Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Hildur Sólveig, bæjarfulltrúi í Eyjum: „Vinir, fjölskylda, trúin og vonin skiptir miklu máli“

Hildur Sólveig, bæjarfulltrúi í Eyjum: „Vinir, fjölskylda, trúin og vonin skiptir miklu máli“
Hildur Sólveig Sig­urð­ar­dóttir

„Að geta lagt mitt af mörkum við að gera sam­fé­lagið mitt betra og að vera börnum mínum góð fyr­ir­mynd skiptir mig miklu máli. Ég vil geta notið lífs­ins í Vest­manna­eyjum, því hér á ég heima,“ segir Hildur Sólveig Sig­urð­ar­dóttir þegar hún er spurð hverjir draumar hennar séu og mark­mið varð­andi stjórn­málin og per­sónu­lega lífið, en hún er bæj­ar­full­trúi í Eyjum og í 2. sæti á lista Sjálf­stæð­is­manna fyrir kosn­ing­arnar á laug­ar­dag. Hildur Sólveig hefur tekið þátt í stjórn­málum síðan 2010. „Á þeim tíma hef ég lært mikið um rekstur sveit­ar­fé­lags­ins, kynnst atvinnu­líf­inu mun betur, eign­ast vini fyrir lífs­tíð og áttað mig á að allir geta haft áhrif á nær­sam­fé­lagið sitt og að sveit­ar­fé­lagið sam­anstendur fyrst og fremst af íbú­unum sem það byggja.“

Jú, það stytt­ist í kosn­ingar. Hvernig hafa síð­ustu dagar verið?

„Mjög skemmti­legir en anna­samir. Mikið um að vera, fjöl­margir við­burðir og marga að hitta sem bæt­ist ofan á hitt hvers­dags­lega umstang. En þetta er mjög lær­dóms­ríkur tími og gaman að kynn­ast betur með­fram­bjóð­endum sínum og sam­fé­lag­inu enn betur.“

Eins vill unga fólkið eiga mögu­leika á að geta stundað háskóla­nám í heima­byggð.

Hvað brennur helst á fólki sem Hildur Sólveig hittir á kosn­inga­fundum? Hvað er fólk helst ánægt með og hverju vill fólk helst breyta?

„Fólk er almennt ánægt með og stolt af Vest­manna­eyjum. Heil­brigð­is­málin, sam­göngu­málin, raf­magns­málin og mál­efni eldri borg­ara brenna þó á mörgum og hags­muna­gæslu gagn­vart þessu þarf að bæta. Við finnum líka að það brennur mikið á unga fólk­inu að fá aðstöðu til sköp­unar á hinum ýmsu sviðum og við viljum svara því. Eins vill unga fólkið eiga mögu­leika á að geta stundað háskóla­nám í heima­byggð með öfl­ugra fjar­námi eða hafa mögu­leika á að flytja störfin sín aftur heim. Til þess að það sé mögu­leiki þarf aðstaða að vera til staðar og góð netteng­ing og við viljum svara því ákalli fljótt og vel.“

Hvað hefur verið erf­ið­ast í kosn­inga­bar­átt­unni og hvað er eft­ir­minni­leg­ast?

„Þegar maður er fjarri fjöl­skyldu og heim­ili löngum stundum en það gleym­ist fljótt þegar maður mætir heim og hleður batt­er­íin með nokkrum knúsum og sögum af því sem gerð­ist hjá krökk­unum í skól­anum. Eft­ir­minni­leg­ast eru öll góðu sam­tölin og augna­blikin með kjós­endum til dæmis þegar við Gísli, með­fram­bjóð­andi minn, bönk­uðum til að afhenda stefnu­skránna hjá einum, fengum kaffi og tókum blús.“

Hildur Sólveig er spurð hvað það gefi henni að gefa kost á sér og vilja vinna að áherslu­málum sínum?

„Að vera virkur þátt­tak­andi í mótun sam­fé­lags­ins er mjög gef­andi. Þegar maður finnur að maður hefur bein áhrif á það hvernig þjón­ustu er verið að veita og þegar maður sér áþreif­an­legan árangur, til dæmis að sitja fundi með sam­göngu­ráð­herra í aðdrag­anda yfir­töku Herjólfs og finna að sam­staða bæj­ar­stjórnar og sú skila­boð sem þar voru send skil­uðu því að rekst­ur­inn í dag er í okkar höndum og að finna að hörð varn­ar­bar­áttan fyrir sýslu­manns­emb­ætt­inu skili árangri. Þá finnur maður að þetta er klár­lega þess virði að verja tím­anum í.“

Ég hef reynslu og þekk­ingu sem ég vil miðla áfram.

Hildur Sólveig seg­ist gefa kost á sér þar sem stjórn­málin séu skemmti­leg og gef­andi. „Þar hef ég eign­ast marga af mínum betri vinum. Ég tel líka að á meðan ég hef metnað og eld­móð fyrir sam­fé­lag­inu þá geti ég unnið Vest­manna­eyjum gagn. Ég hef reynslu og þekk­ingu sem ég vil miðla áfram og ég hef óbilandi trú á mögu­leikum Vest­manna­eyja.“

Hver eru svo áherslu­málin?

„Ég vil tryggja sjúkra­þyrlu á Suð­ur­land með vet­ur­setu í Vest­manna­eyjum, ég vil bættar og reglu­legar flug­sam­göngur við Eyjar, ég vil leggja áherslu á aukið fram­boð fjar­náms­leiða í háskóla­námi, ég vil að til sé aðstaða fyrir fólk sem vill flytja störf sín með sér til Eyja og stunda hér fjar­vinnu og ég vil efla stuðn­ing við aðila með nýsköp­un­ar­hug­myndir.“

Hvers vegna Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn? „Því hann leggur meðal ann­ars áherslu á lágar álögur, frelsi og ein­stak­lings­fram­takið.“

Fimm mínútur í burtu

Hildur Sólveig er gift Sindra Ólafs­syni, hag­fræð­ingi og rit­stjóra Eyja­frétta. „Saman eigum við þrjú börn, Aron, tólf ára, Söru Rós, átta ára, og Drífu, níu mán­aða,“ segir Hildur Sólveig, sem fyrir utan að vera bæj­ar­full­trúi er sjálf­stætt starf­andi sjúkra­þjálf­ari og fyr­ir­les­ari.

Hún segir að það að hafa eign­ast börnin þrjú hafi mótað hana mest. „Það er ekk­ert jafn­auð­mýkj­andi en á sama tíma vald­efl­andi og að eign­ast barn. Maður lærir svo mikið um sjálfan sig og jafn­vel for­eldra sína þegar maður verður sjálfur for­eldri. Ég veit að það er ekki sjálf­gefið að fá að eign­ast börn og er ég afar þakk­lát að hafa fengið það tæki­færi og sem einka­barn ákvað ég að ég myndi aldrei eign­ast færri en tvö gæti ég yfir­höfuð ráðið ein­hverju þar um.“

Þessa þætti er mik­il­vægt að rækta bæði í gleði og sorg.

Hvað er það erf­ið­asta sem hún hefur gengið í gegnum og hvernig hefur það mótað hana?

„Það eru nokkrir atburðir sem koma fyrst í hug­ann; fyrst kannski skiln­aður for­eldra minna sem auð­vitað hefur áhrif á börn, þegar frum­burð­ur­inn veikt­ist af ung­barna­floga­veiki og við þurftum að dvelja á barna­spít­al­anum og svo frá­fall æsku­vin­konu. Allir þessir atburðir hafa sýnt manni hvað vinir, fjöl­skylda, trúin og vonin skiptir miklu máli og getur fleytt manni yfir erf­ið­ustu tím­ana og þessa þætti er mik­il­vægt að rækta bæði í gleði og sorg.“

Vest­manna­eyjar. Þar sem eldar log­uðu úr jörðu og háhyrn­ing­ur­inn Keikó kom við á sínu lífs­sundi. Hvað er best við Vest­manna­eyjar? Hver er upp­á­halds­stað­ur­inn þar og hvers vegna?

„Sam­fé­lagið, sam­heldnin og íbú­arnir. Fram­úr­skar­andi íþrótta­líf, stór­brotin nátt­úra og að allt er bara í fimm mín­útna fjar­lægð. Hér verður ein­fald­lega meira úr tím­anum. Stafs­nesið er upp­á­halds­stað­ur­inn minn, hann er nokk­urs konar leynipara­dís þar sem er ynd­is­legt að vera á góðum sum­ar­dögum í góðra vina hópi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina