur jafn­vel verið fleygt fram að ef allir ætl­uðu bara að segja af sér um leið og þeir gerðu eitt­hvað rangt yrði eng­inn eftir til þess að stjórna land­inu. Ég veit ekki með ykkur en það hljómar eins og mesta bull sem ég hef heyrt. Eins og ef allir sem eru teknir við akstur undir áhrifum misstu prófið þá yrðu engir bílar á göt­unni. 

Stenst það ein­hverja skoðun að ein­ungis akkúrat 63 mann­eskjur ráði við það gríð­ar­lega flókna verk að vera alþing­is­fólk? Nú hefur Bjarni Bene­dikts­son ítrekað verið grip­inn við afsagn­ar­verð athæfi sem alþing­is­maður. Reyndar er nán­ast allt sem hann gerir afsagn­ar­sök. Hann getur ekki farið fram úr rúm­inu án þess að selja ætt­mennum eignir okkar á útsölu­prís, eiga alveg óvart stafla af pen­ingum falda í skúffum á aflandseyjum eða skeina sér á skýrslum um sitt eigið van­hæfi. 

Þrátt fyrir það vill hann meina að hann sé ómissandi. Að ef bara nógu margir kjósi hann þá sé það fyr­ir­gefn­ing synd­anna. Að kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins sjálf­krafa þvoi hendur hans af öllu því mis­jafna sem hann hefur gert. 

Samkvæmt þess­ari speki þarf aldrei neinn emb­ætt­is­maður að segja af sér, sama hvað. Þú bara lætur greipar sópa, traðkar á þínum minnstu bræðrum og systrum, töfrar burtu óhent­ugar lýð­ræð­is­legar stjórn­ar­skrár-kosn­ingar og óheppi­legar skýrslur og lætur svo stíg­vélas­leikjur og trén­aða klapp­stýrur kjósa þig til áfram­hald­andi starfa. 

Rök Bjarna fyrir því að hann þurfi ekki að segja af sér sem kjör­inn alþing­is­maður eru sem sagt þau að hann hafi verið kjör­inn sem alþing­is­maður. Ég var ráð­inn, þess vegna er ekki hægt að reka mig.

Kirkju­garðar heims­ins geyma ómissandi fólk.

En Bjarni Bene­dikts­son er ekki ómissandi. Þó hann segði af sér held ég að landið myndi pluma sig bara alveg ágæt­lega. Hann ætti ekki einu sinni að kalla sig fjár­mála­ráð­herra. Konungur þjóf­anna væri heið­ar­legri tit­ill. 

Pabbi hans er ekki er ekki ómissandi fjár­festir. Hann er bara ein­hver eldri borg­ari sem var hepp­inn að fæð­ast inn í eina vold­ug­ustu ætt lands­ins. Ræður ekki við sig að hvít­þvo dæmda barn­an­a­níð­inga, á meira af pen­ingum en hann veit hvað hann á að gera við svo hann ræður ekki heldur við sig að kaupa hlut í banka af syni sínum. 

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er ekki ómissandi. Sauma­klúbbur valda­sjúkra auð­manna og varð­hund­anna þeirra. Hvernig getur þannig hópur verið gagn­legur þjóð­inni? Sigurður Ingi er ekki ómissandi. Hann er rasískur dýra­læknir með flag­ara­klút og þum­al­hring sem slys­að­ist á þing. 

Katrín Jak­obs­dóttir er ekki ómissandi. Eitt sinn taldi ég mig vita hvað hún stæði fyrir, en það var þá. Það er nefni­lega hægt að vinna jafn mik­inn skaða með því að gera illt og að gera ekk­ert og leyfa því að við­gang­ast. 

Nú höfum við ítrekað, sem þjóð, lent í því að stjórn­mála­fólkið okkar siglir í strand og neitar að taka ábyrgð. Ég held að hluti vand­ans sé sá að sjálfs­mynd þessa fólks er svo ríg­bundin því að þau séu stjórn­mála­fólk. Geta ekki gert annað. Verða að halda í ein­hvern snefil af völdum á meðan slíkt er í boði. 

Forveri Bjarna, Davíð Oddsson fór af þingi inn á Seðla­banka og þaðan upp í Mogga með froð­una í munn­vik­unum og rauð­sprungin augun límd við nýj­ustu sam­sær­is­kenn­ingar. Þegar fólk hefur haldið um valdataumana svona lengi hljómar það að sleppa af þeim tak­inu eins og martröð. Völd eru nefni­lega ávana­bind­andi. 

Hugsið ykkur alla nið­ur­læg­ing­una sem Bjarni Ben hefur gengið í gegnum til þess eins að þurfa ekki að finna sér eitt­hvað annað að gera. Hann er sund­ur­bar­inn og brók­aður með bremsu­farið upp á hnakka og berst samt um eins og tveggja ára sonur minn þegar skipta þarf um bleyju á honum. Er til sorg­legri per­sóna íslenskri stjórn­mála­sögu heldur en Bjarni Bene­dikts­son. Dreng­ur­inn sem fædd­ist með munn­inn svo­leiðis stapp­fullan af heilu spari­stelli silf­ur­hnífa­p­ara en getur samt ekki gert neitt rétt. 

En af hverju segir Bjarni ekki sagt af sér? Af því hann er ekki búinn. Hefur ekki lokið ætl­un­ar­verki sínu. Áætlun hans er að smíða sam­fé­lag eftir sinni eitr­uðu hug­mynda­fræði. Samfélag þar sem tvær þjóðir búa í einu landi undir einum fána. 

Önnur er lág­tekju­þjóð. Fólkið sem þarf að bíða á biðlistum eftir því að kom­ast á spít­ala sem eru fjársveltir og börnin þeirra sækja skóla sem eru und­ir­fjár­magn­aðir og þarna vinna læknar, hjúkr­un­ar­fræð­ingar og kenn­arar sem fara í rað-börnát á of lágum launum. Þetta er þjóðin sem lifir frá mán­aða­mótum til mán­aða­móta. Getur ekki leyft sér. Skrimtir. Launa­þrælar elít­unnar hans Bjarna.

Hin þjóðin er hátekju­þjóð. Sú sem Bjarni starfar fyrir. Hún kaupir sig fram fyrir í röð­inni. Kaupir sér aðgang að betri heil­brigð­is­þjón­ustu, betri menntun fyrir börnin sín, betri mat, stærri húsum, betra lífi. Kaupir lúx­us­bif­reiðir og leggur þeim í fatl­aðra­stæði og upp á gang­stéttir. Kaupir rík­is­eignir, okkar eigur, í lok­uðu útboði á und­ir­verði og græðir á því millj­arða. 

Þetta gerir hátekju­þjóðin með aðstoð Bjarna Ben. Það er ævi­starfið hans. Að tryggja að hinir auð­ugu og valda­miklu haldi sínum hlut og hagn­ist á kostnað okkar hinna. Þetta er ástæðan fyrir því að hann getur ekki sagt af sér. Ekki af því hann er ómissandi, nei, það er vegna þess að hann er kon­ungur þjóf­anna. 

Takk fyrir mig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina