Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ein algengasta birtingarmynd kynþáttafordóma á Íslandi: „Gefur til kynna einhvers konar útilokun“

Ein algengasta birtingarmynd kynþáttafordóma á Íslandi: „Gefur til kynna einhvers konar útilokun“

Ein algeng­asta birt­ing­ar­mynd kyn­þátta­for­dóma á Íslandi er fyr­ir­bærið „öráreiti“ sem lýsir sér meðal ann­ars þannig að fólk spyrji sak­leys­is­legra og vel meintra spurn­inga á borð við „hvaðan ertu?“ eða bendi á að við­kom­andi tali góða íslensku. Þetta eru athuga­semdir og spurn­ingar sem einar og sér skipta kannski engu máli en vegna þess að þær eru síend­ur­teknar geta þær valdið skaða og skapað fjar­lægð. Sóley Tóm­as­dóttir, jafn­réttis- og fjöl­breyti­leika­fræð­ingur, og Chanel Björk Sturlu­dóttir, fjöl­miðla­kona, útskýra þetta fyr­ir­bæri og gefa góð ráð í

útvarps­þætt­inum Morg­un­vaktin á Rás 1.

Fólk telur að eina birt­inga­mynd kyn­þátta­for­dóma sé þegar ein­hver beitir mann­eskju af öðrum kyn­þætti ofbeldi, en sú er ekki bara raunin. „Á Íslandi er eitt helsta form kyn­þátta­for­dóma ómeð­vituð hlut­drægni sem byggð er á staðalí­myndum og birt­ist í öráreiti. Við upp­lifum ekki að fólk sem til­heyri jað­ar­hópum sé hluti af okkur,“ segir jafn­rétt­is­fræð­ing­ur­inn Sóley Tóm­as­dóttir.

Nei, ég meina hvaðan ertu upprunalega?

„Í raun­inni er þetta öráreiti skil­grein­ing á mann­legum sam­skiptum í lífi fólks sem gefur til kynna ein­hvers konar úti­lokun og þar með ýkir upp­lifun­ina að fólk til­heyri jað­ar­hópi, minni­hluta­hópi, og eigi ekki heima með ein­hverjum hætti,“ segir Sóley.

Eitt besta dæmið er spurn­ingin: „Hvaðan ertu?“ sem fólk notar gjarnan til þess að tengj­ast öðrum og sam­sama sig með þeim. „En ef svört eða brún mann­eskja, með hreim eða talar ekki nógu góða íslensku fær þessa spurn­ingu, þá dugir ekki að segja: Kópavogi. Heldur kemur við­bót­ar­spurn­ingin: Nei, ég meina hvaðan ertu upp­runa­lega?“ Sóley segir að þá snú­ist spurn­ingin ekki lengur um að tengj­ast heldur fá útskýr­ingu á því af hverju við­kom­andi sé frá­vik.

„Er ég þá ekki nógu góð svört manneskja?“ 

Chanel Björk telur að slík áreitni teng­ist einnig skorti á sýni­leika fólks af erlendum upp­runa í íslensku sam­fé­lagi.

„Ástæðan fyrir því að ein­stak­lingar eins og ég eru spurð að þessu margoft, er vegna þess að það er svo sterk ímynd á Íslandi um hvernig Íslend­ingar líta út,“ segir hún. Með því að spyrja hvaðan við­kom­andi kemur, er verið að ýta undir öðrun og aðgrein­ingu sem Chanel Björk segir að stafi af því að fólk geti engan veg­inn ímyndað sér að við­kom­andi geti verið Íslend­ingur, eða í það minnsta ekki full­gildur. „Vegna þess hvernig hún lítur út eða er ekki hvít á hör­und.“

Hún segir að oft séu slíkar athuga­semdir settar fram í gríni eða hrósi sem að baki búa und­ir­liggj­andi for­dómar eða staðalí­myndir. Hún tekur sem dæmi að oft sé hún talin vera góð í íþróttum vegna þess að hún sé svört. Þrátt fyrir að systir hennar beri af í íþróttum og sé í lands­lið­inu í hand­bolta þá hefur Chanel Björk ekki erft þau gen. „Er ég þá ekki nógu góð svört mann­eskja af því að ég er ekki jafn góð í íþróttum?“ spyr hún. „Vænt­an­lega hefur þetta ekk­ert með kyn­þátt að gera.“ Annað dæmi er að fólk hrósi ein­stak­lingum af erlendum upp­runa fyrir góða íslensku­kunn­áttu. Oft hefur þetta fólk alist upp á Íslandi og þekkir ekk­ert annað en að tala tungu­málið og vera Íslend­ingur. „Þá er það að heyra: Þú talar svo góða íslensku, mjög gott dæmi um öráreiti því þarna er fólk að gera sér upp ein­hverja hug­mynd um þessa mann­eskju,“ segir Chanel Björk.

Stíga inn í aðstæður

Hvað er þá til ráða fyrir fólk sem áttar sig á vanda­mál­inu og vill gera rétt? Chanel Björk ráð­leggur fólki í for­rétt­inda­stöðu að stíga inn í aðstæður ef það verður vart við að ein­hver sé beittur öráreiti eða heyrir óvið­eig­andi athuga­semdir. „Vegna þess að það getur verið mjög hjálp­sam­legt fyrir ein­stak­ling sem til­heyrir jað­ar­hópi og verður sífellt fyrir þessum spurn­ingum og athuga­semdum. Það getur alveg verið erfitt að finna kraft­inn til að segja eitt­hvað,“ segir hún og bendir á að þá geti verið gott ef ein­hver annar grípi bolt­ann og jafn­vel spyrji við­kom­andi hvernig þeim líði, hvort þetta hafi verið í lagi og hvort hægt sé að aðstoða eða segja eitt­hvað. „Það getur alveg skipt sköpum.“

Rætt var við Chanel Björk Sturlu­dóttur og Sóleyju Tóm­as­dóttur í Morg­un­vakt­inni á Rás 1. Anna María Björns­dóttir í vefrit­stjórn og Sigríður Hall­dórs­dóttir, dag­skrár­gerða­maður tóku saman. Viðtalið má hlusta á í heild sinni í spil­ar­anum hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina