Rannveig Oddsdóttir hlaupari er síður en svo ánægð með þá kynjaslagsíðu sem finna má í íþróttafréttum mbl.is.
Rannveig hefur stundað hlaup í mörg ár og keppt í götu- og utanvegahlaupum. The Puffin Run fór fram í Vestmannaeyjum um helgina en þar tapaði Rannveig brautarmeti sínu í hendur Andreu Kolbeinsdóttur. Og það var ekkert smá bæting á metinu en hún bætti það um heilar átta mínútur. Þrátt fyrir þetta fjallaði mbl.is nánast einungis um sigurvegara karlaflokks.
„Mikið svakalega er ég orðin þreytt á þessari kynjaslagsíðu í íþróttafréttum er virkilega ekki hægt að breyta þessu?
The Puffin Run fór fram í Vestmannaeyjum um helgina og þar tapaði ég einu brautarmetinu enn í hendur Andreu Kolbeinsdóttur. Þessi frábæra íþróttakona gerði sér lítið fyrir og bætti metið mitt frá því í fyrra um heilar átta mínútur! Umfjöllun
mbl.is
um hlaupið er hins vegar skólabókardæmi um frétt sem er skrifuð eftir gamalli uppskrift þar sem afrek konunnar er aðeins neðanmálsgrein í umfjöllun um afrek sigurvegara karlaflokksins. Í fréttinni er tími Arnars tilgreindur og fram kemur hve mikið hann bætti brautarmetið (um tæpar fimm mínútur) og hver átti það fyrir. Þá er vitnað í viðtal við Arnar sem segir frá þátttöku sinni í hlaupinu. Fréttinni fylgja þrjár myndir, ein af Arnari, ein af honum og fleiri hlaupurum (þar sem Andrea er jú líka) og skjáskot af instagramfærslu Arnars. Afrek Andreu er afgreitt í einni málsgrein: „Andrea Kolbeinsdóttir varð hlutskörpust kvenna í 20 km hlaupinu með tímann 01:26:24“. Til hamingju Andrea Kolbeinsdóttir með frábæran árangur -og að sjálfsögðu til hamingju líka Arnar Pétursson. Það er ekki þér að kenna hvernig fjölmiðlamenn kjósa að matreiða úrsitin ofan í lesendur.“
Hátt í þrjúhundrað manns hefur líkað við færslu og hátt í þrjátíu skrifað athugasemdir við hana þar sem fólk sýnir stuðning sinn.
Ef umfjöllun Stöðvar 2 um mótið er skoðuð má sjá að sama kynjaslagsíða er til staðar þar á bæ.































Athugasemdir