Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Gauja litla er umhugað um stríðið í Úkraínu: „Salan á þeim bjór fer óskiptur til úkraínskra barna“

Gauja litla er umhugað um stríðið í Úkraínu: „Salan á þeim bjór fer óskiptur til úkraínskra barna“

Guðjón Sig­munds­son eða Gaui litli eins og hann er gjarnan kall­aður, á afmæli í dag. Er hann hvorki meira né minna en 65 ára í dag.

Gaui kom fyrst fram á sjón­ar­sviðið er hann leyfði fjöl­miðlum að fylgj­ast með til­raun sinni til að grenn­ast, fyrir ríf­lega tutt­ugu árum síðan. Var hann orð­inn 170 kíló og þótti kom­inn tími til að létt­ast. Bæði vakti hug­rekki hans og hress­leiki athygli lands­manna og á auga­bragði varð hann elsk­aður af þjóð­inni.

Í dag rekur Gaui hið glæsi­lega safn Her­náms­setrið í Hval­firð­inum en þar má sjá allskyns safn­gripi sem tengj­ast her­námi Hval­fjarðar í seinni heim­styrj­öld­inni.

Mannlíf heyrði í Gauja hljóðið og spurði hann hvort hann ætl­aði að halda eitt­hvað upp á dag­inn. „Jesús minn. Ég er orð­inn 65 ára,“ svar­aði Gaui hress í bragði og hélt svo áfram. „Ja, eða 65 ára ungur. Maður má ekki á þessum aldri tala niður til sín.“

Varðandi afmæl­is­dag­inn sagð­ist Gaui vera á leið­inni í bæinn: „Ég er á leið­inni í bæinn og ætla að hitta dóttur mína, Tinnu Björt, með kon­unni. Við ætlum að fá okkur kaffi og með því. Annars er það ekk­ert fleira stór­vægi­legt. Ég ætla að vera með svona barna­af­mæli á sunnu­dag­inn klukkan þrjú, fyrir systk­ini mín. Við vorum alltaf með barna­af­mæli á sunnu­dögum klukkan þrjú, þegar við vorum lítil og ég ætla að baka kökur sem voru bara bak­aðar fyrir afmæli okkar og á jól­unum. Þannig að þetta verður svona pínu „flashback“. Þetta teng­ist kannski því að þegar maður er kom­inn á þennan aldur að líta til baka og ganga í barn­dóm. En svo ætla ég að halda veislu á Her­náms­setr­inu í sumar. Verð þá með pínu húll­umhæ á tjald­svæð­inu og í sund­laug­inni.“

En hvað er framundan hjá Gauja, svona á næst­unni?

„Það er bara sum­ar­opn­unin á Her­náms­setr­inu og und­ir­bún­ingur fyrir hana. Ég er ann­ars alltaf með eitt­hvað í píp­unum. Mér er svo­lítið umhugað núna um Úkra­ínu­stríðið og við ætlum að vera með í til­efni stríðs­ins, úkra­ínska súpu á borð­stól­unum í sumar. Svo hafði ég bruggað tvær bjór­teg­undir sem minja­gripi og salan á þeim bjór fer óskiptur til úkra­ínskra barna sem hafa þjáðst af völdum stríðs­ins.“

Þegar blaða­maður Mannlífs tjáir Gauja að hann verði að kíkja og smakka þennan bjór tekur Gaui vel undir það og segir hálf hlæj­andi: „Já þetta eru tvær teg­undir og þeir eru með þannig merk­ingar að þú getur bæði haft þetta eins og minja­gripi og dottið í það. Og það með góðri sam­visku!“

Mannlíf óskar hinum bráð­skemmti­lega Gauja inni­lega til ham­ingju með afmælið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina