Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Björn landslagsarkitekt: „Garðurinn er meira eins og framlenging af heimilinu“

Björn landslagsarkitekt: „Garðurinn er meira eins og framlenging af heimilinu“
Björn Jóhanns­son lands­lags­arki­tekt

„Garð­arnir eru sífellt að verða meira eins og íbúð, þannig að þá daga þegar veður er gott, getur fólk búið utandyra jafnt sem innan,“ segir Björn Jóhanns­son, lands­lags­arki­tekt hjá arki­tekta­stof­unni Urban Beat.

„Það eru til dæmis komin smá­hýsi í garða þar sem geta verið gufu­bað, lítið eld­hús eða jafn­vel úti­skrif­stofa. Svo eru það þessi spa-svæði sem verða æ skemmti­legri. Þar geta verið heitur pottur, kaldur pottur, sturta og gufu­bað. Svo höfum við verið að vinna með úti­eld­hús sem er í raun grill­svæði undir þaki og fer það eftir því hvað hús­ráð­endur eru öfl­ugir við elda­mennsk­una, hvort þar sé gas­grill, kola­grill eða jafn­vel pít­su­ofn og vín- og bjór­kælar.

Sumir vilja hellur og geta þá eldað graut úti í garði. Breyt­ingin á hug­tak­inu garður á síð­ustu árum hefur því farið frá því að vera skógur í borg eða lysti­garður, í það að vera fram­leng­ing á íbúð­inni þar sem hægt er að bralla svip­aða hluti utandyra og innan.“

Björn leggur áherslu á að þeir sem hafa hug á garð­hönnun gefi sér tíma í skipu­lagn­ingu verk­efn­is­ins.

„Þegar það liggur fyrir að það eigi að gera eitt­hvað veru­lega flott í garð­inum þá ætti að hafa sam­band við fag­mann með góðum fyr­ir­vara. Hægt er að panta hönnun hjá lands­lags­arki­tekt að hausti þannig að þegar vorið kemur þá eru teikn­ingar, verk­taki og það sem þarf að panta í garð­inn allt saman klárt.“

Björn segir að það verði æ algeng­ara að sett séu þök yfir svæði auk þess sem margir kjósa pergólu – mann­virki reist úr staurum og láréttum sperrum – og má segja að hún sé eins konar opið þak – og mar­kísur og þá sér­stak­lega mar­kísur og hitara, en fólk getur þá frekar setið úti í garði á vorin og haustin án þess að kuld­inn bíti. „Þetta þýðir að kvöldin fara að verða meira spenn­andi tími til úti­veru.“

Björn seg­ist varla hanna garð í dag án þess að koma þar að lýs­ing­ar­hönnun. „Um leið og lýs­ingin er komin, þá breyt­ast þessi svæði í undra­ver­öld; ég tala nú ekki um ef maður er að nota stýr­ingar þar sem hægt er að dempa og auka ljósið og breyta um lit.“

Auðveldara að rækta ávaxtatré

Þegar kemur að plöntu­vali seg­ist Björn mest­megnis velja runna og lág­vaxin tré. „Ég er með nokkurn veg­inn sama lista og ég not­aði fyrir 20 árum. Þetta eru plöntur sem ég veit að þríf­ast hér á landi og þola þá að vera í þessum görðum, en sums staðar þarf maður að spá í vind­inn; hvort það sé mikil norð­an­átt eða hvort það komi salt inn á lóð­ina út af sjáv­ar­roki. Aðal­málið með gróð­ur­inn er þó, að það sé eitt­hvað sígrænt í honum og eitt­hvað skemmti­legt sem blómstrar snemma ásamt öðru sem blómstrar yfir sum­ar­mán­uð­ina. Það má heldur ekki gleyma að spá í haust­liti, en við eigum gríð­ar­legt úrval af þannig plöntum.“

Björn segir að það sé orðið auð­veld­ara en áður að rækta ávaxta­tré og nefnir í því sam­bandi kirsu­berja­tré og epla­tré, þótt það þurfi að passa upp á að gróð­ur­setja trén á skjól­sælum stað.

„Svo hef ég verið að vinna með það sem ég kalla berja­skóg. Það er svæði þar sem berja­runnum er plantað nokkuð þétt. Þar nota ég harð­gerð rifs, sól- og stik­ils­ber og runna með bláum berjum sem kall­ast hun­angs­viður. Til að lág­marka við­hald nota ég gjarnan runna sem hylja beðin vel og virka þá sem eins konar arfa­vörn. Þar má nefna hélurifs, kirtil­rifs, skrið­mispil og jafn­vel berg­fléttu þar sem aðstæður leyfa.“

Björn segir að ef úti­eld­hús er í garð­inum sé snið­ugt að rækta krydd­jurtir í 90-110 cm hæð. „Þetta kalla ég krydd­jurta­bar­inn. Þá er hægt að rölta yfir og klippa smá­stein­selju eða dill til að skutla með í sal­atið eða á steik­ina.“

Að lokum vill Björn und­ir­strika að fram­kvæmdir séu vel skipu­lagðar. „Þar leikur teikn­ing höf­uð­hlut­verkið, en hún er góð fram­kvæmda­á­ætlun sem kemur í veg fyrir tví­verknað og annan vand­ræða­gang.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina