Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Húsfrú fékk nærri taugaáfall er hún sá Mick Jagger í eldhúsglugganum: „Hélt ég væri orðin brjáluð“

Húsfrú fékk nærri taugaáfall er hún sá Mick Jagger í eldhúsglugganum: „Hélt ég væri orðin brjáluð“
Mick Jagger ásamt sínum stærsta aðdá­anda, Ólafi Helga Kjart­ans­syni, bæj­ar­stjóra Ísa­fjarðar á þeim tíma. Mynd: Árný Herbertsdóttir

Einn góðan ágúst­morgun árið 1999 vakn­aði ísfirska hús­móð­irin Halla Margrét Ólafs­dóttir, nudd­aði úr sér stír­unum og gekk að eld­hús­glugg­anum og gerði sig líka­lega til að gá til veð­urs. Ekkert veður sá hún en and­litið á Mick Jagger, söngv­ara Rolling Stones blasti hins­vegar við henni í stað­inn. Fékk hún nærri tauga­á­fall við sjón­ina og rak upp skað­ræð­isöskur. Þegar hún hafði náð að róa sig niður fór hún út og fékk eig­in­hand­ar­á­ritun frá goð­sögn­inni. Þetta var extra góður ágúst­morgun hjá Ísfirð­ingum.

Sagt er svo frá þess­ari óvæntu heim­sókn Jaggers í DV:

Mick Jagger heim­sótti Vest­firði um helg­ina:
Öskraði þegar Jagger var við eld­hús­glugg­ann

„Ég er í fríi að hvíla mig og nota tæki­færið til að líta smá­vegis í kringum mig,“ sagði Mick Jagger, aðal­sprauta Rolling Stones, í sam­tali við DV á bryggj­unni við Sunda­höfn á ísa­firði á sunnu­dag. Jagger, sem um þessar mundir stendur í erf­iðu skiln­að­ar­máli við Jerry Hall, hélt til um borð í Amazon Express, einka­snekkju ítalsks vinar síns, en brá sér í land snemma á sunnu­dags­morg­un­inn og hjólaði um bæinn án þess að fólk veitti honum framan af sér­staka eft­ir­tekt. Mick Jagger not­aði dag­inn til að skoða sig um á Ísafirði. Hann skoð­aði sjó­minja­safnið í Neðsta­kaup­stað og snæddi á veit­inga­stað í Tjöru­hús­inu og bragð­aði á hákarli án þess að láta í ljós sér­staka vel­þóknun á þeim þjóð­ar­rétti Íslend­inga. Nokkrir báru kennsl á þennan fræg­asta rokksöngv­ara heims og þá spurð­ist fljótt út að hann væri á svæð­inu. Það safn­að­ist nokkur hópur að honum og vildi ræða við kapp­ann og fá eig­in­hand­ar­á­rit­anir. Jagger tók öllu slíku vel og árit­aði á báða bóga og ræddi við Vest­firð­inga. Hann lék á als oddi og spjall­aði við fólk um heima og geima.

Húsmóðir í miðbæ Ísa­fjarðar fékk næstum tauga­á­fall þegar hún nývöknuð leit til veð­urs út um eld­hús­glugg­ann og sá þá framan í Mick Jagger. „Ég hélt ég væri orðin brjáluð þegar það fyrsta sem ég sá var and­lit Micks Jaggers. Ég var að sötra teið mitt og þegar ég átt­aði
mig á því hver þetta var öskr­aði ég svo hátt að ég fékk verk í háls­inn. Þetta var alveg ótrú­legt og raunar út i hött,“ sagði Halla Margrét Ósk­ars­dóttir við DV. Hún nældi sér siðan í eig­in­hand­ar­á­ritun Jaggers og ræddi stutt­lega við hann. „Ég sagði honum að sonur minn
væri gít­ar­leik­ari að reyna að fóta sig i London og hann vildi vita hvað hann héti. Það var stór­kost­legt að eiga kost á að tala við hann,“ sagði Halla Margrét.

„Ó, guð, ég þvæ mér ekki um hend­urnar næstu dag­ana,“ sagði tán­ings­stúlka sem rokk­ar­inn tók í hönd­ina á. Sveinn Þor­móðs­son, ijós­mynd­ari DV, rifj­aði upp fyrir Jagger að þeir hefðu hist í Liverpool árið 1964 þegar þeir gistu á sama hót­eli þegar Sveinn fylgdi KR-lið­inu sem keppti við Liverpool. Hann fór eitt sinn inn á her­begi til Stones í boði þeirra og spjall­aði við þá drykk­langa stund. Jagger virt­ist hálf­undr­andi að hitta Íslend­ing sem hefði hitt hann svo mörgum ára­tugum fyrr. Hann heils­aði Sveini með handa­bandi og sagði skemmti­legt að þeir skyldu hitt­ast.

Jagger gefur eig­in­hand­ar­á­rit­anir

Þegar DV innti hann eftir íslands­heim­sókn Rolling Stones sem aldrei varð og benti honum á að Íslend­ingar hefðu beðið hans og Roll­ing­anna í tvö ár sagð­ist hann vera undr­andi. Hann
sagði tón­leika á Íslandi aðeins hafa verið á umræðu­stigi en engin ákvörðum verið tekin um að halda þá. „Er það virki­lega? Áttuð þið von á að við kæmum?“ svar­aði hann og hló. Mick Jagger kom fljúg­andi til Íslands á laug­ar­dag og síðan flaug hann til Hólma­víkur þangað sem snekkjan sótti hann. Hann sagð­ist í sam­tali við DV mjög ánægður með það sem hann hefði séð af Íslandi fyrir þoku sem náði niður í miðjar hlíðar í gær. „Þetta virð­ist hið feg­ursta land en þokan setur þó strik í reikn­ing­inn. Fólkið er ynd­is­legt og þetta virð­ist vera ynd­is­legur staður,“ sagði hann og stökk um borð í bát­inn sem flutti hann um borð í snekkj­una á Pollinum á Skut­uls­firði. Ekki varð úr því að Jagger færi á pöbb­arölt svo sem til hafði staðið og létti snekkjan akk­erum um klukkan 3 aðfara­nótt mánu­dags.

Enn eiga öld­ung­arnir í Rolling Stones eftir að halda tón­leika hér á landi en miðað við lang­lífi þeirra er enn von, að minnsta kosti næstu 10-15 árin á að giska.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina