Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ófremdarástandið á húsnæðismarkaðnum versnar enn: „Má helst líkja við „villta vestrið“ hér í den“

Ófremdarástandið á húsnæðismarkaðnum versnar enn: „Má helst líkja við „villta vestrið“ hér í den“
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Óhætt er að full­yrða að algjört ófremd­ar­á­stand ríki, eins og svo oft áður, á íbúða­mark­aði hér á landi.

Eins og staðan er í dag hafa íbúðir sem aug­lýstar eru til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu aldrei nokkurn tím­ann selst eins hratt, en það herma margar öruggar heim­ildir Mannlífs innan fast­eigna­mark­að­ar­ins.

Fjölmörg dæmi er að finna þar sem fólk allt að því slæst um íbúðir og yfir­boð eru á hverjum degi í aug­lýstum fast­eignum til sölu.

Áður­nefndur fast­eigna­sali sagði í sam­tali við Mannlíf að „orr­ustan um íbúð­irnar er í fullum gangi og ég get nefnt sem dæmi að þeir fast­eigna­kaup­endur sem kíktu við á opið hús nýlega, var ekki skemmt, enda gríð­ar­lega margir von­góðir kaup­endur um nán­ast hverja ein­ustu íbúð hér á landi sem skráð er á sölu; sem þýðir að til að hreppa hnossið þarf fólk klár­lega að yfir­bjóða mjög hressi­lega ætli það sér að næla í íbúð. Þessu má helst líkja við „villta vestrið“ hér í den; og það var nú ekki gott ástand. Það er bara þannig að stjórn­völd, ríki og bær, verða að byggja mikið og verða að byggja hratt, en samt vanda til verka.“

Slíkt ástand eins og nú ríkir á Íslandi veldur eðli­lega mik­illi hækkun íbúð­ar­verðs, sem var fyrir að flestra mati alltof hátt. Og nú er að mynd­ast flösku­háls og sam­kvæmt fast­eigna­sölum er eina ráðið gegn honum að byggja fleiri íbúðir til sölu og/eða leigu.

Framboð íbúða er sorg­lega lítið og oft bit­ist um íbúðir á sölu, eins og áður var nefnt.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í mars á þessu ári var með­al­kaup­verð um það bil 10 millj­ónum króna hærra en á sama tíma í fyrra – og þetta er veru­leg hækkun fyrir almúg­ann í land­inu.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra skip­aði starfs­hópur sem hefur nú lagt til að á næsta ára­tug verði byggðar 35 þús­und íbúðir til þess eins að mæta hinni gíf­ur­legu eft­ir­spurn og laga hina hræði­legu stöðu sem er á hús­næð­is­mark­aðnum á Íslandi í dag.

Það fólk sem er að berj­ast með kjafti og klóm og hefur unnið myrkr­anna á milli til þess að kom­ast í góða íbúð verður því að bíða þol­in­mótt í nokkuð langan tíma, sem er ekki eft­ir­sókn­ar­vert; því leigu­mark­að­ur­inn er nán­ast eins og í er mjög óáreið­an­legur og nán­ast ómögu­legt að finna íbúð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem boðið er upp á lang­tíma­leigu sem er örugg og leigu­verð sann­gjarnt; þar er mán­að­ar­leiga leiga miklu hærri en sem nemur mán­að­ar­legum afborg­unum af íbúð, já og öryggið víða minna en ekki neitt.

Því er ekki óeðli­legt að margir vilji festa kaup á íbúð; eiga fyrir góðri útborgun og stóð­ust greiðslu­mat með glans. Þetta fólk er með allt til íbúða­kaupa klappað og klárt en vegna ömur­legs ástands á hús­næð­is­mark­að­inum nær mik­ill minni­hluti fólks að kaupa íbúð, því yfir­boðin á hverja ein­ustu íbúð eru mörg og alls ekki allir sem ráða við þau.

Eins og staðan er nú, er gríð­ar­lega mik­ill skortur á íbúðum, og þá sér­stak­lega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu; margir von­góðir kaup­endur sem hafa leitað lengi að nýju heim­ili þurfa því að bíða enn um stund. Og jafn­vel tölu­vert lengur en það, eða leita til nokkuð nálægra sveita­fé­laga þar sem íbúða­verð er mun lægra og fram­boð oft með ágætum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina