Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Stefnir sendiráði Indlands: „Ert jafn gagnslaus og innfæddir – Kominn með upp í kok af hvítu fólki“

Stefnir sendiráði Indlands: „Ert jafn gagnslaus og innfæddir – Kominn með upp í kok af hvítu fólki“
Sendiráð Indlands Túngötu

Það er vef­mið­ill­inn DV sem greinir frá manni sem hefur stefnt ind­verska sendi­ráð­inu á Íslandi; stað­sett við Túngötu í Reykja­vík.

Ástæð­urnar fyrir stefn­unni eru vegna van­gold­inna launa og rasískrar fram­komu í sinn garð.

Ekki er ólík­legt að við rekstur máls­ins muni reyna á ákvæði um frið­helgi sendi­ráða; svo­kall­aðan úrlend­is­rétt.

Ind­verska sendi­ráðið mun lík­lega freista þess að fá mál­inu vísað frá; mögu­lega á þeim for­sendum að íslensk lög nái ekki yfir starf­semi erlendra sendi­ráða.

Kemur fram í grein DV, sem hefur stefnu máls­ins undir höndum, að lög­maður manns­ins sé hins vegar full­viss að íslensk lög gildi í þessu til­viki. DV .

Maðurinn sem stefnir ind­verska sendi­ráð­inu er Ungverji sem hefur búið um langa hríð á Íslandi; starf­aði hann sem bíl­stjóri hjá ind­verska sendi­ráð­inu frá 1. maí árið 2017 og þar til hann hætti störfum í byrjun þessa árs.

Hann segir að á starfs­tím­anum hafi hann orðið að þola van­virð­ingu af hálfu vinnu­veit­enda sinna; þó sér­stak­lega af hendi þáver­andi sendi­herra Indlands á Íslandi.

Ung­verski mað­ur­inn þurfti meðal ann­ars að þola rasísk ummæli sendi­herr­ans í sinn garð og meðal þess sem sendi­herr­ann á að hafa sagt er:

„Þú ert jafn gagns­laus og aðrir inn­fæddir starfs­menn, og ég er kom­inn með upp í kok af hvítu fólki (e. „You are as usel­ess as the other per­sons of the local staff, and I am fed up with whities.“) og „klaufskur og heimskur eins og aðrir inn­fæddir“ („clumsy and idiotic like all of the locals“).

Lýs­ing­arnar er að finna í stefn­unni, sem, eins og hefur komið fram, DV hefur undir höndum um fram­komu sendi­herr­ans við ung­verska mann­inn:

„Þann 7. nóv­em­ber 2019, heim­sótti sendi­herr­ann Hard Rock Café ásamt eig­in­konu sinni en þar varð hann ofurölvi. Hann snéri svo aftur heim án eig­in­konu sinnar og skip­aði stefn­anda að yfir­gefa svæðið. Síðar um kvöldið snérist sendi­herr­anum hins vegar hugur og fyr­ir­skip­aði hann þá stefn­anda að sækja eig­in­kon­una – sem stefn­andi gerði. Þegar stefn­andi hafði ekið sendi­herra­frúnni heim var honum ekki þakkað fyrir unnin störf heldur var tekið á móti honum með sví­virð­ingum fyrir að hafa „gleymt“ eig­in­konu sendi­herr­ans.

Í sví­virð­ing­unum fólust einnig mörg mjög niðr­andi og rasísk ummæli um stefn­anda. Sendi­herr­ann skip­aði stefn­anda ítrekað að brjóta gegn umferð­ar­lögum á meðan hann sinnti sinni vinnu og setti óeðli­legan þrýst­ing á stefn­anda. Í ljósi samn­ings­sam­bands milli stefn­anda og ind­verska sendi­ráðs­ins er ljóst að sendi­herr­ann var í yfir­burð­ar­stöðu gagn­vart stefn­anda og valda­ó­jafn­vægið mikið. Þann 28. jan­úar 2020, var stefn­andi beittur miklum þrýst­ingi af sendi­herr­anum, en sá síð­ar­nefndi krafð­ist þess að stefn­andi tæki ólög­lega fram úr öðrum bif­reiðum í umferð­inni og að hann keyrði yfir gatna­mót á rauðu ljósi. Þar að auki varð stefn­andi, sem og aðrir starfs­menn, fyrir niðr­andi fram­komu og sví­virð­ingum á meðan und­ir­bún­ingi fyrir heim­sókn for­seta Indlands, Ram Nath Kovind, stóð yfir. Þeir starfs­menn gætu sann­reynt fram­an­greint enda voru þeir mjög gagn­rýnir á fram­ferði sendi­herr­ans.“

Stefn­and­inn krefur ind­verska sendi­ráðið um van­goldin laun, sem eru, að við­bættri hálfri milljón í lög­manns­kostnað, 3,7 millj­ónir króna.

Enn­fremur seg­ist mað­ur­inn hafa fengið laun greidd undir taxta; hann hafi ekki fengið des­em­ber­upp­bót né orlofs­bót; þá telur Ung­verj­inn að hann hafi verið svik­inn um yfir­vinnu­greiðslur; hann krefst miska­bóta upp á 750 þús­und krónur fyrir van­virð­andi fram­komu gagn­vart sér, sem og ras­isma.

„Stefn­andi telur að í þeim sví­virð­ingum og áreiti sem hann varð fyrir í starfi sínu fyrir sendi­ráðið hafi falist ólög­mæt mein­gerð gegn honum og krefst þar af leið­andi miska­bóta á þeim grund­velli,“ segir einnig í stefn­unni.

Í áður­nefndri stefnu er bent á að hvergi í íslenskum lögum séu sendi­ráð að öllu leyti und­an­þegin lög­sögu íslenskra dóm­stóla.

Síðar í stefn­unni er bent á ákvæði Basel-samn­ings­ins – sem Ísland er aðili að – en í honum kemur fram að erlent ríki geti ekki borið fyrir sig úrlend­is­rétti í málum er varða ráðn­ing­ar­samn­inga við starfs­fólk, ef vinnan sem innt er af hendi, sam­kvæmt samn­ingum, fer fram í mót­töku­ríki.

DV segir líka frá­því að málið verði þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þann 31. maí næst­kom­andi og að búast megi við því að aðal­með­ferð máls­ins verði í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina