Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kvartanir vegna matsmanna hjá Landlækni – „Hló að móður þegar hún lýsti mjög alvarlegu ofbeldi“

Kvartanir vegna matsmanna hjá Landlækni – „Hló að móður þegar hún lýsti mjög alvarlegu ofbeldi“

Bar­áttu­hóp­ur­inn Líf án ofbeldis sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu skömmu eftir hádegið. Þar er fjallað um mats­menn í for­sjás­málum og kvart­anir sem eru nú komnar á borð land­læknis. Kvart­an­irnar sem um ræðir má lesa neðar í fétta­til­kynn­ing­unni en eru þær feit­letraðar.

„Frétta­til­kynn­ing

Tíu kvart­anir til emb­ættis land­læknis vegna mats­manna í for­sjár­málum

Tíu mæður hafa nú sent kvörtun til emb­ættis land­læknis vegna ófag­legra vinnu­bragða og hlut­drægni sál­fræð­inga sem taka að sér hlut­verk dóm­kvaddra mats­manna og sér­fróðra með­dóms­manna í for­sjár­málum. Um er að ræða þrjá sál­fræð­inga, þau Guðrúnu Odds­dóttur, Rögnu Ólafs­dóttur og Gunnar Hrafn Birg­is­son sem í mati sínu saka mæður um að vera lyga­sjúkar, jafn­vel með falskar minn­ingar og skamma þær fyrir að kalla sig þolendur ofbeldis. Allar þessar kvart­anir eru hér með­fylgj­andi. 

Fjórar kvenn­anna hafa þegar sagt sögu sína og fimm konur stíga nú fram undir nafni, þær Angelika Dedukh en DV fjall­aði um málið hennar nýverið, Bryndís Ásmunds­dóttir sem sagði sögu sína í Eigin Konum, Helga Agatha Ein­ars­dóttir sem sagði sögu sína í Eigin Konum, Helga Sif Andr­és­dóttir sem sagði sögu sína í Eigin Konum, Andrea Splidt Eyvinds­dóttir og Melkorka Þór­halls­dóttir. 

Kvart­an­irnar snúa að afglöpum sál­fræð­ing­anna í störfum sínum þar sem þau líta fram hjá mik­il­vægum gögnum sem sýna van­rækslu og ofbeldi, að fram­komu mats­manna við mæður og/eða börn þeirra sem og vinnu­brögðum mats­manna við for­sjár­hæfni­mat. Í öllum mál­unum má finna þann sam­nefn­ara að umræddir sál­fræð­ingar taka ekki til­lit til ofbeldis sem mæður og börn greina frá, og gögn sýna fram á, og ger­ast hlut­drægir með föður sem hafnar því eða neitar að hafa beitt ofbeldi. 

Aðkoma mats­manna hafði í öllum til­vikum ráð­andi áhrif á ákvörðun dóm­ara um for­sjá en í þremur mál­anna var nið­ur­staðan sú að móðir var svipt for­sjá yfir barni sínu, eftir að hafa greint frá ofbeldi föður, og barn fært alfarið í for­sjá hans. Í öðrum málum var lög­heim­ili fært til föður, dæmd sam­eig­in­leg for­sjá og börn skikkuð í mikla umgengni við hættu­legar aðstæður. 

Fyrsta kvörtunin var send til emb­ættis land­læknis þann 26. ágúst 2021. Enn hefur ekki feng­ist nein nið­ur­staða varð­andi þá kvörtun og því nokkuð ljóst að þolendur ofbeldis geta hvorki treyst á að yfir­völd hafi fag­legt eft­ir­lit með störfum mats­manna né reitt sig á inn­grip yfir­valda í ófag­leg vinnu­brögð sem leiða til íþyngj­andi dóms­nið­ur­stöðu. 

Hluti kvenn­anna hefur einnig sent inn kvörtun sama efnis til siða­nefndar Sál­fræð­inga­fé­lags Íslands. En nefndin tekur ekki afstöðu til kvart­ana meðan dóms­mál eru í gangi, og því er ekki von á inn­gripi þaðan inn í atburða­rás sem hefur óaft­ur­kræf áhrif á líf barna. Þá hefur einni af kvört­unum mæðr­anna vegna vinnu­bragða og fram­komu Rögnu Ólafs­dóttur nú þegar verið vísað frá siða­nefnd­inni. Vert er að taka fram að einn þeirra mats­manna sem kvartað er yfir, Guðrún Odds­dóttir, situr í siða­nefnd Sál­fræð­inga­fé­lags Íslands.

Að mati umræddra kvenna er ljóst að fullrar fag­mennsku hefur ekki verið gætt í störfum ofan­greindra mats­manna og ekki tekið til­lit til allra gagna máls­ins, sér­stak­lega er varðar ítar­legar frá­sagnir og gögn um ofbeldi. Þá er ómetið það óbæt­an­lega tjón sem það veldur börnum að vera færð í hendur ofbeld­is­manna og að vera ekki trúað þegar þau greina frá ofbeldi. 

Fjár­hagstjónið er í sumum til­vikum veru­legt, en dæmi er um að móðir sé knúin til að fara af stað í for­sjár­mál vegna van­rækslu og ofbeldis föður en sitji uppi með kostnað hátt í 20 millj­ónir króna. Útlagður kostn­aður vegna mats­gerða hleypur á 2-5 millj­ónum króna og í mörgum málum er óskað eftir yfir­mats­gerð. Þó að hægt sé að sækja um gjaf­sókn mega hámarks­laun vera mjög lág til þess að fá það sam­þykkt. 

Líf án ofbeldis lýsir yfir þungum áhyggjum af grafal­var­legri stöðu barna og mæðra í for­sjár­málum á Íslandi þar sem ofbeldi kemur við sögu. Konurnar eru allar félags­með­limir í sam­tök­unum Líf án ofbeldis og þær og/eða börn þeirra eru þolendur ofbeldis af hálfu föður. Í stað þess að taka til­lit til ofbeldis sem greint er frá, og skylda er að taka til­lit til sam­kvæmt barna­lögum, eru mæður og börn látin gjalda fyrir það í mál­unum að leggja fram gögn og vitn­is­burði sem stað­festa ofbeldi með beinum og óbeinum hætti. Samtökin benda á að umboðs­maður barna á Íslandi beindi því til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem hefur eft­ir­lit með fram­kvæmd Barna­sátt­mál­ans, árið 2011 að brýnt sé að auka vernd barna gegn ofbeldi þegar teknar eru ákvarð­anir um for­sjá og umgengni. Ekkert hefur hins vegar breyst á þessum 11 árum. Vegna alvar­leika kvört­un­ar­efna mæðr­anna og fjölda kvart­ana um sömu mats­menn­ina, sjá þær ekki aðra kosti í stöð­unni en að senda yfir­lýs­ingu þessa á fjöl­miðla, með stuðn­ingi félaga­sam­tak­anna Líf án ofbeldis.

Við minnum á að stjórn­völdum ber skylda til að grípa til allra nauð­syn­legra aðgerða til að vernda börn gegn ofbeldi. Samkvæmt lögum um heil­brigð­is­þjón­ustu nr. 40/2007 og lögum um land­lækni og lýð­heilsu nr. 41/2007 er eft­ir­lit með heil­brigð­is­starfs­fólki í höndum land­læknis. Við treystum því að brugð­ist verði við kvört­unum í sam­ræmi við til­gang laga og að ráð­herrar mála­flokk­anna, heil­brigð­is­ráð­herra og dóms­mála­ráð­herra grípi til nauð­syn­legra ráð­staf­ana til að efla eft­ir­lit með fag­mennsku sál­fræð­inga í for­sjár­málum og tryggja að fag­leg þekk­ing sé til staðar. Heil­brigð­is­vís­indin eru komin miklu lengra í að við­ur­kenna þekk­ingu á afleið­ingum ofbeldis á börn en mat sál­fræð­ing­anna gefur til kynna, rétt­ast væri að mat á ofbeld­is­hættu og ofbeldi væri sett í for­gang í sér­fræði­mati og að áhrif þess á barn væri ávallt kannað með fag­legum hætti. 

Með­fylgj­andi í við­hengi er inni­hald þeirra kvart­ana sem lagðar hafa verið fram í heild sinni.

Stutt sam­an­tekt um efni hverrar kvört­unar fylgir hér:

  1. Kvörtun Angeliku Dedukh, dags 24. mars 2022 vegna Rögnu Ólafs­dóttur og Guðrúnu Odds­dóttur sem komu að for­sjár­máli sem yfir­mats­menn:

Faðir hlýtur refsi­dóm fyrir ofbeldi gegn bæði móður og barni í hér­aði. Dómur fyrir ofbeldi gegn barn­inu var stað­festur í Lands­rétti en yfir­mats­menn leggja sig fram um að afsanna allar ásak­anir móður um ofbeldi gegn börnum á heim­il­inu. Matsmenn gera lítið úr frá­sögn barns­ins sem varð fyrir ofbeldi föður, láta í ljós að dreng­ur­inn sé með flökt­andi augna­ráð, sem eigi að vísa til þess að barnið sé ekki að segja satt. Með­fylgj­andi kvörtun er vott­orð um augn­sjúk­dóm barns­ins sem veldur flökt­andi augna­ráði. Yfir­mats­menn kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að móð­irin sé fégráðug og búi til frá­sagnir um ofbeldi til að græða pen­ing.

  1. Kvörtun (nafn­laus) vegna x til emb­ættis land­læknis dags. 25. mars 2022:

Faðir er met­inn hæf­ari til for­sjár þrátt fyrir van­rækslu og hafa ítrekað komið í veg fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir börnin. Alvar­leg­asta van­ræksla mats­manns er að hún lítur alfarið fram­hjá alvar­legum veik­indum ann­ars barns­ins og sterkum vilja þess um að hafna sam­skiptum við föður. Faðir kom í veg fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu við barnið með skrif­legum hót­unum og ógn­andi fram­komu, auk þess að nema yngra barnið á brott og halda því frá móður og systk­ini í marga mán­uði án nokk­urra skýr­inga. Þrátt fyrir stað­festar frá­sagnir barn­anna af lík­am­legu ofbeldi föður og ótal til­kynn­ingar t.d. heil­brigð­is­starfs­manna og lög­gæslu­að­ila um ofbeldið, er litið fram­hjá því með öllu.

  1. Kvörtun (nafn­laus) til emb­ættis land­læknis dags. 24. apríl 2022 vegna x:

Faðir gengur hart fram svo árum skiptir að þvinga barnið sitt í umgengni við sig gegn vilja þess. Þegar barnið er aðeins fjög­urra ára gam­alt segir hann frá því að faðir hans hafi kýlt hann í höf­uðið og hann sé hræddur við hann. Alvar­leg­asta van­ræksla mats­manns er barnið fær ekki að njóta vafans en x neit­aði að trúa frá­sögn barns­ins af ofbeldi, þegar fyrir liggur grein­ar­gerð frá öðrum sál­fræð­ingi sem taldi frá­sögn barns­ins trú­verð­uga og barnið hitti reglu­lega í marga mán­uði. Móðir hefur neyðst til þess að flýja land vegna ára­langra ofsókna föður með hjálp kerf­is­ins, en hann hefur nú stefnt henni fyrir að taka barnið með sér erlendis. 

  1. Kvörtun Andreu Splidt Eyvinds­dóttur vegna Guðrúnar Odds­dóttur til emb­ættis land­læknis dags. 30. apríl 2022:

Mats­maður kennir móður um kvíða barns­ins sem aug­ljóst er að teng­ist ofsóknum og stjórnun föður en and­staða barns­ins við umgengni hófst þegar faðir faðir frels­is­svipti barnið í marga sól­ar­hringa sem refs­ingu við því að vilja vera meira hjá móður. Móðir greinir mats­manni frá and­legu, kyn­ferð­is­legu og fjár­hags­legu ofbeldi sem faðir beitti hana, auk lík­am­legs ofbeldis í eitt skipti, sem hún telur ekki að hafi nein áhrif á for­sjár­hæfni föður. Barnið tjáir marka­leysi föður gagn­vart henni en mats­maður segir ekk­ert óeðli­legt við að faðir kyssi barnið á munn­inn því hún sjálf eigi frænkur á Vest­fjörðum sem gera það. Mats­maður trúir ekki barn­inu og segir hana hafa búið sér til minn­ingu um ofbeldi en rök­styður ekki þá skoðun. Samt segir hún að barnið hafi aldrei sagt frá ofbeldi en líka að atvik hafi átt sér stað þegar barnið var mjög ungt og því geti hún ekki munað eftir þeim sjálf. 

  1. Kvörtun Melkorku Þór­halls­dóttur til emb­ættis land­læknis vegna aðkomu Guðrúnar Odds­dóttur að for­sjár­máli sem sér­fróður með­dóm­ari, dags. 19. apríl 2022:

Í máli þar sem Guðrún Odds­dóttir var sér­fróður með­dóms­maður spyr hún móður hvort hún gangi út frá því að eiga barnið ein, þar sem lítið var gert úr barna­vernd­ar­laga brotum föður. For­sjár­hæfni móður þótti mun betri en föður og fram kom löng saga hans um ofbeldi en fyrir dóm­inum var samt gengið út frá því að sam­bandið hefði verið “storma­samt” og ekki hægt að skera úr um hver bæri ábyrgð á því. Árið 2019 hafði þó annar dóm­ari séð ástæðu til að dæma um umgengni við föð­ur­inn, undir eft­ir­liti en eitt­hvað breytt­ist þegar Guðrún kom að mál­inu sem fag­legur með­dóm­ari.

  1. Kvörtun Helgu Agöthu Ein­ars­dóttur vegna Guðrúnar Odds­dóttur til emb­ættis land­læknis dags. 14. apríl 2022:

Mats­maður lítur fram­hjá og gerir lítið úr ára­tuga langri sögu föður um ofbeldi og afbrot sem hann hefur hlotið dóma fyrir en lætur í ljós að and­fé­lags­leg hegðun og neysla móður sé eitt­hvað í lík­ingu við sögu föður. Samt hefur móðir aldrei gerst brot­leg við lög með ofbeld­is­hegðun en faðir ítrekað fengið dóma og setið inni, auk þess að hafa veitt móður slíka áverka að hún lá inni á spít­ala vegna þeirra. Barnið hefði getað endað móð­ur­laust ef árás­irnar hefðu gengið örlítið lengra, en mats­maður gerir nán­ast engar athuga­semdir við alvar­legt ofbeldi manns­ins og virð­ist hissa á því að sam­starfið hafi ekki gengið vel á milli for­eldr­anna. Mats­maður hló að móður þegar hún lýsti frá­sögn sinni af mjög alvar­legu ofbeldi.

  1. Kvörtun (nafn­laus) vegna x til emb­ættis land­læknis dags. 28. apríl 2022 og siða­nefndar Sál­fræð­inga­fé­lags Íslands dags. 5. maí 2022:

Mats­maður not­ast við per­sónu­leika­próf sem hafa mjög mikið vægi í -nið­ur­stöðukafla. Í nið­ur­stöðum þess­ara prófa er látið í ljós að móðir sé væn­is­sjúk, en mats­maður tekur ekk­ert til­lit til þess að ég seg­ist vera þol­andi ofbeldis og með áfallastreituröskun, sem í eðli sínu lýsir sér í því að vera stöðugt hrædd og á varð­bergi. Einnig kemst hún að þeirri nið­ur­stöðu að faðir hafi aldrei reynt að koma í veg fyrir sam­skipti barns við móður og að móðir ein beri ábyrgð á tengsl­arofi við barnið, en vísar ekki í neitt máli sínu til stuðn­ings. 

  1. Kvörtun (nafn­laus) til emb­ættis land­læknis dags. 31. mars 2022  og Siða­nefndar Sál­fræð­inga­fé­lags Íslands dags. 04. júní 2020 vegna starfa x sem mats­manns í for­sjár­máli: 

Mats­maður kemur fram við móður eins og um brot af hennar hálfu sé að ræða og sakar hana um að valda dóttur sinni og barns­föður skaða með að leyfa ekki eft­ir­lits­lausa umgengni við hann þegar grunur er um kyn­ferð­is­brot hans gegn barn­inu. Mats­maður hafnar yfir­lýs­ingum frá tveimur systrum föður um kyn­ferð­is­brot hans gegn þeim og telur aðra frá­sögn­ina ótrú­verð­uga þar sem barnið 13 ára hafi ekki sagt mömmu sinni frá.  Faðir mælist klíniskt hátt á “psychopathic devi­ate scale” en það hefur x til marks um sjálfs­hatur hans, þar sem hann eigi enga sögu um and­fé­lags­lega hegðun, maður sem hefur sjálfur við­ur­kennt kyn­ferð­is­brot gegn barni og er sak­aður um að brjóta gegn tveimur öðrum börnum. Samhliða því segir hún móður dramat­íska og athygl­is­sjúka og að hún mistúlki orð dóttur sinnar um að hana klæj­aði í píkunni því „pabbi skegg kitlar“ og „ekki nota marga putta“ þegar hún ætl­aði að skipta á henni. Til að stað­festa að eðli­legt sé að faðir fái ítrekað hold­ris í návist barns­ins not­ast mats­maður við þráð á Reddit sem heim­ild og þvag­færa­skurð­læknis. 

  1. Kvörtun Helgu Sifjar Andr­és­dóttur dags. 31. mars 2022 til emb­ættis land­læknis vegna Rögnu Ólafs­dóttur sem mats­manns í for­sjár­máli:

Móðir dregur í efa að það sé hlut­verk mats­manns í for­sjár­máli að þvinga fram umgengni barns við for­eldri gegn vilja þess, sem Ragna gerir. Mats­maður hafði vit­neskju um alvar­legan og sárs­auka­fullan sjúk­dóm barns­ins sem bregst illa við streitu og álagi, en tók ekk­ert til­lit til þess. Börnin hafna ein­dregið umgengni við föður en Ragna segir við annað að faðir sé einn púslu­biti fjöl­skyld­unnar og að henni mun aldrei líða eins og hún sé heil ef hún hafnar umgengni við föður sinn, og tjáir henni að það hafi verið henni sjálfri erfið reynsla að rjúfa tengsl við sinn eigin föður í æsku. Mats­maður spyr barnið líka hvort henni finn­ist ekki und­ar­legt að móðir hennar hafi ekki stoppað ofbeld­is­hegðun föður. Elsta barnið sem lýst hafði langvar­andi ofbeldi föður á heim­il­inu og hafði gert til­raun til að svipta sig lífi vegna þeirra aðstæðna sem hann bjó við var aldrei kall­aður í við­tal. Ragna sagði hann ein­fald­lega ekki koma þessu máli við, þar sem þau eru ekki alsystk­ini. Geð­læknir hans frá BUGL var feng­inn til þess að skrifa skýrslu vegna elsta barns­ins og leggja inn í matið, en þegar kemur að því þá neitar mats­maður að taka við skýrsl­unni. Móður sendir þá lög­manni sínum fyr­ir­spurn með tölvu­pósti sem sendir erindið á Rögnu sem svarar. “Hvað er eig­in­lega að Helgu? Af hverju spyr hún mig ekki ef það er eitt­hvað í stað þess að hlaupa klag­andi til þín?”. 

  1. Kvörtun Bryn­dísar Ásmunds­dóttur vegna Gunnars Hrafns Birg­is­sonar til emb­ættis land­læknis dags. 26. ágúst 2021:

Mats­maður sest í dóm­ara­sætið varð­andi ofbeldi föður gagn­vart móður þar sem hann lýsir föður í raun sak­lausan, með vísan til fram­burðar hans og þrátt fyrir lög­reglu­skýrslur, fram­burð vitna og vitn­is­burð ann­arrar barns­móður föður um ofbeldi. Hann lætur þó ekki þar við sitja heldur gerir móður upp falskar minn­ingar um ofbeldið sem er órök­stutt með öllu og með öllu ófag­leg grein­ing þar sem falskar minn­ingar eru í besta falli umdeilt hug­tak. Mats­maður svarar ekki spurn­ingum um hvort barn sé beitt eða gæti verið beitt ofbeldi hjá föður, þar sem hann ræðir ekki við önnur börn hans og spyr ekki dreng­inn sem um ræðir hvort faðir hafi beitt hann ofbeldi eða hvort óregla eða rifr­ildi sé á heim­il­inu, þrátt fyrir að í mál­inu liggi fyrir hljóð­upp­taka þar sem tveir synir föður ræða saman um fram­komu föður við þá. “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina