Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kommentin krufin – Guðrún ræðst á Eddu Falak: „Hún er náttúrulega vinkona ykkar“

Kommentin krufin – Guðrún ræðst á Eddu Falak: „Hún er náttúrulega vinkona ykkar“
Guðrún Ágústa Ágústs­dóttir/Edda Falak

Guðrún Ágústa Ágústs­dóttir, þerapisti og sátta­miðl­ari, sakar hlað­varps­stjórn­and­ann Eddu Falak um að bjóta á börnum, í færslu sem hún skrifar á Facebook. Færslan er deilitexti með frétt þar sem Edda er sögð njóta lífs­ins í Róm og vitnað í hana þar sem hún segir í glettni: „Kem aldrei aftur til Íslands.“

„Frábærar fréttir, enda ertu búin að leggja líf margra í rúst með róg­burði og lygum,“ skrifar Guðrún Ágústa. Hún segir enn­fremur að Edda viti upp á sig sök­ina, sé óvönduð og hafi ljótt inn­ræti. Hún endar færsl­una á eft­ir­far­andi orðum: „Einn dag­inn verða börnin sem þú hefur brotið á stór… Farðu og komdu aldrei til baka!!!“

Skjáskot af færslu Guðrúnar Ágústu.

Blaða­maður Mannlífs hafði sam­band við Guðrúnu Ágústu til þess að spyrja hana út í ummælin, einkum og sér í lagi þau sem snúa að brotum gegn börnum.

Fjallað var um Guðrúnu Ágústu fyrr á árinu í tengslum við meint trún­að­ar­brot í starfi, þar sem hún nafn­greindi móður barns, sem var skjól­stæð­ingur hennar, í sam­tali við utan­að­kom­andi aðila.

„Spurðu bara Eddu Falak sjálfa, hverjir voru að senda henni skila­boð til dæmis og fá hana til þess að hætta að fjalla um meðal ann­ars mig,“ segir Guðrún Ágústa í sam­tali við blaða­mann.

Ertu að tala um börn þarna?

„Meðal ann­ars.“

Þú segir hérna beint að hún hafi brotið á börnum. Það er auð­vitað stór­mál.

„Já, auð­vitað er það stór­mál. En þið hafið nú ekki haft áhuga fyrir því hingað til.“

Aðspurð hvað nákvæm­lega hún ætti við með þess­ari ásökun hélt Guðrún Ágústa áfram á svip­uðum nótum. „Hún veit það sjálf. Hún Edda getur bara svarað þessu sjálf. Hringdu bara í hana, hún er nátt­úru­lega vin­kona ykkar. Þið þekk­ist allar, þetta er eitt­hvað „crowd“ þarna og þið eruð bara í því að eyði­leggja líf fólks.“

Guðrún Ágústa vildi ekki tjá sig nánar um ásak­anir sínar í garð Eddu Falak um brot gegn börnum, þrátt fyrir ítrek­aðar spurn­ingar blaða­manns.

Vert er að taka fram að engin tengsl eru milli blaða­manna Mannlífs og Eddu Falak.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina