Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Magnea Gná, yngsti borgarfulltrúi sögunnar: Í skólanum kynntist ég nemum sem höfðu slasast í stríði

„Fyrst og fremst vil ég vinna af heil­indum í þágu borg­ar­búa. Ég vil vera málsvari ungs fólks í borg­ar­stjórn og brýna þau sjón­ar­mið sem skipta ungt fólki máli; þar eru hús­næð­is­málin efst í huga. Það þarf að byggja meira, fjöl­breytt­ara og hraðar til að tryggja það að ungt fólk geti eign­ast þak yfir höf­uðið. Mark­miðið er að hrinda fram­fara­málum í fram­kvæmd, stuðla að meiri sam­vinnu og sátt og auka traust til borg­ar­stjórn­ar­innar,“ segir Magnea Gná Jóhanns­dóttir, nýkjör­inn borg­ar­full­trúi Fram­sóknar og yngsti borg­ar­full­trúi sög­unnar hér á landi.

Hver væri draum­ur­inn hvað vænt­an­legan meiri­hluta varðar og hvers vegna?

„Það væri meiri­hluti þar sem unnið er að þeim stefnu­málum sem við í Framsókn höfum lagt áherslu á eins og hús­næð­is­málin. Ég vil sjá Reykja­vík sem er stýrð út frá hags­munum barna. Við þurfum stór­efl­ingu í dag­vist­ar­kerf­inu, efla þjón­ustu við barna­fjöl­skyldur og ekki síst fjöl­skyldur barna með fötlun og félags­starf ung­menna til dæmis varð­andi ung­menna­húsin og hækkun frí­stunda­styrks. Samgöngu- og skipu­lags­mál eru líka afar brýn en leysa þarf úr umferð­ar­þung­anum með efl­ingu almenn­ings­sam­gangna sam­hliða upp­bygg­ingu gatna­kerf­is­ins og gera ráð fyrir fjöl­breyttum sam­göngu­máta. Þá þarf að hanna íbúða­hverfi þannig að þau séu sem sjálf­bær­ust og huga að umhverf­is­málum í öllum fram­kvæmdum. Við þurfum einnig að hlúa að fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lag­inu þar sem fólki líður vel og til­heyrir í hverfum sínum en einnig borg­inni sem heild.“

Ég tel ekki heilla­væn­legt að vera með öfgar til hægri eða vinstri.

Hvers vegna Framsókn?

„Framsókn er miðju­flokkur sem vinnur með sam­vinnu að leið­ar­ljósi. Ég aðhyllist þá hug­mynda­fræði og tel best að vera á miðj­unni þótt í ákveðnum málum sé maður kannski aðeins til hægri og öðrum aðeins meira til vinstri. Ég tel ekki heilla­væn­legt að vera með öfgar til hægri eða vinstri en við getum mæst á miðj­unni og við þurfum að geta unnið með ólíku fólki og finna grund­völl til að sætta sjón­ar­mið og gera ráð fyrir fjöl­breyttum lausnum.“

Mikilvægt að ungt fólk eigi rödd

Magnea seg­ist lengi hafa haft áhuga á stjórn­málum og vinnu í þágu sam­fé­lags­ins. „Ég fylgd­ist tölu­vert með sveit­ar­stjórn­ar­málum í upp­vext­inum. Ég tók síðan sjálf virkan þátt í bar­átt­unni fyrir síð­ustu alþing­is­kosn­ingar sem kveikti áhuga minn til að taka enn meiri þátt. Þá hef ég verið virk í Framsókn í Reykja­vík síðan ég flutti heim úr námi árið 2018 og tekið þátt í umræðum þar um það sem megi betur fara í Reykja­vík og þá sér­stak­lega fyrir ungt fólk. Þegar komið var að því að stilla upp á lista í Fram­sóknar ákvað ég að taka af skarið og gefa kost á mér í efstu sætin á lista flokks­ins. Ég tel mik­il­vægt að ungt fólk eigi rödd þegar ákvarð­anir eru teknar enda mikið af málum á sveit­ar­stjórn­ar­stigi sem snerta ungt fólk beint til dæmis hús­næðis- og leik­skóla­málin. Ungt fólk er líka sá hópur sem mun erfa ákvarð­ana­tökur dags­ins í dag.“

Kosn­inga­bar­átta er stórt sam­vinnu­verk­efni ólíkra aðila á öllum aldri.

Magnea segir að það sem hún hafi lært af því að taka þátt í kosn­inga­bar­áttu sé hvað sam­vinna og sam­heldni skilar miklum árangri. „Kosn­inga­bar­áttan brýndi fyrir mér mik­il­vægi gras­rót­ar­innar sem stóð vakt­ina kvölds og morgna við und­ir­bún­ing við­burða, mót­töku gesta og úthring­ingar. Ég á bak­land­inu og gras­rót Fram­sóknar í Reykja­vík allt að þakka fyrir árangur Fram­sóknar í kosn­ing­unum. Kosn­inga­bar­átta er stórt sam­vinnu­verk­efni ólíkra aðila á öllum aldri sem hafa öll það sam­eig­in­legt að vilja láta gott af sér leiða í þágu sam­fé­lags­ins. Ég fékk líka tæki­færi til að tala við marga, heyra ólík sjón­ar­mið borg­ar­búa á ýmsum málum svo sem þjón­ustu borg­ar­innar í hinum ýmsu hverfum og fara í heim­sóknir til fyr­ir­tækja, félaga og stofn­anna og öðl­ast um leið mik­il­væga inn­sýn inn í starf­semi, þarfir og áherslur þess­ara aðila.“

Hvað með lang­tíma­mark­mið Magneu varð­andi stjórn­málin?

„Að ákvarð­anir sem ég tek þátt í verði sam­fé­lag­inu til hags­bóta. Ég er enn að átta mig á þessu nýja hlut­verki. Hvað fram­tíðin innan stjórn­mála ber í skauti sér á enn eftir að koma í ljós. En ég mun gera mitt besta til að rísa undir því trausti sem mér er sýnt og vona að borg­ar­búar verði dug­legir að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi og láta vita af því hvar gera má betur því við erum í þjón­ustu þeirra.“

Bjó í Noregi og Taílandi

Magnea fædd­ist á Land­spít­al­anum árið 1997 en ólst upp á Hanhóli í  Bol­ung­ar­vík. For­eldrar hennar eru Guðrún Stella Giss­ur­ar­dóttir og Jóhann Hanni­bals­son og er Magnea ein fjög­urra systra. Hinar eru Ásta Björg, Þor­steina Þöll og Salvör Sól.

„Ég man ekki eftir mér öðru­vísi en með miklar skoð­anir á sam­fé­lag­inu. Ég hef alltaf verið með mikla rétt­læt­is­kennd og brenn­andi áhuga á sam­fé­lags­málum. Ég á kannski ekki langt að sækja stjórn­mála­á­hug­ann því for­eldrar mínir hafa bæði verið virk í stjórn­málum um langt skeið og hafa til að mynda bæði setið í bæj­ar­stjórn og komið að ýmsum sam­fé­lags­verk­efnum. Stjórn­mála­um­ræðan var því alltaf hluti af umræð­unni við eld­hús­borðið.

Ég átti frekar venju­lega barn­æsku; æfði sund, próf­aði að læra á ýmis hljóð­færi, tók þátt í leik­fé­lag­inu, ung­liða­deild björg­un­ar­sveit­ar­innar og var í nem­enda­ráði félags­mið­stöðv­ar­innar og í ung­menna­ráði. Í grunn­skól­anum var lögð mikil áhersla á alþjóða­sam­starf sem vakti áhuga minn á alþjóða­sam­vinnu en ég tók þar þátt í Evr­ópu­verk­efnum meðal ann­ars um sam­fé­lags­frum­kvöðla.

Fékk ég það tæki­færi að fara sem full­trúi Íslands í alþjóð­legan mennta­skóla í Noregi.

Eftir stutt stopp í Mennta­skól­anum á Ísafirði fékk ég það tæki­færi að fara sem full­trúi Íslands í alþjóð­legan mennta­skóla í Noregi. Þannig að ég flutti að heiman rétt rúm­lega 18 ára. Skólinn sem ég fór í er undir alþjóða­fram­halds­skóla­hreyf­ing­unni United World College sem leggur áherslu á að sam­eina fólk, þjóðir og menn­ingu fyrir frið og sjálf­bæra fram­tíð í gegnum menntun. Einnig var lögð áhersla á að efla leið­toga­færni og frum­kvæði.

Í skól­anum voru 200 nem­endur frá um það bil 95 löndum. Við bjuggum saman fimm í her­bergi og 40 í húsi. Þess var gætt að sem flest þjóð­erni ættu sinn full­trúa og að í hverju her­bergi mætt­ust ein­stak­lingar frá ólíkum menn­ing­ar­heimum. Á mínu fyrsta ári var ég til að mynda með stelpum í her­bergi frá Síerra Leóne, Kosta Ríku, Frakk­landi og Kambódíu. Það spáðu margir í það hér heima hvernig það gengi upp að búa svo þétt með fjórum ókunn­ugum stelpum í her­bergi. En það var í raun ekk­ert mál. Maður lærir bara að virða þarfir náung­ans og sýna þeim virð­ingu. Maður lærir líka að skilja ólíka menn­ing­ar­hætti þjóða og ein­blína frekar á það sem sam­einar okkur í stað þess sem sundrar. Í skól­anum kynnt­ist ég nemum sem flúið höfðu stríðs­hrjáð lönd og svæði, nem­endum sem höfðu slasast í stríði og nem­endum sem sættu ofsóknum í heima­landi sínu vegna meðal ann­ars kyn­hneigðar og trú­ar­skoð­ana. Þetta mótar mann og fær mann til að vilja taka þátt í að móta sam­fé­lag þar sem gert er ráð fyrir fjöl­breytni og ólíkum þörfum með sam­vinnu að leið­ar­ljósi. Þá gerði ég mér grein fyrir hversu lýð­ræðið er mik­il­vægt og nauð­syn þess að standa vörð um það og efla meðal ann­ars með því að taka þátt í stjórn­mála­starfi.

Ég var í stúd­enta­ráði United World College RCN í nor­egi 2016-2017.

Í skól­anum var ég full­trúi húss­ins sem ég bjó í á heima­vist skól­ans og í stúd­enta­ráð­inu en í því fólust ýmis verk­efni svo sem að sinna vel­ferð nem­enda sem stundum áttu erfitt með að vera fjarri heima­högum, taka á sam­skipta­vanda og vera tengiliður við yfir­stjórn skól­ans auk þess að gæta að ýmsum umhverf­is­verk­efnum skól­ans.

Ég var í stúd­enta­ráði United World College RCN í nor­egi 2016-2017. Það var frá­bær reynsla og mikil áhersla lögð á lýð­ræði innan skól­ans.  Við héldum opna fundi hvern sunnu­dag fyrir nema skól­ans þar sem þeir gátu komið sínum málum á fram­færi og síðan tókum við bolt­ann og reyndum að finna lausnir á þeim verk­efnum sem uppi voru í sam­starfið við skóla­stjórn­endur.

Eftir dvöl­ina í Noregi bauðst mér að fara sem starfs­nemi til Taílands í eitt ár til aðstoða við að setja á lagg­irnar UWC skóla og reyna að miðla umburð­ar­lyndi og lýð­ræð­is­legum vinnu­brögðum í félags­störfum nem­enda. Þar kynnt­ist ég líka asískri menn­ingu og fékk tæki­færi til að ferð­ast um þennan heims­hluta og kynn­ast mis­mun­andi við­horfum, ólíkum efna­hag og svæðum þar sem íbúar búa við slakt vel­ferð­ar­kerfi, skoða skipu­lag ólíkra borga og bæja og safna í sarp­inn kostum og göllum þess­ara sam­fé­laga.“

Mannréttindi og réttindi barna

Magnea er í meist­ara­námi í lög­fræði við Háskóla Íslands; á fjórða ári. „Ég hef einkum lagt áherslu á áfanga í meist­ara­nám­inu sem tengj­ast mann­rétt­indum og rétt­indum barna. B.A.-rit­gerðin mín var skrifuð á sviði barna­réttar með áherslu á þátt­töku barna en rit­gerðin fjallar um lækkun kosn­inga­ald­urs. Þegar kemur að lög­fræð­inni væri ég helst til í að vinna innan þess áhuga­sviðs án þess að vera búin að gera upp hug minn innan hvaða starfs­vett­vangs það væri.“

Magnea sagði frá verk­efnum sínum í Noregi og Taílandi og svo hefur hún tekið þátt í félags­störfum stúd­enta hér heima og gegndi hún emb­ætti alþjóða­rit­ara Orators, félag laga­nema við Háskóla Íslands, 2021-2022 þar sem hún sá um alþjóða­sam­starf laga­nema. Hún bendir á að laga­deild eigi langa sögu af nor­rænu sam­starfi og sam­starfi við banda­rískan háskóla í Ohio. Þá sat hún í jafn­réttis­nefnd Háskóla Íslands 2019-2020.

Það er mik­il­vægt að ungt fólk hafi vett­vang innan stjórn­mál­anna.

Magnea er for­maður Ung Framsókn í Reykja­vík. „Það er von mín að starfið muni efl­ast enn frekar með auknu fylgi í borg­inni og nýjum borg­ar­mála­flokki og að ungt fólk komi meira að stefnu­mótun sam­fé­lags­ins og sinnar fram­tíðar. Það er mik­il­vægt að ungt fólk hafi vett­vang innan stjórn­mál­anna þar sem það getur komið sínum sjón­ar­miðum á fram­færi og kynnst starfi stjórn­mála­flokka. Áður en ég tók við for­mennsku í Ung Framsókn hafði ég verið í stjórn félags­ins og kynn­ing­ar­stjóri Sambands ungra Fram­sókn­ar­manna. Fyrir hönd Sambands ungra Fram­sókn­ar­manna hef ég í tvígang tekið þátt í Norð­ur­landa­ráði æsk­unnar.“

Hugleiðsla og núvitund

Hvað með áhuga­málin?

„Ég hef verið mjög virk í ýmsum félags­störfum í gegnum tíð­ina og félags­starf bæði innan Fram­sóknar og utan hefur ein­kennt líf mitt síð­ustu ár. Þá hef ég senni­lega verið í nefnd eða nem­enda­ráði í öllum skólum sem ég hef verið í. Vinir mínir grín­ast stundum með það hvaða hús­fé­lag ég ætli að bjóða mig fram í næst en lík­lega er sam­fé­lags­á­hug­unn og vilj­inn til að breyta og bæta með­fæddur.

Ég fer tölu­vert í sund og stunda hug­leiðslu og núvit­und sem ég kynnt­ist þegar ég bjó í Taílandi og hef reynt að halda því við hér heima. Ég hef einnig gaman af úti­vist og elska að vera úti í nátt­úr­unni. Pabbi er mikil fjalla­geit þannig ég ólst upp við að klífa fjöll fyrir vestan frá því að ég var farin að ganga. Fjöl­skyldan mín er mjög náin og sam­heldin. Ég held að sá dagur líði ekki sem ég tala ekki við for­eldra mína og systur og við reynum að eiga eins margar sam­veru­stundir og hægt er.“

Heim­ur­inn varð ein­hvern veg­inn minni.

Magnea segir að það að flytja ung til útlanda í krefj­andi alþjóð­legt nám og umhverfi sé sú lífs­reynsla sem hafi mótað sig. „Ég held að ég hafi aldrei lært jafn­mikið á skömmum tíma. Í skól­anum kynnt­ist ég gjör­ó­líkum menn­ing­ar­heimum sem gat oft verið krefj­andi þegar menn­ing­ar­á­rekstrar áttu sér stað en maður lærir með tím­anum að ein­blína frekar á það sem sam­einar okkur í stað þess sem sundrar eins og ég sagði. Tíma­bilið ein­kennd­ist af stans­lausri ögrun á gildi mín og við­horf í líf­inu enda fólk þarna saman komið sem hafði allt önnur sjón­ar­mið á lífið og gildi en ég. Það vakti upp ýmsar spurn­ingar hjá mér og varð til þess að ég  horfði út fyrir boxið og ég leit ef til vill heim­inn og ver­öld­ina öðrum augum á eftir. Heim­ur­inn varð ein­hvern veg­inn minni og nær og ég eign­að­ist á þessum tíma vini í flestum löndum eða land­svæðum ver­ald­ar­innar.“

Hverjir eru draum­arnir varð­andi fram­tíð­ina burt­séð frá póli­tík­inni?

„Að láta gott af mér leiða, vera ham­ingju­söm og eiga þátt í að aðrir geti líka verið ham­ingju­samir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við