Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fannst stungin til bana á heimili sínu: „Mamma verður samt alltaf mamma mín“

Fannst stungin til bana á heimili sínu: „Mamma verður samt alltaf mamma mín“
Málið komst í hámæli í fjöl­miðlum árið 2004. Einari þykir ýmis­legt hafa verið skrum­skælt á þeim tíma. Meðal ann­ars hafi verið gefið sterk­lega í skyn að heim­il­is­að­stæður hefðu verið með besta móti áður en móðir hans myrti systur hans. Því fer víðs fjarri. Mynd/Skjáskot. Vísir

Ellefu ára stúlka fannst stungin til bana á heim­ili sínu á Hagamel í Reykja­vík í júní árið 2004. Móðir stelpunnar, hafði veist að dóttur sinni og bróður hennar með hníf.

Bróður stelpunnar tókst að flýja úr íbúð­inni og fór yfir til vinar síns sem hringdi á lög­regl­una. Er lög­reglan kom heim að heim­ili þeirra fann hún stúlk­una látna í rúmi sínu, en hún hafði verið stungin marg­sinnis. Móðirin var sjálf illa særð þar sem hún hafði stungið sjálfa sig eftir að hafa sært son sinn og banað dóttur sinni.

Konan var færð á spít­ala þar sem hennar var gætt, en þaðan var hún síðan færð að Sogni. Konan hafði áður reynt að fremja sjálfs­víg og hafði einnig sagt í návist ann­arra að frekar myndi hún drepa sig og börnin sín en að þau yrðu tekin af henni. Kennarar barn­anna höfðu að auki lýst yfir áhyggjum af vel­ferð þeirra. Konan var dæmd óska­hæf og gert að sæta örygg­is­gæslu á rétt­ar­geð­deild­inni að Sogni.

Enginn sagt honum að litla systir væri látin

Ellefu ára stúlka stungin til bana. Þannig hljóm­aði for­síðu­fyr­ir­sögn Frétta­blaðs­ins þann 1. júní árið 2004. Morg­un­inn áður hafði móðir Einars Zeppelin Hild­ar­sonar myrt litlu systur hans og reynt að drepa hann.

Þegar blaðið barst inn um bréfalúgur lands­manna lá Einar sof­andi á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Hann var með stungu­sár í kviðnum, í öxl og síðu. Enginn hafði enn sagt honum að litla systir hans, væri látin.

„Ég fór á Korn-tón­leika um kvöldið. Þetta voru góðir tón­leikar á sínum tíma. Þegar ég kom svo heim fann ég strax að mamma var dálítið hástemmd. Hún sagði við mig að út af tón­leik­unum yrðu örugg­lega mikil læti í bænum og bað mig um að taka skaft af ryksugu og skorða undir hurð­ar­hún­inum á úti­dyra­hurð­inni. Hafandi alist upp með mömmu minni þá var maður vanur alls konar vit­leysu. Hún sagði eitt­hvað svona og maður var alveg hættur að ríf­ast um það.“

Maður lærir að lifa með því

Einari sagði í sam­tali við Vísi árið 2015 að honum þætti vænt um mömmu sína og hefur fyrir löngu sætt sig við for­tíð­ina.

„Maður lærir að lifa með því og skilja að þetta er bara sjúk­dómur. Kannski munu ein­hverjir lesa þetta og vita að það er von. Kannski munu aðrir lesa þetta sem eru að díla við fjöl­skyldu sem er veik.“


„Það er mjög erfitt að eiga í sam­skiptum við veikt fólk. Mamma verður samt alltaf mamma mín og það er ekk­ert sem breytir því. Ef mig vantar móð­ur­leg ráð þá tala ég við hana því ég á enga aðra mömmu. Og ég reyni að styðja hana eins og ég get svo henni nái að líða vel. Að sjálf­sögðu þykir mér vænt um hana og það mun aldrei breyt­ast sama hvað skeður. Ég geri það sem ég get til að vera til staðar fyrir hana. Hún er ynd­is­leg mann­eskja. Hún er mjög góð kona og vill öllum vel. Hún er bara lasin.“

Heim­ildir:

Snærós Sindra­dóttir. 18. júlí 2015. Mamma reyndi að drepa mig. Vísir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina