Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Bjarna saga Ben eftir Gunnar Smára: „Bjarni er líklega spilltasti stjórnmálamaður sögunnar“

Bjarna saga Ben eftir Gunnar Smára: „Bjarni er líklega spilltasti stjórnmálamaður sögunnar“
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokk­ins Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Gunnar Smári Egilsson for­maður Sós­í­alista­flokks Ísland lætur í sér heyra, og kröft­ug­lega, eins og skrif hans í þessum pistli bera með sér:

Gunnar Smári Egilsson

„Skoð­ana­könnun Maskínu í vik­unni leiddi í ljós að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er sá stjórn­mála­maður sem flestir lands­manna van­treysta. Ekki bara núna heldur í gegnum alla Íslands­sög­una. Aldrei áður hefur van­traust á stjórn­mála­mann mælst 71%. Jafnvel þótt við leit­uðum til ann­arra landa er hæpið að við finnum við­líka höfnun þjóðar á nokkrum stjórn­mála­manni“ ritar Gunnar Smári og heldur ótrauður áfram:

„Þegar Richard M. Nixon flaug í þyrlu frá Hvíta hús­inu, eftir að hafa sagt af sér vegna Watergate-hneyksl­is­ins, treystu hlut­falls­lega fleiri Banda­ríkja­menn Nixon en Íslend­ingar Bjarna í dag. Og mun færri van­treystu Nixon en Bjarna.

Þá segir hann að „van­traust Íslend­inga á Bjarna er því heims­sögu­lega stórt og merki­legt. En hvers vegna treysta svona fáir Bjarna, manni sem hefur lík­lega verið valda­mesti maður lands­ins síð­ustu níu ár?“

Gunnar Smári seg­ist vera með svarið:

„Það er vegna þess að stjórn­mála­fer­ill Bjarna hefur verið lit­aður hverju hneyksl­inu á fætur öðru. Van­traustið núna varð ekki skyndi­lega til, það hefur vaxið upp af fjöl­mörgum hneyksl­is­málum. Sem hvert um sig hefði lík­lega leitt til afsagnar ráð­herra og þing­manns í nágranna­löndum okkar. Til að skýra þetta mikla van­traust sem lands­menn hafa á Bjarna Bene­dikts­syni er hér stutt yfir­lit yfir stjórn­mála­feril hans. Það ætti að skýra fyrir óminn­ugum hvers vegna Bjarni er nú staddur í póli­tísku alkuli, stjórn­mála­maður sem ekki nýtur traust til nokk­urra verka.“

Gunnar Smári færir í tal að „Bjarni er nefni­lega ekki bara óvin­sæl­asti stjórn­mála­maður Íslands­sög­unnar heldur lík­lega einnig spillt­asti stjórn­mála­maður sög­unnar. Þess vegna treystir fólk honum ekki.“

Hann telur upp ýmis­legt sem gerst hefur í tíð Bjarna Bene­dikts­sonar undir yfir­skrift­inni:

„Hinn makalausi stjórnmálaferill Bjarna Benediktssonar.“

Bjarni Bene­dikts­son for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins

10. maí 2003:

„Bjarni Bene­dikts­son kjör­inn á þing fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn.“

12. febr­úar 2008:

„Bjarni skrifar undir veð­samn­inga dag­setta aftur á bak í tím­ann til að bjarga Milestone, félagi Wernersbræðra, frá gjald­þroti. Með þessum gjörn­ingi voru færðir 10 millj­arða króna frá Glitni til eig­enda bank­ans þvert á lána­reglur bank­ans. Bjarni var stjórn­ar­for­maður Vafnings. Upphæðin jafn­gildir 18.500 m.kr. í dag.“

6. októ­ber 2008:

„Bjarni inn­leysti 50 m.kr. eign sína í sjóði 9 í Glitni og bjarg­aði sér þannig frá miklu tapi, öfugt við meg­in­þorra þeirra sem lagt höfðu sparnað sinn inn í þennan sjóð. Upphæðin jafn­gildir 82 m.kr. á núvirði. Bjarni sat í efna­hags- og skatta­nefnd á þessum tíma og fékk þar upp­lýs­ingar um gríð­ar­lega alvar­lega stöðu Glitnis.“

29. mars 2009:

„Bjarni Bene­dikts­son kjör­inn for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.“

8. apríl 2009:

„Bjarni lýsir því yfir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn muni end­ur­greiða svim­andi háa styrki sem Hrun­fyr­ir­tæki veittu flokknum á árunum fyrir Hrun, m.a. 55 m.kr. inn í þrotabú FL-Group og Lands­bank­ans. Við þetta hefur ekki verið staðið, nema að litlu leyti. Upphæðin jafn­gildir um 87 m.kr. í dag.“

1. des­em­ber 2010:

„Máttur tek­inn til gjald­þrota­skipta. Máttur var fjár­festa­fé­lag Eng­ey­ingar og Wernersbræðra sem átti hluti í Glitni, Icelandair og fleiri félögum. Við gjald­þrotið töp­uð­ust um 33 millj­arðar króna á núvirði. Bjarni var stjórn­ar­maður í Mætti.“

21. jan­úar 2013:

„Skiptum á þrota­búi EM 13 lokið, en félagið hét áður BNT og var hluti af fyr­ir­tækja­sam­stæðu N1, sem fjöl­skylda Bjarna var leið­andi hlut­hafi í. Bjarni var stjórn­ar­for­maður BNT. Engar eignir fund­ust í búinu en 4,3 millj­arða kröfur sem lýst var við fall félags­ins 2008/2009. Á núvirði jafn­gildir þetta um 6.800 m.kr. Samtals nam tap vegna gjald­þrota fyr­ir­tækja sem tengd­ust þess­ari fyr­ir­tækja­sam­steypu Eng­ey­inga og Wernersbræðra vel yfir 200 millj­örðum á núvirði.“

21. nóv­em­ber 2014:

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir

„Hanna Birna Krist­jáns­dóttir segir af sér sem inn­an­rík­is­ráð­herra eftir að aðstoð­ar­maður hennar, Gísli Freyr Val­dórs­son, var dæmdur í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir að leka trún­að­ar­gögnum um hæl­is­leit­endur úr inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu í fjöl­miðla. Fram að þessu hafði Bjarni og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafnað öllum fréttum um lek­ann úr ráðu­neyt­inu og lýst yfir stuðn­ingi við Hönnu Birnu og Gísla Frey.“

25. nóv­em­ber 2014:

„Lands­bank­inn selur hlut sinn í greiðslu­miðl­un­ar­fé­lag­inu Borgun án útboðs til fáeinna aðila, þar á fyr­ir­tækis í eigu ætt­ingja Bjarna. Það fyr­ir­tæki hagn­að­ist gríð­ar­lega á þessum við­skiptum þar sem Lands­bank­inn gætti ekki að yfir­vof­andi greiðslu Visa inn í Borgun. Sölu­verðið var því langt undir raun­virði. Við söl­una á Borgun til Salt pay högn­uð­ust ætt­ingjar Bjarna enn meir.“

31. ágúst 2015:

„Visir greinir frá því að Bjarni hafi verið skráður á stefnu­móta­vef­inn Ashley Madisson undir nafn­inu IceHot 1.“

3. apríl 2016:

„Kastljós Rík­is­út­varps­ins í sam­starfi við aðrir miðla afhjúpa að Bjarni hafi átt þriðj­ungs­hlut í félag­inu Falson&Co. sem skráð var á Seychelles-eyj­­um. Þær eyjar eru þekkt skatta­skjól. Bjarni átti hlut í félag­inu vegna fast­eigna­við­skipta í Dubai sem hann tók þátt í árið 2006.“

13. sept­em­ber 2016:

„Bjarni fær afhenta skýrslu starfs­hóps um aflandseignir Íslend­inga en kýs að halda henni leyndri fyrir þingi og þjóð­inni til að forð­ast umræðu um þessi mál fyrir kosn­ing­arnar það haustið. Skýrslan verður ekki opin­ber fyrr en við ráð­herra­skipti í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, þegar Benedikt Jóhanns­son tekur við af Bjarna.“

15. maí 2017:

„Bjarni knýr í gegn sam­þykki þing­manna Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar við skipan Sigríðar Andersen á fimmtán dóm­urum í Lands­rétt. Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu dæmir síðan þessa skipun ólög­lega og Sigríður segir þá af sér sem dóms­mála­ráð­herra.

14. sept­em­ber 2017:

Faðir Bjarna, Benedikt Sveins­son, til vinstri á þess­ari sam­settu mynd. Hægra megin er Hjalti Sigurjón Hauksson, sem er dæmdur barn­a­níð­ingur

„Í ljós kemur að Benedikt, faðir Bjarna, hafði veitt manni, sem nauðg­aði stjúp­dótt­ur sinni í tólf ár, um­sögn svo hann gæti feng­ið upp­reist æru. Stundin og síðan aðrir fjöl­miðlar og Alþing­is­menn höfðu vik­urnar og mán­uð­ina á undan leitað upp­lýs­inga um þetta mál en engin svör fengið. Sigríður Andersen hafði hins vegar greint Bjarna sjálfum frá þessu einum og hálfum mán­uði fyrr.“

17. októ­ber 2017:

Þórólfur Hall­dórs­son

„Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Þórólfur Hall­dórs­son, sem telja verður inn­vígðan og inn­múr­aðan Sjálf­stæð­is­flokks­mann, setur lög­bann á umfjöllun Stund­ar­innar um þátt­töku Bjarna í vafasömum fjár­mála­gjörn­ingum fyrir Hrun.“

20. nóv­em­ber 2018:

„Í sam­tali Mið­flokks­manna við tvo þing­menn Flokks fólks­ins á Klaust­ur­bar kemur fram að Bjarni hafði full­vissað Gunnar Braga Sveins­son þegar Gunnar var utan­rík­is­ráð­herra um að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi launa honum það með góðri stöðu ef Gunnar skip­aði Geir H. Haarde sem sendi­herra Íslands í Washington.“

12. nóv­em­ber 2019:

Samherji. Þor­steinn Már

„Kveikur Rík­is­út­varps­ins afhjúpar við­skipta­hætti Samherja í Namibíu og tengsl fyr­ir­tæk­is­ins við Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Bjarni lýsti yfir trausti á Krist­jáni.“

23. des­em­ber 2020:

„Bjarna er vísað úr Ásmund­ar­sal ásamt öðrum gestum í sam­kvæmi sem braut gegn sótt­varn­ar­reglum vegna kór­ónafar­ald­urs­ins.“

25. sept­em­ber 2021:

„Lög eru brotin við taln­ingu atkvæða í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, en þar er for­maður kjör­stjórnar er inn­múr­aður og inn­vígður Sjálf­stæð­is­flokks­maður. Meiri­hluti kjör­bréfa­nefndar Alþingis undir for­ystu Birgis Ármanns­sonar leggur til að ekki verði kosið aftur.“

14. febr­úar 2022:

Páley Borg­þórs­dóttir lög­reglu­stjóri

„Lög­reglu­stjór­inn á Norð­ur­landi eystra, inn­múruð og inn­vígð Sjálf­stæð­is­flokks­kona, boðar blaða­menn sem fjöll­uðu um skæru­liða­deild Samherja til yfir­heyrslu. Bjarni lýsir yfir stuðn­ingi við þessa boðun og skammar fjöl­miðla fyrir að fjalla um málið sem aðför að rétt­indum blaða­manna.“

6. apríl 2022:

„Listi yfir kaup­endur afhjúpar að Bjarni og banka­sýslan höfðu selt í lok­uðu útboði hluta­bréf almenn­ings í Íslands­banka með afslætti til föður Bjarna og margra af helstu leik­enda í Hruninu. Salan á hlut almenn­ings í Íslands­banka fyllti mæl­inn hjá miklum meiri­hluta þjóð­ar­innar. Könnun sýndi að 7% fólks var ánægt með fram­kvæmd Bjarna og banka­sýsl­unnar en 83% fólks ósátt. Það er fátítt að svona afger­andi afstaða komi fram. Það er hyl­djúp gjá milli þjóðar og stjórn­valda. Almenn­ingur hefur brugðið á það ráð að mót­mæla þessum gjörn­ingi, spill­ing­unni sem hann afhjúpaði og því að Bjarni Bene­dikts­son sitji áfram sem fjár­mála­ráð­herra.“

Að lokum segir Gunnar Smári:

„Ég hvet alla lands­menn til að segja hug sinn um banka­söl­una og van­traust sitt á Bjarna, ekki síst með því að mót­mæla með öðrum sem eru sama sinnis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina