Ef marka má spár lesenda Mannlífs mun Ísland lenda ofarlega í aðalkeppni Eurovision á morgun.
Í skoðanakönnun sem birt var í vikunni, var spurt hvort lesendur teldu að íslenska atriðið myndi hafna í einum af tíu efstu sætunum. Talsverður meirihluti, rúmlega 59 prósent, telja að svo muni verða. Rúmlega 40 prósent eru á öndverðum meiði.
Eins og þjóðin veit komust Systur, ásamt bróður, áfram upp úr sínum riðli í forkeppni Eurovision á þriðjudagskvöld. Aðalkeppnin er síðan annað kvöld, laugardag, og verður spennandi að fylgjast með frammistöðu íslensku keppendanna, sem eflaust eiga eftir að verða landi og þjóð til sóma.

Niðurstöður úr skoðanakönnuninni eins og þær eru þegar þessi frétt er skrifuð.































Athugasemdir