Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skotinn til bana og settur í tunnu fulla af steypu: „Ég var mjög náin Gísla“

Skotinn til bana og settur í tunnu fulla af steypu: „Ég var mjög náin Gísla“

„Þetta er allt svo hræði­legt að maður er enn þá í algjöru sjokki,“ sagði systir manns­ins sem fannst myrtur í Suður-Afríku í júlí árið 2005. Hann hét Gísli og var 54 ára gam­all.

Gísli var ókvæntur en lét eftir sig son búsettan á Íslandi. Gísli hafði búið í Suður-Afríku í 10 ár og var þar með eigin atvinnu­rekstur. „Ég hef verið mjög náin Gísla, sem var litli bróðir minn og við höfum alltaf haldið sam­bandi,“ segir systirin, sem er næst Gísla í aldri af fjórum systk­inum.

Hún segir að áður en Gísli var myrtur hafi hann verið í heim­sókn hjá henni í Banda­ríkj­unum þar sem hún býr ásamt fjöl­skyldu sinni. „Hann fór heim 24. maí og það lítur út fyrir að hann hafi verið myrtur sama dag og hann kom aftur til Suður-Afríku,“ segir hún. Gísli not­aði tæki­færið og bauð syni sínum út til Banda­ríkj­anna á sama tíma og hann heim­sótti systur sína. „Þeir áttu hér saman inni­legan tíma,“ sagði hún og kvað þá feðga hafa verið í góðu sam­bandi þótt langt væri á milli. „Maður verður bara að þakka fyrir þennan tíma sem þeir fengu saman.“

Samkvæmt upp­lýs­ingum lög­reglu í Suður-Afríku hafði Gísli nýverið selt íbúð í Jóhann­es­ar­borg og parið sem grunað er um að hafa myrt hann reynt að kom­ast yfir pen­ing­ana sem hann fékk fyrir íbúð­ina. Katla seg­ist hafa heyrt af þessu og árétt­aði að í því fælist engin vís­bend­ing um að Gísli hafi verið á förum frá land­inu eða eitt­hvað slíkt.

„Ég veit að hann var nýlega búinn að selja rað­hús og ekki far­inn að festa kaup á öðru húsi. Þess vegna var hann með allan þennan pen­ing í banka. Hann starf­aði við að kaupa íbúðir, gera þær upp og selja svo aftur, þannig að hann var ekki á förum. Hann fékk bara gott verð fyrir húsið og seldi það.“ Systir hans segir að lík Gísla hafi verið flutt heim til Íslands til greftr­unar jafn­skjótt og lög­regla í Suður-Afríku heim­il­aði.

Skipulögðu kveðjuveislu áður en hann fór vestur um haf

Örvænt­ing vegna skorts á pen­ing­um til að greiða fyr­ir skóla­göngu barna Desiree Ober­holzer rak hana til að fall­ast á ráða­gerð um að myrða Gísla, sem fannst myrt­ur í Suður-Afr­íku í júlí 2005 eins og fyrr segir. Kom þetta fram í vitn­is­b­urði Desiree fyr­ir hæsta­rétti Jó­hann­es­ar­borg­ar, að því er vefút­gáfa suður-afr­íska dag­blaðs­ins Mail & Guar­di­an greindi frá.

Desiree sagði að með­á­kærði henn­ar, Willie Theron, hefði sagt sér frá ráða­gerð­inni eft­ir að hún sagði hon­um að hún hygð­ist fara aft­ur út í vændi til að afla sér fjár. Desiree afplán­ar nú 20 ára dóm fyr­ir morð að yf­ir­lögðu ráði sem hún ját­aði. Dóm­ur­inn var kveð­inn upp 20. októ­ber 2005.

Sagði Desiree fyr­ir rétt­in­um í gær að Willie hefði boðið henni 100.000 rand (936 þús­und kr. á þáver­andi gengi) ef hún vildi aðstoða hann við að myrða Gísla. Willie sýndi henni banka­yf­ir­lit Gísla með þre­faldri þeirri inni­stæðu. Í fyrstu kvaðst Desiree hafa tekið þessu sem gríni, en fall­ist svo á að aðstoða Willie við morðið áður en Gísli færi til Banda­ríkj­anna.

Þau skipu­lögðu kveðju­veislu fyr­ir Gísla kvöldið áður en hann ætl­aði vest­ur um haf. Þar laum­aði Desiree muld­um vali­um-töfl­um í drykk Gísla, að beiðni Willies. Þau biðu þess svo að Gísli færi í lítið timb­ur­hús sem hann bjó í í Kempt­on Park að sofa. Þegar þau komu þar síðar um nótt­ina var Gísli enn vak­andi og að lesa. Þau fóru að sækja þriðja mann til að aðstoða sig og þegar þau sneru aft­ur var Gísli enn vak­andi. Ákváðu þau þá að fresta ódæð­inu þar til Gísli sneri aft­ur frá Banda­ríkj­un­um.

Líkið sett í tunn fyllt af steypu

Meðan Gísli dvaldi þar bað Willie Desiree að út­búa símbréf þess efn­is að Gísli ætl­aði ekki að snúa aft­ur til Suður-Afr­íku. Í símbréf­inu voru einnig fyr­ir­mæli um hvernig ráð­stafa ætti eig­um hans.

Willie Theron ját­aði fyr­ir rétt­in­um að fé­græðgi hefði rekið sig til að draga fé með svik­sam­leg­um hætti af reikn­ingi Gísla í júlí 2005. Willie sætti sex ákær­um fyr­ir fjár­svik og ját­aði sig sek­an af þeim öll­um. Theron er einnig ákærður ásamt þrem­ur öðrum, eig­in­konu sinni Lindu Theron, Andre Frederick Koekemoer og Hendrik Johann­es Breedt, fyr­ir að hafa skotið Gísla til bana í maí 2005. Eft­ir morðið eru þau tal­in hafa ekið líki Gísla að húsi Breedts í Boks­burg og sett það í tunnu sem fyllt var af steypu. Þau hafa öll neitað aðild að morð­inu.

Rannsóknin umfangsmikil

Krufn­ingin leiddi í ljós að hann hefði verið skot­inn í höf­uðið. Andy Pieke, tals­maður lög­regl­unn­ar í Boks­burg, sagði í sam­tali við Frétta­vef Morg­un­blaðs­ins, að krufn­ing­ hafi farið fram um klukk­an 10 að staðar­tíma sama morgun.

Ætt­ingj­ar manns­ins, ósk­uðu eft­ir því að fá lík hans flutt til Íslands.

En lög­reglu­stjóri sagði rann­sókn­ina væri mjög um­fangs­mikil og var henni áætlað að ljúka fyr­ir 22. ág­úst 2005. Þá í kjöl­farið var svo réttað á ný í máli þeirra Des­ereé Ober­holzer og Willie Theron, sem hafa verið ákærð fyr­ir morðið. Lík manns­ins var svo að lokum fllutt heim til Íslands.

Fram kom­ur í suður-afr­ísk­um fjöl­miðlum í dag að Henkie Breedt, hús­eig­and­inn í Boks­burg sem fann lík Gísla Þorkels­son­ar um helg­ina, hafi sagt lög­reglu að hann hafi um pásk­ana farið í úti­legu ásamt Gísla og þeim Des­ereé Ober­holzer og Willie Theron, sem hafa verið ákærð fyr­ir morðið á Gísla.

Sagði Breedt að Gísli hefði þá til­kynnt þeim að hann ætl­aði til Banda­ríkj­anna og varð það að sam­komu­lagi að þau Ober­holzer og Theron myndu aka Gísla á flug­völl­inn og sækja hann þegar hann kæmi frá Banda­ríkj­un­um þar sem hann heim­sótti syst­ur sína.

Breedt sagði, að Gísli hefði ný­lega selt eina af fast­eign­um sín­um, en hann hefði verið til­tölu­lega fjáður og átt nokkr­ar fast­eign­ir. Talið er að þau Ober­holzer og Theron hafi myrt Gísla til að kom­ast yfir fé hans. Í ljós hef­ur komið að þau seldu bíl sem hann átti og reyndu að fá aðgang að banka­reikn­ing­um hans, að því er haft er eft­ir Henk Strydom, sak­sókn­ara.

Málið komst upp þegar tunnan var færð í garðinum

Málið komst upp þegar Breedt var að vinna í garði sín­um og færði til tunnu sem Theron hafði beðið hann um að fá að geyma í garð­inum. Tunn­an opn­að­ist og komu þá í ljós fæt­ur sem stóðu upp úr stein­steypu í tunn­unni.

Ober­holzer ját­aði í gær aðild að mál­inu fyr­ir frið­dóm­ara. Fram kem­ur í blað­inu The South African Star, að Ober­holzer, sem var 43 ára, hafi verið yf­ir­veguð í rétt­ar­saln­um og ekki sýnt svip­brigði. Theron, sem var 28 ára, var hins veg­ar tauga­óstyrk­ur að sjá þegar hann kom í rétt­ar­sal­inn í ökkla­járn­um í fylgd tveggja lög­reglu­þjóna.

Strydom sagði að fólkið hefði verið ákært fyr­ir morð að yf­ir­lögðu ráði og fjár­svik. Theron hafn­aði fyrst aðstoð lög­manns en síðar fóru bæði hann og Ober­holzer fram á lög­fræði­lega aðstoð. Þau lýstu því yfir, að þau myndu ekki óska eft­ir því að verða leyst úr haldi gegn trygg­ingu. Gæslu­v­arð­hald yfir þeim var fram­lengt til 22. ág­úst sama ár.

Heim­ildir:

Innlent. 1. febr­úar. 2007. Réttað vegna morðs á Íslend­ingi í Suður-Afríku. Morg­un­blaðið.

Innlent. 14.júlí. 2005. Sá sem fann lík Gísla þekkti hann og meinta morð­ingja. Morg­un­blaðið.

Innlent. 14. júlí. 2005. Staðfest að Íslend­ingur var skot­inn í höf­uðið. Morg­un­blaðið.

Innlent. 13. Júlí. 2005. Var myrtur við kom­una frá BNA. Vísir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina