Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sigurgeir Pétursson togaraskipstjóri með 95 manna áhöfn: Á reki í ofsaveðri á Indlandshafi í viku

Sigurgeir Pétursson togaraskipstjóri með 95 manna áhöfn: Á reki í ofsaveðri á Indlandshafi í viku
Sig­ur­geir og Linda P, systir hans, á góðri stundu. Linda var kjörin Ungfrú heimur á sínum tíma.

„Það fórst maður hjá okkur.“

Það er hræði­legt fyrir ungan skip­stjóra.

„Já, það var mjög erfitt. Hann var minn besti vinur líka,“ segir Sig­ur­geir Pét­urs­son í við­tali við Reyni Trausta­son en hann hefur starfað sem skip­stjóri í ára­tugi og mest fyrir erlend fyr­ir­tæki en þegar vinur hans drukkn­aði voru þeir skip­verjar á Lýtingi frá Vopna­firði.

„Við vorum á netum. Ég var 23 eða 24 ára þegar það skeði.“

Hvað bar út af?

Við náðum honum um borð sem betur fer en það var bara of seint.

„Við vorum að leggja net í blíð­skap­ar­veðri eins og það ger­ist best á vorin og það voru bara mann­leg mis­tök. Hann bara lyfti fæt­inum upp og steig inn í færið rétt við stjór­ann eða rétt við drek­ann og henti honum svo í sjó­inn og fór með honum. Það var ekk­ert hægt að gera. Við náðum honum um borð sem betur fer, en það var bara of seint.“

Þetta hlýtur að vera eitt­hvað sem býr alltaf með mönnum.

„Jú.“

Sig­ur­geir hugsar oft til þessa vinar síns.

„Mjög oft. Þetta var mjög erfitt. Hann átti ung börn.“

Þetta segir afla­skip­stjór­inn sem hefur und­an­farna ára­tugi siglt suður í höfum. Megnið af ferl­inum hefur verið suður í Suð­ur­haf­inu og Íshafinu (Suður-Íshafinu) bæði sunnan við Ástralíu og í Ind­lands­haf­inu eins og hann orðar það. Sunnan til í Ind­lands­haf­inu. Og svo sunnan við Nýja-Sjáland og sunnan við Argent­ínu. „Og síð­ustu 10-15 árin hef ég verið að vinna í Argent­ínu og frá Falklandseyj­unum og alveg suður úr öllu þar.“

Hvað þarf skip­stjóri á þessu haf­svæði helst að var­ast?

„Veðrin. Það eru mjög slæm veður á þessum svæðum. Ekki síðri en hér, en kannski öðru­vísi. Það er minna um brot­sjói og minna sem þarf að var­ast svo­leiðis kannski, en þetta er meira úti á opnu hafi, langt í burtu frá landi og stórir sjóar, miklir straumar og það breyt­ast mjög fljótt veður þarna. Þannig að maður þarf alltaf að hafa var­ann á gagn­vart veðri.“

Fundu fyrstir tannfiskinn

Sig­ur­geir Pét­urs­son, sem er frá Húsavík, er kom­inn af sjó­mönnum.

„Þetta voru allt saman útgerð­ar­menn og skip­stjórar. Geiri Péturs var í eigu föð­urafa míns; skipið og bát­arnir allir sem voru nefndir þessu nafni. Það er nefnt eftir langafa mínum eins og ég sjálfur.“

Hann byrj­aði að róa með móð­urafa sínum á trillu frá Húsavík.

„Það má segja að hann hafi verið minn aðal­kenn­ari. Hann var að leyfa mér að fara einum á trill­unni þegar ég var átta til níu ára gam­all en hann fylgd­ist alltaf með frá hafn­ar­garð­inum. Ég fór aðeins út fyrir og þurfti stundum að leggja smá­línu­búta og hitt og þetta.“

Lá alltaf fyrir að hann yrði sjó­maður?

„Ég hef í raun­inni aldrei hugsað um neitt annað. Þetta bara kom af sjálfu sér.“

Hann seg­ist hafa verið skip­stjóri á tveimur Lýtingum senni­lega í fjögur ár áður en hann flutti út.

„Ég hitti nýsjá­lenska konu og ætl­aði að taka mér frí í ár og skoða heim­inn og vera á Nýja-Sjálandi í 12 mán­uði. Það var planið. Og það var í jan­úar 1990.“

Hann flutti aldrei heim.

„Nýja-Sjáland er bara svo óskap­lega gott land að búa í og þar er gott fólk. Mér hefur alltaf liðið vel þar, alveg frá upp­hafi.“

Er Nýja-Sjáland ekki svipað og Ísland?

„Að mörgu leyti, en samt svo­lítið öðru­vísi. Svipað að sumu leyti. Náttúran, fjöllin og hafið. Það er mikið um sjó­sókn þarna. Þetta er líkt að mörgu leyti. Afskap­lega langt í burtu frá öðrum löndum nema Ástralíu.“

Sig­ur­geir fékk svo starf í Ástralíu og þar sam­þykktu þeir rétt­indin.

Honum bauðst atvinnu­tæki­færi.

„Þetta byrj­aði svo­lítið skringi­lega. Ég sótti um starf þegar ég kom fyrst til Nýja-Sjálands og fór sem háseti; tók fyrsta starf sem ég gat fengið og fór á tog­ara sem háseti. Svo kom fljótt upp að þeir vildu að ég yrði stýri­maður en þá kom það upp að Nýja-Sjáland við­ur­kenndi ekki íslensku rétt­indin.“ Sig­ur­geir fékk svo starf í Ástralíu og þar sam­þykktu þeir rétt­indin. „Það eig­in­lega leiddi mig í þessi stóru skip, þennan stóra frysti­tog­ara sem var fyrsti stóri frysti­tog­ar­inn í Ástralíu og mér bauðst skip­stjóra­staða þar.“

Skip Sig­ur­geirs Pét­urs­sonar, TAI-AN

Þeir voru fyrstir til að finna tann­fisk­inn í Suð­ur­haf­inu. „Það var bara ævin­týri pen­inga­lega séð fyrir bæði áhöfn og útgerð.“

Hvað með að Sig­ur­geir hafi slegið heims­met í afla?

„Það var talað um það. Ég veit ekk­ert hvort það er rétt eða ekki.“

Sig­ur­geir er bróðir Lindu Pét­urs­dóttur sem var kjörin Ungfrú heimur á sínum tíma. Heims­meist­ari í feg­urð og hann í afla­brögðum.

„Það má segja það.“

Sig­ur­geir og Linda P, systir hans, á góðri stundu. Linda var kjörin Ungfrú heimur á sínum tíma.
Ég hafði alltaf hugsað mér að reyna að kom­ast ungur í land.

Sig­ur­geir seg­ist hafa verið í um átta ár á fyrr­nefndum tog­ara. „Svo keyptu þeir annað skip sem ég fór á en hjá þess­ari útgerð var ég í senni­lega níu ár. Þá hætti ég. Ég hafði alltaf hugsað mér að reyna að kom­ast ungur í land. Mig lang­aði að fara í land og reyna fyrir mér í landi. Mér bauðst að taka við sem fram­kvæmda­stjóri Hamp­iðj­unnar á Nýja-Sjálandi og ég fór í það og hafði gaman af en sjór­inn tog­aði. Ég var í því í ann­að­hvort tvö eða þrjú ár, en þá fór ég aftur út á sjó.“

Um tveggja mánaða túrar

Hann fékk starf í Argent­ínu. Árið var 2007.

„Og ég er búinn að vera þar síðan; á sama skip­inu.“

95 manna áhöfn. Og hann er karl­inn í brúnni.

„Það fylgja þessu nátt­úr­lega áskor­anir að vera með svona marga menn í áhöfn. Uppi­staðan í áhöfn­inni eru Argent­ínu­menn og svo Kín­verjar. Við höfum ekki átt í neinum vand­ræðum með þá. Þeir eru mjög hlýðnir og fara eftir reglum sem eru settar – bæði Argent­ínu­menn­irnir og Kín­verjarnir. Það er aldrei drykkja á þeim þegar við erum í landi og aldrei úti á sjó, nátt­úr­lega. Það er bannað að vera með áfengi um borð.“

Það eru engar konur í áhöfn­inni.

„Við erum ekki með konur um borð og það er helst út af því að Kín­verjarnir líta þannig á það að það sé ekki góð lukka að vera með kven­menn um borð. Og Argent­ínu­menn eru í raun­inni svolitlar karl­rembur.“

Íslend­ing­ur­inn segir að það hafi tekið tíma eftir að hann fór að vinna um borð í þessu skipi að fá áhöfn­ina til að virða sig. „Það voru engir útlend­ingar að koma og segja þeim fyrir verkum. Ég er búinn að eyða um 25 árum í að vinna með alls lags þjóð­ernum og hef alltaf byrjað á að reyna að koma mér vel við inn­fæddu menn­ina. Maður gerir ekk­ert einn; sér­stak­lega á svona stórum skipum. Þannig að maður á að byrja á því að sanna sig og fá þá svo til að vinna fyrir sig og vera ánægða með að vinna fyrir þig. 70-80% af áhöfn­inni sem er um borð núna voru um borð þegar ég byrj­aði. Þannig að það eru mjög litlar manna­breyt­ingar. Mikil reynsla um borð og hefur gengið vel. Þannig að þeir eru ánægðir og hafa það gott.“

þegar ég var að fiska í Ástralíu þá tók það okkur sjö til níu daga að sigla á miðin.

Þetta eru um tveggja mán­aða túrar og álag á hvern og einn.

„Já. Þetta er það. Þar sem við vorum að fiska í Suð­ur­haf­inu þegar ég var að fiska í Ástralíu þá tók það okkur sjö til níu daga að sigla á miðin. Það eru alltaf suð­vest­an­áttir þannig að maður er alltaf tveimur dögum fljót­ari heim. En í Argent­ínu vorum við yfir­leitt 18-24 tíma á miðin, en þetta er mjög afskekkt allt saman og það sem þarf alltaf að hafa í huga eins og þarna við Argent­ínu er að við erum að fiska við suð­aust­ur­strönd og suð­ur­hluta Argent­ínu Atl­ants­hafs­megin og alveg niður að Cape Horn og þarna eru engar þyrlur til taks. Það eru engar björg­un­ar­sveitir í raun og veru, þannig að maður þarf alltaf að hafa það í huga.“

On your own

Þeir lentu í slysi. Það varð spreng­ing um borð.

Ég setti á hann bruna­smyrsli um nán­ast allan lík­amann.

„Það var að vísu í Ástralíu, en við lentum í því að það var spreng­ing í töflu um borð í skip­inu, raf­magns­töflu. Aðaltöfl­unni í vél­ar­rúm­inu. Og nátt­úr­lega slokkn­aði á öllum ljósum og við fengum algert „black out“. Það vildi svo óheppi­lega til að það sprungu upp allar hurð­irnar á töfl­unni og vildi svo óheppi­lega til að þriðji vél­stjór­inn okkar stóð bara tvo metra í burtu og lenti í eld­tung­unni miðri. Það var annar vél­stjóri sem stóð hinum megin í vél­ar­rúm­inu og hann sagði að mað­ur­inn hefði lyfst upp og henst fjóra til fimm metra í loft­inu aftur eftir vél­ar­rúm­inu. Hann slas­að­ist því miður mjög mikið. Skað­brennd­ist. Og það var mjög erfitt. Við vorum í 38 tíma að sigla í land og koma honum undir lækn­is­hendur. Það voru mjög erf­iðir tímar. Við vissum ekk­ert hvort hann myndi lifa það af, því hann var gjör­sam­lega brenndur frá toppi til táar. Við byrj­uðum á að kæla hann og ég var inni hjá honum allan tím­ann. Ég setti á hann bruna­smyrsli um nán­ast allan lík­amann og svo vafði ég honum inn í plast til að koma í veg fyrir að það kæm­ist ein­hver drulla inn í sárin.

Lækn­ir­inn sem tók á móti honum þegar við komum í land var svo­lítið hissa. Hann hringdi svo í mig nokkrum vikum seinna og sagði að þetta hefði svín­virkað því að það voru mjög lítil ör á lík­am­anum og ekk­ert í and­lit­inu. Þannig að hann lifði þetta af, en ég held að hann hafi verið í sex mán­uði á sjúkra­húsi á meðan hann var að jafna sig. Hann náði sem betur fer fullum bata. En hann fór aldrei aftur til sjós.

Svona hlutir geta því miður skeð. Þetta er hættu­legt starf sem við erum í.“

Þetta er ekki eins og við Íslands­strendur; þú smellir fingri og þá kemur þyrla.

Maður sá strax að það var ekki nokkur von að finna menn­ina.

„Nei, þetta er mjög mikið öðru­vísi. Eins og í Argent­ínu; kerfið er allt mjög erfitt líka. Það er erfitt að fá allt gert. Í síð­asta túr hjá mér vorum við við akk­eri að bíða eftir lóðsi og þá voru tveir menn á „boggie“-bát utan til í firð­inum og það hafði ekk­ert heyrst í þeim í heilan sól­ar­hring. Við vorum beðnir um að svip­ast um eftir þeim en það var ekk­ert skipu­lag á leit­inni og maður sá strax að það var ekki nokkur von að finna menn­ina. Þeir fund­ust ekk­ert.

Það er mjög lítið hugað að örygg­is­málum og ekk­ert skipu­lag.

Ef eitt­hvað ger­ist þá ertu „on your own“.“

Vopnaðir verðir

Einu sinni urðu þeir vél­ar­vana.

„Ég man að ég sendi út „Pan Pan call“ og þá vorum við 1.560 mílur frá næsta drátt­ar­báti sem gat komið og náð í okkur. Hann var frá Cape Town í Suður-Afríku og svarið sem við fengum var að hann gæti verið hjá okkur eftir átta sól­ar­hringa og sex klukku­tíma. Ef allt gengi að óskum. Það var mjög slæmt veður og veð­ur­spá úti í miðju hafi; syðst í Ind­lands­haf­inu. Suð­ur­haf­inu. Þannig að við vorum þar á reki í rúma viku. Það var stór­sjór og megnið af þessum tíma var 8-12 metra öldu­hæð þannig að það var óhemju­velt­ingur. Það valt á byrð­ingum enda­laust allan tím­ann.“

85 metra langur tog­ari.

Mönnum var ekki orðið sama, sér­stak­lega óvan­ari hluta áhafn­ar­innar. „Þeim leið bara ekk­ert orðið vel, þannig að ég var með dag­lega fundi niðri í messa og við ræddum hlut­ina. Reyndi aðeins að róa liðið.“

22 dagar liðu frá því það drapst á vél­inni og þar til þeir komu til Cape Town.

Svo kom hjálpin.

„Svo kom hjálpin og eftir það var allt í lagi. Það slitn­aði að vísu tví­vegis þegar verið var að draga okkur í land.“

22 dagar liðu frá því það drapst á vél­inni og þar til þeir komu til Cape Town.

Menn hafa verið orðnir þreyttir.

„Ég við­ur­kenni það; ég held ég hafi aldrei sofið meira en hálf­tíma í einu allan þennan tíma.“

Þetta var árið 1996 eða 1997.

„Við vorum ekki með inter­net og það var erfitt að ná tal­stöðv­ar­sam­bandi; við vorum svo langt í burtu. Við vorum að senda telex á milli; svo­lítið öðru­vísi en menn eru gera í dag. Sam­skiptin.“

Hvað kom fyrir vél­ina? „Stýri­mað­ur­inn var að kasta í vondu veðri og hann fór ekki nógu hratt; var að kasta upp í vind­inn og var að slaka út troll­inu og það kom brot­sjór á okkur og ýtti okkur yfir trollið sem end­aði í skrúf­unni. Það var ekk­ert hægt að gera; við vorum með hálft trollið í skrúf­unni. Það var ekk­ert við því að gera.“

Besta lausnin er að veiða bara and­skoti mikið og halda þeim við vinnu.

Hvað með móral­inn um borð í svona löngum túrum? Er skip­stjór­inn ekki að fást við alls konar mál? Eiga menn ekki stundum erfitt?

„Jú, en besta lausnin er að veiða bara and­skoti mikið og halda þeim við vinnu. Það er besta pillan við þessu. Ef menn eru þreyttir og eru að vinna alla vakt­ina sína þá eru þeir ekk­ert mikið að hugsa um slíkt. Þá fara þeir að borða og svo að sofa. Ef það koma dagar eða vikur þar sem er lít­ill afli þá verður oft meira um kvart­anir og vand­ræði.“

Þá kemur þung­lyndið.

„Þá kemur þung­lyndið.“

Sig­ur­geir nefnir Covid. Síðustu tvö og hálft ár.

„Það er búið að vera mjög erfitt. Við vorum að lenda í því að vera tvo mán­uði úti á sjó og svo var farið upp að bryggju að landa og það mátti eng­inn fara í land. Það var ekki hægt að skipta um áhöfn og við fórum bara út aftur. Meira að segja var það þannig þarna suður frá, að það voru vopn­aðir verðir á bryggj­unni. Það var mjög erfitt og ég var um borð í fimm og hálfan mánuð án þess að kom­ast upp á bryggju. Það var mjög erfitt og þetta eru nátt­úr­lega gömul skip sem við erum á þannig að það er lítið um að vera um borð.“

Það er ekki heilsu­rækt um borð.

„Nei, ekk­ert sem ein­hver myndi sætta sig við á íslenskum skipum. Þetta var bara mjög erfitt og það versta við þetta var óvissan. Við fórum út – og fengjum við þá að fara heim eða yrði það annar túr?“

Vopnaðir verðir voru á hverjum gangi.

Áhöfnin smit­að­ist af Covid. Tvær áhafnir. Sú fyrri var sett í ein­angrun og viku síðar kom nýja áhöfnin um borð og nokkrum dögum síðar fóru menn að veikj­ast. Það greindust allir jákvæðir nema þrír. Farið var í land og áhöfnin sett í ein­angrun á hót­eli. Vopnaðir verðir voru á hverjum gangi og segir Sig­ur­geir að ef dyr voru opn­aðar þá hafi þeir komið hlaup­andi.

Sumar það sem eftir er

Sig­ur­geir horfir heim. Hann sem er búinn að búa erlendis í ára­tugi horfir heim hvað íslenska sum­arið varðar. Búinn að festa kaup ásamt öðrum á Sómabáti og ætlar að vera á strand­veiðum í sumar. Sigla frá Flatey á Skjálf­anda þar sem stór­fjöl­skyldan á hús. Þar eru ræt­urnar.

Hann er 56 ára og segir að síð­ustu þrjú ár hafi tekið mikið á. Ekki bara á hann heldur líka fjöl­skyld­una. Konuna. Vitandi aldrei hvenær hann kemur aftur heim.

Hjónin Sarah og Sig­ur­geir vilja njóta íslensku sum­r­anna í fram­tíð­inni.

Konan hans er Sarah. Frá Wales. „Hún er búin að búa á Nýja-Sjálandi í rúm 30 ár eins og ég og þetta hefur líka reynt mjög á börnin þótt þau séu upp­komin. Það er erfitt fyrir þau að vita aldrei hvenær maður verður heima. Og aldrei hægt að skipu­leggja nein ferða­lög eða gera nokkurn skap­aðan hlut.“

Við eigum bæði for­eldra sem eru ekk­ert að yngj­ast.

Þau ætla jú að vera meira hérna á sumrin. Hérna á Íslandi. „Þannig að þá verðum við í sumri það sem eftir er. Við eigum bæði for­eldra sem eru ekk­ert að yngj­ast, þannig að maður reynir að njóta meiri tíma með þeim þegar maður er búinn að búa hinum megin á hnett­inum í fjóra ára­tugi.“

Það verður þá sumar það sem eftir er.

„Það er mein­ingin.“

Sjá má við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við