Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Janice Arnason, fjallkona ársins 2022 í Kanada: Íslenskar rætur fjallkonunnar vestra eru sterkar

Janice Arnason, fjallkona ársins 2022 í Kanada: Íslenskar rætur fjallkonunnar vestra eru sterkar
Janice Arnason

Kona í gervi fjall­kon­unnar kom fyrst fram á Íslend­inga­deg­inum í Winnipeg í Kanada árið 1924 en hins vegar var fyrsti Íslend­inga­dag­ur­inn hald­inn í Winnipeg árið 1890. Frá árinu 1934 hefur Íslend­inga­dag­ur­inn hins vegar verið hald­inn hátíð­legur í Gimli. Janice Árnason var þar nýlega valin fjall­kona árs­ins 2022. Hún er í raun og sann íslensk í húð og hár sem og eig­in­maður hennar, Cameron Arnason, en bæði eru afkom­endur Íslend­inga sem fluttu búferlum vestur um haf á sínum tíma.

Búningur fjall­kon­unnar íslensku í Kanada er skírskotun í Ísland. Hvíti kjóll­inn jökl­arnir og græna skikkjan sveitin. Höf­uð­bún­að­ur­inn snævi­þakin fjöllin og í kór­ón­unni er skjald­ar­merkið. Fjall­kona er útnefnd árlega þar vestra og er þá kona valin sem hefur verið í tengslum við Ísland og frætt aðra um sögu for­feðr­anna á Íslandi og við­haldið íslenskri menn­ingu og þjóð­ar­arfi. „Margt hefur breyst í áranna rás en að við­halda menn­ingu og þjóð­ar­arfi Íslands hefur alltaf verið í for­gangi. Andi Íslands lifir hér. Við sýnum hug­rekki for­feðra okkar virð­ingu; þeirra sem fluttu frá Íslandi sem var landið sem þeir elsk­uðu til að fara annað þar sem þeim fannst að næstu kyn­slóðir gætu blómstrað meira. Það er heiður fyrir mig að vera í hlut­verki fjall­kon­unnar í ár.“

(Mynd: The Icelandic Festival of Manitoba; „Islend­inga­dag­ur­inn“.)

Skyr, lifrarpylsa, hangikjöt og rúllupylsa

„Ég er afkom­andi fyrstu og ann­arrar kyn­slóða íslenskra inn­flytj­enda. Móðir mín, Guðný Johnson Narfason, var dóttir Guðríðar Böðv­ars­dóttur sem eftir að hafa misst föður sinn kom til Nýja Íslands ásamt tveimur systur sínum árið 1914 og sett­ist að í Húsa­felli rétt hjá Riverton með afa mínum, Bjarna Jónssyni. Afkom­endur ömmu Guddu og Bjarna afa búa enn á Húsa­felli. Guðríður fædd­ist á Akranesi og flutti síðar til Hafn­ar­fjarðar eftir að móðir hennar, Alfífa Hall­dórs­dóttir, lést. Langafi, Böðvar Jónsson, drukkn­aði ásamt syni sínum þegar þil­skipið Geir fórst árið 1912.

Pabbi, Óli Narfason, er sonur Guð­mundar Erlends og Guðrúnar Ísfeld Narfason sem voru bændur á Víði­völlum í Minerva á landi þar sem langafi minn, Magnús, hóf búskap ásamt konu sinni, Emmer­ent­i­ana, árið 1897. Langafi minn, Magnús Narfason, var frá Trað­ar­koti á Vatns­leysu­strönd og langamma mín, Emmer­ent­i­ana, var frá Skamma­dal skammt frá Vík.“

White Rock þar sem margir íslenskir land­nemar komu að árið 1875.

Janice segir að í æsku hafi íslensk menn­ing og arf­leifð verið ríkj­andi á heim­il­inu. „Mamma og pabbi höfðu talað íslensku sem fyrsta mál þar til þau fóru í skóla. Það leið ekki sá dagur sem ég heyrði ekki íslensku tal­aða á heim­il­inu og töl­uðu mamma, pabbi og ömmur mínar og afar saman á íslensku. Skyr, lifr­ar­pylsa, hangi­kjöt og rúllupylsa voru alltaf til og pönnu­kökur, kleinur og vín­arterta voru upp­á­halds­sæta­brauðin.“

Við lærðum íslensk þjóð­lög auk þess að læra fram­burð orð­anna í text­unum.

Tónlist spil­aði stóran þátt á upp­vaxt­ar­ár­unum og segir Janice að það hafi verið mik­il­vægt fyrir for­eldra hennar að þau systk­inin væru í Íslenska barna­kórnum sem fjall­kona árs­ins 2021, Anna Stevens, stjórn­aði. „Við lærðum íslensk þjóð­lög auk þess að læra fram­burð orð­anna í text­unum. Við komum reglu­lega fram á íslenskum hátíð­is­dögum eins og á sum­ar­dag­inn fyrsta. Mörgum árum síðar stjórn­aði ég Íslenska barna­kórnum þegar haldið var upp á ald­ar­af­mæli Íslend­inga­dags­ins og það var ynd­is­legt að geta kennt dætrum mínum og frænkum þessi íslensku þjóð­lög sem urðu þekktar sem Val­kyrj­urnar og komu þær fram á mörgum menn­ing­ar­há­tíðum á svæð­inu og í Norður-Dakóta.“

Rætur barn­anna okkar þriggja – Signýjar, Heiðu og Stefans – eru alís­lenskar.

Í föð­ur­ætt voru for­feður eig­in­manns Janice, Cameron, frá Vill­inga­dal í Eyja­firði og Tjörn og nefnir hún Arngrím mál­ara. Í móð­ur­ætt voru þeir frá Akureyri. „Rætur barn­anna okkar þriggja – Signýjar, Heiðu og Stefans – eru alís­lenskar.“

Janice og dætur hennar á Íslend­inga­deg­inum á sínum tíma.

Janice og Cameron voru á sínum tíma for­setar Íslend­inga­dags­ins og buðu þá íslensk stjórn­völd þeim um að vera gestir á 17. júní hátíð­ar­höld­unum í Reykja­vík auk þess sem þeim var boðið á Vest­ur­fara­setrið á Hofsósi.

„Við fengum kon­ung­legar við­tökur og erum svo þakk­lát fyrir þetta frá­bæra tæki­færi og fá að heim­sækja stað­ina þar sem for­feður okkar bjuggu. Við ákváðum að fram­lengja dvöl okkar um 10 daga og á þeim tíma hittum við marga ætt­ingja okkar í Reykja­vík og Akureyri og mættum mik­illi gest­risni. Við erum í sam­bandi við margt af þessu fólki og von­umst til að hitta það aftur. Hápunktur ferð­ar­innar var að heim­sækja bæinn þar sem langafi Cameron, Jóhann Árnason, bjó en hann hafði yfir­gefið heim­ili sitt í Eyja­firði til að flytja til Kanada.“

Janice fór svo aftur til Íslands fyrir nokkrum árum þegar frænka hennar, Dilla Sig­ur­lína Narfason, ákvað að fara til Íslands til að heim­sækja ætt­ingja. Um 10 fjöl­skyldu­með­limir slóg­ust í för­ina. Dilla sá um allt skipu­lag svo sem hvert yrði farið og hvaða ætt­ingja ætti að heim­sækja. „Það var stór­kost­legt fyrir mig að kynn­ast sögu for­feðra okkar.“

(Mynd: The Icelandic Festival of Manitoba; „Islend­inga­dag­ur­inn“.)
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina